Pressan - 05.03.1992, Side 39
FIMMTUDAGUR PRESSAN 5. MARS 1992
39
AÐ
Þessa dagana er nokkuð almennt álit að íslendingar séu eina ferðina enn dálítið hnípin þjóð í vanda. En þarf það
að vera svo? Eru ekki til ýmsar patentlausnir mitt í hallærinu? Dugir að segja fólki að brosa, syngja og vera
jákvætt eða þarf að marka miklu betri stefnu í skólamálum, atvinnumálum og sjávarútvegi? Er kannski nóg að
segja stjórnmálamönnum og fjölmiðlum að vera til friðs? PRESSAN leitaði til fimmtíu hugmyndaríkra íslendinga
og bað þá að leggja af mörkum hugmyndir sem gætu orðið til þess að bæta þjóðlífið - eða bjarga landinu.
Tómas R. Einarsson
djasstónlistarmaður
„Það á að vinna gegn prívat-
poti og sívaxandi stéttaskiptingu
svo að mesti launamunur í land-
inu verði einn á móti tveimur. I
öðru lagi á að hreinsa landið af
bandarískum her,
Katrín Baldursdóttir
(Katý) likamsræktarkona
„Vinna að jákvæðni og sam-
heldni og styðja hvert annað, það
er alltof mikið gert af því að sópa
vandamálunum undir teppið,
samanber fjöldi sjálfsvíga og
fleira. Byggjum upp heilsupar-
adís á Islandi; heilbrigt þjóðfélag
í íslensku landi.“
Jóhannes Sigurjónsson
ritstjóri Víkurblaosins, Húsavík
„Það ætti að draga úr miðstýr-
ingu firá Reykjavík og skipta
landinu upp í tiltölulega sjálf-
stæð fylki eða héruð. í öðru lagi
ætti að taka upp á grunnskóla-
stigi einhvers konar kennslu í
heimspeki; sjálfsþekkingu eða
sjálfstjóm, sem mætti vera á
kostnað stærðffæði og kristni-
fræði.“
Gérard Lemarquis
kennaji
„Sætta sig við ísland eins og
það er, læra að elska það og njóta
þess. Uppfmningagleði manna á
að fara í fiskinn, ffekar en ópem-
söng, við eigum að stöðva hall-
arbyggingar og hætta að vera ei-
líft bílandi, njóta heldur um-
hverfisins og veðurfarsins. Lát-
um af skömmustutilfinningum
okkar og leyfum slor- og rokró-
mantík að grípa þjóðina."
Sigrún Stefánsdóttir
fréttamaöur
„Okkur fullorðna fólkinu er
ekki viðbjargandi og þess vegna
er lykilatriði að hlú betur að
bömunum og menntun í land-
inu.“
Sævar Karl Ólason
verslunarmaður
„Að fólk hætti almennt þess-
um barlómi og ástæðulausri
svartsýni.“
Helgi Ólafsson
skákmaöur
„Þegar allur hvati í þjóðfélag-
inu gengur út á það að menn
safni fé í stómm stfl og geymi í
eigin vasa til að tímgast er það
engum til gagns. Menn ættu að
finna sér leið út úr þessu þannig
að fjármunum verði varið til
uppbyggingar. Á verðbólgutím-
um var þó ýmislegt brallað. En
eins og sagt var á hippatímanum:
„Power to the people.““
Páll Óskar Hjálmtýsson
söngvari
„Island verður fyrst og ffemst
bætt með fólkinu. Hættum að
tala illa hvert um annað. Hættum
að vera svona meðvituð um sjálf
okkur og burt með þessa veggi
sem við sláum í kringum okkur.
Eignumst betri böm og ölum
þau betur upp fyrir framtíðina."
Ómar Ragnarsson
fréttamaöur
„Bæta landið en gera það að
ferðamannalandi í leiðinni, þ.e.
hraðbraut Reykjavík—Akureyri
um Kerlingarfjöll. Þama opnast
alveg nýir möguleikar í sam-
bandi við verslun, samgöngur og
þjónustu og gjaldeyristekjur
aukast. Seljum útlendingum Is-
landsferð, þjónustu í frábæm
heilbrigðiskerfi, einstæða nátt-
úmfegurð og aðstöðu til útivistar
og heilsubótar."
Halldór Ásgeirsson
myndlistarmaöur
„Að leggja niður þjóðarremb-
inginn og minnimáttarkennd ís-
lendinga um leið. Sókn eftir ver-
aldlegum gæðum ætti að minnka
og leggja aukna áherslu á hug-
læga leikfimi. Það á að fyrir-
byggja völd meðalmennskunnar
og jafnffamt virða og styðja
listamenn."
Guðrún Ásmundsdóttir
leikkona
„Ef við myndum öll á sömu
stundu og á sama degi biðja til
Jesú Krists, höfundar trúar okk-
ar, biðja hann að blessa landið
okkar og fólkið sem í því býr,
fengi allt nýtt streymi. Sár jarð-
arinnar myndu gróa, því virðing
fýrir henni myndi fá rótfestu í
hjörtum okkar, allt yrði nýtt.
Gamli doðinn og sljóleikinn
myndi hverfa. Kristindómurinn
er eins og bankainnstæða sem
við eigum en höfum aldrei haft
rænu á að taka í notkun “
„Því meira sem við sjáum af
öðrum löndum því ánægðari
hljótum við að verða með allt
það góða í landinu. Íslendingar
ættu því að ferðast meira og
verða þannig hamingjusamari
með landið. Það er árátta að
halda að grasið sé alltaf grænna
hinum megin við girðinguna."
flrnór Björnsson
næturlifsfrömuður og sálfræöinemi
„Einhvers konar innra eftirlit
hjá lögreglunni og stjómmála-
mönnum. Að yfirvöld fari að
skilja fólk og treysta því í stað
þess að halda því niðri, og þar af
leiðir að rýmka afgreiðslutíma
skemmtistaða og annað slíkt.
Bera á meiri virðingu fyrir „pró-
fessjónalisma" á Islandi,
minnka baktal, öfund og slúður,
en auka virðingu og ást.“
Margrét Guðmundsdóttir
kvikmyndaleikstjóri í Þýskalandi
„Flest er ágætt og íslensk
bjartsýni það besta. Hins vegar
mættu missa sín nokkrar persón-
ur af karlkyninu sem eiga það til
að belgja sig út. Þá ætti að taka,