Pressan - 19.03.1992, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. MARS 1992
11
N
J. ^ efnd sem hefur fjallað um
framtíðarskipan þróunaraðstoðar
Islendinga gerir að tillögu sinni að
Þróunarsamvinnu-
stofnun verði gerð
að deild eða skrif-
stofu í utanríkisráðu-
neytinu, enda heyri
til dæmis flestar
stofnanir Samein-
uðu þjóðanna undir
það. Nú starfar stofnunin sjálfstætt
og telur nefndin að margvíslegt
óhagræði og aukakostnaður hljótist
af því, enda er hún ekki stór að vöxt-
um. Mun Björn Dagbjartsson, for-
stjóri stofnunarinnar, vera heldur
hliðhollur þessum hugmyndum,
þótt reyndar heyrist þær mótbárur
að ráðuneytisdeild eigi ekki að sjá
um framkvæmdir á borð við þær
sem Þróunarsamvinnustofnun
stendur í.. .
*
^^^skarsverðlaunin verða afhent
aðfaranótt 31. mars sem kunnugt er.
Athöfnin verður sýnd í beinni út-
sendingu á Stöð 2, en Stjörnubíó
kostar útsendinguna. Það er ekki að
ástæðulausu að Stjörnubíó sér sér
hag í að borga þetta, því kvikmyndir
sem það hefur sýnt eða mun sýna á
næstunni hafa fengið 35 tilnefning-
ar til verðlauna. Áður en útsending
hefst verður klukkustundarlöng
kynning á kvikmyndum Stjörnu-
bíós...
✓
I Bæjarins besta er sagt frá því að
bæjarráð Bolungarvíkur hafi ákveð-
ið að fella niður gjöld vegna nýrra
atvinnu- og þjónustufyrirtækja í
bænum. í samþykkt bæjarstjórnar
segir meðal annars að heimilt sé að
fella niður fasteignaskatt, vatns-
gjöld, holræsagjöld og aðstöðugjöld
í allt að fimm árum. Akvörðun þessi
er tekin í því skyni að örva nýsköp-
un í atvinnulífinu ...
J-5æjarsjóður Ólafsvíkur rekur
sem kunnugt er Snæfelling hf. Fyrir-
tækið hefur skrifstofuaðstöðu í
tveimur húsum, í öðru er Ingólfur
Aðalbjörnsson framkvæmdastjóri
en Jónas Guðmundsson útgerðar-
stjóri í hinu. Svo vill til að húsin eru
tekin á leigu, annað er í eigu fram-
sóknarfélags Ólafsvíkur en hitt í
eigu sjálfstæðisfélagsins. Báðir
flokkarnir eru í meirihlutaaðstöðu,
með Alþýðubandalaginu, sem ekk-
ert hús á tii að leigja ...
Hraðnámstækni
fyrir börn
Lífleg og skemmtileg enskunámskeið fyrir börn.
Tónlist, leikir og ýmis uppátæki í hverjumtímat
Nánari upplýsingar f síma 10004
MÁLASKÓLINN MÍMIR
í EIGU STJÓRIMUNARFÉLAGS ÍSLANDS