Pressan - 19.03.1992, Blaðsíða 42

Pressan - 19.03.1992, Blaðsíða 42
42 FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. MARS 1992 LtAtí\ E'Uía A cJk <fvt4$AsA> A Þú lætur Herdísi Þorgeirs- dóttur, ritstjóra Heimsmyndar, ganga á eftir þér mánuðum saman með beiðni um forsíðuviðtal. UPPLEIÐ Þú kemur í „Hina hliðina" í DV. NIÐURLEIÐ Þú sést með franskri kvikmyndastjömu á veitinga- staðnum Við Tjömina. UPPLEIÐ Þú sést með skandinavískum embættismönnum í Perlunni þar sem þú borðar á kostnað ríkisins. NIÐURLEIÐ Skúli Þorvaldsson á Holtinu kemur og spyr þig hvernig þér hafi líkað maturinn. UPPLEIÐ Barþjónamir á Fógetanum þekkja þig með nafni og vita hvað þú drekkur. NIÐURLEIÐ Guðbergur Bergsson sést hlæja að brandara sem þú segir í kokkteilboði. UPPLEIÐ Þú sést hlæja að brandara sem Jón Sigurðsson segir í mót- töku á vegum iðnaðarráðuneytisins. NIÐURLEIÐ Þú varst einn af stofnfélögum styrktarfélags Islensku óper- unnar. UPPLEIÐ Þú varst einn af stofnfélögum Borgaraflokksins. NIÐURLEIÐ Þú sést á vellinum með Eyjólfi Sverrissyni. UPPLEIÐ Þú sést á vellinum með Guðmundi Torfasyni. NIÐURLEIÐ Sævar Karl tekur þig tali úti á götu. UPPLEIÐ Ami Johnsen heilsar þér kumpánlega úti á götu. NIÐURLEIÐ Þín er getið í ævisögu Errós. UPPLEIÐ Þú ert fyrirmynd einnar persónunnar í skáldsögu Jóns Ottars Ragnarssonar. NIÐURLEIÐ Þér eru gerð skil í ættfræði- y dálki DV án þess að þú eða ættingjar þínir hafi beðið um það. UPPLEIÐ Þú ert tekinn fyrir í dálki Morgunblaðsins, „Hvar eru þau nú?“ NIÐURLEIÐ Þómnn Valdimarsdóttir býðst til að skrifa ævisögu þína. UPPLEIÐ Gullveig Sæmundsdóttir skrifar ævisögu þína. NIÐURLEIÐ Þú ferð út að borða með Ólafi Jóhanni Ólafssyni hjá SONY. UPPLEIÐ Þú sést í strætisvagni við lestur á nýjustu skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar rithöfundar. NIÐURLEIÐ Björk Guðmundsdóttir sendir þér áritaða nýjustu hljómplötu Sykurmolanna. UPPLEIÐ Ómar Ragnarsson sendir þér áritað eintak af skáldsögu sinni. NIÐURLEIÐ Ertu á uppleið eða niðurleið í samkvæmislífinu? Ertu í rétta félagsskapnum, ertu boðin(n) í aðalpartíin, verslarðu við bestu búðimar, ferðu út að borða á bestu stöðunum? Flestir láta sig þetta líklega litlu varða en fyrir þá sem leggja stund á jafn- vægiskúnstir samkvæmislífsins er nauðsynlegt, beinlínis lífs- nauðsynlegt, að hafa ákveðin vallaratriði á hreinu. Og em þess vegna drög að si fyrir samkvæmisljónin vilja ekki láta hanka sig á því sem máli skiptir. Þetta er mælikvarði á það hvort þú ert á leiðinni upp - eða niður. Grein sem þú sendir til Morgunblaðsins er birt í ramma á áberandi stað. UPPLEIÐ Grein sem þú sendir til Morgunblaðsins er birt í dálk- inum „Bréf til blaðsins". NIÐURLEIÐ Þú lendir í ritdeilum við Helga Hálfdanarson. UPPLEIÐ Þú lendir í ritdeilum við Gunnar Þorsteinsson í Krossinum. NIÐURLEIÐ Þú kemur tvo daga í röð að skoða málverkasýningu Finns Jónssonar í Listasafni Islands. UPPLEIÐ Þú sést á þremur opnunum á málverkasýningum sama daginn. NIÐURLEIÐ Vinir þínir gefa þér teikningu eftir Kristján Guðmundsson í afmælisgjöf. UPPLEIÐ Vinir þínir fá Einar Hákonarson til að mála af þér portrettmynd. NIÐURLEIÐ Jóhannes Nordal flytur aðalræðuna í afmælinu þínu. UPPLEIÐ Ásgeir Hannes Eiríksson flytur aðalræðuna í afmælinu þínu. NIÐURLEIÐ Þú hafnar aðild að Frímúrarareglunni. UPPLEIÐ Þú sækir þrisvar um aðild að Frímúrarareglunni, en er alltaf hafnað. NIÐURLEIÐ Þú kaupir alklæðnað í Peter Hadley. UPPLEIÐ Þú sést koma klyfjaður til landsins eftir verslunarferð til Newcastle. NIÐURLEIÐ Þú sést á tónleikum með Sigrúnu Eðvaldsdóttur. UPPLEIÐ Þú lætur birta mynd af þér í blöðum eftir framlag í fiðlusjóð Sigrúnar Eðvalds- dóttur. NIÐURLEIÐ Þú ferð út að borða með Kristínu Johansen. UPPLEIÐ Þú ferð út að borða með Rolf Johansen. NIÐURLF.IÐ Þú ferð út að borða á Holtinu með breskum eða frönskum sendiráðsmönnum. UPPLEIÐ Þú ferð í Kaffivagninn með rússneskum sendiráðs- mönnum. NIÐURLEIÐ Þú ert kjörinn í stjóm Eimskipafélagsins. UPPLEIÐ Þú ert skipaður í bankaráð Búnaðarbankans. NIÐURLEIÐ Þú sést á stefnumóti með Bertu Maríu Waagfjörð fyrirsætu UPPLEIÐ Þú sést á kaffihúsi að skoða myndimar af Bertu Maríu Waagfjörð í nýjasta hefti þýsku útgáfunnar af Playboy. NIÐURLEIÐ Þú sést í sundlaugunum með Vigdísi Grímsdóttur. UPPLEIÐ Þú sést í sundlaug Seltjamamess með Ólafi Ragnari Grímssyni. NIÐURLEIÐ

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.