Pressan - 30.04.1992, Síða 18

Pressan - 30.04.1992, Síða 18
18 FIMMTUDAGUR PRESSAN 30. APRÍL 1992 M E N N Amundískur bragðarefur Jón Baldvin glotti ógurlega þegar hann sagði það hlyti að vera í þágu þeirra sem vilja gera málefnaágreining í Alþýðu- flokknum eða steypa forystunni að flýta flokksþinginu. Þetta var glott refsins. Sama glott og Jón var með þegar hann sprengdi ríkisstjóm Þorsteins „Hitt er alveg víst að flokksþing krata í júní mun dæla út úr sér samþykktum um allt milli himins og jarðar. Það mun samþykkja heilagleika hins svokallaða vel- ferðarkerfis. Það mun lýsa yfir ei- lífum stuðningi við húsbréfin og Jóhönnu. Það mun setja þús- und fyrirvara við EES og Evrópu alla. Það mun setja saman harðorða kröfu- skrá í kvótamál- um. Það mun geirnegla ríkis- fjármálin.“ Pálssonar og myndaði aðra með Steingrími Hermannssyni. Það gerði hann fýrst og fremst vegna þess að hann gat það og hafði gaman af því. Það drullumakerí sem ríkisstjóm Steingríms stóð fyrir sannaði að hann gerði það ekki til að ná góðum málum fram. Og þetta glott er komið á and- litið á Jóni núna vegna þess að honum finnst hann hafa snúið rosalega á þau Guðmund Ama og Jóhönnu. í stað þess að Jón gefi þeim tíma til hausts til að grafa undan sér hefur hann grip- ið þau tvö í bólinu. Þau þurfa að grafa helvíti hratt ef þau ætla að ná að fella hann á sex vikum. Eða það heldur Jón. Það er hins vegar eitthvað við þennan leik Jóns sem minnir á skyndiákvörðun. Það er eitthvað ámundískt við hann. Þetta hljómar of sniðugt fyrst þegar maður heyrir það. Og flest sem er rosalega sniðugt fyrst verður oft draugfúlt á endanum. Og ef til vill mun þetta refs- lega glott fara svo í taugamar á Jóhönnu og Guðmundi að þau láti verða af því að hóa saman nógu miklu af krötum til að fella hann. Það kemur í ljós. Hitt er alveg víst að flokks- þing krata í júní mun dæla út úr sér samþykktum um allt milli himins og jarðar. Það mun sam- þykkja heilagleika hins svokall- aða velferðarkerfis. Það mun lýsa yfir eilífum stuðningi við húsbréfin og Jóhönnu. Það mun setja þúsund fyrirvara við EES og Evrópu alla. Það mun setja saman harðorða kröfuskrá í kvótamálum. Það mun geimegla ríkisfjármálin. Og ef Jón lifir flokksþingið af mun hann mæta með þetta allt í farangrinum þegar hann fer að semja við Davíð og sjálfstæðis- menn um stefhuna á næsta þingi. Ef hann ætlar að taka eitthvert mark á þessu flokksþingi verður hann bundinn í báða skó og með hendumar fyrir aftan bak. Og hugsum okkur fleiri ef. Ef Jón lifir flokksþingið af og ef það samþykkir allt mögulegt og ómögulegt og ef Jón fómar þessum samþykktum í samning- um við Davíð og sjálfstæðis- menn, þá er hann í vondum mál- um. Ef glottið á honum núna er ekki nóg til að þjappa andstæð- ingum hans saman þá ættu slík svik við llokksþingið að duga. Hann verður étinn lifandi á næsta þingi. /IS Kirkjugarðar Reykjavíkur kærðir til Verðlagsstofn^nar NOIA SKATTFITIL AB UNDIRBJOOA LIKKISTURNAR Sjálfseignarstofnun Þjóðkirkjunnar fær 163 milljónir króna af kirkjugarðs- gjöldum og getur niðurgreitt þjónustu sína um 25 til 30 prósent. Engin heim- ild er til þessa í lögum. Einkarekin útfararfyrirtæki hafa kært málið til Verð- lagsstofnunar og krafið kirkjumálaráðherra um aðgerðir. Verðlagsstofnun hefur nú til sérstakrar skoðunar ásakanir tveggja einkaaðila í útfararþjón- ustu þess efnis að Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæmis (KRP) noti kirkjugarðsgjöld til að greiða niður og undirbjóða þjónustu sína með óeðlilegum hætti. Telja forsvarsmenn einka- fyrirtækjanna þessa niður- greiðslu án heimildar í lögum og í raun brot á lögum um sam- keppnishömlur og ólögmæta viðskiptahætti. Stjómarformað- ur KRP bendir aftur á móti á að útfararþjónusta KRP byggist á hefð, er skapi réttarvenju, og að stofnunin veiti einkareknu fyrir- tækjunum margvíslega þjónustu án þess að krefjast endurgjalds. KRP fengu árið 1990 alls 163 milljónir króna til ráðstöfunar í formi kirkjugarðsgjalda og má ætla að upphæðin hafi ekki verið lægri á síðasta ári. Með þessar tekjur í höndunum geta KRP rekið útfararþjónustu með nokkrum halla og boðið upp á kistur sem eru 25 til 30 prósent- um ódýrari en hjá einkafyrir- tækjunum. Aukinheldur þurfa KRP ekki að standa skil á ýms- W' —a m J |\ ■ tr w • f 1' 'i ! i 7: 1 Davíö Ósvaldsson: „Þessi sjálfseignarstofnun getur undirboöiö okkur í krafti óskaplegs fjár- magns af skattfé. Þeir njóta auk kirkjugarösgjalda skattalegrar sérstööu og geta í krafti þessa undirboöiö okkur á markaöinum og þannig viöhaft óeölilega samkeppni." um skattalegum gjöldum vegna rekstrar síns eins og einkafyrir- tækin. „UNDIRBJÓÐA OKKUR í KRAFTIÓSKAPLEGS FJÁRMAGNS“ „Við erum mjög óánægðir með aðstöðu þá sem Kirkjugarð- ar Reykjavíkur eru í gagnvart okkur, hvemig þessi sjálfseign- arstofnun getur undirboðið okk- ur í krafti óskaplegs fjármagns af skattfé. Þeir njóta auk kirkju- garðsgjalda skattalegrar sérstöðu og geta í krafti þessa undirboðið okkur á markaðinum og þannig viðhaft óeðlilega samkeppni," sagði Davíð Osvaldsson, útfarar- stjóri og líkkistusmiður, í samtali við PRESSUNA um málið. Hinir sjálfstæðu útfararþjón- ustuaðilar leiluðu fyrir tveimur árum til Reykjavíkurborgar eftir landi undir sérstaka kirkjugarða, en fengu ekki. í því tilfelli kom fram það álit Jóns G. Tómasson- ar, lögfræðings og borgarritara, að eftir gildandi reglum væri kirkjugarðsgjöldum ætlað að mæta kostnaði vegna kirkju- garða og heimild til annarra nota væri ekki í lögum. Verslunarráð íslands hefur og fjallað um málið og bent á, að samkvæmt árs- reikningum KRP sé kostnaður vegna útfararþjónustu að stórum hluta greiddur með kirkjugarðs- gjaldinu. Þeir geti því veitt við- skiptavinum sínum meðgjöf sem viðskiptavinir einkafyrirtækj- anna fá ekki, heldur þurfa að greiða þjónustuna fullu verði. KIRKJUGARÐARNIR REKNIR MEÐ 70 MILLJ- ÓNA HALLA Þess má geta að Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra hef- ur lagt fram frumvarp um kirkju- garða, sem kirkjuþing samdi. Þar er að finna ákvæði um styrki vegna útfararþjónustu og hefur Þorsteinn lagt til við allsherjar- nefnd þingsins að ákvæði um slíka styrki verði skoðað með til- liti til einkarekinna útfararfyrir- tækja. Ráðherra virðist sam- kvæmt þessu vilja að einkafyrir- tækin fái styrki líkt og KRP. „Það er að okkar mati ekki lausnin í málinu að við fáum hluta af kirkjugarðsgjöldunum. Það er öllum hollast að vita hvað hlutimir kosta. En aðalatriðið er að allir sitji við sama borð, að engum sé mismunað, skattalega eða á annan hátt,“ sagði Davíð Ósvaldsson um þetta atriði. í reglugerð ffá 1976 um stjóm og rekstur KRP er ákvæði þar sem sjálfseignarstofnuninni er gert heimilt að veita alla al- menna útfararþjónusm og reka í því sambandi verkstæði til lík- kistusmíða „svo sem verið hefur. Skal sérstakt reikningshald vera um þá starfsemi". í ársreikningum KRP er ekki að finna sérstakt reikningshald með þessum hætti. I ársreikningi 1990 kemur fram að það árið hafi KRP verið reknir með tæp- lega 70 milljóna króna halla þrátt fyrir 163 milljóna króna tekjur af kirkjugarðsgjöldum. Líkkistu- verkstæðið sjálft var rekið halla- laust, en rekstur Fossvogskirkju og útfararþjónustunnar kom út með 38 milljóna króna halla. KIRKJUGARÐARNIR: HEFÐIN HEFUR SKAPAÐ RÉTTARHEIMILD I bréfi sem Helgi Elíasson, stjómarformaður KRP, ritaði Verslunarráði á sfðasta ári vegna fýrirspumar ráðsins kemur ffam það álit Helga að reglugerðin ffá 1976 veiti stofnuninni heimild til að reka útfararþjónustu og hafi staðfest hefð frá 1948. Þá vísar Helgi til þess að í íslenskum rétti sé á því byggt, að háttemi, sem menn hafa fylgt um alllangt tímabil, geti orðið gmndvöllur réttarreglu. Auk þess bendir Helgi á að KRP hafi annast margvíslega þjónustu fyrir einkareknu fyrirtækin án þess að krefjast endurgjalds. Þess má geta að Vilhjálmur Wium skrifaði ritgerð íhagffæði- deild Háskólans í nóvember 1990 um aðgangshömlur í útfar- arþjónustu. Hann komst að þeirri niðurstöðu að undanþágan frá skattskyldu og kirkjugarðsgjöld- in fælu í sér aðgangshömlur, sem birtust í lægra þjónustugjaldi KRP, endurgjaldslausri þjónustu við önnur sveitarfélög, sölu á lík- kistum undir ffamleiðsluvirði og fríu landrými þeim til handa. Davíð Ósvaldsson segir það ekki lausn að einkafyrirtækin fái hluta af kirkjugarðsgjöldunum. Þýðir bann við niðurgreiðslunni hjá KRP þá ekki einfaldlega að líkkistur myndu hækka stórlega í verði? „Hjá þeim kannski, en ekki hjá okkur,“ svaraði Davíð. Friörik Þór Guömundsson

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.