Pressan - 30.04.1992, Blaðsíða 25

Pressan - 30.04.1992, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR PRfSSAN 30. APRÍL.1992 25 E R L E N T Sameining Kóreu næst? Kórea hefur verið aðskilin allt frá stríðslokum 1945, en nú sjá menn ýmis merki þess að til sameiningar geti komið á næstunni. Slík samein- ing yrði vafalaust erfiðari en sameining Þýskalands, en gangi hún eftir verður Kórea vafalaust efnahagsstórveldi, sem taka verður tillit til. Allt frá vopnahlénu, sem batt enda á Kóreustríðið árið 1953, hefur sameining Norður- og Suður-Kóreu virst ómöguleg. En síðastliðinn desember undirrit- uðu fulltrúar ríkjanna tveggja griðasáttmála þar sem drög voru lögð að hugsanlegum sáttum í framtíðinni. Eftir að Þýskaland sameinaðist að nýju er Kórea eina landið, sem enn er skipt samkvæmt lyktum síðari heims- styrjaldar. Sérfræðingar þykjast sjá þess ýmis teikn, að framund- an kunni að vera enn ffekari þró- un í átt til sameiningar. Suður- Kóreumenn þvertaka ekki fyrir samvinnu með fjendunum í norðri og fjölskyldufyrirtæki Kim Il-Sung í Pjongjang hefur reynt að skapa sér örlítið alþjóð- legri ímynd en áður. Þeir feðgar hafa til dæmis sést í jakkafötum með bindi. Efnahagsástandið í Norður- Kóreu versnar stöðugt. Upp- skerubrestur og sífelldur skortur á orku og matvælum setja rnark sitt á landið og nú er ekki lengur hægt að reiða sig á bróðurlega aðstoð annarra kommúnistaríkja, sem áður fyrr komu Norður- Kóreu til bjargar. I Pjongjang lít- ur út fyrir að ráðamenn séu loks að átta sig á því að þeir geta ekki lengur einangrað sig og án að- stoðar eða viðskipta við hinn kapítalíska heim er veldi þeirra dauðadæmt. Samt sem áður er of snemmt að fagna. Því má ekki gleyma að Norður-Kórea er að líkindum hervæddasta land heims og at- hafhir hersveita þeirra við landa- mærin ofit á tíðum sérkennilegar, svo ekki sé dýpra í árinni tekið. Það er langur vegur ffá því að traust milli ríkjanna sé slíkt að unnt sé að ræða um hugsanlega sameiningu. Menn skyldu líka hafa hafa hugfast að nær allt við Norður- Kóreu er eins úr martröð súrreal- ísks ofsóknarbrjálæðings. Per- sónudýrkunin á Kim Il-Sung ein- ræðisherra og syni hans, Kim D- Jong, hefur aldrei verið geggj- aðri, samkvæmt opinberum fjöl- miðlum snúast nær allar ráðstaf- anir annarra ríkja heimsbyggðar- innar um djöfullegt samsæri gegn Norður-Kóreu, meira fé er veitt í kjamorkuvopnaáætlun hersins en nokkru sinni fýrr og ofsóknir gegn meintum undir- róðursöflum eru jafnofsakenndar og áður. En það er athyglisvert að bera ríkin tvö saman — að svo miklu leyti sem það er hægt—því allar upplýsingar að norðan eru væg- ast sagt af skomum skammti og þær, sem þó fást uppgefnar, þykja ekki mjög traustvekjandi. En að svo miidu leyti, sem hægt er að bera ríkin saman, vekur í raun athygli hvað þau eiga þrátt fyrir allt mikið sameiginlegt. Þannig em í báðum löndum um 25% mannaflans í „frumfram- leiðslugreinum" á borð við land- búnað og sjávarútveg. (í Póllandi og Rúmeníu er hlutfallið um 35% en í Japan og á íslandi um 10% svo dæmi séu tekin.) Vinnuvikan í iðngreinum er í báðum ríkjum um 50 stundir og í báðum ríkjum er óvenjuhátt hlut- fall þjóðarinnar á vinnumarkað- inum. Norður-Kórea hefur þó vinninginn hvað það varðar, ekki síst vegna þess hvemig konum hefur verið smalað af heimilun- um í verksmiðjumar. I báðum ríkjum er menntunar- hlutfallið svipað, þó svo menn hafí mjög ríkar efasemdir um nytsemi mikils hluta „náms- greina“ norðanmanna. Fleiri karlar ganga menntaveginn en konur og er hlutfallið svo að segja hið sama beggja vegna landamæra. Byggðaþróun frá sveitum í borgir hefúr verið afar svipuð. Þrátt fyrir að heilbrigðis- kerfi ríkjanna gætu ekki verið ólíkari em lífslflcur hinar sömu og hafa aukist jafhhratt á undan- fömum ámm (hvað þetta varðar er ekki stuðst við opinberar töl- ur). Menn skyldu ætla að félags- legar breytingar í ofsóknarbrjál- uðu kommúnistaríki og alþjóð- lega sinnuðu kapítalistaríki væm nokkuð á sinn hvom veginn, en það er öðm nær. Hjónaskilnaðir em litnir mjög alvarlegum aug- um í báðum ríkjum og má til dæmis nefna að árið 1986 var um hálf milljón giftinga skráð á Kóreuskaga, en aðeins um 40.000 skilnaðir. Skilnaðarhlut- fallið er þannig lægra en í Iran! Fjölskyldustærð hefúr líka hald- ist í hendur sitthvomm megin landamæranna. Efnahagslega em ríkin tvö eins og dagur og nótt, en ef þau skyldu sameinast og norðan- menn ná jafnmiklum árangri og landar þeirra fyrir sunnan mun verða til nýtt efnahagsstórveldi. Svartsýnustu menn gera ráð fyrir að sameinuð Kórea yrði 14. stærsta efnahagsveldi heims með meiri þjóðarframleiðslu en öll Afríkuríki sunnan Sahara til samans. Þegar haft er í huga að Suður-Kórea ein er í 11. sæti yfn mestu útflutningsríki heims og 10. stærsti innflytjandi geta menn gert sér í hugarlund hvem- ig sameinuð Kórea yrði. Þá er rétt að gleyma því ekki að bæði rikin em sliguð af hergagnafram- leiðslu og mikill mannafli og auðlindir myndu nýtast til þarfari hluta ef af sameiningu yrði. En hversu raunhæfar em hug- leiðingar sem þessar? I Norður- Kóreu er í raun ekkert valdakeríi til, heldur hefur allt byggst á nær guðlegu valdi leiðtogans heitt- elskaða. Hann er orðinn hmmur og það er fremur ósennilegt að syni hans takist að halda sömu völdum eftirhans dag. Spuming- in snýst kannski fremur um það hvemig Suður-Kórea er í stakk búin til þess að sameina ríkin. Viljinn er vissulega fyrir hendi, en margir efast um getuna þegar á hólminn er komið. Menn skyldu þó hafa hugfast að allt ffá seinna stríði hafa menn efast stórlega um öll helstu áform Suður-Kóreu: markaðs- væðingu landsins, iðnbyltingu, hátækniðnað og svo framvegis. Þau hafa hins vegar öll gengið eftir og vel það. Það segir sína sögu að núna fyrst em Japanir famir að ffiðmælast við Kóreu- menn eftir síðari heimsstyrjöld. Og kannski ekki seinna vænna. Andrés Magnússon. Höfuðborg Stóra bróður: Pjongjang. Foldgnár háskólinn rís aö baki myndar af hinum ástkæra leiötoga, Kim II- Sung. S L Ú Ð U R Velkomin til Nírvana! Hljómsveitin Nirvana er ffá Seattle í Washington-ríki og x kjölfar vinsælda hennar lýsti Booth Gardner, ríkisstjóri, yfir því að Wash- ington-ríki væri héðan í frá Nirvana-ríkið, en þar vestra hafa menn þann sið að gefa rflcjum hin og þessi gælunöfn. Þetta fannst mönnum hið besta mál enda Nirvana það fyrsta áhugaverða, sem komið hefur frá Washington-ríki frá því að Boeing 747 rúllaði út úr skýlinu fyrir margt löngu. Gleðin dvínaði hins vegar þegar ríkisstjórinn undirritaði skömmu síðar lög, sem barma sölu á tónlisÞ með ósiðlegum textum til ólögráða fólks. Piltamir í Nirvana em ekki hressir með þessar lyktir mála. Atvinnuleysi ágerist Leikarinn Paul Newman var um áraraðir einn vinsælasti leikarinn vestanhafs. Að undanfömu hefur honum hins vegar gengið erfiðlegar að finna hlutverk, sem sést á því að hann hefúr ekki leikið í kvikmynd síðan 1990, þegar hann lék í Mr. & Mrs. Bridge við litlar vinsældir. Menn greinir á um ástæðumar, en Newman sjálfur er ekki vafa: ,JÉg fæ ekkert að gera. Það halda allir spagettívestrar? að ég sé spagettflcokkur...“ Newman hefur á undanfömum ámm grætt vel á sölu alls kyns matvæla, allt frá örbylgjupoppkomi til spag- ettísósu, en það em augljóslega tvær hliðar á velgengninni. Batmansnýraftur Kvikmyndin Batman Returns verður frumsýnd seinnipartinn í júní. Michael Keaton leikur aðalhlutverkið sem fyrr en í hlutvericum illvirkjanna em ekki síðri leik- arar. Það er Michelle Pfeiffer, sem leikur læðuna Catwoman, og enginn annar en Danny DeVito, sem fer með hlutverk mör- gæsarinnar Penguin. Söguþráðurinn mun vera sá að borgarstjóraframbjóðandinn Penguin plottar með Catwoman um hvem- ig koma megi Batman fyrirkattamef. Talið er að þessi mynd verði ekki síður vinsæl en hin fýrri, svo menn geta tekið fram gömlu Batman-merkin sín fýrir sumarið. Mörgæsin Danny De- Vito. Haukuríhomi Ronald Reagan fýrrverandi Banda- ríkjaforseta var bmgðið í fýrri viku jregar hann var að ávarpa samkomu í Las Vegas í Nevada. Skyndilega mddist andstæðing- ur kjarnorkuvopna upp á sviðið, braut stóreflis glerstyttu í ákafanum og lét svo duglega í sér heyra úr ræðustóli. Efitir að maðurinn hafði verið fjarlægður rifjaði Reagan það upp þegar hann ávarpaði hippasamkundu á rfldsstjóraárum sínum í Kalifomíu en þá sagði hann (skömmu áður en hann forðaði sér burt í þyrlu): „Þið prédikið að menn skuli iðka ástir en ekki stríð. Að mínu viti emð þið ófær um hvort tveggja.“ Ófriölegur „friöarsinni". Mama Clinton. Mamma með Kosrúngabaráttan í Bandaríkjunum fær- ist mjög í aukana og hefur móðir Bill Clin- tons t.d. látið til sín taka að undanfömu, en mönnum ber ekki alveg saman um árangur þess, því gámngamir bera hana helst sam- an við Tammy Bakker, fýrrverandi eigin- konu sjónvarpsklerksins bersynduga. Móðirin, Virginia Kelley, lætur gagnrýn- endur Clintons fá það óþvegið og segir hann ekkert óhreint hafa í pokahominu, nema ef til vill erfið uppvaxtarár. Frú Kell- ey er ellilífeyrisþegi og hefur það helst að áhugamáli að veðja á hesta. ktljf 50Q9l)íiigton |09f Töfrar og vísindi mættust þegar endanleg sönnun fékkst á hinni undar- legu og í alla staði ótrúlegu kenningu um „Miklahvell". Allt frá 1964, þegar stjamfræðingar uppgötvuðu bakgmnnsgeislun frá árdögum þessum, hefur þeirri kenrúngu verið haldið á loft að geimurinn hafi eitt sinn verið óendanlega samþjappaður punktur tíma og rúms, sem leysúst úr læðingi í gífurlegri sprengingu og sé enn að jxenjast út. Gera má ráð fýrir að maðurinn hafi ekki glímt við einkennilegri kenn- ingar. Ef tíminn hófst til dæmis með Miklahvelli þá var ekkert þar á und- an; og í stað þess að þenjast út í afúiarkað rými var Miklihvellur í raun rými að þenjast út. Látum þversagnimar liggja á milli hluta; þetta stenst bæði afstæðiskenningu Einsteins og síðari tíma uppgötvanir Edwins Hubble um stækkun geimsins, en staðfesúnguna á því að sprengingin bæri ábyrgð á þeim kynjaheimi, sem við gistum, vantaði. En nú er hún fundin: „Ummerki örsmárra gára á geimgeisluninni" eins og höfuðpaurinn George Smoot kýs að kalla það. Samkvæmt keraúng- unni varð geislunin ekki greinanleg fýrr en 300.000 árum eftir Mikla- hvell, en fyrst þá gátu ljósbylgjur borist um lofttæmi. Með sjónauka var hægt að elta bylgjumar uppi allt til núverandi staðsetningar og þær voru loksins mælanlegar. Þær gefa mynd, þó lítil sé, af örsmáum afbrigðum sem urðu lífvaki stjömuþoka, reikistjama og alls þess sem á eftir sigldi —- ,jafúvel stjómmálamanna" eins og Smoot orðarþað. Nú gefst kostur á að prófa hæfileika rannsóknarliðsins á mælingum út- varpsbylgja allt niður í einn milljónasta hluta. f milljónatali munu vís- indamenn rífast um hvemig „gárukort" Miklahvells hafi nákvæmlega getað umtumast í núverandi „geimkort". Og á blaði lítur (xetta allt mjög vel út, þó svo það bendi til þess að alheimurinn sé jafnvel enn undarlegri en séð verður með bemm augum.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.