Pressan - 09.07.1992, Blaðsíða 14
14
FIMMTUDAGUR PRESSAN 9. JÚLÍ 1992-
R
yrir skömmu var sagt frá viðskipt-
um Vladimirs Verbenko, sem ásamt
nokkrum íslendingum rak íslensk-rúss-
nesku viðskiptaskrif-
stofuna (Irba). Það
fyrirtæki var rekið í
Armúla 1 en nú hafa
þeir stofnað nýtt félag
á sama stað. Það heit-
ir Norð-austur versl-
unarfélagið hf. (Nord-
Ost Intemational Ltd. Með honum í
fyrirtækinu eru Sverrir Sigurjónsson,
Bárður Halldórsson og Geir Þor-
steinsson. Tilgangur félagsins er inn-
og útflutningur, millilandaviðskipti og
rekstur fasteigna...
s
em kunnugt er varð prentsmiðja
Guðjóns Ó. í Þverholti kyrfilega gjald-
þrota fyrri hluta ársins. Það voru starfs-
menn fyrirtækisins, þeir Sigurður Þor-
láksson. Ólafur Stolzenwald og Þor-
leifur V. Friðriksson sem ákváðu síð-
an að reyna fyrir sér með reksturinn en
þeir hafa stofnað með sér fyrirtækið
Hjá Guðjónó hf. Það er spuming hvort
þeir halda eftir hinu góða sambandi við
Seðlabankann...
N
X ^ ylega birtist í Lögbirtingi til-
kynning um að
Andri ísaksson hefði
sagt lausri prófessors-
stöðu sinni í uppeldis-
fræðum við Háskól-
ann. Þetta væri varla í
frásögur færandi ef
ekki væri vegna þess
að Andri hefur verið í leyfi í mörg ár
vegna starfa sinna hjá Sameinuðu þjóð-
unum, en hefur haldið stöðunni. Þess
munu nokkur dæmi að prófessorar fari
í leyfi og hverfi til annana starfa ámm
saman án þess að segja starfi sínu
lausu. Þekktasta dæmið er eflaust Ólaf-
ur Ragnar Grímsson, sem enn er pró-
STOPP EÐA MAMMA HLEYPIR AF
TÖFRALÆKNIRINN *** PRESSAN
Stórbrotin mynd um mann sem fínnur lyf við krabbameini. Leikur SEAN CONNERY gerir
þessa mynd ógleymanlega. Sýnd kl. 5-7-9 OG 11.
NÆSTUM ÓLÉTT
Eldfjörug gamanmynd um hjón sem eru barnlaus því eiginmaðurinn skýtur púðurskotum“.
Sýnd kl. 5-7-9.
MITT EIGIÐ IDAHO.........mw
Frábær verðlaunamynd með úrvalsleikurum. Sýnd kl. 11.
ÓBORGANLEGT GRÍN OG SPENNA
joeSYLVESTER stallone
ER HARÐSNÚIN LÖGGA í STÓRBORG OG LIFIR
ÞÆGILEGU PIPARSVEINALÍFI.
mamma ESTELLE GETTY
(í KLASSAPÍUR) KEMUR í HEIMSÓKN.
HÚN ÞVOÐI ÞVOTTINN, GLUGGANA OG
GÓLFIN OG NÚ ÆTLAR
HÚN AÐ HREINSA
ÓÞJÓÐALÝÐINN AF
STRÆTUM BORGARINNAR.
AÐALHLUTVERK:
SYLVESTER STALLONE,
ESTELLE GETTY OG
JO BETH WILLIAMS.
LEIKSTJÓRI ROGER
SPOTTISWOODE.
SÝND f A-SAL
KL. 5-7-9 OG 11.
fessor við félagsvtsindadeild þótt hann
hafi varla sést þar síðan hann varð þing-
maður árið 1987. Við hlerum í deildinni
að þar séu menn orðnir langþreyttir á
þessu og óski þess helst að Olafur hætti
formlega og láti stöðuna eftir þeim sem
hafa tíma til að sinna henni...
H
.úseign á Sunnuvegi 6 í Hafn-
arfirði sem Sigurður Blöndal.fyrr-
verandi skógræktarstjóri, nýtti um
áratugaskeið hefur
nú loksins verið
seld. Húsið hafði
Hákon S. Helgason
kennari gefið Skóg-
rækt ríkisins árið
1972 með þeim skil-
yrðum að ágóðinn af
því yrði notaður til
skóræktarstarfs f Dalasýslu. Húsið
var hins vegar notað sem embættis-
bústaður fyrir skógræktarstjóra sem
greiddi aðeins 11.000 krónur í húsa-
leigu á mánuði. Húsið var selt í vetur
á 12-13 milljónir króna. Heyrst hefur
að menn séu ekki á eitt sáttir um
hvernig verja eigi peningunum nú
þegar þeir eru loksins komnir heim f
hérað, 20 árum eftir að þeir voru
gefnir...
s
\<J amkvæmt útreikningum Hagstof-
unnar þarf vísitölufjölskyldan (3,6
manns) nú liðlega 2,6 milljóna árstekjur
eða mánaðartekjur upp á 220 þúsund
krónur til að framfleyta sér. Þetta er
byggt á grunni neyslukönnunar frá
1985.
Hér er reiknað með útgjöldum fjöl-
skyldunnar og þar af leiðandi nettótekj-
um; lætur nærri að heildartekjur tveggja
fyrirvinna þurfi að vera um 320 þúsunc
á mánuði til að standa undir þessurr.
neyslukröfum. I formúlu Hagstofunnar
er reiknað með að mánaðarlega fari
40.500 krónur í matvörur, 37.400 í
rekstur bifreiða,' 32.800 í húsnæðis-
kostnað, rafmagn og hita og 17.750 í
fatnað og skófatnað. A hinn bóginn eru
í formúlunni liðir sem líklcga hafa verið
skornir niður með minnkandi kaup-
mætti; útgjöld vegna veitingahúsa- og
hótelþjónustu upp á 14.300 á mánuði,
11.300 krónur í opinberar sýningar og
fleira og 5.800 krónur á mánuði í tækja-
búnað vegna tómstundaiðkana...
rotabú skipafélagsins Víkur hf.
hefur loks verið gcrt upp eftir tveggja
og hálfs árs langa gjaldþrotamcðferð.
en þetta var fyrirtæki Finnboga Kjeld.
Banabiti skipafélagsins hefur iðulega
verið talinn sá. að Eimskipafélagið und-
irbauð félagið í samkeppni um salt-
flutninga. Lýstar kröfur í bú Víkur
námu um 310 milljónum króna að nú-
virði auk krafna í þýskum mörkum.
sænskum krónum. dönskum krónum,
dollurum og pundum upp á um 15
milljónir króna. Ekkert fékkst upp í
kröfúmar...