Pressan - 30.07.1992, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR PRESSAN 30.JÚLf 1992
39
LESENDUR
Stor
numer
haar
þreknar
konur
sem
vilja
vel út
Exell
Laugavegi55
S 21414
Leiðrétting
í síðustu PRESSU var ranghermt að
Hrafn Gunnlaugsson sé formaður Sam-
taka kvikmyndaleikstjóra. Hrafn er í
stjórn félagsins, en formaður er Friðrik
Þór Friðriksson. Þá lét Þráinn Bertelsson
af störfum sem formaður í Félagi kvik-
myndastjóra þegar hann tók við sem for-
maður Rithöfundasambandsins. For-
maður þess félags er Sigurbjörn Aðal-
steinsson. Hlutaðeigandi eru beðnir vel-
virðingar á þessum mistökum.
Ritstj.
f ^
.. 4 Bfv , •
Kontór Alþýðuflokksins J.J|§
Undirritaður hefur séð sig tilneyddan
til þess að bera til baka þann rógburð og
þær rangfærslur sem ffam koma á blað-
síðu 2 í PRESSUNNI fimmtudaginn 23.
júlí sl. undir fyrirsögninni „Hreinsanir á
kontór Alþýðuflokksins".
Þar er þvf ranglega haldið fram að
starfsmanni flokksins hafi verið sagt upp
störfum vegna samstarfsörðugleika við
undirritaðann og það án alls samráðs við
ffamkvæmdastjóm flokksins. Hið rétta er
að umræddur starfsmaður sagði sjálfur
upp störfum og hlýtur að hafa fullan rétt á
því án þess að framkvæmdastjóm leggi
blessun sína yfir uppsögnina. Það var því
gengið frá starfslokum umrædds starfs-
manns, sem PRESSAN reyndar nafn-
greinir, með fullkomlega eðlilegum hætti.
Mannaskipti hafa ekki verið tíðari á
skrifstofu Alþýðuflokksins en gengur og
gerist hérlendis. Það vekur því furðu að
ritstjóra PRESSUNNAR þyki það frétt-
næmt að skrifstofumanneskja láti af störf-
um eftir fimm ára starf á flokksskrifstofu.
í það minnsta hefur Alþýðublaðinu (eða
öðrum fjölmiðlum) ekki ftindist ástæða til
að tíunda uppsagnir skrifstofufólks á
PRESSUNNI á undanfömum misserum.
Það er undirrituðum hulin ráðgáta
hvað vakir fyrir ristjóra PRESSUNNAR
með umræddum skrifum. f þessum stutta
pistli ægir saman staðhæfulausum full-
yrðingum þar sem reynt er að sverta
nafh undirritaðs. Ritstjóm PRESS-
UNNAR ætti því að sjá sóma sinn í því
að biðjast afsökunar á þessum skrifum. Ef
ritstjórinn og/eða heimildarmaður hans
hafa áhuga á að fræðast um starfsmanna-
mál Alþýðuflokksins og vinnutilhögun á
ritstjóm Alþýðublaðsins er þeim velkom-
ið að leita eftir þeim hjá undirrituðum á
skrifstofu Alþýðuflokksins.
Sigurður Tómas Björgvinsson
framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins og
ritstjóri Alþýðublaðsins.
Athuga-
semd
ritstjóra
Það er rétt að Dóm
Hafsteinsdóttur, starfs-
manni á skrifstofu Al-
þýðuflokksins var ekki sagt upp. Hins
vegar hefur PRESSAN áreiðanlegar heim-
ildir fyrir því að hún hafi ekki hætt af eðli-
legum ástæðum. Hún hafi neyðst til að
hætta vegna ósamkomulags við fram-
kvæmdastjóra Alþýðuflokksins. PRESS-
AN stendur að öðru leyti við frétt sína,
enda gerir Sigurður engar aðrar athuga-
semdir um efni hennar.
Ritstj.
Athugasemd vegna
kvikmyndafram-
leiðenda
Vegna fféttar um inntökugjöld í Sam-
bandi íslenskra kvikmyndaframeiðenda
(200 þúsund krónur) sem birtist í síðasta
mánuði vill PRESSAN taka fram að kvik-
myndin Ingaló hefur ekki skilað inn tekj-
um til sambandsins. Fullyrðing þess efnis
slæddist inn í fréttina og eru lesendur
beðnir velvirðingar á því.
Ritstj.
Ertu ibílahugleiðingum?
SPORT
er ódýrasti alvöru jeppinn á
markaðinum og hefur 10 ára
reynslu að baki við þærmarg-
breytilegu aðstæður, sem
islensk náttúra og
vegakerfi búayfir.
Veldu þann kost,
sem kostar minna!
Opið kl. 9-18
Laugard. kl. 10-14
Btfreióar og
landbúnaóarvéíar hf.
Ármúla 13, Sími 31236
Suðurlandsbraut 14.
Sími 681200
í133 dr hefur HEINZ merkiö veriö
tryggingfyrir úrvals matvöru. / Heinz-
vörunum eru aöeins ndttúruleg hráefni og
engum auka hragö- eöa litarefnum er
hœtt í þœr. Notaöu HEINZ alltaf
þegar þú vilt hetri mat.
Oteinz
- og maturinn bragðast betur.