Pressan - 20.08.1992, Side 34
34
FIMMTUDAGUR PRESSAN 20. ÁGÚST 1992
BARIR
Drykkjumaður PRESSUNN-
AR dvaldi fyrir nokkrum ár-
um á Englandi og kynntist
þá þeim ágæta heimilissið
að hafa vínskáp í einu
stofuhorninu. Tæki maður hús á fólki
eftir klukkan hálffimm, fimm (og fyrr
um helgar) mátti jafnan reiða sig á
að borið yrði fram Gin í tóniki og
jafnvel einhverjar eðlari veigar. Af
einhverri ástæðu eru fæst íslensk
heimili svo vel búin. Helst að húsráð-
andinn dragi fram pólskan vodka úr
afviknum eldhússkáp þegar innt er
eftir áfengi undir miðnætti á laugar-
dagskvöldum. Þó minnist drykkju-
maðurinn þess að hafa séð stofubar
(að bandarískri bíófyrirmynd) á út-
gerðarheimili fyrir vestan, en ein-
hvern veginn virkaði það ekki nógu
notalega. En nóg um það. Því kom
drykkjumanni PRESSUNNAR það sér-
lega skemmtilega á óvart þegar
hann heimsótti nýstofnað heimili
kunningjafólks síns á dögunum og
lítill snotur vínskápur blasti við í stof-
unni. Hann var þannig gerður að efst
voru glös af ýmsum stærðum og
gerðum, en að neðan áfengið. Ekki
ýkja margar tegundir en ágætlega
valdar, því það þarf ekki svo mikið til
þess að eiga vel búinn vínskáp. Þarna
var bæði skoti og búrbon, Campari
og kjötæta, Stolítsjnaja og vermút,
Calvados, grappa og koníak. Drykkju-
maður PRESSUNNAR gat reyndar
ekki stillt sig um að hafa orð á því að
vínskápurinn væri galtómur án ís-
lensks brennivíns, en var þá leiddur
fram í eldhús af húsfreyjunni, sem
fullvissaði hann um að frystirinn væri
vel birgur af Svarta dauða. Svona
eiga heimili að vera!
Poppið
J# HyDEMA spilar í Berlín
en sveitin er tveggja
manna techno-dans-
grúppa sem samanstend-
íur öðlingum. Annar þeirra
er nýkominn frá L.A. úr nokkurs konar
hljóðblöndunarnámi. Kvöldið er til-
einkað Ibiza-eyjunni undan strönd-
um Spánar því plötusnúðurinn LKJ er
nýkominn þaðan með allt það nýj-
asta frá Spáni. Efri hæðin í Berlín
verður með Ibiza-stæl, hvernig svo
sem hann er.
• Galíleo verður á Gauknum og
spilar allt frá rokki upp í eiginlega allt.
Hvert sem það nú nær.
• Karaoke og leyndó í Apríl í
kvöld. Allir vita hvað karaoke er og
þeir sem þekkja það einna best vita
vafalaust að hægt er að syngja
sjálf(ur) í Apríl allt til miðnættis. Það
sem færri þekkja er leyndó, einfald-
lega vegna þess að það er ennþá
leyndarmál hverjir spila í Apríl í kvöld.
Leyndó er sem sagt ekki hljómsveit.
• Ný Dönsk skemmtir Göflurum í
kvöld á stórdansleik í Firðinum. Loks-
ins, loksins, heyrist hrópað um allan
fjörðinn.
• Nátthrafnar halda áfram að
spila og spila dansmúsíkina sína á
Dansbarnum í kvöld.
• Músíkbox eru þeir Mummi og
Balli frá Keflavík sem spila á hljóm-
borð og gítar og spila rokk og ról á
Nilla Bar í Hafnarfirði í kvöld.
ninaiiiu'iit
• Hermann Ingi gerir örugglega
allt vitlaust á Feita dvergnum í kvöld
eins og um síðustu helgi. Einn aðdá-
andi gat ekki orða bundist og lýsti
honum sem frábærum manni og
ósviknu náttúrubarni.
• Kúrekarnir ætla varla að geta
hætt að troða upp í Borgarvirkinu og
er þetta þriðja kvöldið í röð. Engin
þreyta sjáanleg á Viðari og Þóri.
• Völuspá með Bjögga Gísla, Halla,
Jóni Ólafs og Svenna leikur fýrir dansi
í Firðinum í allt kvöld. Nú fer hver að
verða síðastur að dansa með Völu-
spá því þetta er síðasta ball sveitar-
innar.
• Strip show og Svartur pipar
verða á Púlsinum, og ekki bara þar
heldur líka í beinni útsendingu á
Bylgjunni. Að öllum líkindum verður
Richard Scobie sérlegur gestur á tón-
leikunum.
• Hilmar Sverris og Anna Vil-
hjálms stjórna kántríkvöldi á Dans-
barnum.
• Karaoke. Nú er það víst orðið
svo á Tveimur vinum að karaoke er
gjörsamlega að slá allt og alla út. Allt
að 100 manns mæta nú á hverju
kvöldi í miðri viku til að spreyta sig
og svo verður vafalaust í kvöld. Nú er
bara að fá sér smáhunang í hálsinn
áður en lagt er í hann því þá verða
tónarnir svo mjúkir og sykursætir,
rétt eins og hunangið.
• Rick Barino and the Domin-
os er glæný grúppa með Richard
Scobie í fararbroddi. Sveitina skipa
að mestu leyti sömu menn og Rott-
una fyrir utan söngvarann. Tónlistin
ku þó vera allt önnur, sem sagt
gömlu Rotturnar í nýjum búningi.
• Kúrekarnir ætla að hvíla Skjóna í
kvöld og halda til á Borgarvirkinu. Kú-
rekarnir eru reykvískir í húð og hár,
þeir Viðar Jónsson, sá gamli í hett-
unni sem spilar á gítar og syngur, og
Þórir Úlfarsson á hljómborð og syng-
ur bakraddir. Og þá er að taka fram
stóru hattana og kaupa fullt af tyggj-
ói.
• Guðmundur Rúnar Lúðvíks-
son myndlistarmaður og trúbador
spilar og spilar á Fógetanum í kvöld
alla músík, pottþéttur ,singalong“
maður. PRESSAN er fyrir löngu búin
að birta skýringarmynd af Guðmundi
og er stöðugt að minnast á það.
Blaðinu þótti herra Lúðvíksson frekar
flókinn maður. En í raun er hann bara
svo skemmtilegur, svona skemmti-
lega flókinn.
FÖSTUDAGUR
• Sú Ellen sú stóra og góða frá
Neskaupstað mun trylla um Púlsinn,
fram og aftur, út og suður, og allir
með. Helgin er rétt að byrja.
• Guðmundur Rúnar Lúðvíks-
son trúbador er fínn, ekki bara á
skellinöðrunni, heldur líka á Fógetan-
um í kvöld.
• Síðan skein sól treður upp á
Hressó í kvöld. Það er ekki svo ama-
legt að geta slegið tvær flugur í einu
höggi í hjarta borgarinnar sama
kvöldið með því að hlusta á Sólina
og skoða Ijósmyndirnar hans Egils,
allt á sama staðnum. Á Hressó.
• Galíleo áfram á Gauknum í kvöld
að spila eiginlega allt.
• Sniglabandið treður upp á
Tveimur vinum annað kvöldið í röð.
Pálmi Sigurhjartarson hefur gengið
til liðs við sveitina en er engu að síð-
urenn í íslandsvinum.
• Nátthrafnar spila danstónlist á
Dansbarnum.
niai'iiuij
• Haraldur Reynisson reykvíski
trúbadorinn tekur við af Guðmundi
Rúnari á Fógetanum. Einhver sagði
að hann væri alveg svakalega
skemmtilegur og vel smurður eftir
tónleika með Herði Torfa.
• Músíkbox á Nilla Bar í kvöld.
Mummi og Balli koma alla leið frá
Keflavík rétt eins og í gærkvöldi.
• Skriðjöklar vilja bjóða alla
stuðningsmenn KA-liðsins sérstak-
lega velkomna á Gauk á Stöng í
kvöld. Eins og langflestir vita eru jökl-
arnir nú einu sinni ættaðir að norðan
og er því mikið í mun að norðan-
menn komi og hvetji, eða bara njóti.
• Guðmundur Rúnar trúbador er
meira en líklegur til að mæta á skelli-
nöðrunni á Fógetann í kvöld og
skemmta gestum.
• Sniglabandið ætti fyrir löngu að
vera búið að jafna sig eftir verslunar-
mannahelgina og því verður vafa-
laust mikið fjör á Tveimur vinum í
kvöld þegar Sniglarnir skríða af stað
eins og þeim er einum lagið.
• Kúrekarnir þeir Viðar og Þórir
sjá um sveifluna með kántrítónlist í
Borgarvirkinu. Þeir sem gleymdu
hattinum í gær eru minntir á að svo-
leiðis slappleiki er fyrir neðan allar
hellur.
• Karaoke fyrir þá sem langar að
spreyta sig á söngnum eftir að hafa
hlustað á alla aðra syngja þessa helg-
ina. Þetta er hægt á Tveimur vinum í
kvöld. Og svo er einnig á mánudag,
þriðjudag, miðvikudag og fimmtu-
dag.
• Gammar verða á Púlsinum með
útgáfutónleika en þeir voru rétt í
þessu að senda nýjan geisladisk á
markaðinn. örugglega vel þess virði
að hlýða á sveitina spila og velta síð-
an fyrir sér stórspurningunni: Að
kaupa eða kaupa ekki nýja geisladisk-
inn með Gömmunum.
Sveitaböll
• Hermann Ingi trúbador verður
á Feita dvergnum í kvöld og þykir
víst allverulega góður. Hann spilaði
þar um síðustu helgi og gerði allt vit-
laust svo lá við klikkun. Hermann
spilar rokkslagara og yfirleitt alla
hressa tónlist rétt eins og hann hafi
aldrei gert neitt annað.
BEBEEKOXI
|# Hreðavatnsskáli
Skriðjöklar
• Þotan Keflavík Stjórnin
• Selfoss Skriðjöklar
Funkdjassgrúppan Gammar er skipuiMaarten van der Valk, Stefáni Stefánssyni, Birni Thoroddsen,
Bjarna Sveinssyni, Halla Gulla og Þóri Baldurssyni.
EÐALSVEITIN CAMMAR
MEÐ ÚTCÁFUTÓNLEIKA
Djasssveitin Gammar heldur
útgáfutónleika á Púlsinum á
sunnudagskvöld. Af Niðafjöllum
heitir geislaplatan sem um þessar
mundir er að koma út og en áður
hefur sveitin gefið út tvær hjóm-
plötur. Hljómsveitin er orðin 12
ára gömul en alltof sjaldan hefur
heyrst til hennar:
„f þessari sveit erum við allir að
sinna áhugasviði okkar en þessi
tegund tónlistar gefur ekki það
mikið í aðra hönd að getum farið í
hljómleikaferð á rútu um landið.
Við höfum mestmegnis spilað á
festivölum hérlendis sem á Norð-
urlöndunum og tókum síðast þátt
í djasshátíðinni á Egilsstöðum og
á Rúrek ’92. Við steínum reyndar
VIÐ
MÆLUM
MEÐ
MARGARITU á Hard Rock vegna þess
að það er einfaldlega besta Margarítan í bænum. Árni
Ziemsen, sem er aðstoðarframkvæmdastjóri á Hard
Rock og hefur menntun í hótel- og veitingarekstri frá
Sviss, gefur okkur innsýn í þessa ljúffengu Margarítu.
Meginuppistaðan í drykknum er hvorki meira né
minna en eimaður kaktussafi, með öðrum orðum
gylltur mexikóskur Tequila (sá upprunalegi). Það
mun vera sannað innan læknavísindanna að í
drykknum þeim sé efni, einhvers konar eiturlyf — þó
ekki mjög eitrað — sem veldur því að maður losnar
við þynnku daginn eftir. Og það sem meira er og ekki
síður mikilvægt — því öll drekkum við til að fmna
smábreytingu — eru áhrifin af Tequilanu. Maður
verður HIGH af Tequilanu, ekki (S)LOW, eins og af
öðrum drykkjum.
Telist þið góðir?
„Já, við erum það. Við spilum
góðan djass.“
Gammarnir eru Þórir Baldurs
hljómborðsleikari, Halli Gulli
trommari úr Stjórninni, Stefán
Stefánsson saxafón, Björn Thor-
oddsen gítaristi, Bjarni Svein-
björnsson bassaleikari og Hol-
lendingurinn ljúgandi Marteen
van der Valk ásláttarhljóðfæra-
leikari.
Árni Ziem-
sen aðstoð-
arfram-
kvæmdastjóri
með Margarít-
una, sem inni-
heldur meðal
annars eimaðan
Tequila.
í venjulegri Marg-
arítu er sumsé þetta
sérstæða Tequila, Triple sec, sem er súrsætur sít-
rónulíkjör, og sítrónusafi, að ógleymdri saltröndinni,
sem setja verður á glasið áður en drykknum er hellt í,
en það er gert með því að að bleyta glasröndina og
leggja ofan á salthrúgu.
Galdur þeirra á Hard Rock er falinn í öðru og
meira, því þeir hafa yfir að ráða ákveðinni innfluttri,
vandmeðfarinni blöndu sem þeir hella ofan í klaka-
mulningsvél og hella síðan Tequilanu yfir. Galdurinn
felst semsagt í klakamulningnum og blöndunni.
„Þeim sem hefur smakkað Margarítu með muldum
klaka finnst ekkert varið í Margarítu án klaka. That’s
the real thing,“ sagði Ámi galdramaður.
að því að auka við okkur og spila
jafnvel einu sinni í mánuði á
næstunni," sagði Björn Thorodd-
sen gítarleikari Gammanna.
Hverskonar djass spila Gamm-
arnir?
„Við spilum frekar léttan fimk-
djass en erum þó örlítið djassaðri
en Mezzoforte."
Júlía Sveinsdóttirfararstýra, Ásgeir Óskarsson, Shirley King, Dóri
Braga og B.B. King styðja sig hvert við annað á Rocce Rosse-hátíð-
inni íSardiníu.
VINIR
DÓRA FÁ
„COMPLI-
MENTI"
„Effir fyrstu tónleikana fengum
við góða dóma og var blaðamaður
einn mjög hress með hvað við
spiluðum mörg ólík stílbrigði af
blús. Það fyrsta sem við lærðum á
ítölsku var „complimenti“ og
„bravissimo“segir Dóri Braga í
Vinum Dóra, en hljómsveitin er
nýkomin úr tveggja vikna ferð til
Sardiníu þar sem hún hélt eina sjö
tónleika og spilaði í stórbrotnu
umhverfi á Rocce Rosse-hátíðinni
ásamt stórlistamönnum á borð
við Chicago Bcau, Jimmy Dawkins,
Shirley King og B.B. King. Og ekki
lét Andrea Gylfadóttir sig vanta og
slóst í för með sveitinni undir lok-
in. „Það var einna líkast því að
spila við Lóndrangana á Snæfells-
nesi, upplifunin var mikilfengleg,“
segir Dóri.
í kjölfar ferðarinnar hafa
hljómsveitinni borist fyrirspurnir
um þátttöku á hátíðum í Istanbúl í
Tyrklandi, Amsterdam Blues-há-
tíðinni í Hollandi, Chicago Blues í
Kanada, í Frakklandi, Englandi og
að spila með Chicago Beau í Ástr-
alíu. Það er víst of snemmt að spá
um hvar Vinir Dóra ákveða að
drepa niður fæti næst á jarðar-
kringlunni, en ekki vantar tæki-
færin.
Úrvalsmatsölustaðir
Sigmars B. Haukssonar
matgæðings
Sigmar kýs að skipta þeim matsölustöðum sem hann mælir með í tvo flolcka; annars
vegar fýrsta flokks staði og hins vegar forvitnilega staði.
í FYRSTA FLOKKI ERU
Hótel Holt með hagstætt verð, stöðugleika og góða þjónustu.
Veitingahúsið Við Tjörnina vegna frumleika í matargerð og bestu fiskréttanna.
Setrið á Holiday-Inn með frönsku línuna og vönduð vín.
Perlan vegna skemmtilegs umhverfis, frumleika, fallegs útsýnis og góðra vína og
áhugaverðasti nýi staðurinn er Bámannsklukkan.
FORVITNILEGIR STAÐIR AÐ DÓMI SlGMARS ERU
Veitingastaðurinn í Viðey vegna fallegs og óvenjulegs unthverfis, Grillið á Hótel Sögu vegna fallegs útsýn-
is og góðrar þjónustu og Þrír Frakkar hjá Ulfari vegna þess hve heimilislegt þar er og fiskréttirnir góðir.
HVERNIC
VARÁ
AFMÆLI
HAFNAR-
INNAR?
Bryndís
SCHRAM
leikkona
„Þetta var í einu orði sagt stór-
kostlegt og dæmi um hvemig
við getum bætt mannlífið í
Reykjavík um helgar.
Stemmningin við höfnina var
eins og þegar afi var ungur, all-
ir lögðu bílunum sínum og
gengu um höfnina. Þarna hitti
maður íjölda manns úr öllum
stéttum þjóðfélagsins og loks-
ins höfðu útlendingarnir eitt-
hvað við að vera í miðbænum
og fengu að njóta þess besta
sem við höfum upp á að bjóða,
því þama var boðið upp á úr-
valsfisk, lunda og fleira. Það
ætti að hafa oftar svona uppá-
komur í miðbænum.“
Guðrún
Helgadóttir
alþingismaður
„Ég komst ekki á hafnarhátíð-
ina sjálfa sem haldin var á
laugardaginn, en ég fór á sýn-
ingu um sögu hafnarinnar fyrir
skömmu í tengslum við af-
mælið og hafði mjög gaman af.
Hún var bæði fróðleg og
skemmtileg. Börnin mín með
börnin sín brugðu sér hins
vegar á sjálfa hafnarhátíðina og
höfðu mjög gaman af.“
VlLBORG
HALLDÓRSDÓTTIR
leikkona og hetja háloftanna
„Ég fór aðallega niður á höfn til
að stökkva teygjustökk og ekki
nóg með það, heldur stökk ég
bundin við manninn minn.
Það var algjört kikk og ég er
orðin nýogbreytt manneskja.
Þetta er alveg meiriháttar, því
maður fer í gegnum einhvern
hræðsluþröskuld í lífi sínu.
Andartakið áður en maður
stekkur er ógleymanlegt. Og að
stökkva með þeim sem maður
elskarer"act oflove".
Helga
Thorberg
leikkona
„Hátíðin var virkilega ánægju-
leg. Svona finnst manni að lífið
eigi að vera niðri við höfn. Við
sem erum fiskiþjóð og lifum á
fiskútflutningi ættum að gera
meira fýrir fiskinn innanlands.
Ég bragðaði hins vegar ekki allt
sem boðið var upp á, þar sem
ég er svo íhaldssöm. Ég fékk
mér þó hákarl og keypti mér
poka af söli. Þar sem ég er svo-
lítil skræfa verður að bera fisk-
inn fram á aðlaðandi máta svo
ég þori.“