Pressan - 24.09.1992, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 24. SEPTEMBER 1992
I Þ R Ó T T I R
31
Árangur
íslands í
Evrópu-
keppni
f rá 1964
Nij»i
lllilll
ARNAR
SÁ EFTIR-
SÓTTASTI
f hvert skipti sem lið falla
verður mikil ásókn íbestu leik-
menn þeirra. Því hafa Blikar
svo sannarlega fengið að kynn-
ast undanfarið, en innan her-
búða þeirra er einn efnilegasti
knattspyrnumaður landsins,
Arnar Grétarsson.
Eftir því sem komist verður
næst hafa þegar nokkur lið,
með Reykjavíkurrisana KR og
Fram í broddi fylkingar, sóst
eftir Arnari.
Amar sagðist sjálíur lítið um
þetta vilja ræða en sagði að það
hlýti að auka möguleika sína á
að halda sæti í landsliðinu ef
hann léki í fyrstu deild. „Menn
hafa verið að tala saman, en
það er ekkert alvarlegt ennþá,“
sagði Arnar, sem æfir nú með
landsliðinu.
Þá heftir PRESSAN heimild-
ir fyrir því að í gegnmn bróður
Arnars, Sigurð Grétarsson hjá
Grasshoppers í Sviss, sé nú
verið að kanna möguleika á að
Arnar leiki þar fram til vors.
önnur erlend lið hafa einnig
spurst fyrir um Amar.
Arnar Grétarsson, tvítugur
miðvallarspilari úr UBK:
Skiptir líklega um félag fyrir
næsta tímabil.
íslensku félagsliðin í Evrópukeppninni
MEÐ15 PRÓSENT
ÁRANGUR í KEPPNINNI
Rúnar Sigtryggsson
úr Þór, nýjasta
stórskyttan,
er 191 sm
á sokka-
leistunum.
Rúnar Sigtryggs-
son, skytta úr Þór
HÖFUM ÆFT
EINS OG
BRJÁLÆÐ-
Það vita flestir að það er við
ramman reip að draga þegar ís-
iensk lið leika í Evrópukeppninni í
knattspyrnu. Jafntefli er sama og
sigur og sannkölluð þjóðhátíð ef
raunverulegur sigur næst — en
offar en ekki tapa íslensku liðin.
Síðan árið 1964 hafa íslensk lið
tekið þátt í Evrópukeppni og eru
leikirnir nú orðnir 171. Af þeim
hafa aðeins 11 unnist en 131 tap-
ast. Jafnteflin eru 29. Þetta þýðir
að það em 6,4 prósent líkur á að
íslenska Iiðið sigri þegar gengið er
til leiks en 76,6 prósent líkur á að
liðið tapi. 17 prósent líkur eru á
jafntefli.
Ef Evrópukeppnin er gerð upp
Knattspyrnumenn
á faraldsfæti
sem deildarkeppni þá hafa 342
stig verið í pottinum en íslensku
liðin fengið 51 stig. Þá er gert ráð
fyrir tveimur stigum fyrir unninn
leik og einu fyrir jafntefli. Þetta
jafngildir 14,9 prósent árangri ís-
lensku liðanna í Evrópukeppn-
inni.
Og í markaskoruninni hallar
líka heldur á landann. Lætur
nærri að íslensku félagsliðin fái
sex mörk á sig gegn hverju einu
sem þau skora. Islensku liðin hafa
skorað 89 mörk, sem gerir um
það bil 0,52 mörk í leik. Erlendu
liðin hafa hins vegar verið iðin við
kolann því þau hafa skorað 523
mörk gegn íslensku liðunum, sem
jafhgildir ríflega þremur mörkum
í leik.
VALUR MEÐ BESTAN
ÁRANGUR
Valsmenn hafa náð bestum
árangri íslenskra félagsliða eða
um 23 prósent árangri. Þeir hafa
unniðþrjá leiki, gert 10 jafntefli og
tapað 22 leikjum. Frammarar eru
næstir með 18,5 prósent árangur.
Þeir hafa unnið fimm leiki og
reyndar hafa þeir allir unnist í
Evrópukeppni bikarhafa. Framm-
arar hafa þrisvar náð jafntefli.
Vestmanneyingar hafa leikið 19
leiki í Evrópukeppni og eru með
16 prósent árangur. Akranes með
11 prósent árangur og sömuleiðis
Víkingur. Keflavík 10 prósent
árangur.
Reyndar er KA með 50 prósent
árangur en það er tæpast mark-
vert þar sem þeir hafa aðeins leik-
ið tvo leiki. Sömu sögu má segja
um FH-inga sem eru með 25 pró-
sent árangur eftir tvo leiki.
KR TAPAÐ ÖLLUM 76 LEIKJ-
UMSÍNUM
Vesturbæjarstórveldið KR get-
ur því miður ekki státað af affek-
um í Evrópukeppni. KR-ingar
hafa leikið 16 leiki og tapað þeim
öllum! Þeir hafa fengið 4,64 mörk
að meðaltali á sig í leik en skorað
0,68 mörk að meðaltali.
KR-ingar eru líka með stærstu
skellina á bakinu en þeir töpuðu
2-12 fyrir Feyenoord árið 1969 og
0-10 fyrir Aberdeen árið 1967.
íslensk lið hafa sex sinnum
komist áfram í annarri umferð.
Valur komst í aðra umferð í Evr-
ópukeppni meistaraliða árið 1967
eftir að hafa slegið lið frá Lúxem-
borg út. ÍA komst áfram í sömu
keppni 1975 eftir sigur á Omonía
frá Kýpur. Árið 1985 komst Fram
áfram í Evrópukeppni bikarhafa
eftir sigur á Glentoran frá Norður-
frlandi. Árið 1990 komst Fram
einnig áffarn eftir sigur á Djurgar-
den frá Svíþjóð en 3-0-sigur
þeirra var stærsti sigur íslensks
liðs í Evrópukeppninni.
Vestmanneyingar komust
áfram í Evrópukeppni félagsliða
árið 1978 effir að hafa slegið Glen-
torán út. Árið eftir komust Kefl-
víkingar í aðra umferð eftir að
hafa slegið Kalmar ffá Svíþjóð út.
INGAR
„Við erum búnir að æfa eins
og brjálæðingar síðan í apríl,“
sagði Rúnar Sigtryggsson stór-
skytta úr Þór, en þeir Þórsarar
hafa komið liða mest á óvart
iað sem af er tímabilinu. Þar er
Rúnar áberandi með 11 mörk í
tveimur fyrstu leikjunum, en
hann leikur sem hægrihandar-
skytta.
„Við byrjuðum á að lyfta í
einn og hálfan mánuð en höf-
um æft með bolta síðan í júlí.
Þá fórum við í tólf daga keppn-
isferð til Danmerkur sem hristi
okkur vel saman.“ Rúnar lauk
stúdentsprófi síðasta vor og
vinnur sem kennari í vetur en
sagðist gera ráð fyrir að fara í
framhaldsnám effir það.
Að sögn hans hafa Þórsarar
sett sér það markmið að kom-
ast í átta liða úrslit og æfa fimm
til sex sinnum í viku til að ná
3VÍ markmiði.
Rasismi í fótboltanum
Það færist nú mjög í vöxt að ís-
lenskir knattspyrnumenn fari ut-
an og dvelji hjá útlendum félögum
um lengri eða skemmri tíma að
loknu keppnistímabilinu hér á
landi, án þess að gera samning við
útlend Iið í langan tíma. Leik-
menn lengja með þessu keppnis-
tímabilið, eflast sem knattspyrnu-
menn og auka möguleika sína á
atvinnumennsku.
Tvíburabræðumir af Akranesi,
Arnar og Bjarki Gunnlaugssynir,
fara til hollenska liðsins Feyeno-
ord og síðan til Þýskalandsmeist-
ara Stuttgart að kynna sér aðstæð-
ur og kanna möguleika sína. Rún-
ar Kristinsson frá KR fer til Brann
í skoðunarferð með atvinnu-
mannssamning í huga. Þá er Vík-
ingurinn ungi Helgi Sigurðsson á
leið til Danmerkur í dvöl hjá B.
1903, Frammararnir Valdimar
Kristófersson og Steinar Guð-
geirsson eru á leið til Belgíu en þar
ætía þeir að dvelja í vetur og leika
með belgísku þriðjudeildarliði.
Tveir leikmenn Fylkis, þeir Finn-
ur Kolbeinsson og Itidriði Einars-
son, em sömuleiðis á leið utan til
vetrardvalar. Fara til Möltu og
leika með einu frægasta félaginu
þar; Hibernians eða Hibs.
Þessar utanfarir ættu að skila
strákunum til baka sem betri
knattspyrnumönnum og þaraf-
leiðandi einnig í betri knatt-
spyrnu. Og svo er alltaf möguleiki
á að þessar ferðir skili sér í at-
vinnumannssamningum hjá er-
lendum liðum.
Knattspyrnumenn frá Afríku
hafa vakið athygli í evrópsku
knattspyrnunni og augu forráða-
manna félaga beinast nú í aukn-
um mæli að Afríku, en þar virðist
vera ótæmandi sjóður hæfileika-
ríkra knattspyrnumanna sem
pluma sig vel í þeim bolta sem
spilaður er í Evrópu.
Nú eru þó að renna tvær grím-
ur á afrísku atvinnumennina og
áhugi þeirra á að komast til Evr-
ópu að minnka þótt iaun og allur
aðbúnaður sé annar og betri en í
heimalöndum þeirra. Ástæða
þessa er aukið kynþáttahatur í
Evrópu, en Afríkumennirnir fá að
finna fyrir því frá hendi áhang-
enda — sinna liða sem annarra.
Sérstaklega hafa afrískir knatt-
spymumenn í Frakklandi, Þýska-
landi, Belgíu og Sviss orðið fyrir
barðinu á kynþáttahatri, en fót-
boltabullur í þessum löndum gera
að þeim aðsúg innan vallar og ut-
an.
Anthony Yeboah hjá Eintracht
Frankfurt er talinn besti Afríku-
maðurinn í þýsku úrvalsdeildinni
og er reyndar einn af betri leik-
mönnum Frankfurt. Yeboah er frá
Ghana en hefur leikið í Þýskalandi
um skeið og talar þýsku reiprenn-
andi, en ofsóknir þær sem hann
hefur orðið að þola vegna litar-
Anthony Yeboah frá Ghana leikur með Eintracht Frankfurt. Hann
hefur fengið að finna fyrir vaxandi kynþáttahatri í Evrópu eins og
aðrir svartir leikmenn.
háttar síns hafa haft sín áhrif á
hann og eins er því farið með
marga aðra afríska spilara.
Fótbolti er vinsælasta íþróttin í
Afríku og gæði knattspyrnunnar
sem þar er leikin eru sífellt að auk-
ast — skemmst er að minnast liðs
Kamerún sem alla heillaði í
heimsmeistarakeppninni á Ítalíu
fyrir tveimur árum en óvíst er
hvernig viðtökur það lið fengi í
dag. En það er peningaskorturinn
sem stendur afrískri knattspyrnu
fyrir þrifum, fátækt er gífurleg í
þessum heimshluta og eflcert útlit
fyrir að meiri peningar fáist í
knattspyrnu í náinni framtíð -
nóg þörf er fyrir þá litlu peninga
sem til eru í annað. En frábærir
fótboltamenn halda áfram að líta
dagsins ljós í Afríku og löngunin
til að spila fótbolta og lifa af því
mannsæmandi lífi rekur þá til að
taka tilboðum ffá evrópskum fé-
lögum. Þeir láta sig hafa niðurlæg-
inguna sem því fylgir er aðdáend-
ur liðs þeirra púa á þá og segja
þeim að skammast heim í stað
þess að klappa þeim lof í lófa fyrir
ffammistöðuna.
Markahrókurinn Helgi
Sigurðsson er einn
margra íslenskra knatt-
spyrnumanna sem þreifa
fyrir sér erlendis nú að
loknu keppnistímabili
hér heima.
Um helgina
HANDBOLTI -
Evrópukeppni kvenna
Stjarnan - Skobakken kl.
16.00. Stjörnustúlkurnar mæta
danska liðinu Skobakken í Evrópu-
keppni félagsliöa. Stelpurnar úr
Garðabænum hafa verið með eitt
öflugasta liðið undanfarin ár og
geta ugglaust velgt þeim dönsku
undir uggum.
GOLF
Golfklúbburinn Keilir með op-
ið mót á sinum glæsilega velli í
Hafnarfirði. Átján holur með og án
forgjafar.
FRJALSAR ÍÞRÓTTIR
Stjörnuhlaup FH. I Hafnarfirði
nátturlega, vonandi verður ekki
slagveður.
Frjálsíþróttamót Landsbank-
ans og Húsasmiöjunnar Það
er líka i Hafnarfirði. Á Kaplakrika
nánar tiltekið. Þeir.eru farnir að
kalla völlinn Gjótuna. Vel við hæfi.
MHlölö.Máilöl
HANDBOLTI —
Evrópukeppni kvenna
Stjarnan - Skobakken kl.
15.00. Þær spila báða leikina sína á
heimavelli Stjörnustelpurnar.
Kannski Danirnir haldi að þær séu
syona lélegar! Við treystum Garð-
bæingum til að stinga upp í þær
dönsku og fá þær til að hætta
svoleiðis mannalétum.