Pressan - 19.11.1992, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
Mafíumálverkin fölsuð
Hann á ekki sjö dagana sæla,
mafíuforinginn Luciano
Liggío, enda búinn að glata ær-
unni — sem listmalari. Liggio,
sem er 67 ára og hefur setið í
fangelsi á Sikiley í 18 ár, haíði
getið sér gott orð sem lands-
lagsmálari og selt ógrynnin öll
af málverkum undanfarin ár,
sem unnin voru innan veggja fangelsins. Nú hefur einn samfanga
hans hins vegar leyst frá skjóðunni, hvað snertir listamannshæfileika
mafíuforingjans, og er þar með búinn að koma honum á kaldan
klaka. Sannleikurinn á bak við listaverk Liggios mun vera sá, að hann
kom ekki nálægt þeim sjálfur. f staðinn fékk hann áðurnefndan sam-
fanga sinn, sem honum þótti hafa mun sterkari listamannstaug, til að
útfæra hugmyndir sínir. Hrósið og ágóðann af málverkasölunni hirti
mafíuforinginn hins vegar sjálfur.
Tilþrif í brúðkaupi
Það var ekkert venjulegt, brúð-
kaupið sem haldið var í Los Ange-
les á dögunum, þar sem gefrn
voru saman Slash, hinn hárprúði
gítarleikari þungarokkshljóm-
sveitarinnar Guns’n Roses, og ást-
mey hans, leikkonan Renee Surr-
an. Hjónakornin voru afar frjáls-
leg í fasi og stungu mjög í stúf við
veislugesti, sem allir mættu prúð-
búnir og hegðuðu sér eins og fyr-
irfólki sæmir. Rokkarinn hafði
ekki greitt sér frekar en fyrri dag-
inn og birtist í gömlu góðu leður-
buxunum með skyrtuna opna
niður á bringu. Þegar búið var að
pússa þau saman og veislan stóð
sem hæst skellti hann konu sinni í
nærliggjandi stól og vippaði af
henni sokkabandinu, og var ekki
laust við að viðstöddum brygði í
brún. Ekki er vitað hvort Slash
bauð upp á brennivín í boðinu til
að koma mönnum aftur niður á
jörðina, en hann hreifst sem
kunnugt er af alíslenska miðinum
Black Death á ferð sinni um Evr-
ópu og hefur meira að segja sést til
hans í stuttermabol með því nafni.
Klúr skrif um
Clinton
Þýska dagblaðið Bild, sem er
frægt fyrir slúður- og æsifréttir
sínar, gekk heldur langt á dögun-
um í kæruleysislegri umfjöllun
sinni um nýkjörinn forseta
Bandaríkjanna, Bill Clinton.
Blaðamaðurinn sem skrifaði
greinina fjallaði um Clinton frá
ýmsum hliðum og endaði á því að
birta upplýsingar um persónu
hans, í skeytastíl. Upptalningin
byijaði svo sem ágætlega: „Aldur:
46, augu: blá, tómstundir: trimm
og golf.“ Hins vegar tók heldur
betur að kárna gamanið þegar
blaðamaðurinn tók upp á því að
klæmast með verðandi forseta
Bandaríkjanna: „Stærð getnaðar-
lims: f meðallagi stór (að sögn
fyrrum ástkonu hans Gennifer
Flowers).“ Hjá Bild áttuðu menn
sig ekki á neyðarlegum skrifunum
fyrr en um seinan, en þá hafði
blaðinu þegar verið dreift um allt
Norður-Þýskaland. Því var ekki
annað að gera fyrir ritstjóra blaðs-
ins en bera í bætifláka fyrir starfs-
manninn klúra og sagði hann af-
sakandi að slík „slys“ gætu alltaf
orðið íblaðamennsku.
Listaverk úr
skriðdrekum
Banda-
ríska mynd-
höggvaran-
um Scott
Thoe hefur
hugkvæmst
afar óvenju-
leg leið til
takmörkun-
ar vígbún-
aðar Evr-
ópuríkja.
Samkvæmt
afvopnunarsamningum er í bí-
gerð að gjöreyða 43 þúsund evr-
ópskum skriðdrekum. Listamað-
urinnn frumlegi fékk þá hug-
mynd, að í stað þess að eyða í slík-
ar aðgerðir óhemjumiklu fé og í
ofanálag leysa við það ýmis skað-
vænleg eiturefni úr læðingi væri
gráupplagt að búa til risavaxið
friðarlistaverk úr skriðdrekunum.
Hann hefur nú útbúið módel af
„friðarboganum“ sem hann
reiknar með að verði rúmur kíló-
metri að lengd og fúndinn staður
einhvers staðar á landamærum
Þýskalands og Póllands.
Það hefur aldrei verið logn í
kringum bresku dýraverndunar-
samtökin Lynx, sem stofnuð voru
til höfuðs loðdýrabændum og
kaupmönnum um miðjan níunda
áratuginn og hafa komið ótal-
mörgum úr þeirra röðum á kald-
an klaka. Samtökin fengu strax í
upphafi fjöldann allan af þekktu
bresku listafólki til liðs við sig og
síðan hafa sífellt fleiri bæst í hóp-
inn og lýst yfir óbeit sinni á loð-
dýrarækt. Lynxsamtökunum
tókst á skömmum tíma að ná til
fjölda fólks úr öllum stéttum
þjóðfélagsins, ekki síst með
áhrifamiklum áróðursauglýsing-
um, sem draga upp óhugnanlega
mynd af loðdýrarækt og láta eng-
an ósnortinn. Samtökunum vegn-
aði vel framan af en undanfarið
hafa skuldir þeirra farið ört vax-
andi og í kjölfar málaferla sem
höfðuð voru gegn þeim fyrir
skömmu ramba samtökin nú á
barmi gjaldþrots.
BLÓÐIDRIFIN SLÓÐ
Lynxsamtökin voru stofnuð
1985 af nokkrum fyrrum meðlim-
um grænfriðunga. Uppgangur
samtakanna var ótrúlega hraður
og fengu þau ekki síst góðan
hljómgrunn meðal þekkts fólks úr
listamannaheiminum, sem reynst
hefur þeim mikil lyftistöng bæði
vegna frægðarinnar og einnig
drjúgra fjárstyrkja. Á örskömm-
um tíma tókst Lynx að breyta
ímynd loðfelda úr eftirsóttri mun-
aðarvöru í afsprengi fyrirlitlegra
grimmdarverka.
Auglýsingar samtakanna áttu
stærstan þátt í að vekja viðbjóð
fólks á loðdýrarækt. Sú minnis-
stæðasta, eftir grafiska hönnuðinn
David Bailey, sýnir konu á háhæl-
uðum skóm draga dýrindis loð-
feld á eftir sér og er slóðin blóði
drifin. Textinn er svohljóðandi:
„Það þarf næstum 40 skepnur til
að búa til loðfeld — en aðeins
eina til að klæðast honum“.
Linda McCartney, eiginkona
LYNX
lf you don't want animals gassed,electrocu
Áróðursauglýsing samtakanna, sem vakið hefur hvað
mesta athygli.
bítilsins, er ein þeirra sem lagt
hafa sitt af mörkum, og fékk hún
frægt fólk til að sitja íyrir á mynd-
um sínum, klætt bol samtakanna.
Þeirra á meðal má nefna tískusýn-
ingarstúlkuna grannholda Twiggy
og rokksöngkonuna Siouxsie Sio-
ux.
Af öðrum frægum sem snúist
hafa á sveif með samtökunum og
barist hatrammlega gegn loðdýra-
rækt og sölu loðfelda má nefna
leikarann góðkunna Sir John Gi-
elgud, Neil Kinnock, fyrrum leið-
toga Verkamannaflokks Bret-
lands, og konu hans Glenys og
Chrissie Hynde, söngkonu hljóm-
sveitarinnar Pretenders. Þegar svo
frægir fatahönnuðir eins og Vivi-
enne Westwood og Sir Hardy
Amies, auk þekktra fyrirsæta eins
og Yasmin Le Bon og Paulu Ham-
ilton, slógust í hópinn, fór að fær-
ast hiti í leikinn. Dýravernd varð
mál málanna á Bretlandi og var
veist að konum á götum úti ef þær
klæddust loðfeldi og fengu sumar
yfir sig rauða málningu í áminn-
ingu.
LOÐDÝRABÆNDUR MISSA
VINNUNA
Dýraverndunarsamtökin Lynx
hafa unnið mikið og öflugt áróð-
ursstarf á Englandi undanfarin ár,
með afdrifaríkum afleiðingum
fyrir loðdýrabændur og verslun-
arfólk. Samtökunum hefur tekist
að koma um helmingi loðdýra-
bænda á Bretlandi á kaldan klaka
og hafa aðeins 29 af 75 lifað áróð-
urinn af. Fimm árum eftir að sam-
tökunum var komið á fót voru
forráðamenn tískuhússins fræga
Harrods í London tilneyddir að
leggja loðfeldadeild hússins niður,
enda hafði salan í Bretlandi dreg-
ist saman um nær helming. Því
var ekki um annað að ræða en
draga saman seglin,
enda ekkert útlit
fyrir að ástandið
mundi batna í bráð
þar sem búið var að
innprenta konum að
þeim bæri beinlínis
að blygðast sín fyrir
aðgangaíloðfeldi.
Eftir mikinn söngkonan Siouxsie Sioux og fyrirsætan Twiggy mótmæla loðdýrarækt, íklædd-
blómatima fór þö ar stuttermabo| samtakanna.
heldur að halla undan
fæti hjá samtökunum og nú er svo
komið að þau ramba á barmi
gjaldþrots. Enda þótt margir fé-
lagsmenn séu vellauðugir er fjár-
hagsstaða samtakanna hvergi
nærri nógu sterk og hafa skuldir
þeirra farið ört vaxandi síðustu ár.
Nýfallinn dómur í máli samtak-
anna setti í ofanálag þvflíkt strik í
reikninginn, að þau eru vart talin
eiga sér viðreisnar von. Samtökin
voru dæmd fýrir að hafa ranglega
ásakað loðdýrabónda einn í borg-
inni Halifax um að hann ræktaði
loðdýr í „helvíti", þ.e. í þröngum
og óþrifalegum búrum, og að að-
búnaður væri með öllu óviðun-
andi. Dómarinn komst að þeirri
niðurstöðu að staðhæfingar sam-
takanna ættu sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Voru þau dæmd til
að greiða bóndanum, sem telur
sig hafa glatað ærunni, himinháar
skaðabætur og allan sakarkostnað
að auki.
STÓRSTIRNILEITA
LAUSNA
Félagsmenn Lynxsamtakanna
eru afar ósáttir við hvernig komið
er fyrir samtökunum og reyna nú
hvað þeir geta til að bjarga eigin
skinni. Twiggy, sem átti stóran
þátt í að auglýsa tískuverslanir
samtakanna sem reknar eru undir
yfirskriftinni „án grimmdar-
verka“, hefur lýst yfir áhyggjum
sínum vegna þessarar þróunar og
segir það skelfilega tilhugsun ef
samtökin eiga eftir að líða undir
lok.
Fathönnuðurinn frægi Kathar-
ine Hamnett, sem áður lét talsvert
að sér kveða í hönnun loðfelda en
lítur nú á þá sem hreinan viðbjóð,
telur lausnina fólgna í því að sam-
tökin hætti í núverandi mynd, en
hefji aftur starfsemi undir öðru
„óflekkuðu“ nafni. nafni. Meðal
annarra ffægra sem hafa verulega
þungar áhyggjur af afkomu sam-
takanna er breski tónlistarmaður-
inn Peter Gabriel, en það er af-
dráttarlaus skoðun hans að menn
verði að leggja allt í sölurnar svo
samtökin fái haldið velli.
Madonna rakar
augabrúnirnar af
Það virðast
ekki nokkur ein-
ustu takmörk
fyrir því upp á
hverju söngkon-
an Madonna tek-
ur til að vekja á
sér athygli og
halda aðdáend-
um sínum við
efnið, en svo
virðist sem allt
gangi út á það hjá
konunni að
breyta útliti sínu
sem oftast og
sem mest. í ný-
legu hanastéli,
sem haldið var í
New York til að
fylgja nýútkom-
inni Idámljós-
myndabók söng-
konunnar úr
hlaði, gat hún að
sjálfsögðu ekki
svekkt boðsgesti
með því að mæta
eins útlítandi og í
síðustu viku. Því
mætti hún í glænýju gervi, sem fólst í því að hún hafði rakað af sér
augabrúnirnar. Til að skapa áður óþekkt útlit klæddist hún nokkurs
konar bæverskum kjól, með hárið bundið upp í tvær fléttur og mellu-
band um hálsinn. Ekki fer sögum af því hvemig menn kunnu við nýj-
ustu útgáfuna af Madonnu, en margt þekktra gesta var í veislunni
m.a. Spike Lee, WiUem Dafoe, Marianne FaithfuU og Grace Jones.
Ekkert skal fullyrt um hvort ofangreindir listamenn teljast tU hörð-
ustu aðdáenda Madonnu eða hvort þeir mættu bara tU að sýna sig og
sjá aðra.
Að bjarga eigin skinni
Dýraverndunarsamtök frægs fólks á Bretlandi, sem barist hafa gegn loðdýrarækt með góðum
árangri og vakið feiknaathygli fyrir miskunnarlausan áróður, ramba nú á barmi gjaldþrots.