Pressan - 19.11.1992, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
25
KARL GARÐARSSON er í tuttugasta
sæti ásamt Hauki Hólm. Þeir eru
númer níu og tíu af fréttamönnum
Stöðvarinnar.
VILHELM G. KRISTINSSON er númer
22 ásamt Ara Trausta.
ARI TRAUSTI GUÐMUNDSSON er
vinsælasti veðurfræðingurinn og
lendir í 22. sæti ásamt Vilhelm G.
HALLUR HALLSSON lendir í 24. sæti.
Hallur er á niðurleið. Fyrir fimm ár-
um var hann númer sextán. Nú er
hann orðinn ellefti vinsælasti frétta-
maður Stöðvar 2.
STEFÁN JÓN HAFSTEIN er næstvin-
sælasti útvárpsmaðurinn þótt hann
sé í raun hættur utan hvað það heyr-
ist annað slagið í honum með pistla
frá Ameríku á Rás 2. Stefán hefur
minna en þriðjunginn af vinsældum
arftaka síns, Sigurðar G. Það telst lík-
lega gott af manni í fríi. Það sannast
á Stefáni eins og Helga H. að ef fjöl-
miðlamenn vilja fara í frí án þess að
tapa vinsældum eiga þeir að fara til
Ameríku.
JÓN MÚLIÁRNASON er þriðji vinsæl
asti útvarpsmaðurinn og langvin-
sælasti jazzþáttastjórinn. Jón er
löngu kominn á eftirlaun og heyrist
varla í útvarpi miðað það sem áður
var. Hann er því líklega sá útvarps-
maður sem á traustustu aðdáend-
urna.
KÁRIJÓNASSON fréttastjóri er í
sjötta sætinu ásamt Pétri þul Péturs-
syni. Kári er þar með annar á lista
fréttamanna; næstur á eftir Atla
Rúnari, varafréttastjóra.
HALLGRÍMUR THORSTEINSSON er í
níunda sæti listans. Og hann er sá
fyrsti sem ekki er Ríkisútvarpsmað-
ur, þótt hann hafi vissulega fengið
þjálfunina þar á sínum tíma.
¥■
SIGURÐUR G. TÓMASSON
er lang-, latig-, latigvinsœlasti
útvarpsmaður landsins. Aðrir
komast ekki með tærnarþar
sem hantt hefurhœlana. Þeir
kœmust ekki eittu sinni íhœl-
ana á honum þóttþeir vœru á
skíðum. Sigurður hefur álíka
yfirburði og Halldór Laxness
meðal rithöfunda, þjóðkirkjan
meðal trúarhópa ogHalim Al
meðal skúrkanna. Sigurður G.
er meira eti þrisvar sinnum
vinsœlli en nœsti maður og
meira en helmingi vinsœlli út-
varpsmaður en Ómar Ragn-
arsson er sjónvarpsmaður.
ATU RÚNAR HALLDÓRSSON er vin-
sælasti útvarpsfréttamaðurinn en er
samt aðeins í fjórða sæti yfir vinsæl-
ustu útvarpsmennina. Öfugt við það
sem gerist hjá sjónvarpsfólkinu þá
dómínera fréttamennirnir ekki út-
varpslistann.
PÉTUR PÉTURSSON er enn ein sönn-
un þess að útvarpsmenn eiga að
gæta þess að tala sem minnst í út-
varp. Hann er í sjötta sæti ásamt
Kára Jónassyni. Pétur byggir á fornri
frægð eins og Jón Múli en saman
voru þeir Jón og Gulli síns tíma á
morgnana á gömlu Gufunni. Það er
spurning hvort vinsældir Jóns og
Gulla duga fram yfir ellilífeyrisaldur-
inn.
PÁLL HEIÐAR JÓNSSON er sá ellefti
af útvarpsmönnum og einn margra
gamalla þungavigtarmanna frá
gömluGufunni.
JÓN & GULLI eru hættir en eru samt
saman í fimmta sæti listans. Það er í
sjálfu sér afrek en samt ekki svo
stórt í Ijósi þess að tveir fyrir ofan þá
eru líka hættir. Það er auðsjáanlega
gott til vinsælda fyrir útvarpsmenn
að hætta að tala í útvarp.
ARTHÚR BJÖRGVIN BOLLASON er í
áttunda sæti meðal útvarpsmanna.
Það vekur hins vegar athygli að Art-
húr Björgvin er ekkert vinsæll sem
sjónvarpsmaður.
SVAVAR GESTS er í tólfta sæti og
nýtur stuðnings þeirra sem vakna
snemma á sunnudögum.
BJARNI FELIXSON er í níunda sæti yf-
ir vinsælustu útvarpsmennina ásamt
Hallgrími Thorsteinssyni. Bjarni er
eini maðurinn sem kemst bæði á
lista yfir útvarps- og sjónvarps-
menn.
ÞORGEIR ÁSTVALDSSON deilir þrett-
ánda sætinu með hópi útvarps-
manna. Þessi gamli Rásar tvö-stjóri
er nú á Bylgjunni.
BJARNI DAGUR JÓNSSON er í þrett-
ánda sætinu ásamt Þorgeiri og Gerði
G. Bjarklind.
GERÐUR G. BJARKLIND er vinsælasta
þulan í útvarpinu og lendir í þrett-
ánda sæti. Vera hennar á þessum
lista minnir á hrópandi fjarveru sjón-
varpsþulanna af sjónvarpslistanum.
smáa
letrið
Þegar fólk nöldrar yfir fríum ferðum
fyrirfólks til útlanda gleymir það
stundum að hugsa til grey Flug-
leiða. Hvernig ætti það fyrirtæki að
halda sér á floti ef allir þyrftu að
greiða fargjaldið sjálfir? löjoim
dæmi úrfarþegalistum:
FI450 Keflavík London, föstudag-
inn 6. nóvember 1992:
Bera Nordal, forstöðumaður Lista-
safns íslands; Guðrnundur
Ingólfsson Ijósmyndari í ímynd;
Ólafur Björgúlfsson tannlæknir;
Heimir Sindrason tannlæknir
(Hótel Jörð), Jón Ásgeir Eyjólfs-
son og yfirleitt allir tannlæknar á ís-
landi á leið til Casablanca að spila
golf — líklega á kostnað Trygginga-
stofnunar; Páll Stefánsson Ijós-
myndari; Raxi Ijósmyndari; Sig-
hvatur Björgvinsson heilbrigðis-
ráðherra og frú; Sigurður Sverrir
Pálsson kvikmyndatökumaður.
FI 454 Keflavík-London, sunnu-
daginn 8. nóvember 1992:
Friðrik Þór Friðriksson kvik-
myndagerðarmaður; Hulda Hákon
myndlistarmaður; Jón Óskar
myndlistarmaður; Kristín Jóhann-
esdóttir kvikmyndagerðarmaður;
Kolbrún Björgúlfsdóttir (Kogga)
leirkerasmiður; Magnús Kjartans-
son myndlistarmaður; Ómar Stef-
ánsson; Öddi leður; Þorri Jó-
hannsson; Óskar Thorarensen
og hínir félagarnir í Inferno 5; Páll
Guðmundsson, myndlistarmaður
á Húsafelli; Sverrir Ólafsson
myndhöggvari; Tolli myndlistar-
maður; Þórunn Hafstein, skrif-
stofustjóri í menntamálaráðuneyti.
FI 455 London-Keflavík, sunnu-
daginn 15. nóvember 1992:
Egill Eðvarðsson, sjónvarpsmaður
og málari; Guðmundur
Ingólfsson Ijósmyndari í ímynd;
Gunnar Guðmundsson, lögmaður
Sophíu Hansen; Helgi Björns og
hinir í Síðan skein sól; Hulda Há-
kon myndlistarmaður; Jón Nordal
tónskáld; Jón Óskar myndlistar-
maður; Kjartan Ragnarsson leik-
ritahöfundur og frú; Kolbrún
Björgúlfsdóttir (Kogga) leirkera-
smiður; Kristinn Hallsson, deildar-
stjóri í menntamálaráðuneyti;
Magnús Kjartansson myndlistar
maður; Ólafur Arnarson, aðstoðar-
maður menntamálaráðherra; Páll
Stefánsson Ijósmyndari; Ragnar
Arnalds þingmaður og formaður
stjórnar Kvikmyndasjóðs; Raxi Ijós-
myndari; Rósa Hansen, systir Sop-
híu Hansen; Sophía Hansen móðir;
Sverrir Ólafsson myndhöggvari;
Tolli myndlistarmaður; Þorkell
Sigurbjörnsson tónskáld.
Þótt eitthvað af þessu fólki kunni að
hafa greitt fýrir sitt flug er ólíklegt að
það hafi allt þurft að draga upp eig-
in pyngju. Stór hluti þess tók þátt í
Jakob Frímann Magnússon
Magical Mystery Tour í London í
síðustu viku og ef við þekkjum þann
mann rétt hefur hann fundið leiðir
til að koma sínu fólki til staðarins og
frá — án útgjaldaauka.