Pressan - 19.11.1992, Síða 30
30
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
Popp
FIMMTUDAGUR
> Megas skemmtir gest-
Ium Hressó eftir klukkan tíu
í kvöld þar sem hann flytur
lög af nýútkominni plötu
sinni, „Þremur blóð-
dropum". Þar sem
meistari Megas
heldur afar sjaldan
tónleika er þetta
upplagt tækifæri fyr-
ir unnendur hans.
• Loðin rotta verður einnig á
Hressó, en hvort hún kemur fram á
undan eða eftir Megasi er alls óvíst.
• Kandís verður á gleðistaðnum
Berlín í kvöld í tilefni þess að dag er
tekið að stytta og drungi hvílir yfir
þjóðfélaginu. Hljómsveitin Kandís
leikur sól-tónlist í anda Commit-
ments og þeir Steinn wRed hot" og
Kiddi „Big foot* ætla að spila hressa
sólarblöndu. Þá verður boðið upp á
drykk sólarlandafarans; hanastélið
Malibu.
• Les Ejectes sem rokkar, raular og
raggar auk
• fslenskra tóna sem hljóta heið-
urstitilinn upphitunarhljómsveit, líkt
og Sykurmolarnir á dögunum hjá U2.
• Fúsi og félagarnir spila á Gaukn-
um.
LAUGARDAGUR
• Bogomil Font & Milljónamær-
ingarnir eru aftur komnir á kreik eft-
ir að sjálfur Bogomil brá sér í tón-
leikaferð með Sykurmolunum og
írsku stórgrúppunni U2. Bogomil er
nú kominn á heimaslóðir og hefst
strax handa við að troða upp með
sveiflu og bossanóva á Tveimur vin-
um.
• Sverrir Stormsker leikur á sjálfan
sig og aðra á Djass.
• Rúnar Þór og þriðju útgáfutón-
leikarnirá Púlsinum.
• Silfurtónar leika nú loks í Borgar-
virkinu eftir að hafa forfallast nokkr-
um sinnum að undanförnu. Ýmislegt
óviðráðanlegt kom upp á. Þeir lögð-
ust meðal annars í flensu síðasta
fimmtudag en eru nú að ná sér og
segjast ætla að mæta öflugir til leiks í
Borgarvikinu og halda svo spila-
mennskunni ótrauðir áfram víða um
borgina.
• Gréta Sigurjónsdóttir sagði skil-
ið við vinkonur sínar í Dúkkulísunum
og hafa þau vinslit tekist ágætlega.
Hún leikur sem trúbador á Feita
dvergnum.
B# Rúnar Þór,
fangapopparinn
frægi, verður með
útgáfutónleika núm-
er eitt á Púlsinum í
kvöld, útgáfutónleik-
ar númer tvö verða á
morgun og þeir
þriðju í röðinni á laugardagskvöld.
Aðaltextahöfundur Rúnars er bróðir
hans, Heimir Már Pétursson, frétta-
maður á Stöð 2. Tónleikarnir verða
sendir út á Bylgjunni.
• Gunnlaugur Guðmundsson og
Ástvaldur Traustason leika sér
saman að hljóðfærum á Blúsbarnum.
• Hermann Ingi og Feiti dvergur-
inn fara vel saman. Kunnugir segja
mikið fjör á Grafarvogsbarnum.
• Jökulsveitin á Blúsbarnum.
• Fúsi og félagarnir á Gauknum.
SUNNUDAGUR
• Ham og fleiri hljómsveitir koma
fram á miklu rokkkvöldi sem haldið
er á Púlsinum þetta kvöld en auk
Ham verður þarna hljómsveitin
• Glott er spilar gott popp í anda
Valgarðs tölvukarls úr Fræbbblunum
fornu.
• Kjartan Valdimarsson og Jam-
es Olsen leika blús á Blúsbarnum.
• Hermann Ingi er farinn af Feita
dvergnum yfir á Fógetann.
• Síðan skein sól spilar lög af
væntanlegri smágeislaskífu á Gaukn-
um í kvöld.
Sveitaböll
FÖSTUDAGUR
• Edinborg, Keflavík
fær í heimsókn dans- og
rokksveitina Síðan skein
sól.
• Guðmundur Rúnar er enn á
Fógetanum.
• Fúsi og félagarnir er hljómsveit
skipuð nánast sömu meðlimum og
eru í Út að skjóta hippa, meðal ann-
ars þeim Sigfúsi Óttarssyni og eðal-
steininum Kristjáni. Þeir hefja helgar-
spilerí sitt á Gauknum á fimmtudags-
kveldi og enda undir morgun á
sunnudegi.
nniuniii
• Síðan skein sól hefur ekki spilað í
henni Reykjavík í tvo mánuði vegna
upptöku á plötu sem væntanlega
mun skila sér í einhverja jólapakka á
næstunni, hafi fólk einhver fjárráð.
Þeir spila á Tveimur vinum í kvöld,
væntanlega lög af nýju plötunni
ásamt gömlum góðum rokkurum.
• Kristinn Pálsson og Albert Sig-
urðsson eru svokallaðir drykkju-
plötusnúðar sem fengið hafa vinnu á
Hressó við að spila tónlist undir bjór-
og víndrykkju. Markmiðið er að vera
með þemakvöld þar sem ein tegund
tónlistar ríkir öðrum fremur og leika
tónlist sem verður útundan á út-
varpsstöðvunum; svokallaða cult-
tónlist í anda Möggu músar og Páls
Óskars Hjálmtýssonar í þáttunum
.Sætt og sóðalegt".
• Rúnar Þór heldur útgáfutónleika
númer tvö á Púlsinum í kvöld.
• Sverrir Stormsker hefur ekki
spilað lengi en hefur nú tekið fram
gítarinn og grínið og ætlar að
skemmta gestum Djass í Ármúla í
kvöld og annað kvöld.
• Hermann Ingi trúbador er aftur
kominn á Feita dverginn eftir smá-
hlé.
• Jökulsveitin er eðalblússveit sem
treður upp á Blúsbarnum. Þar má
heyra góða tónlist í návígi.
• Orgill heldur útgáfutónleika á
Hótel Tslandi í kvöld ásamt frönsku
rokksveitinni
• Sjallinn, Akureyri verður með
stóruppákomu í kvöld því þar verður
„Landslagið 1992* valið. Síðar um
kvöldið heldur Stjórnin svo stórdans-
leik.
LAUGARDAGUR
• Þotan, Keflavík verður með
„gala'-kvöldverð á vegum önnu Leu
og Bróa undir dynjandi tónum
hljómsveitarinnar Karnival. Húsið
opnað almenningi á miðnætti.
• Hótel Selfoss fær til sín hljóm-
sveitina Snæfríði og stubbana sem
leikur fyrripart kvöldsins en svo
bregður KK- band á leik.
• Sjallinn, Akureyri Stjórnin með
stórdansleik annað kvöldið í röð.
Barir
I Að þessu sinni hyggst
Idrykkjumaður PRESS-
UNNARfjaUa um barinn,
sem ekki var. Leið
drykkjumannsins lá nefnilega í
Sögubíó á dögunum, þar sem áð-
ur var einn brjálæðislegasti
skemmtistaður Evrópu — sjálft
Broadway. Þegar bíó þetta var
opnað (með rangri fallbeygingu)
stóð nefnilega til að gera það
glæsilegra en vant er um íslensk
kvikmyndahús, sem ekki er van-
þörf á þegar hugurinn er leiddur
að ömurlegum örlögum Gamla og
Nýja bíós. Það sem fyrst og fremst
vakti þó áhuga drykkjumannsins
var að til stóð að hafa bar í bíóinu,
líkt og tíðkast í bestu kvikmynda-
húsum vestrænnar siðmenningar
vestan hafs sem austan. Nærri má
því geta um undrun og vonbrigði
drykkjumanns PRESSUNNAR þeg-
ar hann komst að því að í Sögu-
bíói var enginn bar heldur ein-
ungis hefðbundnar poppkorns-
vélar bak við langborð í smekk-
lausri innréttingu, sem eins gæti
óprýtt flugvöll sem spítala. Hvar
er barinn sem oss var lofaður?
Þetta leiðir hugann hins vegar að
almennara vandamáli, sumsé því
að hvergi finnast barir í íslenskum
bíóum. Það hefði til dæmis verið
ólíkt skemmtilegra að sjá hina
klassísku íslensku gamanmynd
Föla víkinginn drukkinn en
ódrukkinn. Og það má segja að
vandinn sé útbreiddari en svo að
hann takmarkist við bíóin. Það er
harla sérkennilegt að það finnast
nær hvergi barir annars staðar en
á sérstökum vínveitingahúsum,
þar sem ekkert er gert annað en
að kneyfa. Undantekningarnar
eru leikhúsin og Leifsstöð. En af
hverju eru ekki barir í listasöfnum
og galleríum bæjarins, Laugar-
dalshöllinni, Perlunni, Ráðhúsinu
að ekki sé minnst á sundlaugarn-
ar? Eða ímynda menn sér að
mönnum sé hættara af Margarítu
á sundlaugarbarmi í Laugardal en
Kanarí?
‘BeaujoCais
9jouveau
og besta
jóíafiCaðborð
í bcenum
Eitt besta og gimilegasta jóla-
hlaðborðið í veitingasölum bæj-
arins var að finna á Jónatan Li-
vingstone Mávi fyrir síðustu jól.
Mörgum til mikillar gleði verður
hlaðborðið aftur í ár; jafnvel enn
hlaðnara, ffá og með fyrsta laug-
ardeginum í desember. „Við
stefhum að því að hafa það betra
en í fyrra, þótt við værum afar
ánægð með útkomuna þá. Við
ætlum einnig að vera með sama
verð og síðast; 1.500 krónur í há-
deginu og 2.100 krónur á kvöld-
in,“ segir Guðvarður, eigandi
Mávsins.
Á hlaðborðinu má fmna ótrú-
legustu samsetningu sjávaraf-
urða; síldarrétti, loðnu, sardínur,
reyksoðinn fisk og taðreyktan,
sjávarréttasalöt og svo kjötrétti,
en íþeirri flóra voru hefðbundn-
ar jólasteikur og kalkúnn, sá eini
í bænum, og villibráðarpottrétt-
ir, auk salats og brauðs. Ábætis-
réttirnir verða vel sykraðir sem
og hrísgrjónabúðingurinn ffægi
Ris a l’Amande með saftsósunni.
Auk þessa tekur Mávurinn jafn-
an þátt í uppskeruhátíð rauð-
vínsins Beujolais Nouveau, sem
kom á markaðinn víða um heim
Ásdís Þórhalls-
dóttir Sigurðsson-
ar leikstýrir Leikfé-
lagi Menntaskól-
ansvið Hamrahlíð.
Guðvarður á Jónatan Living-
stone Mávi ætlar að hafa
drekkhlaðið hlaðborð.
í gær. Þetta er rauðvínsuppskera
Frakka í ár og ólíkt rauðvfni al-
mennt er þessi tegund borin
ffam ísköld. Mikil hátíð er því í
Frakklandi um þessar mundir
og eru menn allt að viku f ðí eftir
að vínið kemur á markað. Danir
og Bandaríkjamenn taka einnig
þátt í uppskeruhátíð Frakkanna
og hafa Danir þegar sent tvær
tómar Concorde-þotur til Frakk-
lands sem snúa drekkhlaðnar til
baka, svo bauninn fái sinn
skammt ferskan.
Kippir í kynið
„Það má segja að leikritið snú-
ist um hvað er satt og hvað ekki og
hvar mörkin iiggja,“ segir Ásdís
Þórhallsdóttir, ungur Teikstjóri
sem tók að sér að leikstýra hjá
Leikfélagi Menntaskóians við
Hamrahlíð leikritinu „Sex persón-
ur leita höfundar“; tímamótaverki
eftir Luigi Pirandello sem frum-
sýnt verður í hátíðarsal skólans í
kvöld. Þess má geta að henni er
leikstjórnin í blóð borin, því faðir
hennar er Þórhallur Sigurðsson,
aðalleikstjóri Þjóðleikhússins um
þessar mundir.
Ásdís er ekki útskrifaður leik-
stjóri en lagði þó stund á fræðin í
Leníngrad og Moskvu. Hún titlar
sig leikstjóra í símaskránni.
„Manni er leyfilegt að nota hvaða
titil sem er í símaskránni, en það
má segja að þessi uppfærsla sé
fyrsta atvinnuleikstjórnin mín.“
Er ekki erfitt að leikstýra ung-
um og ómenntuðum leikurum?
„Þetta er erfitt verk og reynir
mikið á þau, en ég hef þá kenn-
ingu að leikhús sé einfalt í gerð
sinni ef dramatíkin kemst til
skila.“
SVART
SAMBVCA
Drykkurinn Sambvca Ro-
mana, sem flestir hafa
lagt í vana sinn að drekka
með kaffibaunum og
kveikja síðan í, hefur not-
ið alimikilla vinsælda á ís-
landi og höfum við á
PRESSUNNI greint frá því
að þeir sem nota hann
mikið séu með viðbrennt
nef og lítil sem engin
augnhár eða augabrúnir.
Hann virðist enn út-
breiddur sá misskilning-
ur að drekka eigi
Sambvca á meðan hann
logar enn, en hvað um
það. Fljótlega kemur nýr
Sambvca- drykkur á
markað, svartur að lit og
einnig anísdrykkur, en
með mun meira lakkrís-
bragði. í hann á að nota
hvítar kaffibaunir og láta
loga í um stund. Síðan er
hann drukkinn líkt og
hinn drykkurinn — helst í
einum sopa.
SOLIN
CEFURÚT
SMÁ-
CEISLA-
SKÍFU OC
SNEPIL
Hljómsveitin Síðan skein sól er
eins og hún leggur sig nýkom-
in frá Bretlandi þar sem hún
lagði síðustu hönd á míkró-
plötu; smágeislaskífu með
tveimur til þremur lögum.
Plata þessi, sem er væntanleg
innan skamms, verður gefin út
með blaðsnepii um feril hljóm-
sveitarinnar sem nú er orðinn
alllangur, íþað minnsta ferill
söngvarans Helga Björnssonar.
Hljómsveitin leikur á Tveimur
vinum á föstudagskvöldið og
bregður sér síðan sama kvöld
til Keflavíkur til að leika á
skemmtistaðnum Edinborg.
Auk Helga leika Jakob Smári
Magnússon, Eyjólfur Jóhanns-
son og Hafþór Guðmundsson
gleðipoppið.
Þótt leikstjórinn Júlíus
Kemp sé enn ungur að ár-
um var hann einu sinni ennþá yngri og nemandi i Verzlunar-
skóla fslands. Hann hefurþvi snemma farið að huga að þvi
hvernig mætti markaðssetja kvikmyndir. Eins og sjá má var
Július síður en svo einn afþessum penu, velklipptu Verzlunar-
skólanemendum og alveg örugglega ekki einn afþeim prúð-
ustu, þótt hárið á honum hafið verið blásnara ogögn piku-
legra í den. Á námsárunum sá hann meðal annars um tónlist-
arklúbbinn ívarog vann við veggfóðrun, en hvortsveppir
voru uppáhaldsmatur hans skal ósagt látið.