Pressan - 19.11.1992, Síða 31
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
31
L|F|Ð EFtIRV|nNU
Föngulegar konur í faðmi
föngulegs piltungs. Fyrir aftan
Axel, þó ekki Rose, stendur Ey-
dís, en Fríða og Sigrún eru í
faðmi hans.
Kátir piltar voru glaðir að sjá þegar þeir munduðu
hljóðfærin, enda ábyggilega nokkuð til í því að þeir
líti á hljóðfærin sem meðfærilegt kvenfólk. Hjörtur
Howser er á nikkunni, Hallur Helga trommar, Steinn
Ármann fer Ijúfum höndum um tamborínuna, Atli
Geir syngur bara og steppar en Jakob er á gítarnum.
* ' -wf
Hafnfirska gengið Kátirpiltar mlt upp á útkomu plötunnar
„Bláa höfrungsins“ með hátt í 300 manna stórteiti á Grettis-
götunni föstudaginn 13. nóvember. í tilefni dagsins brutu Kátu
piltarnir hvern spegilinn af öðrum og höfðu meðferðis tuttugu
svarta ketti til að stríða gegn lögmálum hjátrúarinnar. Engin
óhöpp urðu þetta kvöld, heldur varþetta þvert á móti hið
mesta happakvöld og seldistfyrsta eintakið afplötu Kátra pilta
upp. Stórpopparinn Egill Ólafsson virðistþjást afhjátrú því
hann þorði ekki að láta sjá sig ípartíinu fyrr en klukkan var
eina mínútu gengin í eitt. íveislunni mátti sjá margaþjóð-
kunna Hafnfirðinga ogaðra þekkta íslendinga.
Frá því endurnýjun átti sér á stað á einu elsta diskóteki bœjarins, Casablt
ið fullt út úr dyrum. Tónlistarstemmningin sem þar rtkir er „Hard Core
lœtur ágœtlega í eyrum. Þeir
sem sækja staðinn eruýmist
leðurklœtt tískulið eða uppá- Njj®
búió háskólagengi á ahl '\n-
um 20 til 28 ára. Um síi tu
lielgi varfjör ögf
Rabbi, sem er á forsíðu bókarinnar „Tíminn og tár-
ið" sem fjallar um drykkjusiði íslendinga fyrr og nú,
með eitthvað glært í kókglasi; Ingvar Þórðar altmul-
igmann mundar einn hinna tuttugu svörtu katta og
Hjördís f Levi's situr hjá.
Heit, kynferðisleg stemmn-
ing skapaðist á Tunglinu
þegar danstónlistarfríkið
Adamski, sem getið hefur
sér gott orð fyrir frumlegan
tónlistarflutning á Eng-
landi, mætti á staðinn.
Fjöldi íslenskra kvenna fór
að dæmi enskra kynsystra
sinna og mætti á korselett-
inu einu klæða.
Allir voru kátir þetta kvöld, meira að
segja Valdi Flygenring, Auðunn, upp-
tökumaður Reykjavíkur síðdegis, og koll-
ega hans, SteingrímurÓlafsson.
Jói á Café Romance og
Nanna Guðbergsdóttir
í Mílanó á heitri
stundu.
Jonni sveppur, Bára í Spútnik og Erla Ellingsen, systir stjórstjörn
unnar Maríu Ellingsen.
B I O B O R G I N
Friðhelgin rofin Unlawful Entry
★★ Þetta gæti verið Höndin sem
vöggunni ruggar II eða Pacific
Heights III. Úlfur í sauðargæru ryðst
inn í líf ungs fólks á uppleið og
kemst langt með að rústa þvi.
Systragervi SisterAct ★★ Það er
visst áfall þegar kemur í Ijós að
syngjandi nunnurnar eru fýndnari
en Whoopi Goldberg.
Hinir vægðarlausu Unforgiven
★★★★ Clint Eastwood er vernd-
ari hins vestræna heims — að
minnsta kosti þess villta. Þegar
engum dettur lengur í hug að
bjóða upp á vestra kemur hann
með þetta meistarastykki.
Veggfóður ★★★ Fjörug og
skemmtileg þrátt fyrir augljósa
hnökra.
najuuui
Systragervi SisterAct ★★ Mynd-
in sannar hversu slæm blanda
gamansemi og tilfinningasemi
getur orðið.
Kaliforníumaðurinn California
Man ★ Mynd sem hefði ekki átt að
fara út fyrir fylkismörk Kaliforníu.
Blóðsugubaninn Buffy Buffy the
Vampire Slayer ★ Mynd sem er
byggð upp á einum brandara og
sá er fljótur að ganga sér til húðar.
Ekki fyrir aðra en hörðustu aðdá-
endur Lukes Perry að þola þetta.
Lygakvendið Housesitter -trk
Myndin er spunnin út frá bráð-
snjallri hugmynd, en það er líka allt
og sumt.
Stórkostlegir vinir Shaking the
Tree ★ Svo virðist sem hver einasti
Ameríkani sakni æskufélaganna
svo að hann er ekki í rónni fyrr en
hann hefur búið til goðsögn um
þá.
HASKOLABIO
Boomerang ★ Myndin sem átti
að draga úr hraðri niðurleið Eddies
Murphy af stjörnuhimninum. Hann
stendur sig reyndar ágætlega
drengurinn, en söguþráðurinn fer í
allar áttir og skilur hann eftir í von-
lausri stöðu.
Forboðin ást Ju Dou ★★★★
Meistaraverk. Óvenju stílhrein
mynd; hvert smáatriði er mikilvæg-
ur þáttur í magnaðri heild. En sorg-
leg er hún sagan um það hvernig
gamalmenni og hefðir níðast á
einlægri ást. Myndin sem sagt var
að mundi keppa við Börn náttúr-
unnar um Óskarsverðlaun; en,
með fullri virðingu — Friðrik Þór
keppir ekki við þetta.
Háskaleikir Patriot Games ★★
Smásmugulegheit eru helsti kostur
reyfara eftir Tom Clancy, þegar þau
vantar verður söguþráðurinn heisti
fátæklegur.
Sódóma Reykjavík ★★★
ímyndaðir undirheimar Reykjavíkur
eru uppfullir af skemmtilegum
kjánum og aulahúmor.
Svo á jörðu sem á himni ★★★ í
heildina séð glæsileg kvikmynd og
átakanleg. Varla hefur sést betri
leikur í íslenskri bíómynd en hjá
Álfrúnu litlu Örnólfsdóttur.
Steiktir grænir tómatar Fried
green tomatoes ★★★
Tálbeitan Deep Cover ★★ Bara
nokkuð smart mynd. Þar fýrir utan
er hún spennandi framan af en
rennur síðan út í sandinn. Eins og
tálbeitutrixið í kókaínmálinu okkar.
Eitraða Ivy Poison Ivy ★ Drew
Barrymore vinnur sín stærstu afrek
í slúðurdálkum tímaritanna.
Lygakvendið Housesitter ★★
Góð hugmynd, en Goldie Hawn
og Steve Martin eru eins og grín-
sjálfsalar.
REGNBOGINN
Leikmaðurinn The Player
★★★★ (senn þriller, gamanmynd
og eitruð háðsádeila. Furðulega
vel heppnuð mynd og ber fagurt
vitni áreynslulausu og öruggu
handbragði meistara Altmans. Al-
gjört möst, líka til að sjá 65 stórar
og litlar stjörnur leika sjálfar sig.
Sódóma Reykjavík ★★★
Álappalegir og hlægilegir smák-
rimmar i höfuðborginni.
Prinsessan og durtarnir ★★★
Myndin er tal- og hljóðsett af mik-
illi kostgæfni og ekkert til sparað.
Lostæti Delicatessen ★★★★
Henry, nærmynd af fjölda-
morðingja ★★ Að ýmsu leyti
ókræsilegri morðingi en Hannibal
Lecter.
Homo Faber ★★★★ Hittið frá
síðustu kvikmyndahátíð.
STJÖRNUBÍÓ
í sérflokki A League ofTheir Own
★ ★ Líklega var miklu skemmti-
legra að leika í þessari mynd en
horfa á hana. Geena Davis er svo
skemmtileg í framan að hún kemst
upp með allt.
Bitur máni Bitter Moon ★★★
Meinlega erótísk og oft kvikindis-
lega fyndin sápuópera. Samt er
spurning hversu alvarlega maður á
að taka þessa mynd. Það bregður
fyrir meistaratöktum en kannski er
Polanski löngu hættur að taka sjálf-
an sig hátíðlega.
Börn náttúrunnar ★★★
S Ö G U B í Ó
Blade Runner ★★ Ný útgáfa hins
klassíska framtíðartryllis Ridley
Scott og Phil K. Dick. Lítt nýtt og
spjöll unnin á frumútgáfunni.
Fríða og dýrið The Beauty and
the Beast ★★★★ Ótrúlega fögur
mynd og fjarska óhugnanleg þeg-
ar það á við. Höfundar hennar
sanna að því lygilegri sem sagan er
og umbúnaðurinn ótrúlegri því
auðveldara á áhorfandinn með að
lifa sig inn í verkið. Það er galdur-
inn við skáldskap.