Pressan - 19.11.1992, Side 33
FIMMTUDAGUR PRESSAN 19. NÓVEMBER 1992
LÍFIÐ EFTIR VINNU
33
„ JJm þessar mund-
ir hefur Holtið trú-
lega aldrei verið
betra og er líklega
besta veitingahús
landsins. “
Á toppnum í
mat og þjónustu
HÓTELHOLT
HELSTU KOSTIR: MATURINN,
ÞJÓNUSTAN, UMHVERFIÐ OG VIÐ-
MÓTIÐ.
HELSTU GALLAR: SJÁLFUR VEIT-
INGASALURINN ER HELSTTILOF
ÞRÖNGUR OG DIMMUR.
★★★★
Matsalurinn á Hótel
Holti hefur haldist með-
al bestu veitingahúsa á
Islandi í áratugi. Og hann er ekk-
ert að dala. Um þessar mundir
hefur Holtið trúlega aldrei verið
betra og er líklega besta veitinga-
hús landsins.
Matseðillinn er bæði spenn-
andi og smekklega uppsettur sem
fyrr. Þjónustan hefur tekið stórt
stökk fram á við og þótti ekki
amaleg fyrir. Þjónarnir á Holtinu
eru kurteisir, áhugasamir, kunn-
áttusamir og umfram allt þá fylgj-
ast þeir með borðum sínum
þannig að gestina skortir aldrei
neitt en vita í raun lítið afþjónin-
um þess á milli. Þannig á þjónusta
á veitingastað að vera — ekki
þannig að þjónninn verði aðalat-
riðið í kvöldverðinum, hann
þreyti gestina með spurningum
um hvernig hver einasti réttur
bragðist og gleypi athygli gest-
anna í hvert sinn sem hann
skenkir í glösin. Þótt ásetningur
slíkra þjóna sé góður verða þeir
uppáþrengjandi og pirrandi. En
það á ekki við um þjónana á Holt-
inu.
Matseðillinn á Hótel Holti ber
vott um smekkvísi kokkanna;
bæði í vali á réttunum og fram-
setningu. Hann er í raun tvískipt-
ur; annars vegar sjávarréttaseðil!
og meðfylgjandi seðiU dagsins.
Hins vegar er kjötseðiU, sem líka
hefur seðil dagsins. Þar fyrir utan
eru nokkrir valdir vdlibráðarrétt-
ir.
Matseðillinn er fagurlega
skreyttur Kjarvalsmyndum og
minnir gesti á áhuga stofnandans
Þorvaldar Guðmundssonar á
listaverkum (þ.e.a.s. þá sem ekki
geta lesið það af veggjum hótels-
ins). Maturinn er án undantekn-
ingar góður, en þó verður að
kvarta yfir að villibráðarréttir á ís-
lenskum veitingahúsum eru al-
mennt verðlagðir of hátt miðað
við gæði. Það er vissulega ánægju-
legt að borða viUibráð á veiðitíma-
bilinu, en það dregur úr ánægj-
unni hversu dýr hún er. Það er
alltaf leiðinlegt að borga of mUdð
miðað við gæði; bæði á veitinga-
húsum og fyrir þjónustu Pósts og
síma. Ekki er hægt að minnast á
matinn á Holtinu án þess að geta
um fallegan kökuvagn sem kynnt-
ur er gestum með tUþrifum.
Ef yfir einhverju mætti kvarta
er það helst að úrval víns í hálfum
flöskum mætti vera betra.
Það er traustvekjandi að sjá
eigandann Skúla Þorvaldsson
ávallt á staðnum að fylgjast með
sínu fóUd og tU að tryggja að allt sé
í lagi. Þeir feðgar Þorvaldur og
Skúli vinna að þessu leyti eins;
liggja yfir fyrirtækjum sínum, og
árangurinn lætur ekki á sér
standa.
Aðstaðan á Hótel Holti fyrir
matargesti er ágæt þótt salurinn sé
dimmur og tiltölulega lítiU. Það er
auðvelt að finna rómantískari stað
en Hótel Holt en það er ekki auð-
velt og reyndar ekki hægt að finna
betri matstað sem sameinar úr-
valsmat og úrvalsþjónustu.
Skrifaðar
myndir
STEINGRÍMUR EYFJÖRÐ
KRISTMUNDSSON
NÝLISTASAFNIÐ
A sýningu Steingríms
Eyfjörð Kristmundsson-
ar á Nýlistasafninu gemr
að líta verk sem hann hefur unnið
frá 1987. Það kemur áreiðanlega á
óvart að það er meira lesmál á
myndunum en myndmál. í fjór-
um seríum er að finna kynstrin öU
af misjafnlega þéttskrifuðum at-
hugasemdum og setningabrotum,
sem virðast samhengislaus og
ekki leiða mann í neina átt.
Steingrímur hefur annan skiln-
ing á starfi sínu sem listamaður en
flestir aðrir. Hann reynir ekki að
steypa reynslu sína og upplifun á
umhverfmu í samræmda mynd-
ræna heild í listaverki. Hann
bregður sér í hlutverk áhorfand-
ans og lætur sköpunarathöfn
listamannsins ganga til baka, ef
svo má að orði komast, rífur
heUdina í sundur í huglæga frum-
parta sína. Það sem Steingrímur
sýnir í verkum sínum er það sem
hann sér I annarra manna verk-
um. Fyrsta serían samanstendur
af tólf myndum sem hann gerði á
meðan hann sótti ráðstefnu í Var-
dö um listir, tækni og vísindi.
Framlag Steingríms til ráðstefn-
unnar var að fylgjast með hinum
fyrirlesurunum og glósa niður hjá
sér það sem honum datt í hug á
meðan á lestrunum stóð. Efst á
vinstri síðunni er titiU hvers erind-
is og fyrir neðan stuttar athuga-
semdir, skissur, táknmyndir og
úrklippur. A hægri síðu er síðan
nokkurs konar myndræn niður-
staða, eða „logo“, fyrir hvert er-
indi. Verkið sem ég kann einna
best við á sýningunni er „Horft á
ParsifaT1, 36 mynda sería. Hér er
það ópera Richards Wagner,
„Parsifal", sem er útgangspunkt-
urinn. Athugasemdir og tákn sem
tengjast óperunni skjóta upp koU-
inum, en eina samhengið er rauð-
ur stimpill sem gengur eins og
rauður þráður í gegnum verkið.
Það sem þetta verk hefur ffamyfir
hinar seríurnar er að hver flötur er
ekki eins hlaðinn af illlæsilegu
kroti, auk þess sem uppsetning
verksins skapar myndræna heild á
veggnum. Ég hafði líka óljósa tU-
finningu um að hér væri Stein-
grímur persónulegri en í öðrum
verkum sínum.
Maður spyr sig að því hvers
vegna Steingrímur skrifar svo
mikið og teiknar því minna: er
hann að reyna að segja okkur eitt-
hvað? Samt kemst maður sáralítið
áfram með því að lesa það sem
skrifað stendur. Hann er ekki að
tala til okkar, glósurnar birtast les-
andanum eins og hugdettur eða
orð sem hann grípur á lofti eða
hefur undirstrikað í textunum
sem hann velur sér. Er þá væn-
legra að skoða verkin sem myndir
byggðar upp úr skrifuðum orð-
um? Þá verður að hafa í huga að
Steingrímur er ekki að búa til
myndir í venjulegum skilningi.
Það má líta á þetta sem hráefnið
sem myndlist er unnin úr; óljós
hugboð sem leiða okkur út í
óvissu, en hafa ekki fundið sér
form í fullbúinni mynd. Stein-
grímur Eyfjörð er að leggja kapal
og hann einn kann spilareglumar.
Gunnar J. Amason
„Steingrímur
Eyjjörð er að
leggja kapal og
hann einn kann
spilareglurnar. “
GUNNAR J. ÁRNASON
18.00 Stundin okkar E
18.30 Babar.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Úr ríki náttúrunnar. Undirstöðufæða lífkeðjunnar
í Suðurhöfum.
19.30 ★ Auðlegð og ástríður
20.00 Fréttir.
20.35 íþróttasyrpan. Lillehammer í Noregi heimsóttur,
en þar verða næstu vetrarólympíuleikar haldnir. í
þættinum verður einnig fjallað um bardagaíþróttir
sem stundaðar eru hér á landi, þó ekki vopnuð rán.
21.15 Tónstofan. Prestshjónin á Holti í Önundarfirði, þau
sr. Gunnar Björnsson og Ágústa Ágústsdóttir, heim-
sótt. Ágústa syngur við undirleik eiginmannsins.
21.50 ★★ Eldhuginn
22.40 EES. Atvinnustarfsemi á evrópska efnahagssvæðinu,
félagsleg réttindi og vinnumarkaðurinn.
23.10 Fréttir
23.20 Þingsjá.
16.45 Nágrannar
17.30 Meðafa.E
19.19 19.19
20.15 Eiríkur
20.30 ★★ Eliott-systur
21.25 Aðeinsein jörð
21.35 Landslagið á Akureyri. Öll tíu lögin sýnd í einu,
meira að segja lagið með Eyjólfí Kristjánssyni og Ri-
chard Scobie.
22.25 Laun lostans. Deadly Desire. Amerísk frá 1990. Slök
mynd um Frank sem fellur fyrir rangri konu. Alltaf
saman sagan.
23.55 ★ Hornaboltahetja. Amazing Grace and Chuck.
Amerísk frá 1987. Jamie Lee Curtis, Gregory Peck og
Wiliham L. Peterson. Stórtækur tólf ára drengur
hættir að leika hornabolta þar til samið hefur verið
um algjöra eyðingu kjarnavopna. Brátt feta allir
íþróttamenn í heiminum í fótspor hans. Miðlungslé-
leg amerísk hetjumynd.
—nuiiHii—
17.30 Þingsjá E
18.00 Hvar er Valli? Er hann týndur?
18.30 Barnadeildin.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Magnimús
19.25 Skemmtiþáttur Eds Sullivan Kannski finna þeir
bráðum upp litasjónvarpið!
20.00 Fréttir.
20.35 Kastljós
20.55 EES. Síðasti þátturinn tekur fyrir samstarf og stofn-
anir á evrópska efnahagssvæðinu, hvernig reglum
EES er framfylgt, hverjir taka ákvarðanir og hvernig?
Og fleira.
21.05 ★★ Sveinn skytta. Gunguhöfðinginn í toppformi.
21.40 ★★ Derrick
22.40 ★★ Síðasta Fiðrildið. The Last Butterfly. Bresk,
tékknesk, frönsk frá 1991. Drama sem greinir frá
fönskum látbragðsleikara sem nasistar sendu til að
skemmta gyðingum í tékkneska þorpinu Terezin árið
1944. Leikstjóri er Karel Kachyna.
LAUGARDAGUR
14.30 Kastljós. E
15.00 Enska knattspyrnan. Bein útsending frá leik Le-
eds og Arsenal á Elland Road í Leeds.
16.45 íþróttaþátturinn. Bein útsending frá bikarhand-
bolta og úrslit dagsins.
18.00 Ævintýri úr konungsgarði
18.25 Bangsi bestaskinn
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 ★ Strandverðir.
20.00 Fréttir
20.35 Lottó
20.40 ★Fyrirmyndarfaðir.
21.10 Manstu gamla daga? Söngur og síld er yfirskrift
þáttarins sem fjallar um síldarárin. Fram koma Þor-
steinn Gíslason skipstjóri, Sigrún Eva Ármannsdóttir,
Berti Möller, Stefán Jónsson, Ari Jónsson, Margrét Eir
Hjaltadóttir og fleiri.
21.50 ★★★ Bull Durham. Amerísk frá 1988. Susan Sar-
andon fer á kostum í samskiptum sínum við Kevin
Costner, sem leikur hafnaboltakappa sem á í erfið-
leikum með samskipti sín við kvenfólk. Tim Robbins
er einnig góður.
23.35 Morð í mauraþúfu Le systeme Navarro — Mort
d’une fourmi. Frönsk sakamálamynd með Navarro
lögregluforingja í París, sem að þessu sinni á í höggi
við hættulega kókaínsmyglara.
SUNNUDAGUR
13.25 EES.E
14.25 Umræðuþáttur um EES Kostir og gallar EES-
samningsins með þátttöku stjórnmálamanna, sér-
fræðinga, fulltrúa hagsmunasamtaka, andstæðinga
og stuðningsmanna samningsins.
16.25 Leiðsla. Heimildamynd um ævi og starf Jóns Nordal
tónskálds eftir Guðmund Emilsson og Baldur Hrafn-
kel Jónsson.
16.55 Öldin okkar. Franskur myndaflokkur um helstu við-
burði aldarinnar. Engir gera sögulega fróðleiksþætti
betur en Frakkar.
17.45 Sunnudagshugvekja. Einar Karl Haraldsson fram-
kvæmdastjóri flytur.
18.00 Stundin okkar.
18.30 Brúðurnar í speglinum. Sænskur myndaflokkur.
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Bölvun haugbúans. Kanadísk ungmenni finna vík-
ingahaug sem álög hvíla á. Ekkert í líkingu við Hvíta
víkinginn.
19.30 ★ Auðlegð og ástríður
20.00 Fréttir.
20.35 ★ Vínarblóð. Það er eitthvað farið að gerast.
21.25 Tré og list. Norræn samvinna um hvað norrænir
menn útbúa úr trjám. Norræn samvinna gengur yfir-
leitt ekki vel.
21.55 Dagskráin
22.05 Greifinn af Solar. Count of Solar Ný bresk mynd
sem gerist á tímum frönsku stjórnarbyltingarinnar
og segir frá daufdumbum flækingspilti. Við nánari
athugun reynist hann vera greifinn af Solar.
23.25 Sögumenn. Many Voices, One Wórld. Sögumaður
kvöldsins er Eamon McThomas frá írlandi.
M„
1
—THIIIIIIH—
17.00 Hverfandi heimur. Þjóðfiokkar sem stafar ógn af
kröfum nútímans. í þessum þætti verður fjallað
mannfræðilega um íbúa Mongólíu.
18.00 Borgarastyrjöldin á Spáni. Þáttaröð um ógn-
vænlega atburði sem voru eins konar æfing fyrir
heimsstyrjöldina síðari og leiddu til einræðisfor-
myrkvunar á Spáni.
—THlllllil—
17.00 Áttaviti Þáttaröð um fólk sem fer í ferðalög.
18.00 Dýralíf. Elsti fugl í heimi er albatrosinn .Grandma*.
Hann finnst við Tairao-höfða á Nýja-Sjálandi.
16.45 Nágrannar.
17.30 Áskotskónum.
17.50 Litla hryllingsbúðin.
18.10 Eruð þið myrkfælin?
18.30 NBA-deildin E
19.19 19.19
20.15 Eiríkur.
20.30 Sá stóri. Breskur myndaflokkur.
21.00 ★ Stökkstræti 21
22.00 Landslagið á Akureyri 1992. Bein útsending frá
úrslitakeppni Landslagskeppninnar sem fer fram í
Sjallanum á Akureyri.
00.00 ★★★ Peningaliturinn. The Colour ofMoney. Am-
erísk frá 1986. Martin Scorsese-mynd með Paul
Newman, Tom Cruise og Mary Elizabeth Mastran-
tonio. Harðsoðið handrit poppað upp af Scorsese.
Paul Newman hlotnaðist óskarinn fyrir leik sinn í
þessari ágætu mynd, sem þó vantar herslumuninn.
01.55 Banvænn skammtur. E Fatal Judgement Amerísk
frá 1988. Hjúkka ákærð fyrir morð þegar einn af sjúk-
lingum hennar drepst. Fúlt drama!
■^■twni.iinn—
09.00 Meðafa
10.30 Lísa í Undralandi
10.50 Súper Maríó-bræður
11.15 Sögur úr Andabæ
11.35 Ráðagóðir krakkar.
12.00 Dýravinurinn Jack Hanna Villt dýr í dýragörðum
heimsótt.
12.55 Visasport. E
13.25 ★★ Barn óskast. Immediate Family. Amerísk frá
1989. Sæt mynd með Glenn Close í hlutverki góðu
og skynsömu konunnar sem langar til að eignast
barn en getur eigi. James Woods er einnig Ijúfur í
hlutverki eiginmannsins.
15.00 Þrjúbíó. Lóa og leyndarmálið.
16.20 Gerð myndarinnar Single White Female. Athygl-
isvert.
16.40 Leyndarmál. E Secrets. Amerísk endursýnd sápa
byggð á „meistaralegum" skrifum Judith Krantz.
18.00 U2, Robbie Robertson, Seal og Live poppa.
18.55 Laugardagssyrpan. Teiknimyndir.
19.19 19.19
20.00 ★ Falin myndavél
20.30 Imbakassinn
20.50 ★★ Morðgáta
21.45 ★★★ Stepp. Tap. Amerískfrá 1989. Steppdansari
kemst upp á kant við lögin vegna þess að hann er
svo veiklundaður. George Hines og Sammy Davies
Jr. steppa. Frábær dansatriði eru í myndinni.
23.35 ★★ Á ystu nöf Tequila Sunrise. Amerísk frá 1990.
Mel Gibson, Michelle Pfeiffer og Kurt Russell, sem öll
hafa mikla útgeislun, leika þríeyki sem þekkst hefur
lengi. Handritið leiðir þau lítt áfram.
01.25 Blóðsugan. ENick Knight. Amerísk. Rick Spring-
field, söngvarinn góðkunni, leikur vampíru.
I—WlMH-J. Vf 1
09.00 Regnboga-Birta.
09.20 össiogYlfa
09.45 Myrkfælnu draugarnir.
10.10 PrinsValíant
10.35 Maríanna fyrsta
11.00 Brakúla greifi.
11.30 Blaðasnápamir
12.00 Fjölleikahús.
13.00 NBA-deildin. Sýnt frá leik.
13.25 Stöðvar 2-deildin. íslandsmótið í handknattleik.
15.45 NBA-körfuboltinn.
17.00 Listamannaskálinn. Aldarafmæli grínleikarans
Stans Laurel, sem kunnastur er fyrir samstarf sitt við
Oliver Hardy. Sýnt úr myndum kappanna.
18.00 60 mínútur. Bandarískur fréttaþáttur.
18.50 Aðeins ein jörð E
19.19 19.19
20.00 ★ Klassapíur
20.30 Landslagiðá Akureyri.
20.40 ★★ Lagakrókar
21.20 ★★★ Ættarveldið - Endurfundir. Dynasty - The
Reunion. Sjálfstætt framhald af Dynasty-þáttunum.
Fangavist Blakes Carrington er að Ijúka og Krystal er
að vakna til meðvitundar í Sviss. Einhvern veginn
tókst framleiðendunum að spinna meira við söguna
þótt maður héldi að sápan væri löngu búin. Fram-
hald á morgun.
22.50 Tom Jones og félagar. Heitur og sveittur þáttur.
23.20 Helber lygi. E Naked Lie. Amerísk frá 1989. Dallas-
konan Victoria Principal er hér í heitu framhjáhalds-
ástarsambandi.
★★★★Pottþétt ★★★Ágætt ★★Lala ★Leiðinlegt ® Ömurlegt E Endursýnt efni