Pressan - 26.11.1992, Síða 2
B 2
FIMMTUDAGUR PRESSAN 26. NÓVEMBER 1992
Opinbera útgáfan
GYLFIGRÖNDAL
ÁSGEIR ÁSGEIRSSON ÆVISAGA
FORLAGIÐ 1992
★
IÁsgeir Ásgeirsson var
forseti í 16 ár,
1952-1968: íyrsti forset-
inn sem kjörinn var í almennum
kosningum. Hann átti að baki
næsta virðulegan feril, hafði verið
þingmaður í áratugi, fjármálaráð-
herra og forsætisráðherra. Byrjaði
í Framsókn en hrökklaðist þaðan
eftir illdeilur við Jónas frá Hriflu
og endaði í Alþýðuflokknum. Ás-
geir var metnaðarfullur maður og
metnaði hans var áreiðanlega
aldrei fyllilega svalað í áhrifalitlum
flokki jafnaðarmanna. Enda sótt-
ist hann ekki eftir metorðum á
þeim bæ, að því er best verður
séð. Hann var í raun í pólitísku or-
lofi síðari hluta ferils síns sem
þingmaður.
En svo komu sem sagt forseta-
kosningamar 1952. Þegar allt varð
vitlaust. Bandbijálað.
Ásgeir hafði haft augastað á
Bessastöðum í nokkur ár. En rík-
isstjórnarflokkarnir, Framsókn og
Sjálfstæðisflokkur, snerust að lok-
um öndverðir gegn honum. Og
drógu hinn virðulega dómkirkju-
prest, séra Bjarna Jónsson, hálf-
nauðugan út í forsetakosningar
sem áttu aðeins að vera formsat-
riði.
Ríkisstjórnin gegn Alþýðu-
flokknum.
AC Milan gegn KR.
En Ásgeir vann. Það var glæsi-
legasti kosningasigur aldarinnar
og segir sitthvað um persónu Ás-
geirs. Úrslitin voru stjórnmála-
flokkunum þvílíkt reiðarslag að
þeir hafa ekki haft opinber afskipti
af forsetakosningum síðan.
Gylfi Gröndal hefur nú sett
saman 470 síðna doðrant um Ás-
geir Ásgeirsson. Heimildalistinn
fyllir heilar níu síður í bókarlok:
Blöð, bækur, skjöl, bréf, samtöl.
Helstu veikleikar Gylfa eru
tveir: Hann vinsar ekki úr heim-
ildum og hann er algerlega gagn-
rýnislaus á viðfangsefhi sitt.
Bókin er full af lítt áhugaverð-
um smámunum. Engin heimild er
svo ómerkileg eða hversdagsleg að
henni séu ekki gerð skil. Þess
vegna verður bókin á köflum afar
langdregin.
Asgeir Ásgeirsson var í pólitík í
hálfa öld. En á þessum langa ferli
er ekkert sem orkar tvímælis,
hvorki orð né athafnir. Hvergi er
reynt að kafa undir hið pólitíska
yfirborð, stjórnmálasagan sem
Gylfi segir er fengin að láni og öll-
um kunn sem örlítið hafa gefið sig
að henni.
„Persóna Ásgeirs stendur
manni ekki miklu nær eftir 470
síðna lestur. Ásgeir á eiginlega
miklu betra skilið."
Vandaðar ævisögur stjórn-
málamanna geta verið afar áhuga-
verðar, í senn varpað nýju ljósi á
opinbera persónu sem orðin er
fangi syfjulegrar ímyndar og dreg-
ið ffam hvernig hlutirnir gerðust,
hvað fór ffam að tjaldabaki. Bretar
kunna manna best að skrifa svona
ævisögur.
Ævisaga Gylfa Gröndals um
Ásgeir Afgeirsson er hinsvegar
dæmigerð viðhafnarsaga. Enginn
verður móðgaður, sár — eða
undrandi.
Hér er ekki verið að fara ffam á
hneyksli. Ásgeir Ásgeirsson var
vammlaus og farsæll um flesta
hluti; ferill hans var áhugaverður
og Ásgeir var þátttakandi í mörg-
um helstu og dramatískustu stór-
viðburðum aldarinnar. En hér er
bara verið að segja opinberu út-
gáfuna; alkunn tíðindi, ekkert
nýtt. Og persóna Ásgeirs stendur
manni ekki miklu nær eftir 470
síðna lestur. Ásgeir á eiginlega
miklu betra skilið.
Hrafh Jökulsson
VEL UNDIRBÚIÐ KYNLIF
Kynlifíð er ekki eins einfalt mál og margur hefur ætlað. Sam-
kvæmt nýútkominni bók frá Forlaginu, Ástareldi, þarf fólk að
huga að mörgu öðru en velja sér félaga áður en það hellir sér út I
kynlíf. Fyrstu kaflar bókarinnar fjalla um Ukamsæfíngar til að
styrkja kroppinn fyrir komandi mök; bæði daglegar æfíngar, slök-
un, nudd, hreinlæti og ýmislegt annað sem þarf að vera komið i
lag áður en á sjálfan hólminn kemur. Þar næst er fjallað um um-
hverfíð og ýmis húsgögn sem kunna að nýtast fólki i hita leiksins.
Það er ekki fyrr en á blaðsíðu 64 sem forleikurinn hefst og siðan
hitnar i kolunum á næstu 84 blaðsiðum. Þá hefst 42 blaðsiðna
umfjöllun um hugmyndir okkar um Ukamann, mataræði, sálar-
ástand og annað sem hefur áhrif á kynlifíð. Eins og sjá má af
þessu er sjálfur ástarleikurinn aðeins tæpur helmingur afkynlíf-
inu. Þetta er semsagt bók fyrirþá sem eru tilbúnir að leggja nokk-
uð á sig til að bæta kynlifíð. Hinir verða liklega að gefa það upp á
bátinn efþeirnenna ekki að gera það almennilega.
g-d
G'l
Uj
-a
"O
CQ
-J
'O
Uj
•cx
O
V
'O
CQ
'O
yy
Uj-
A
5
o
■'Q
=3.
Kynjasögur
BÖÐVAR GUÐMUNDSSON
Gáskafullar sögur um samskipti kynjanna þar sem
brugöiö er á leik og gamalkunnum fyrirbrigöum gefiö
nýtt og óvænt inntak. Fyndin frásögn þar sem allt
getur gerst!
MállMlog menning
LAUGAVEGI 18, SÍMI (91)24240 & SÍOUMÚLA 7-9, SÍMI (91) 688577
Á
íslansk skáldverk
Trausti Steinsson
Fjall rls
Guðsteinn
•
Hér er einfaldlega komin svo vond
bók að mestu tíðindi þessarar
bókavertíðar yrðu þau ef einhver
verri kæmi á markaðinn. (KB)
Þórarinn Eldjárn
Ó fyrir framan
Foriagið
★ ★
Sögurnar í þessu nýja smásagna-
safni eru misjafnar að gæðum og
þær slökustu draga heildarverkið
niður. En þegar litið er á það sem
best er gert þá sannast hér enn
einu sinni að þegar Þórarni tekst
best upp þá er hann óborganlega
fyndinn. (KB)
Þórunn Valdimarsdóttir
Júlfa
Forlagið
®
Þórunn gengur svo langt í ofsafullu
hugmynda- og orðflæði að ekki
hefði nægt að aga hugsunina til að
skapa frambærilegt verk, skáldkon-
an hefði þurft að grípa til valdbeit-
ingar. (KB)
Ljóð
Gyrðir Elíasson
Mold í skuggadal
Mál og menning
★★★★
Meiri mannleg nærvera, hlýja og
angurværð sem tengjast aðskilnaði
og missi, algerlega nýju stefi í sjálf-
hverfum heimi Gyrðis. (JHS)
Vilborg Dagbjartsdóttir
Klukkan í turninum
Forlagið
★ ★★
Góð bók en ekki mjög persónuleg.
Vilborg hefur áður gefið meira af
sjálfri sér, hér einbeitir hún sér fyrst
og fremst að reynslu annarra og
þegar kemur að stóru spurning-
unni er það ekki hún sjálf sem yrkir.
(JHS)
Þýðingar
Richard Brautigan
Silungsveiði í Ameríku
Gyrðir Elíasson íslenskaði
Hörpuútgáfan
★★★★
Verulega fyndin bók sem kemur
manni stöðugt á óvart með óvænt-
um hugmyndum, skringilegum
uppátækjum og spriklandi mynd-
líkingum. (JH5)
Romain Gary
Lífið framundan
Forlagið
★★★★
Lesandinn þarf að búa yfir einstöku
kaldlyndi til að komast hjá að verða
snortinn. (KB)
Erik Fosnes Hansen
Sálmur að leiðarlokum
Mál og menning
★
Lærður og hátíðlegur, málfræði-
lega kórréttur en steinrunninn.
Textinn hefur verið pússaður svo
vandlega að allt líf hefur um leið
nuddast af honum. (KB)
Pascal Quignard
Allir heimsins morgnar
Mál og menning
★★★★
Undurfallegt verk sem situr í minn-
ingunni löngu eftir að lestrinum er
lokið. (KB)
Barnabækur
Friðrik Erlingsson
Benjamín dúfa
Vaka-Helgafell
★★★
Friðrik gerir úr efniviðnum bráðlif-
andi fólk og sjálf sagan er óvenju-
leg og spennandi. (JHS)
Helgi Guðmundsson
Markús Árelíus hrökklast að
heiman
Mál og menning
★★
Börn eru tilbúin að trúa öllu eins og
aðrir lesendur en það verður að
vera rökrétt samhengi í hlutunum.
(JHS)
Aðrar bækur
Óttar Guðmundsson
Tíminn og tárið
Forlagið
★★★
Við erum víst einhver drykkfelldasta
þjóð (heimi, segir Óttar, sem skrifar
af þekkingu og innsæi og fer oft á
kostum í skemmtilegheitum. (HJ)
Plötur
Bubbi Morthens
Von
Steinar
★★★
Það er bara einn Bubbi og á meðan
hann gerir jafn skemmtilegar, kraft-
miklar og heilsteyptar plötur og
Von þarf hann ekki að óttast um
konungsríkið. (GH)
Gildran
Gildran
Steinar
★★
Lögin rísa ekki upp úr eldstó með-
almennskunnar. Þar liggur Gildru-
hundurinn einmitt grafinn; þeím
hefur örsjaldan tekist að komast úr
miðjumoðinu. (GH)
Ingi Gunnar Jóhannsson
Undirfjögur augu
Fimmund/Steinar
★
Það eru fjórtán lög á plötunni,
hæfileg gomma fyrir þá sem fíla
léttvægt poppqutl, en aðrir ættu
að haida sig í næfilegri fjarlæqð.
(GH)
Jet Black Joe
Jet BlackJoe
Steinar
★★★
Hljómsveitin hefur ekki enn fundið
sinn sanna tón; hún er enn að leita,
en ég heyri ekki betur en að stutt
sé í þann tón. Ein besta frumsmíð
sem heyrst hefur lengi ( íslensku
rokki. (GH)
Megas
Þrir blóðdropar
Skifan
★★★★
Það er einhver órói í loftinu, ein-
hver löngun til að gera nýja hluti í
tónlistinni. Ein af allra bestu plötum
Megasar og slagar hátt í Náttkjól-
ana að fersk- og frumleika. (GH)
Sálin hansJónsmíns
Þessi þungu högg
Steinar
★★★
Þetta er popp, þótt það sé rokkaðra
en áður, og platan geymir fullt af
skemmtilegum lögum, smellum.
sem er það eina sem maður biður
um frá hljómsveit eins og Sálinni.
(GH)
Silfurtónar
Skýin eru hlý
Skífan
★★★★
Gamalt vín á nýjum belgjum. Ég
mæli eindregið með þvi að þjóðin
fái sér vænan slurk. Það verður eng-
inn þunnur af Silfurtónum. Vei!
(GH)
Ýmsir
Minningartónleikar um Karl J.
Sighvatsson
Steinar
★★★★
Samverkamenn kveðja á heiðarleg-
an hátt, hver með sínu nefi, og er
þessi kveðja snillingnum Karli sam-
boðin. (GH)
Ýmsir
Sódóma Reykjavík
Skífan
★★★
Sódóma er fyndnasta íslenska bíó-
mynd sem gerð hefur verið og tón-
listin úf myndinni ætti einnig að
koma öllum i gott skap: hún er
virkilega skemmtileg. (GH)
Endurútgáfur
Guðmundur Jónsson
Lax lax lax
Steinar
★★★★
Hefur hinn skemmtilega sakleysis-
hljóm sem einkenndi íslenskt popp
á sjöunda áratugnum. Frábær stuð-
plata og ætti að hleypa glensi í flest
partí. (GH)
María Baldursdóttir
Ef
Geimsteinn
★
Það má hafa gaman af Maríu ef
maður er í algjöru sþrellstuði eða
vill losna við leiðinlegt fólk úr partíi.
(GH)
Bókum jólin