Pressan - 17.12.1992, Qupperneq 3

Pressan - 17.12.1992, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. DESEMBER 1992 B 3 ;; AFREKSVERK IORÐI OG FRÆÐUM" Ævisaga Jóns Þorlákssonar eftir dr. Hannes Hólmstein Gissurarson er stórviðburður í íslenskri persónu- og stjómmálasögu, sannkallað afreksverk um afreksmann! ÚRUMSÖGN GÍSLA JÓNSSONAR, MEN NTASKÓLAKEN NARA, í MORGUNBLAÐINU 12. DESEMBER „Bókin um Jón Þorláksson er á ... mannamáli, enginn fræða- rembingur, ekkert hnoð. Hún er ótrúlega læsileg í allri sinni lengd, jafnvel ættfræðin er bráðskemmtileg." „Óhemjuleg vinna liggur í þessari bók H.H.G. Þar er ekkert til sparað, enda margt nýtt dregið fram í dagsljósið, bæði myndir sem ekki hafa áður verið prentaðar, svo og stórfróðleg bréf og skjalagögn. Ef ég má álykta eftir því, sem ég þykist best vita af lestri og lífsreynslu, er bókin ákaflega traust." „Að öllu samanlögðu finnst mér að bókin um Jón Þorláksson forsætisráðherra sé mikill fengur íslenskri sögu og bókmenntum.' Gísli lýkur umsögn sinni að sveitasið, eins og hann segir sjálfur, með einfaldri stöku: „Mikil bók að magni og gæðum, mjög við hæfi Jóns, afreksverk í orði og fræðum okkar kæra Fróns." ÚRRITDÓMI GUÐMUNDAR G. ÞÓRARINSSONAR í DV2. DESEMBER: „Bókin er afar fróðleg og skemmtileg aflestrar, vel skrifuð og í raun þrekvirki. Að baki henni liggur gífurleg gagnasöfnun og hefur höfundur verið óþreytandi við söfnun heimilda og dregið þær saman víða að." „Bókin um Jón Þorláksson verður mörgum kærkomin. í henni er að finna mikinn fróðleik og það svo að hún verður eitt þeirra rita sem menn grípa til að fletta upp í til að rifja upp um atvik, menn og málefni." W I 1 0 JÓN ÞORLÁKSSON FORSÆTISRÁÐH£RRA g t HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON ALVÖRU ÆVISAGA Ævisaga Jóns Þorlákssonar er ævisaga fyrir fólk sem gerir miklar kröfur og kann að meta gott bókmenntaverk. Saga verklegra framkvæmda á íslandi, örlagasaga, ástarsaga, stjórnmálasaga, skólasaga og Reykjavíkursaga. |> Litríkar persónur koma við sögu: Hannes Hafstein, Valtýr Guðmundsson, Ólafur Thors, Jónas frá Hriflu, Tryggvi Þórhallsson, Hermann Jónasson, Einar Benediktsson, Ingibjörg Claessen, eiginkona Jóns Þorlákssonar, o.fl. Stórviðburðir: Tímamótabrúin yfir Ytri-Rangá, vegalagning um landið allt, stofnun Eimskipafélagsins og Milljónafélagsins, fyrsta vatnsveitan í Reykjavík, fyrsta vísindaáætlunin um vatnsafl á íslandi, Elliðaárstöðin, undirbúningur Sogsvirkjunar og Hitaveitu Reykjavíkur. Ættfræði, skopsögur, kviðlingar, einkabréf, fágæt skjöl og ræður. „...tvímælalaust einn merkasti stjómmálamaður þessarar aldar..." Davíð Oddsson, forsætisráðherra: „Jón Þorláksson var tvímælalaust einn merkasti stjórn- málamaður þessarar aldar á íslandi...Sú aldamóta- kynslóð, sem Jón Þorláksson var af, lyfti vissulega Grettistaki, því að hún lyfti Islandi inn í nútímann. ...Ég óska Almenna bókafélaginu og Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni hjartanlega til hamingju með þetta stórvirki." Baldvin Tryggvason, sparisjóðsstjóri: „...öllum, sem kynntust Jóni og rituðu um hann, ber saman um það, að þar hafi verið á ferð sérstakur mannkostamaður sakir skarpleika og mannvits. Minningin um hann lifir sökum hins góða orðstírs, sem hann gat sér með störfum sínum, drenglyndi og vitsmunum." Vt'fill Oddsson, formaður Verkfræðingafélagsins: „Hann gerði ótrúlega nákvæma áætlun um virkjanlegt vatnsafl á Islandi árið 1919. Þá hafði hann forystu um virkjunina við Elliðaár og síðar um Sogsvirkjun. Síðast, en ekki síst, er það Jóni að þakka öðrum fremur, að hitaveitu var hrint af stað hér á landi." Þetta 600 bls. stórvirki kostar aðeins 3.995 kr. d ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF - góð bók um jólin! HVITA HUSIÐ / SIA

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.