Pressan - 17.12.1992, Síða 13

Pressan - 17.12.1992, Síða 13
FIMMTUDAGURPReSSANl^DESEMBER1992 BÆKUR & PLÖTUR B 13 JJppháttskal það vera SÖGUSTUND 365 VALDIR KAFLAR ÚR (SLENSKUM BARNABÓKMENNTUM MÁL OG MENNING, 1992 ★★★★ VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR SEGIR SÖG- UR BLINDRAFÉLAGIÐ, HUÓÐSNÆLDA, 1992 ★ ★★★ IÐUNN STEINSDÓTTIR SEGIR SÖGUR BLINDRAFÉLAGIÐ, HUÓÐSNÆLDA, 1992 ★★★ OSilja Aðalsteinsdóttir velur eíhið í Sögustund, sjöhundruð og fimmtíu blaðsíðna bók, og ég get ekki annað en óskað henni til hamingju. Ég er reyndar ekki búinn að lesa hana alla en bókin er þannig hugsuð að það kemur hvort eð er ekki reynsla á hana íyrr en eft- ir ár, í fyrsta lagi. Því fjöldi kaflanna er auðvitað ekki tilviljun heldur er hver kafli merktur einum degi og ædast til að ein- hver fullorðinn lesi hann einmitt þann dag fyrir barnið sem á bókina og kannski systkini þess eða vini. Kvöldlestur er nú sennilega það notkunarform á bókinni sem allra skemmtilegast er, enda er bókin blá að utan með stjömum einsog himinn- inn. Efnið er ekki valið úr jafn mörgum bókum og kaflarnir em, sums staðar em nokkrir samstæðir kaflar í röð, í öðrum tilfellum er köflum úr sömu bók sem geta staðið sjálfstæðir dreift um safnbókina. Stóra spurningin er hvort þessi brot virka einsog til er ætlast, geti staðið sjálfstæð. Öll þau sem ég hef lesið gera það, og ég held það sé óhætt að treysta því að Silja hafi séð um þá hlið mála. Einn af stærstu kostum þessarar safnbókar er að hún vís- ar á allar hinar bækurnar, kafli sem heillar sérstaklega býður uppá að skroppið sé á bókasafnið. Það hlýtur að liggja gríðarleg vinna og umhugsun á bakvið þessa bók, hversu vel lesinn í bamabókum sem safh- arinn er. Fyrir utan verkið að velja og hafna hefur hún stytt suma kaflana og „Þessi bók er upp- skrift að góðum stundum. “ skrifað örfá orð fyrir framan hverja frá- sögn til að skýra málin, stutt en nóg. Kafl- arnir eru langflestir úr barnasögum frá þessari öld, níundi áratugurinn er fyrir- ferðarmestur, einnig er svolítið af ljóðum og svo endursagnir á þjóðsögum. Röð kaflanna er óháð ritunartíma og efni, miðar annars vegar að því að gera lestur- inn sem fjölbreytilegastan, hins vegar er reynt að samræma söguárstíð og lestrar- árstíð, ef svo má að orði komast. Þessi bók er uppskrift að góðum stundum. Hún er líka falleg að utan. Sögusnældur eru þarfaþing, sérstak- lega þegar börn em veik og raddbönd for- eldranna verða undan að láta. Þessar tvær frá Blindrafélaginu eru sérstaklega skemmtilegar. Þær Vilborg og Iðunn segja sínar fjórar sögurnar hvor. Vilborg segir ffá Boggu á Hjalla og mælir textann af munni fram. Það gerir sögurnar ótrú- lega lifandi, munnleg frásagnarlist er al- veg sérstök hvað það snertir, góður sögu- maður kemst í beint samband við ein- hverja taug í manni. Iðunn flytur sinn texta líflega en af blöðum. Sögurnar eru samt gömul ævintýri úr munnlegri geymd, sögur sem hafa gengið í fjöískyldu Iðunnar. Eg hef aldrei heyrt neina þeirra áður og þær eru mjög sérkennilegar og skemmtilegar. Mjög vel heppnað framtak hjá Blindravinafélaginu. Jón Hallur Stefánsson Metsölubók íEyjum ÞRÁINN BERTELSSON SIGLA HIMINFLEY SKJALDBORG 1992 ★ BSkáldsaga Þráins Bertelssonar gerist í Vestmannaeyjum og seg- ir frá ungri konu sem er við- skiptafræðingur að mennt og gerist fram- kvæmdastjóri hjá afa sínum, gömlum út- gerðaijaxli, í þeim tilgangi að koma fyrir- tæki hans á réttan kjöl. Hún kynnist síðan skipstjóra sem hún verður ástfangin af. Inn í þessa eiginlegu sögu blandast frá- sagnir ffá liðnum tíma sem tengjast sögu Vestmannaeyja. Á bókarkápu segir: „Samkvæmt sí- gildri íslenskri ffásagnarhefð er sögumað- ur nafnlaus..." Þessi nafnlausi sögumað- ur stendur nokkuð fyrir utan atburði, lýs- ir þeim úr íjarlægð. Sögumaður Þráins er ekki nógu skemmtilegur sögumaður. Ef menn ætla sér að segja sögu þá er allt í lagi að víkja frá eiginlegum söguþræði með innskotum en þessi sögumaður er óþarf- lega gefinn fyrir útúrsnúninga, langlokur og þreytandi og einhæff gamlingjatal um ættir manna. Frásögnin vaknar aldrei fyllilega til lífs- ins, hún flýtur á lygnu yfirborði, verður aldrei beinlínis banal en rís heldur ekki yf- ir meðalmennsku. Hér er hvorki hin dramatíska stígandi sem einkennir Tröll- akirju Ólafs Gunnarssonar né hin óhefta frásagnargleði sem gerir Heimskra manna ráð svo skemmtilega aflestrar. Þetta er pen, rislítil frásögn sem lesa má sér að skaðlausu og skilur ekkert eftir. Persónusköpun er ekki tilþrifamikil. Það sést í útlínur en vantar fínu drættina svo persónur verði trúverðugar. Sam- dráttur unga fólksins er samkvæmt gam- alkunnugri formúlu. Þar kemur ekkert á óvart, allt fyrirsjáanlegt. Þráinn er ekki slæmur penni, skrifar einfaldan og skýran frásagnarstíl en nokkuð einhæfan. Þó bregður fyrir blæ- brigðum og stílþrifum í upphafi bókar- innar. Sá hluti er að mínum dómi nokkuð góður en höfundur endurtekur ekki það aff ek. Þar má finna myndrænar og snyrti- legar lýsingar á borð við þessa: „Fyrir neðan hann sátu fuglar á syllum í berginu eða svifu um þöndum vængjum, skuggar þeirra liðu hljóðlaust yfir hafflötinn og öldurnar féllu að rótum bergstálsins, samtal án orða eins og rödd úr djúpinu hvísli leyndarmál." Mér finnst ekki ólíklegt að þessi bók verði metsölubók í Eyjum. Hún tengist sögu staðarins, fortíð og nútíð og kann því að þykja forvitnileg. Hún er langt frá því að vera með verri íslenskum skáldsög- „Bókin er langtfrá því að vera með verri ís- lenskum skáldsögum á markaði en hún er hvorki tilþrifamikil né minnisstœð, en þolanleg afþreying. “ um á markaði en hún er hvorki tilþrifa- mikil né minnisstæð, en þolanleg afþrey- ing. En upphafskaflinn er góður og af hon- um þykist ég fullviss um að höfundur geti gert miklu betra skáldverk en þetta. Kolbrún Bergþórsdóttir Unglingar ogeiturlyf HRAFNHILDUR VALGARÐSDÓTTIR IHEIMAVIST ÆSKAN, 1992 ★ Þetta er þokkalega stíluð saga, ekki samt alveg laus við klúðurs- lega hluti einsog „mannfólkið undirbjó veturinn hvert á sinn hátt“ í annarri setningu bókarinnar. Helstu gall- arnir liggja þó í söguþræðinum, persónu- sköpuninni og umframt allt í þeirri ein- földuðu og bjöguðu mynd af viðfangsefn- inu sem bókin dregur upp. Sagan gerist í heimavistarskóla. Þrír vinir koma í skólann, sá ffakkasti kynnist stelpu en sá feimnasti kynnist eiturlyfjum. Við það breytist hann í hálfgerðan um- skipting sem á sér engrar viðreisnar von og Hrafnhildur er ekkert að tvínóna við hlutina, í miðri bók er hann fyrst gerður að glæpamanni og svo verður hann úti. Þetta er siðferðislega afar vafasamur boð- skapur til unglinga, ekki síst þeirra sem eru byijuð að fikta eitthvað við vitundina: að annaðhvort sértu réttu megin við strik- ið og sleppir sjálfkrafa við díki eiturlyfj- anna eða glötuð manneskja sem fer illa fýrir. Það sé jafnvel nóg að vera feiminn og listrænn til að illa fari! Kannski er eins gott að þessi tveggja eða þriggja mánaða vítisganga drengsins ffá sakleysi til ráns- árásar á gamlan mann er svo ósannfær- andi að boðskapurinn dettur dauður nið- ur, það trúir þessu enginn. Mangarinn í skólanum er líka vægast sagt hæpin per- sóna, illur í gegn og fláræðið slíkt að opin- berlega er hann hetja skólans sem kenn- arar og nemendur dýrka... nema sögu- hetjurnar okkar. Svona tær mannvonska er algjörlega óraunhæf í sögu sem þykist vera um venjulega unglinga, dýrið sjálff er ekki nema sextán ára og fær aldrei að sýna á sér mennska hlið. Siðferðisboð- skapurinn hér, að eiturlyfjasalar séu al- vondir hversu góðir sem þeir sýnast, höfðar kannski til einhverra foreldra og baráttufólks gegn eiturlyfjum en ég held að þegar lengra er litið grafi svona einfald- aður boðskapur undan sjálfum sér. Ég ef- ast ekki um góðan vilja Hrafnhildar þegar hún setur málin svona upp en er sann- færður um að hún er á villigötum. Önnur frásagnaratriði falla svolítið í skuggann af þessari sorgarsögu en það eru góðir punktar í bókinni. Frakki strák- urinn er ágætlega gerð persóna og sam- bandið milli hans og þriðja vinarins býð- ur upp á skemmtilega útfærslu. Ástamál- in eru hins vegar svolítið einkennileg í bókinni. Höfundur setur siðferðismörkin við kelerí, það eru einhver óskráð lög í gangi um það atriði sem gjarnan hefðu mátt koma upp á yfirborð textans svo les- endurnir gætu tekið eigin afstöðu. Yfir- hylming drengjanna með eiturlyfjavinin- um og blinda hinna fullorðnu á að eitt- hvað sé að er heldur ekki trúverðug hegð- un. Kápan er gerð af Almennu auglýsinga- stofunni og mér finnst hún mjög vel heppnuð. Jón Hallur Stefánsson 100.000 orda ordasafn ásamt 660.000 orða samheitaorðasafni Handhœg, lítil og frábær tölva sem athugar stafsetningu á 100.000 orðum. Orð má slá inn eftir framburði (t.d. laf = laugh). 660.000 orða samheitaorðasafn. Orðaleikir. Jólatilboð kr. 5.930,- EMM / Nóatúni 17 / sími 68 88 18 VISA - EURO Póstsendum Tilvalin j ólagj öf fyrir - skólafólk - mömmu og pabba og alla hina. WordFinder 220 " í 1 SPHIING CHÉMfRHHtSAURUS (£)(w)(DCS)(D(ÐCH)CD(£)(Ð (D(D(DCÐ(2)<S)C£)(S>©0 ©®©©®®®®Q 333333333 |1 WordFinder™ Orðaleitari og réttritari fyrir enskuna. FULLHUGAR A FIMBULSLÓÐUM - þættir úr Grænlandsfluginu eftir Svein Sæmundsson Bókin hefur að geyma frásagnir af merkum þætti í ís- lenskri flugsögu. Um langt árabil hafa íslendingar stundað flug til Grænlands og áttu þar með ríkan þátt í að rjúfa einangrun þessara granna okkar í vestri. Oft voru aðstæður í Grænlandsfluginu ótrúlega erfiðar, ekki síst í sjúkraflugi þegar teflt var á tæpasta vað enda oft líf að veði. Margar frásagnir í bókinni taka öllum spennusögum fram. Þær eru ótrúlega magnað- ar en samt sannar. Þetta eru frásagnir af fullhugum sem létu sér það ekki fyrir brjósti brenna að fljúga á fimbulslóðir. Oft hékk líf þeirra á bláþræði en auðna réði að alltaf komu þeir heilir heim. Góð bók frá Fróða FROÐI BÓKA & BLAÐAÚTGÁFA tl i, 1. ímm

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.