Alþýðublaðið - 27.04.1922, Page 4

Alþýðublaðið - 27.04.1922, Page 4
4 ALÞYÐUBL AÐIÐ Útlsginn Nýr sjónlelbnr í 5 þattum, eftir Ómar, vétður leikinn í Good Ten plara itúsinu næstkomandi laug ardags og sunnudsgskvöíd Enn fremur verður til steemtana karla kór og einsöogvar Aðgöneutniöar að b ðum kvöid- nnum verða seld'r í Goodt h frá kl 12—7 á morgun (öitudag) Allur ágbði verður gefifsu blá fátækri ekkju. sem íyrir fam dög- um misti eiginimnninn og stend ur nú allslam uppi með 5 börn> hvort öðru yngra Ldkendurnir, sem eru II, hafa Kjörskrá yfir kjóseadur tii landskjðvs-kosninga i júlí í sumar iiggur frammi á afgreiðsiu A'þyðub! ð;ins, fyrtr Alþý'uflokksmenn. Atbugið bú þegar h^ort þér eruð á skrá, því tímittn er stuttur tii »ð kæra. Dagsbrúnarfundur verður haldina flmtudaginn 26. þ m. ki. 71/* e. h. i G-T.-húsinu. Ýms merk m&l & dagskrft. Erlingur FrlOjóusson talar. Sýnið skýrte ni við inngangicn. — Stjórnin* lagt mikið i sölurnar við æfingar. Leggi nú almenuÍRgur fram sinn skerf tii þess, sð likna þessari bágstöddu fjölskyldu og kaupi aðgöngumiðn, er kosta 3 krónur Fyrir hönd U M F R. Guðm Sigurjbmson Gyða Sigurðardóttir Svafa Björnsdóttir ■ A laugaveg 11 eru allar skó og gúmmfviðgerðir ódýrari en hjá öllum öðrum i bsenum. Munið að skórnir yðar geta verið sólaðir samdægurs ef beðið er um A Pálsson, Vorzi. Laugav. 46 selur ágætar dansKar kartóflur á 0,20 */* Reiðlijól gljábrend og vtðge>ð i Faikanuin. Vélat;óri óskar eftir húsnæði 2 herbergj Jtn og eldhúsi, með geymslu. A v á Fallegt káputau s mar kjólatau, baraakragar, verkmanna skyitur fæst I verzl á Vatnsstfg 4 Ritstjóri og ðbyigð treoaður: ólaýur Friðriksson. Prentsmtðjan Gutenberg. Edgar Rict Burrougks; Tarzan. verðum að halda í suður til þess að hitta vini okkar. Þess vegna held eg í suður". .En það getur verið að þessi maður viti betur en við. Hann virðist vera þaulkunnugur hér í skógunum og innfæddur. Við skulum að minsta kosti elta hann dá- lítinn spotta". .Uss, uss, Philander", endurtók prófessorinn, .eg er maður, sem erfitt er að sannfæra, en þegar búið er að sannfæra mig, þá er ekki til neins að ætla sér að breyta skoðun minni. Eg held áfram t rétta átt, þó að eg verði að fara hringinn i kringura meginlandið Afriku, til þess að ná áfangastaðnum". Þegar Tarzan sá að þeir komu ekki á eftir sér, hljóp hann til þeirra, og kom það í veg fyrir frekari rök- færslur. Hann benti þeim aftur að koma, en þeir héldu enn áfram að þrátta. Loks misti apa-maðurinn þolinmæðina. Hann þreif i öxl Pbilanders og áður en þessi heiðvirði öldungur vissi, hvort hann hefði verið drepinn eða að eins lemstraður til óbóta, var Tarzan búinn að binda reipi vandlega um háls honum. »Uss, uss, Philauder", sagði Porter gramur; „það er mjög ósæmilegt af yður að láta þessar svivirðingar við gangast". En varla hafði hann slept orðinu, þegar hann var gripinn og bundinn í sama reipið. Þvf næst lagði Tarzan af stað i norður og teymdi prófessorinn og skrifara hans, sem báðir voru lat-hræddir. Steinþegjandi var haldið áfram, svo stundum skifti, að þvi er bandingjunum íanst; en alt í einu urðu þeir rá sér numdir af gleði, því þegar þeir komu upp á kollinn á lítilli hæð, blasti kofinn við þeim í tæpri 50 faðma fjarlægð. Hér leysti Tarzan þá, benti þeim á litla kofann og hvarf inn i skóginn. „Stórmerkilegt, stórmerkilegt", hvæsti prófessorinn. „En þér sjáið Philanöer að eg hafði rétt að mæla eins og fyrri daginn; og hefði eg ekki látið undan þráan- um í yður, þá hefðum víð sloppið við allar þessar 6- farir, mér liggur við að segja skelfingar. Eg ætla að biðja yður einnar bónar: Latið hér eftir stjórnast af vitrari og hagsýnui mönnum, þegar þér þarfnist hyggi- legra ráða". Philander var of feiginn hinum heillavænlegu Iokum æfintýrisins, til þess að ýfast við hnútuna. Hann greip í hönd vinar síns og þeir hröðuðu sér í áttina til kofans. Nú voru þau öll mjög ánægð að vera saman komin eftir alla hrakningana. Og er dagur rann sátu þau enn og sögðu frá þvf, sem fyrir þau hafði koraið og voru með allskonar bollaleggingar um þennan einkennilega verndara, sem þau höfðu fundið á þessari eyði-strönd. Esmeralda var handviss um að það væri engill guðs, sendur þeim til varðveislu. „Hefðirðu séð hann rífa f sig hrátt ljónskjötið", sagði Clayton brosandi, „þá mundir þú hafa álitið hann mjög efniskendan engil". „Ó, eg veit ekkert um það Clayton", svaraði Esmer- alda; „en eg held að það geti skeð, að guð hafi gleymt að láta hann fá eldspítur; hann sendi hann niður í svo miklu skyndi, til þess að gæta okkar allra. Og auðvitað getur hann ekkert soðið eldspýtnalaus". „Það var ekkert guðdómlegt við rödd hans", sagði Jane Porter og það fór hroilur um hana, þegar hún mintist á öskrið, sem apinn hafði rekið upp, eftir að hann hafði drepið ljónið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.