Pressan - 16.06.1994, Blaðsíða 40
i
í
I
i
I
í
Aþriðjudaginn gerð-
ist það sem margir
töldu óumflýjan-
legt: Páll Kr. Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vífilfells, lét
af störfum eftir langvarandi
-
samstarfsörðugleika við
Pétur Bjömsson, aðaleig-
anda og stjórnarformann
fyrirtækisins. Páll Kr. kom
inn í fyrirtækið þegar Pétur
rak Símon Gunnarsson
eftir stutta veru og fleiri
fengu að fjúka í kjölfarið.
Frá þeim tíma hefur sam-
starf þeirra verið afar stirt
og Pétur ógilt hverja
ákvörðunina á fætur ann-
arri sem Páll hafði tekið
auk þess sem Pétur hældi
ffamkvæmdastjóra sínum
ekki beinlínis í samtölum.
Á ýmsu hefiir gengið þar
innan dyra, en starfslok
Páls voru óvenjuharkaleg,
en heyrst hefur að honum
hafi ekki verið hleypt inn á
skrifstofu sína til að taka
saman pjönkur sínar öðru-
vísi en í fýlgd fulltrúa fýrir-
tækisins. Þó virðist hafa
orðið að samkomulagi að
ræða málið ekki opinber-
lega og þegar PRESSAN
hringdi í Vífilfell í gær,
miðvikudag, sagði ritari að
Páll væri ekki við, en væri
hins vegar væntanlegur...
Reykjavíkurlistinn er
nú í óða önn að
skipta með sér her-
fanginu og skipa í ráð og
nefndir. Á dögunum stóð
varaborgarfulltrúinn Helgi
Hjörvar upp og gerði að
tillögu sinni að guðffæði-
neminn og Reykjavíkurl-
istamaðurinn Davíð Þór
Jónsson yrði gerður að
fulltrúa borgarinnar í Kjal-
arnesprestakalli. Viðtök-
urnar vom misjafnar, en
eins og menn þekkja er
Davíð Þór annar Radíus-
bræðra og önnur Górilla
Aðalstöðvarinnar...
VIÐ
HLUSTUM
ALLAN
SÓLAR-
HRINGINN
643090
4.