Vísir Sunnudagsblað - 13.11.1938, Side 5

Vísir Sunnudagsblað - 13.11.1938, Side 5
VISIK SUNNUDAGSHLAD 5 slökk. En Ilelgi vildi ólmur láta okkur binda skíðin á okkur. Sumir létu undan, - aðrir ekki. Stafina höfðum við ekki notað heldur. En Helgi félck okkur með sér í gönguferðir, og þá fundum við brátt, að gott var að Iiafa þá. Nær er mér að lialda, að fyrsta skólabarna-ferðalagið, sem far- ið var hér á landi, sé ferðalag- ið, sem H. V. fór með barna- skóladrengi sína, fyrsta vetur- inn, sem liann var barnaskóla- stjóri á Sevðisfirði, (1903?). Hann fór ]íá með 12 eða 15 skóladrengi á skiðum umhverf- is Bjólf. Það er býsna löng leið og nokkuð af benni erfitt. Eg get hugsað riiér, að láta muni nærri, að þétta séu um 25 km. Og það þótti naéátum því óvita dirfska, að fara með strákana í þessa sváðilför. Þreýttir voru þeir að vísu, sumir, þegai' heim . var komið. En Jieir voru þá líka roggnir og ánægðir, —- það er óhætt að fullyrða. Það fyrsta, sem Iiér var skrif- að i blöð um skíðaíþróU, mun líka bafa verið frá Helga Val- týssyni. Það var bráðfjörug og skemtileg grein um endurvakn- in,g skíðaíþróttarinnar í Noregi og hvatning lil íslendinga, um að sýna nú þessari góðu íþrótt meiri og almennari sóma, en .til þessa hafði gert verið. Ekki man eg hvernig á ]ivi slóð, að ekki var þessi grein tekin i „Bjarka", — en Davíð Östlund tók hana í „Frækorn“, — sem raunar var trúmálablað; var það skraut- prentað tölublað, með sldða- myndum frá Noregi, t. d .mynd af Holmenkollen-brekkunni. Ekki veit eg, hver álirif þessi viðleitni hafði, út um bygðir lands, eða hvort hún liafði nokk- ur áhrif. En við vorum hrifnir og' hreyknir af Helga, og mátt- um vel vera það. Skynsamt folald. Bóndi nokkur, sem heima á nærri Barrow-on-Trent, á folald eða veturgamalt trippi, sem liann hefir kent þá list, að brynna ,sér sjálft með þeim hætti, að það dælir vatni! úr brunni í trog eða fötu og drekk- ur siðan. Það lyftir sér að fram- an og stendur á afturfótunum, þrífur til dælunnar með kjafti eða framfótum og byrjar að dæla. Þegar trogið er orðið milli hálfs og fulls hættir það vinn- unni og fer að drekka. Sagt er að folaldið liafi komisl fljótt upp á lag nxeð þetta og brynni sér síðan sjálft, er það þyrstir. rikisstjórnarafmæli Zogs Albanakonungs Fyrir nokkuru var efnt til mikilk háííðahalda í Tirana, höf- uðborg- Albana, og' víðar um landið, í tilefni af því að tíu ár voru liðin frá því er Zog I. settist á konungsstól. Þá var því spáð, að eftir tíu vikur yrði búið að launmyrða hann eða reka úr landi, en sú hrakspá og aðrur hafa ekki ræst. Á undan- gengnum árum hefir mjög færst í umbótaátt í Albaníu og má mikið þakka það Zog konungi. ZOG OG GERALDINE DROTNING. T» r iu ara Ameríski blaðamaðurinn. R. H. Markliam var í Tirana, ]ieg- ar bátíðaböldin stóðu yfir, og segir að fögnuður manna bafi verið mikill, og það sé enginn efi á þvi, að þegnarnir bafi yfir- leilt bylt Zog af einlægum liuga. Því að þótt sitlbvað megi að Zog finna og gerðum bans, hefir honum orðið mikið iá- gengt á skömmum tíma. Al- bania var eitt af „tundurhorn- um“ álfunnar. Þar var áður fyrrum alt af eilthvað að gerast, sem gerði allar liorfur á Balk- anskaga tvísýnar, og Albanir áttu tíðast i deilum við eina eða fleiri nágrannaþjóðir sinar, og friðinum í álfunni stóð oft hætta af því, sem var að gerast i Albaniu. Stigamenn óðu ]iar ii])])i. Engin lög voru virt. En þetta er alt breytt. Vafalaust jók ]iað mjög á fögnuð manna, er ríkisstjórnar- afmælisins var minst, að Zog gekk fyrir nokkuru að eiga unga og fagra konu, sehi cr lík- leg til að afla sér mikilla vin- sælda sem drotning Albana. En drotningarvalið var vissu- lega eitt hinna erfiðustú vanda- mála sem Zog hefir orðið að fást við. Það mál var á dagskrá nokkur undangéngin ár. Alban- ir ræddu það sín á milli. Það þurfti að ráða fram úr því. bvort velja ætti fyrir drotningu konu, sem væri Vesturlanda — eða Austurlandakona, kristinnar trúar eða Mobammeðstrúar, konungborin eða af borgaraleg- um ættum, innlend eða erlend o. s. frv. í landi eins og Albaniu keniur nefnilega margt annað til greina en í flestum öðrum kommgsríkjum heims.-Én kon- ungurinn réð fram úr málinu á þann hátt, að flestir eða allir lélu sér vel líka. Hann gekk að eiga stúlku sem er af amerísk- ungverskum uppruna. Drotn- ingin, Geraldine, er fríð sýnum og fjörleg, alþýðleg og ræðin, og síðan er hún settist á drotn- ingarstólinn er kominn alt ann- ar og skemtilegi’i bragur á hirð- lifið en áður var á því og al- banskar konur líta aðdáunar- augum á hina vel klæddu og glæsilegu drotningu, og taka hana sér til fyrirmyndar, að svo miklu léyti sem þeim er unt, efna vegna og annara ástæðna. En í þessu afskekta Iandi, þar sem menningin er enn á frekar lágu stigi á ýmsum sviðum, fær hin nýja drotning vafalaust að kenna á ýmsum erfiðleikum, en hún hefir þegar unnið fyrsta leikinn í þeirri baráttu, með því að vinna sér Iiylli fvrir al- þýðulega framkomu. Hætturnar, sem kunna að verða á vegi hennar, eru miklu minni, en verið hel’ði á vegi þeirrar konu sem sest hefði á drotningarstól fvrir tíu árum eða fyrr. Og höfuðborgin er miklu skemtilegri staður til dvalar en liún var þá. Það er einnig breyting sem þakka má manni hennar, Zog konungi. Því að það er liann, sem liefir bygt upp Albaniu nú- timans, hina einu Albaniu, sem nokkuru sinni hefir í raun og veru verið sjálfstætl ríki og sameinað. Og sjálfur stofnaði hann konungdóminn í landinu. Hann gerði sjálfan sig að kon- ungi. Það, sem mesta atliygli vek- ur, þegar litið er vfir feril und- angenginna tíu ára, er það, að Albanir njóta nú samúðar og velvildar allra þjóða. Við bá- tíðahöldin voru fulltrúar frá ríkisstjórnum allrá nágranna- þjóðanna. Albania á nú ekki í deilu við neitt erlent ríki um nokkurt vandamál, sem alvarlegt getur talist. Hér er vissulega orðin mikil breyting á, þegar athugað er, að áður fyrr áttu Albanir í stöðugum deilum við nágrannaþjóðirnar og stórveldin óttuðust oft og tíðum, að í þessu „tundurhorni“ Balkanskagans mundi verða sú sprenging, sem setti alt í bál í þessum hluta álfunnar og ef til

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.