Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 07.01.1940, Qupperneq 2

Vísir Sunnudagsblað - 07.01.1940, Qupperneq 2
2 VISIR SUNNUDAGSBLAÐ (rex bibendi). Urðu þegnamir skilyrðislaust að lilýða honum, og lét hann þá oft gera einhverj- ar hjánalegar athafnir eða eitt- hvað það, er þeir voru síst færir um. Eitt sinn var Neró keisari kosinn veislukóngur. Hann skipaði Britannicusi bróður sín- um að syngja í von um, að hann yrði að athlægi, en piltinum tókst þetta svo vel, að allir hlustuðu hrærðir á hann. En þetta fékk sorglegan endi. Harð- stjórinn gat ekki þolað þetta og lét drepa bróður sinn á eitri. Börnin urðu heldur ekki út- undan. í lok Satúrnusarhátíðar- innar var haldinn markaður, þar sem seld voru htuð kerti, dýramyndir, hunang og olía, guðamyndir eða mannlíkön úr leiri. Þetta var keypt til að gefa börnum. Nú varð svolítið hlé á hátíða- höldunum, þar til hin eiginlega nýárshátíð byrjaði, og hin gamla hátíð livarf smám saman í slcugga liinnar nýju. Um ný- árið varð aftur glatt á hjalla. Á nýársnótt fóru fæstir í rúmið. Fólk fór i flokkum um göturn- ar með söng, dansi og allskonar ólátum, gerði gaman að þeim, er það mætti, barði á dyr og varn- ■aði siðsamlegu fólki svefns. En alvarlegasti áhorfandi gat ekki að sér gert nema hlæja, og strangasta siðapostula varð ekki að vegi að ávita fólkið. Þannig lýsir heiðinn rithöfund- ur á 4. öld e. K. lífinu þessa nótt. Snemma næsta morgun eru liúsin skreytt lárviðargrein- um og grænum blómsveigum. Efnamenn sækja liofin með logandi kyndla, og þjónar þeirra strá peningum meðal f jöldans, sem flýgst á um skild- ingana. Ráðherrarnir taka þátt í gleðinni og látunum. Æðstu embættismenn Iieilsa gestum sínum með kossi. Allir, sem geta,gefa,og allir fá gjafir, keis- arinn sem aðrir. Þrælar mega drekka sig fulla án þess að fá refsingu. Fátæklingar borða sig sadda af dýrlegustu réttum. Maður þarf aðeins að rétta út höndina, þá fær liann það, sem Iiann vill. Síðan koma kapp- reiðar, leikir o. fl. Yfirleitt geklc allt likt og við hina gömlu Sat- úmusarhátíð. Fjöldinn allur af þeim nýársærslum, er vér þekkjum, á þannig rót sína að rekja til löngu liðinna tíma. Það er ævaforn þjóðtrú, að árið, sem er að byrja, fari mjög eftir nýársdeginum. Þvi er um að gera, að alt, sem maður tek- ur sér fyrir hendur á nýársdag, heppnist, þvi að allir óska, að framtíðin beri hamingju í skauti sér. Byrjun ársins er skoðuð upphaf á nýjum þætti í ævi mannanna. Þann dag skal því ekki liafast neitt það að, er leilt geti til óhamingju eða fátæktar á komanda ári. Gagnkvæmar óskir um farsælt ár og gjafir eru góðs viti. Ekki má hrella neinn eða hryggja með ógætn- um orðum. Þessa gætir hjá liin- um gömlu Rómverjum. Alt, sem þeir vildu framlcvæma á árinu, tóku þeir sér fyrir hend- ur, þótt ekki væri nema nokkr- ar mínútur. Ráðið liélt örstutt- an fund, bóndinn vann stutta stund á akrinum, rithöfundar, skáld og mælskumenn unnu stutta stund að sinni grein o. s. framv. Á Norður-ítaliu gæla menn þess nákvæmlega hverjum þeir mæta á nýársdag. Ef maður mætir fyrst krypplingi, góðum vini eða hermanni, hoðar það gott, en ef það er óvinur, kona, prestur eða grafari, hoðar það mótlæti og sorg. Á Norðurlöndum utan Is- lands er mikil trú á nýárstungl- inu (fyrsta tungli eftir nýár). Þegar maður býst við að sjá ný- árstunglið, er gott að liafa brauð í annarri hendinni en peninga í liinni eða yfirleitt þá hluti, sem menn óska eftir að liafa nóg af á árinu. En að sjá tunglið tóm- hentur, boðar fátækt. Þegar sóp- að er á nýársmorgun, verður að sópa ruslinu inn og geyma það 4 -v- li—f||>nil|ir-“1f-r- ~ i-;rr„ ... - í horni, en ekki að sópa þvi út. Yfirleitt eiga menn ekki að kasta neinu frá sér á nýársdag, t. d. ekki lána eða láta frá sér peninga, nema um gagnkvæm- ar gjafir sé að ræða. I Suður- Englandi hafa menn á gamlárs- kvöld látið silfurpeninga á þröskuld hússins þannig, að þeir skyldu velta inn, þegar hurðin væri opnuð aftur um morguninn. I þjóðtrú flestra landa er þannig margt boðið og hannað á nýársdag, sem hlýða verður, ef vel á að fara, og yrði oflangt mál að nefna margt af slíku og læt eg þetta nægja. Það skal og tekið fram, að sumt af þessu, sem nú hefir verið talið er einnig sums staðar látið eiga við jólin eða jjrettándann. Skal þá lítillega vikið að ýms- um fyrirburðum og fyrirboð- um um áramótin. Flestum er þannig farið, að þeir vilja sjá fram í framtíðina, ekki síst ef þeir húast við að eiga gott í vændum, og flestir vona hið besta. Við áramótin er eins og fortjaldi framtíðarinnar sé of- urlítið lyft upp og hægt sé að skyggnast eftir þvi, er að baki því hýr. Stundum er nóg að liafa opin augu og eyru og taka vel eftir öllu. í öllu eru fyrir- boðar: í sól og tungli, þjTt vinds- ins, snædrífunni o. s. frv. Um áramótin, jól, nýár og þrettánda eru einkum yfirnáttúrlegar ver- ur á fei’ð, senx vita fleira en vér. Dauðir menn, ólfar og allskonar vættir eru á sveiixxi og koma inn i hús manna. Þá má kom- ast að ýnxsu með allskonar töfrabrögðum. En ekki er það vandalaust, og má ekki út af bregöa í hinu snxæsta, nema vei’ra hljótist af. Alt þetta er af ramheiðnum uppruna, þvi að auðvitað eiga kristnir menn ekki að leita spáfregna um fi’anxtíðina né hnýsast i fyrir- ætlanir guðs. Það liefir vei’ið trú, að hinir dauðu væri mönn- unx hjálplegir við að í’ýna í franxtíðina. Eins og áður er sagt, snúast fyi’irboðarnir um afkomu og velsæhl alnxent. Auk þess er ekki undax’legt, þótt þeir hlutir, sem grípa svo mjög inn í líf manna sem ástir og hjónabönd, dauðsföll og fæðingar verði uppistaðan í þessum fyrirboð- um. Ef menn vilja sjá fram í framtíðina, þai’f gjania að búa sig undir hina hátíðlegu shxnd, t. d. að liafa þagað alllengi, áður en tilraunin er gei-ð. Til þess að komast næst þeim dauðu er gott að sveipa um sig horðdúk eða hvítri rekkvoð, ausa xnold úr kirkjugarði yfir höfuð sér, svo að maður hafi moldina yfir sér senx þeir dauðu. Síðan skal ganga rangsælis unx hæinn, bæjarhúsin og kirkjuna. Þar næst þarf að hafa eitthvað op eða gat til að sjá í gegnum inn í framtíðina, vanalega úr myrkr- inu inn í upplýsta stofu. I Svi- þjóð á það að vera í gegnum festargull, í Austur-Prússlandi gegnum reykháfinn eða opinn ljóra. Sér maður þá, senx deyja á árinu höfuðlausa eða án skugga. Þá hefir unga stúlkan séð sig inni i brúðarskarti. Það boðar giftingu. En verið getur, að maður sjái sjálfan sig höf- uðlausan eða í hvítum klæðum. Á gamlárskvöld rísa kii-kjugarð- ar. Hinir dauðu halda guðsþjón- ustu, og svipir þeirra, sem deyja á árinu fylgja þeim. Þetta er alkunn trú á Norðurlöndum, einkum í Noregi, og einnig hér á landi. Maður, sem sat uppi á sáluliliðinu, þekti alla svipi hinna feigu. iHinn síðasta, sem hafði snöru xmi hálsinn, þekti liann ekki; það var hann sjálf- ur; hann hengdi sig á árinu. Alt þetta getur verið hættulegt, nema fylgt sé hinUm ströngustu reglum. í kaþólskum löndum hefir verið sterk trú á dauðra- messum, en þær eiga aðallega að fara fram á allra sálna messu (2. nóv.). Flest af því, sem hér hefir verið nefnt, getur einnig átt við jólanótt eða þrettándann og ÞÆR ERU HRAUSTAR ÞESSAR, mun möi’gunx finnast, að ganga í sundhol á skíðum! En sannleikurinn er sá, að það þarf ekki mikla hreysti til, því þótt stúlkurnar gangi á skíð- um, þá renna þær sér ekki eftir snjó, lieldur í steikjandi sum- ai’hita — á salti. — Myndin er tekin vestur í Kaliforniu.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.