Vísir Sunnudagsblað - 11.02.1940, Blaðsíða 1
mmm
1940
Sunnudaginn 11. febriiar
6. blaA
PETUR BEINTEINSSON FRA GRAFARDAL:
HUGSJONALEIÐTOGINN.
Af sólskini dags er sál þín skírð;
í svartnætti blys af himindýrð
hún laðar, svo mannsins leitarþrá
sér lyftir til flugs með geisla þá
að fylgd, sem að okkar fósturláð
í forneskju hlaut af Drottins náð.
Af norrænni skapgerð skín hún enn
sú sköpunarþrá, sem landnámsmenn
við eylandið tengdu í önn og sögn
um ættleiðslubönd við heimsins rögn
og lýsti þeim yfir lönd og höf
sem leitandans besta vöggugjöf.
Að vígja þá jörð til vaxtar sér,
sem virkjandans beið, eg leyfi mér,
að skíra sem þátt í sköpun hans,
er skepnuna gæddi vitund manns
og heimtir á stöðugt hærri stig
sem hugsjónamögn í fylgd við sig.
Eg skynja þau eins og skin frá sól
þau skapandi blys er lífið ól
við aldanna ris um okkar heim
og opnuðu veginn fyrir þeim,
sem leituðu fram á fegri svið
en foreldrar þeirra sættust við.
Á hörmungatíð og hættuleið
var hugsjónamannsins undanreið
sá eldstólpi sem að áður skein
um ísraelsþjóðar bautarstein,
og lýsir þeim enn um lönd og höf,
sem leitar að Drottins náðargjöf.
Af foringjans verki frjóvgast enn
þau fræ, sem að okkar bestu menn
á frumherjans göngu feldu í jörð.
Sú fórn verður eilíf þakkargjörð,
er frelsar það líf, sem fangið beið
við forlaga sinna bernskuskeið.
Að frelsara sínum svipast enn
vort synduga lið með viðhorf tvenn,
því einum er tamast afturhvarf,
en annar hyggur á þroskastarf.
Þeim breiðir framtíðin faðminn sinn,
er fullhuga leitar þangað inn.
(28.—12.—1939).