Vísir Sunnudagsblað - 31.03.1940, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 31.03.1940, Síða 1
1940 Sunnudaginn 31. mars 13. blad HARMLEIKUR NORÐUR VIÐ HEIMSSKAUT Langt gegn norðri — úti í auðn hins eilífa iss — lá endir þessarar jarðar. En austan við mjallhvitar isbreiðurnar lá út- hafið og Vladivostock, síðasta höfnin í mannheimum. Aldrei hafði nokkurt skip siglt þangað fyr. Menn voru i þann veginn að skapa nýja veraldarsögu. V. J. Voronin stóð á stjórn- palli nýja skipsins síns. Það var 4000 tn. stórt, var bygt til ís- hafsleiðangra og hét „Tjeljus- kin“. Svo langt sem augað eygði sá ekkert nema hafís — borgarís, sem reis upp í hóla og hæðir, jafnvel fjöll. Skipstjórinn vatt sér að liá- um manni með frán augu og sítt jólasveinsslcegg. Þessi mað- ur var Otto Julius Schmidt pró- fessor, heimsfrægur visinda- maður, foringi ferðarinnar og aldavinur skipstjórans. — Þetta er ógiftusamlegt út- lit, sagði liann. — Við komumst ekki neitt. Gamanið kárnar, ef við festumst hér i ísnum. Ef við sitjum fastir, verður ferðin ár- angurslaus. Við getum ekkert gert, Otto Julius. — Þetta er ekki í fyrsta skifti sem við komumst í hann krapp- ann, félagi sæll, sagði Otto Jul- ius, þreif í liandlegginn á vini sínum og hristi hann áfergju- lega. —- Við höfum ratað í svo mörg æfintýri. En í þetta skifti veltur svö miJkið óendaulega mikið — á því, hvernig þetta hepnast. Það má ekki mistakast. í SKAUTI ÍSSINS. Það valt svo mikið á því, að ferð „Tjeljusldn’s“ norður í höf hepnaðist — svo mikið — svo margt. Eitt hundrað og fjórar manneskjur voru í sldp- inu og höfðu verið það i nærri fjóra mánuði, eða með öðrum orðum, allan þann tima, sem skipið hafði verið á leiðinni úr höfn. Það átti að kanna, hvort unt væri fyrir önnur skip en ís- brjóta, að komast norður fyrir Norður-Asíu, og ef svo væri, að velja þá auðveldustu og hættu- minstu leiðina — svo flutninga- skip gætu seinna siglt i kjölfar þess. Það var einkennilegt sam- bland af fólki um borð i „Tjel- juskin“ — einhver einkennileg- asti hópur mannfólks, er nokk- uru sinni hefir tekið þátt í heimsskautaleiðangri. — Þarna voru sjómenn, veðurfræðingar og aðrir vísindamenn frá heimsskautsstofnun Rússaveld- is, Ijósmyndarar, flugmenn, loftskeytamenn, blaðamenn, verkfræðingar, eitt skáld, tíu konur og tvö börn. Annað barnanna fæddist á leiðinni, fæddist einmitt fyrstu dagana sem „Tjeljusldn“ lenti í isnum í Iíarahafi, þar sem skipið varð fyrir allmiklum skemdum af völdum íssins. Þetta skeði i ágústmánuði 1933, þrem vikum eftir að ferð- in hófst. Nú var komið fram i desembermánuð, og ísinn þétt- ist með hverjum deginum — meira að segja með hverri klukkustundinni sem leið. Það var búið að senda skeyti eftii „Krassin“, sterkasta ishrjó' Rússlands, því það var auðsjs anlegt, að hjálparlaust komf-í skipið ekki út úr isnum. En „Krassin“ hafði orðið fyrir ó- höppum, hafði laskast og varð að hverfa aftur. Nú var ekki um annað að ræða, en að búa út flugvélina, sem var á skip- inu, og fara á henni könnunar- flug. En einnig þar elti óhepn- in leiðangursmennina. Flugvél- in eyðilagðist. Skipið háfði komist stórslysa- laust norður fyrir Tjeljuskins- höfðann, nyrsta odda Así”- en lengra komst það ekki. Enda- laus breiða af relds, sem þakti a. m. k. %0 hluta hafflatarins, rak óaflátanlega mót skipinu, uns það var algerlega innilok- að og gat sig að síðustu hvergi hreyft. Það lá einangrað og ó- sjálfbjarga í ótakmarkaðri ís- breiðunni. En það sem verra var — miklu verra — var það, að ísbreiðuna rak, og skipið varð að fylgjast með hvort sem það vildi eða ekki. Skipið ralc fyrir straumum liafsins — rak óaflátanlega mót austri — mót úthafinu. Vissulega rak skipið gegn því sama útliafi, sem það ætlaði sér að ná — en það var bara ekki tilætlunin, að það kæmist þang- að á ósjálfbjarga hátt. Það var sama og heima setið. Þátttakendur leiðangursins unnu dag og- nótt. Þeir neyttu allra bragða til að bjarga skip- inu út úr ísnum og í opinn sjó. Þeir stóðu í stöðugu loftskeyta- og útvarpssambandi við Moskva —- já, raimar við allan heiminn — en þetta var lika það eina, sem minti á líf eða menningu Schmidt prófessor, formaóur leiðangursins. þarna norður i hinni löngu miðsvetrarnótt heimsskautsins. Hún livíldi eins og þung og ó- heillavænleg mara yfir þátttalc- endurn Tjeljuskinsleiðangurs- ins. ÍSHAFIÐ DRYNUR. „Tjeljuskin" hélt áfram að reka — það rak framhjá Stein- hjartaliöfðanum, síðan til norð- urs gegn Beringssundinu. Harð- ur straumur kom utan af liafi og rak ísbreiðuna og skipið í áttina til Heraldeyjanna. Annar ísbrjótur gerði tilraun til að koma „Tjeljusldn“ til lijálpar, en hann komst aldrei nema 40 mílur inn í isinn, og þar með var hjálpin hans búin. Tuttugu og tvær útvarps- stöðvar, er komið hafði verið upp í nyrstu héruðum Rússlands af Heimsskautsstofnuninni rússnesku og varið hafði verið

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.