Vísir Sunnudagsblað - 01.09.1940, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 01.09.1940, Síða 1
1940 Sunnudaginn 1. september 35. blað Pétur Benteinsson: Nýja stjarnan. Of blóðvelli stórveldá blikar luín enn frá Betlehem, stjarnan, sem fortíðarmenn að friðarins forboða gjörðu. Á timanna rás yfir tvö þúsund ár hún tindrandi sk'ein eins og bros gegnum tár við játendum sínum á jörðu. En aldirnar fengu sinn eyðingarkross að erfðum, og löggiltu Júdasarkoss í viðskiftum vinþjóða milli, sem reistu sér háborg á Hauskúpustað með höggstokk og kross til að uppræta það, sem afrækti harðstjórans hylli. Það leikið var forðum, að jafna við jörð þá Jórsalaborg, sem að Drottni var gjörð til heiðurs af háleitum anda. Svo fer það, sem aldirnar byggja sér best, að bölvísu drápsöflin leika það verst. við ásætni auðugra landa. Ef aldirnar fella sinn örlagadóm, fer eyðingin jafnt yfir Hellas og Róm, uns hvergi rís steinn yfir steini. Það reynisl svo ennþá um Eden á jörð, að ofstjórnin heldur þar nærgætinn vörð, en höggormur liggur í leyni. ... Það skeður hér einalt við aldanna ris, að einingin gengur þar nokkurs á mis og samúðin víkur úr vegi; því annar sér heiminn sem hyllingalönd, en hinn eins. og duftið á genginni strönd, Þeir sætlast á deyjanda degi. Það menningar gjaldþrot er megnasta böl, er morðvopnin leggur og þegnanna kvöt við síðustu glapráðagjöldin, og arðvonin tvísýn af ávöxtum þeim, sem úrslitin færa því ríkinu heim, sem tekur sér viðreisnarvöldin. En hvenær mun samvirk og samhuga öld hér setjast dð löndum og taka sér völd í alríki mannlegrar iðju? IJvort hyllir nú undir þá hamingjustund, er heimurinn leggur sitt vöxtunarpund i guðanna góðverkasmiðju? Iivað boðar liún, stjarnan, sem kjarnanum slær á blóðvelli nútímans, heiðríkjuskær frá norðursins hávisku hæðum, og vitringar skýra sem varnaðarmál frá vinunum handan við Ijósvakans ál, sem duldist í fortimans fræðum. Hún vonunum bmnir í viðreisnarátt og vitnar að himnarnir opnist á gátt, ef augu vor fylgja þeim anda, sem djarfastur hóf sig i hamingjuleil frá helvegi jarðar, og boðskapinn reil um samvinnu Ijósvakans landa.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.