Vísir Sunnudagsblað - 08.09.1940, Síða 3
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ
3
Vaðaldan, Kverkfjöllin, Dyngju-
jökull, Kistufell og loks konung-
urinn í þessari hábygðu veröld,
Vatnajökull sjálfur. En á milli
Kreppu og Jökulsár, nokkuru
sunnan við Herðubreið getur að
líla Upptyppinga og fjallarana
frá Kverkfjöllum, sem nefnist
Kverkfjallárani. Hér sjáum við
og vestur með allri Vaðöldu,
norð-vestur undir Svartá og
Dyngjuvatn alt vestur undir
Skjálfandafljót.
Ekkert spillir þessu dásam-
lega útsýni, hvergi ský á bimni
eða mistur í hinu tæra háfjalla-
lofti dregur slæðu á þetta dýr-
lega málverk. Hér er óendan-
lega vítt til veggja, én þó fjöll á
alla vegu.
Loks er svo næst manni
Fagradalsfjallið, suðveslur af
Fagradalnum, með grasi grón-
um hlíðum, seytlandi Iindum og
ljósgræhum mosaflákum. Hér
opnast því augum dauðlegra
manna hin mesta dásemd og
dýrð íslenskra öræfa, blikandi
jöklar, beljandi ár, auðir mel-
arnir og grjótin, tignarleg fjöll,
vafin hlámóðu fjarlægðarinnar
og blómlegir dalir. Hvílíkar
andstæður, og hvílík óendanleg
fegurð.
Suður af Fagradalsf jalli er hrú-
arstæði á Kreppu, örmjótt svo
að sjálfsag't hefðu þeir Skarp-
héðinn og Grettir runnið það
hlaup i flugkasti. Er Kreppa hér
auðbrúuð, og væri þá eflaust
hægt að fara hiklaust áfram inn
um öll öræfin. Hver vill hér
brúa og þar með opna hjarta is-
lenskra öræfa þyrstum ferða-
■mönnum ?
Við eigum bágt með að „leggja
:a“ „Rauðku“ af nýju og slíta
•okkur frá þessari veröld, sem
við okkur brosir af vesturbrún
Fagraskarðs, en ekkert er var-
anlegt á okkar blessaðri jörð,
livorki hið góða né illa, og við
verðum þvi með söknuði að snúa
baki við „æfintýralöndunum“.
Við höldum nú áfram ferð-
inni auslur yfir Fagraskarð og
hiðum þess með eftirvæntingu
hvað þar muni birtast okkur,
þvi að við óttumst vonbrigði eft-
ir það, sem á undan er gengið.
En hér var engin hætta á ferð-
um. Þegar austur á skarðið
kemur, blasir beint fram undan
okkur Brúarjökull, þar sem
Kverká kemur undan jökul-
röndinni, en hún er austasta
kvísl JöþuJsór á Fjöllum ,.og
sameinast sunnan við Herðu-.
þreið, Kreppú pg Jöklu sjálfri.
Þá sést norðpy pg austur yfir öll
Austfjarðafjöllin, en hæst hafa
þeim öliutp bev hið glæsilega
Snæfell með hnjúkaráðir sinar.
»MEK«íES«-SLTSIÐ.
Þegar Mejcues vav sökt, pi: gicipitS gtftt-t í í&inaj’súndi, á Jeiti tíl prakkianJs
uut heitij lcetpuf 'en aS bfrjas* áfrfttn, SkiptS _ siglcii ?neti Ijásúm. ^ Efgfa myndiþ af
sem kusu aö snúa
iTieð u'&nska þot'gH.va,
gkipinú, eu hinar tyæt rrv, ki nokkurum þeíri-a, sem björguöust og voru fluttir aftur tíl Englands,
Skipífs sökk syp fijótt, fáir gáty þjargais fftrangrl lifflun ng ysru HltStilHiir (lj4