Vísir Sunnudagsblað - 13.10.1940, Blaðsíða 1

Vísir Sunnudagsblað - 13.10.1940, Blaðsíða 1
1941 Sunnudaginn 13. október 41. folad JEftia* H. Cavlingr. Eg liefi farið fimm sinnum til Ameríku, en 15. ágúst árið 1888, lagði eg upp i mína fyrstu vesturför, og er hún mér af ýmsum ástæðum þeirra minn- isstæðust. Eimskipið „ísland“ hélt eins og leið liggur, út Jótlandshafið. Það var eitt þeirra 5 gufuskipa sem Þvingvalla-eimskipafélagið átti; cn hin voru: Þingvellir, Noregur, Helcla og Geysir. Þetta voru all gamaldags og liægfara skip, með farþegarúmi fvrir um 800 mauns. Um þessar mundir var þetta eina eimskipafélagið á Norðurlöndum, sem hafði fastar áætlunarferðir vestur um haf, en þrátt fyrir það, urðu þó ýms mikilvæg óhöpp félag- inu að fjörtjóni, og eitt hið stærsta óhappið skeði einmitt, meðan eg var í þessari ferð. Þegar við komum til Kristjaníu (nú Osló) fréttum við að tvö af skipum félagsins liefðu rekisl á, úli á Atlantshafi. „Geysir“ sökk, og nálægt 80 manns fór- ust, en „Þingvellir“ náði við illan leik i höfn í Halifax, með brotið stefni. Er þessi tíðindi höfðu spurst, var ferðinni liraðað á vettvang þar sem slysið iiafði orðið. Við sáum úr töluverðri fjarlægð rekald og brak úr skipinu: Sjór- inn var spegilsléttur og skips- flakið morraði í hálfu kafi. Það var átakanlegt að sjá stirnuð líkin, þau teygðu fram liend- urnar eins og til að ná í eitthvað til að grípa i. En hér gafst enn ein sönnun þess, liversu slíkir atburðir sem þessir, gleymast fljótt á sjóferð- um, því að kvöldi þessa sama dags, sem við liöfðum orðið sjónarvottar að afleiðingum hins válega sjóslyss, héldu far- þegarnir á „íslandinu“ fjörugan dansleik. Meðal farþeganna voru nokkrar sænskar ungfrúr, MARK TWAIN sem ekki létu sitt eftir liggja, til að ferðin yrði sem skemtilegust. Þar voru einnig tvær norskar stúlkur, sem voru að í'ara til Ameríku til að gifta sig, og setj- ast þar að. Þær voru sýnilega á- kveðnar í því að nota frjálsræð- ið sem best á meðan tækifærið gafst. Eftir 18 daga skemtilega ferð, sáum við hylla undir Long Is- land álengdar, án þess að nokk- urar undrunar eða fagnaðar yrði vart. Morguninn eftir lagð- ist skipið í Hoboken, þá varð okkur það fljótt ljóst, að við vorum komin lil Vesturlieims. Á hafnarbakkanuin moraði af allskonar fólki, járnbrautar- þjónum, ökumönnum, hlaðasöl- um og skóbursturum; flestar manntegundir frá og með prúð- ustu heiðursmönnum og norður og niður i hreinræktaða skálka. Einn irskur lögregluþjónn, Iiafði ]iað hlutverk, að lialda allri þessari sundurleitu og ið- andi mannkös í skefjum. Hér og þar í mannfjöldanum sáust blaðamenn með barðastóra Panamahatta og skrifbækurnar i skyrtuvasanum, sumir þeirra Iiöfðu hitamæla saumaða í aðra buxnaskálmina. Við urðum þess þó brátt áskynja að athygli þeirra beindist ekki að okkur, Iieldur vorus Iþeir að bíða eftir skipi, sem var skamt undan landi. Farþegarnir á „Islandinu“ söfnuðust saman á þilfari skij)s- ins, alþúnir til landgöngu. A leiðinni, liöfðum við talað um að fá ljósmyndara til að taka mynd af öllum hópnum, þegar við kæmum til Hoboken, en nú var engu líkara en allir hefðu gleymt þessu áformi. Við vorum alt í einu ókunnug livort öðru. Sænsku stúlkurnar voru orðnar gjörbreyttar, og þær norsku, voru ofurlítið niðurlútar af líl- ilsháttar samviskubiti, þegar þær sáu liina væntanlegu eigin- menn sína í mannþvögunni. — Svo ruddust allir i land, liver sem betur gat. — Töfraband ferðalags samheldninnar var brostið! % Á sýningunni (sem var opn- uð) i Kaujnnannahöfn, í maí 1888, hafði eg lilillega kynst C. T. Christensen hershöfðingja, og varð þá þegar heillaður af hinu Ijúfa viðmóti lians og tigna persónuleika. — Nú sat eg i skrifstofu hans í Wall Street, og naut þeirrar fþægilegu tilfinn- ingar að eg væri vinur hans. Hann sagði mér að hann væri fæddur í Kaupmannahöfn, áríð 1832. Þar hafði faðir hans verið skraddari, og var honum einnig ætlað að gera þá iðn að ævistarfi sínu; en er faðir hans andaðisl breyttist það áform, svo hann varð verslunarlærlingur í Hels- ingjaeyri. En þaðan hélt hann svo um vorið 1850, af stað til Ameríku, með gömlu barkskipi. I þrælastríðinu, 1861, varð hann foringi danskra sjálfboðaliða- herdeildar, lilaut majórstign og varð síðar hershöfðingi (Gen- eral). Að striðinu loknu gerðist liann meðeigandi í lnnu kunna fyrirtæki, Drexel=Morgan & Co. í forföllum, hefir hann nokkrum sinnum, gegnt sendi- herrastörfum, fyrir Dani (og auðvitað einnig Islendinga) í Washington, höfuðborg Handa- rílcjanna. Næsta sunnudag var eg gest- ur hersliöfðingjans, i hinu skrautlega liúsi hans i Brook- lyn. Húsbóndinn stóð sjálfur i dyrunum og bauð gesti sina vel- komna. En gestirnir söfnuðust í forsalinn. — Eg veilti þvi strax athygli live þetta fólk var frjáls- mannlegt, vingjarnlegt og blátf áfram í viðmóti. Það heilsaði með gamanyrðum, þægilegu brosi og þróttmiklu handtald. Þetta var svo ólikt dönsku sam- kvæmislífi, þar sem gestirnir stara vandræðalegir liverir á aðra, meðan beðið er eftir þvi, að gengið sé til borðs. — Svo MARK TWAIN klappaði liershöfðinginn saman höndunum, og við settumst til borðs. Sessunautur minn, ameri- könsk kona, var í besta máta skrafhreifin, hún þuldi upp fyr- ir mér nöfn gestanna. Ósjálfrátt greip eg fram i fyrir henni er hún, meðal þeirra, nefndi Sam- uel L. Clemens = (Mark Twain) það stóð lieima, eg þekti hið fræga kýmniskáld af myndum sem eg hafði séð af honum. Eg virti liann svo gaumgæfilega fyrir mér, að hann veilti þvi at- hygli og kinkaði vingjarnlega kolli til min. Eg hafði nýlega lesið úrvalssögur eftir hann, og þótti mér þvi vænt um að fá tækifæri til að kynnast honum sjálfum. Eftir miðdegisverðinn (mið- degisveislur eru sem kunnugt er, venjulega haldnar kl. 6—7 e. m.) tók eg mig til, og lieilsaði upp á liinn heimsfræga rithöf- und. Hann var ástúðlegur og blátt áfram, eins og alt þelta fólk. „Heimsækið mig eitthvert kvöldið“, sagði hann, „og borð- ið miðdegisverð með mér, þá getum við skrafað saman.“ Eg lét ekki segja mér það tvisvar, og nokkrum dögum síð- ar, fór eg í heimsókn til lians. Mark Twain átti hús við „Avenue Farmington“. Það var bygt í svo kölluðum Önnu drotn- ingar stil, og stóð i horninu á

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.