Vísir Sunnudagsblað - 10.11.1940, Side 1
1940
Sunnudaginn 10. nóvember
45. blað
.— — "■ —— ■■■'. — ——
LOFTUR GUÐMUNDSSON:
HINSTA VAKTIN
s — o — s ....
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt,
stefbrot úr einhljóma, orðvana söng
um óraveg ljósvakans flutt.
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt.
— I salnum var unað við söng og dans
og seiðandi strengjaglaum.
En úthafið sterkbygður stafninn klauf
móti stormi og báruflaum.
Hljómniður glaðværra hlátra
barst út í blámyrka nótt.
Nú berst þangað titrandi boð um neyð ....
Bjargið oss .. bjargið .. vér sökkvum skjótt.
Gegn um ópgný frá örvita drótt
flytja skipstjórans hljómsterku skipunarorð
til hans skipverja, djörfung og þrótt.
s — o — s ....
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt ....
/
s — o — s ....
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt,
titrandi andvörp hins bænþrungna barms
af brennandi trega flutt.
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt.
Hvert raföldubrot túlkar hetjunnar hug,
sem und helmerki skyldunnar verst,
og um annara líf hvern augnabliks frest
við ægivald heljar berst.
Síðasti bátur frá borði \
hverfur í hafrót og nótt.
Enn berast hin titrandi boð um neyð .... .
út í bládjúp þagnar .... Ó, — hjálpið fljótt.
Um fleyið legst helmyrkur hljótt.
Við myndskreyttar þiljur, — um gljáfægð gólf
fossar freyðandi sær......Alt er hljótt.
S — O — s ....
Þrjú stutt, þrjú lpng, þrjú stutt.
s — o — s ....
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt,
stefbrot af einhljóma, orðvana söng
um óraveg ljósvakans flutt.
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt.
Bjargið oss .... Hraðvængja hugurinn leitar
heim, yfir sollinn flaum.
Bjarthærður svanni og bláeyg telpa
brosa við ljúfan draum.
— Sem hnotskurn bátarnir hrekjast
í hafróti um koldimma nótt.
Nauðstaddar konur, karlmenn og börn
og kall hans titrar ... Ó, — hjálpið fljótt ...
Sem helslög um niðdimma nótt
hljómar aldnanna sogandi, seyðandi gnýr
við sökkvandi gnoð .... Alt er hljótt.
S — 0 — s ....
Þrjú stutt, þrjú löng, þrjú stutt.
Þrjú stutt, þrjú löng .. .