Vísir Sunnudagsblað - 19.01.1941, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 19.01.1941, Síða 1
# 1941 Sunnudaginn 19. janúar 3. blaö QubyrimAwi (fji iðjójnsjcm: Hann fer á víð og dreif — hugur þess manns, sem hefir þó fyrir sig að bera innri augu. Ef svo fer, að miskviðir verða í þessu máli minu, færi eg fram þá vörn, að eg sé eigi til að skrifa nema með gleraugum, sem svo eru gerð, að annað gleraugað gerir mig nærsýnan en hitt fjarskygnan. Þess vegna verð eg í aðra röndina með því marki brenndur, að viðfangs- efnin hillir, en á hinn hóginn lít eg smám augum á sumt, sem öðrum þykir mikilvægt. Hver og einn verður að koma til dyr- anna eiris og liann er klæddur, eða gleraugum búinn. Og læt eg þessar afsakanir gilda. Eg byrja þá á Sölva Helga- syni. Tveir merkishöfundar hafa nú lilaðið undir Sölva með 1000 blaðsiðum papjiírsins, og er Sölvi með þvi móti orðinn þeirrar náðar aðnjótandi, sem eyjarnar bera frá borði, þær sem hillir svo, að þær eru heit- meyjar loftkastala. Bólu- Hjálmar afgreiddi Sölva með ódýrara hætti — einni f jögurra lína vísu, og mun hann hafa ritað hana með krít á óheflaða rúmbrík, pappírslaus þá, sem oftar. Þess vegna segi eg nú — með Þorlialli biskupi: „Eg sé eftir pappírnum.“ En vísa Hjálmars var og er enn ódýr. En hún mun þó seint fyrnast eða aldrei, af því að hennar sannleikur hittir naglann á höf- uðið eða liitti markið með ör, sem ekki kunni að geiga á flug- inu: Heimspekingur hér kom einn í húsgangs ldæðum, með gleraugu liann gekk á skíðum, gæfuleijsið féll að síðum. Þessi dæmalausa lýsing, eink- anlega sú, sém felst í síðustu Ijóðlínunni, gerir grein fyrir því, að Sölvi liafi verið smið- ur sinnar (ó)gæfu. Þarna vant- ar þó Júllu í bakpoka Sölva, til þess að lýsingin sé fullkom- Á VIÐ OG DREIF. in. Formáli Daviðs að skáldsög unni um þennan heimspeking, er að vísu listaverk. En Hjálm- ar hefir með einni ör hitt þann- ig í markið, miðdepil þess, að eigi verður á betra kosið. Ekki vex vegur lieimspekings- ins við það, að bera á bakinu um refilstiguna kvenkyns-hálf- vita, sem er frilla hans. Mér virðist sem merkilegar skáld- gáfur taki niður fyrir sig og kasti verðmætum á glæ, þegar 30.000 króna eða þar um bil er, „kostað upp á“ Sölva, það er, skoðað frá skynseminnar sjón- arhól, varliugavert að stinga sneiðar bjargálna bændum fyr- ir það að taka umrenningum dræmt. Bændur í landi voru hafa orðið sjálfbjarga með einu móti: harðri æfilangi’i vinnu og þrautseigri sparsemi. St. G. þekkir vel að búskapur- inner: „Nurl á landi“. Þar ber- ast al dr ei höpp upp í hend- ur. — Flækingar þjóðar vorrar voru allir í augum iðjubænda landeyður. Þjóð vor hefir lif- að gegnum ótal hörmungar fyrir lilstilli ráðdeildarbænda. En húsgangsmennirnir rýrðu möguleikana til þess að þjóðin gæti tórt — svo ekki sé fast- ara að orði kveðið. Gáfuðu flakkararnir verða ekki varðir með þeirri rök- semd, að sérgáfur þeirra liafi verið þess valdandi, að þeir gátu ekki sætt sig við algenga vinnu. Margir sérgáfumenn liafa orðið að hrjóta odd af of- læti sínu með iðjuhöndum: Stærðfræðingurinn i Þórorms- tungu var bóndi og vann með hörðum höndum. Bólu-Hjálm- ar tók einyrkja búskap fram yfir flakk — og var hann eitt hið mesta og sérkennilegasta skáld, sem ísland hefir alið — eða svelt —. Svo mætti lengi telja. Sölvi, Níels slcáldi, Helgi fróði og allir hinir gátu unnið eigi siður — likamlega vinnu — en Jón í Þórormstungu og Hjálmar, og þvi fremur, sem þeir voru eigi nema annarar handar menn stærðfræðingsins og skáldsins. Vesalings „gáfna- flækingarnir“, sem Matthias nefndi svo, eru betur geymdir undir mosanum en i bókmennt- unum. „Gæfuleysið féll þeim að síðum“ fyrst og fremst vegna þess, að þeir vildu ckki leggja á sig olc áreynslunnar. En allir menn verða „þann djöful að draga“, sem orðið geta menn með mönnum, hvaða fótfestu, sem þeir kjósa, vilja eða sætta sig við. * Merkilegasta efni, sem borið hefir á góma i ú'tvarpinu langa- Iengi, er að mínu viti frásögn, sem Sigurður Einarsson las upp úr Rauðskinnu síra Jóns Thorarensens, um Kristján for- mann í Kotvogi — vinnumann — formann — sem var mikil- menni, hjá bónda, sem var mikilmenni, og áður þjóðkunn- ur. Kristján þessi var formað- ur í hálfa öld, allsendis sjálf- lærður (ef til vill ólæs) í sjó- mannafræði, aflasæll, misti aldrei mann eða skip, speking- ur að viti, veðurglöggur, fríður sýnum og forvitri. Sagan er jafnvel orðuð sem efniviður- inn var góður. Eg sat lengi hugsi, eftir að sagan var sögð, og hugsaði margt, m.a. á þessa leið: Því eru svona menn aldauða nú —- stórmenni slik sem Ketill í Kotvogi og Kristján formað- ur, menn sem menntunin hlóð ekki meira undir en það, að varla lærðu að stafa né draga til stafs. Þó urðu þeir mikils- liáttar menn í sjón og raun, hetjur og hugumstórir. Eða er því til að dreifa, að þeir sé margfaldaðir í frásögninni — látnir hilla í blámóðu fjarsk- ans? ★ Grimur á Bessastöðum kveð- ur: Undir liðið afrek hillir, oft það mönnum sjónir villir. Jóhann Sigurjónsson endur- segir þetta sama i Fjalla-Ey- vindi, vængjar liugsun Gríms með bláum fjöðrum, ef svo mætti að orði kveða: „Fjarlægðin gerir fjöllin blá og mennina mikla.“ Sigurður Nordal skákar sjálf- um sér og Jóhanni undir lög- mál bláa fjarskans i athyglis- verðri ritgerð nýlega, sem tíma- rit Máls og menningar flytur. Hann setur m. a. fram þá liugs- un eða skoðun, að Jóhann hafi fengið Ijóðagerðargáfu i vöggu- gjöf, fremur en hæfileik til sjónleikagerðar. Mér er kunnugt um, að Jó- hann reyndi leikritagerð á barnsaldri, áður en hann reyndi ljóðagerð. Á þeim tima kunni hann enga grein á höf- uðstöfum né stuðlasetning. En þann föðurarf hafði Egill Skallagrímsson á liraðbergi fjögurra vetra að aldri. En Jó- hann var kominn á 10. eða 12. ár, þegar liann nam á Laxa- mýri að vinnumanni þar, vís- indi ljóðagerðar. Krókur skáld- gáfu Jólianns bejrgðist allra fyrst að leikritasmíð. Og þar með er það nokkuirn veginn vist, að hann var fyrst og fremst leikritaskáld. En Jóhann hefði aldrei orð- ið leikritaskáld, ef setið hefði alla æfi á heimahögum eða lilotið erfiðisvinnu-hlutskipti Bólu-Hjálmars, St. G. St. eða annara skáld-bænda. Og það er vafamál, livort hann hefði orðið ljóðskáld í þeirra sporum staddur. Jóhann hefir að vísu gert 2 eða þrjú smákvæði, sem eru perlur — á þroskaárum sínum. En erfðagáfa lians í þeirri grein var eigi ríflegri en svo, að á skólaárum (tvítugs- aldri) kvað hann bláþunna góðtemplarasöngva, sem lesa

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.