Vísir Sunnudagsblað - 16.03.1941, Side 1

Vísir Sunnudagsblað - 16.03.1941, Side 1
Um málvernd og málskemmd. EFTIR KIUI K.l»\ .IÓ\KSO\ LÆKMI i. í 6. tölubl. af „Nýju landi“, er kom út 7. febr., liefst ritgerð er heitir „Um málvernd“. Eg held að eg fari ekki villt í því, að ætla, að aðalerindi hennar sé að gagnrýna ritgerð mína, „Um auglýsingaskrum og „ilm- andi skáldskap“, er kom út i Lesbók Mbl. 19. og 26. jan., en að „málverndin“ sé 'i rauninni aukaatriði. í ritgerð þessari, sem er nafnlaus, og eg gei’i því að sjálfsögðu ráð fyrir, að sé eftir ritstjórann, hr. Arnór Sig- urjónsson, er svo margt, sem eg tel þurfa leiðréttingar, að mér sýnist rétt að sýna lit á því að lagfæra eitthvað af villunum. Mér skildist á fyrstu greininni, að ritgerðinni mundi lokið í næsta blaði og ætlaði mér þá að geyma athugsemdir mínar, unz hún væri komin öll. En nú þyk- ist eg sjá á greininni, er næst kom, að von muni á franihaldi í 2 blöðum enn, og sýnist mér þá réttara, að geyma ekki at- hugasemdir mínar eftir því, að ritsmíð þessi taki enda; mun eg því taka greinarnar til athug- unar jafnóðum og þær koma. Skal í þetla sinn eingöngu vik- ið að fyrstu greininni. Ritgerðin byrjar á nokkurs- konar sögulegu yfirliti um mál- verndartilraunir ritdæmenda „fyrir 30—35 árum“ og hug- leiðingum um, hvers vegna „nú er komin önnur öld“. Þessi kafli ’er örstuttur. Væri liklega á einskis manns færi að lýsa jafn- merkilegum þætti í sögu bók- mennta vorra til nokkurs gagns í jafn-stuttu máli og þarna er reynt, enda mundi sú birtuglæta, sem þarna er orpið á þetta bók- mennlasivið, reynast villuljós eitt hverjum þeim, sem færi að reyna að nota hana til þess að átta sig þar. Það lægi beinast við, að hver sá, er ekki vissi annað um þetta efni en það, ‘sem þarna stendur, liéldi, að þetta málverndartímabil liefði aðeins staðið um fárra ára skeið og komizt hæst fyrir 30 —35 árum með Jóni Ólafssyni, Birni Jónssyni o. fl. Fráleitt ber þó að skilja höf. þannig, því að hann veit náttúrlega, að mál- verndunarviðleitnin hefst meir en liálfri annarri öld fyrr, með Eggerti Ólafssyni, að hún komst á einna hæst stig með 'Fjölnis- mönnum, sem munu fyrstir hafa gert atliugasemdir um málið á ritum er þeir dæmdu, og voru í því efni vandfýsnari en flestir síðari ritdæmendur, og að fyrir 30—35 árum voru Björn Jónsson og Jón Ólafsson, sem manni skilst, að hafi haft forustu í þessu málverndar- starfi, komnir á efri ár og áttu mestallan sinn ritmennsku-fer- il að baki. „Sjónarmið þeirra var einfalt,“ segir höf.: „viðhald fornrar göfgi tungunnar.“ Þetta kann að mega segja um sjónar- mið Eggerts Ólafssonar, en um sjónarmið Fjölnismanna og þeirra, er fetuðu í fótspor þeirra á 19. öld, þ. ó. m. B. J. og J. Ól., er þetta langt of þröng skil- greining. Því fer svo fjarri, að þar beri að leggja áherzlu á „fornrar“, að það orð verður að fella burt, ef skilgreiningin á ekki að villa mönnum sýn. Þessir menn vildu að vísu við- halda þeirri göfgi tungunnar, sem var aðal hennar, áður en liún spilltist, en þeir vildu ekki og reyndu ekki að ríghalda henni í fornum skorðum og tálma á þann liátt eðlilegum þroska liennar; ekki fremur en nokkur okkar mundi geta ver- ið svo hugfanginn af unglingi í fegursta blóma æskunnar, að liann kysi að stöðva þroska hans á því skeiði fyrir fullt og allt, þótt liann ætti þess kost. En að vísu mundum við kjósa, að þroski hans beindist í þá átt, sem við teldum rétta, og ef hann hefði atast af óhreinind- um, mundum við reyna að þvo þau af lionum og koma i veg fýrir, að liann ataðist á ný. Fjölnismenu og aðrir mál- verndarmenn, er liér ræðir um, reyndu ekki — að örfáum und- anteknum, svo sem Þorleifi Repp og a. n. 1. Gisla Brynjólfs- syni og Gísla Magnússyni — að slæla forntunguna, heldur rit- uðu þeir málið sem likast því, er þeir þekktu það hreinast á vörum sveita-alþýðunnar og minnst snortið af málspillingu sumra lærðra manna og kaup- túnalýðs. En auðvitað höfðu þeir stöðugt hliðsjón af forn- tungunni, eins og hún var bezt rituð að þeirra dómi, einkum er úr því skyldi skorið, hvað væri hreint mál og hvað ekki. Þetta er það sjónarmið, er eg reyni að fylgja, og eg lýsi hr. Arnóri Sigurjónssyni það gjörsamlega óheimilt að búa til handa mér nokkurt annað sjónarmið. Það er að vísu skiljanlegt, að hon- um þyki það þægilegt, að búa til eínhverja vitleysu handa sér til að glíma við og eigna mér liana, en eg slcýt þvi til lesend- anna, hvort þeim þyki þetta heiðarlegri bardagaaðferð en sú, er liann vænir mig um óheið- arleilc fyrir, og að vísu saldaus- an; en eg kem að því síðar. — Það er ekkert annað en bull, að segja, að það mál, sem eg tala og rita, hafi „mótast með mér og minni kynslóð.“ Það var mótað fyrir okkar daga, og við þágum það sem arfleifð frá næstu kynslóðum á undan okk- ur og frá beztu gullaldarritum 13. aldar, og okkur tekur það sárt, að þessari arfleifð sé spillt fyrir komandi kynslóðum, og kemur þar í einn stað niður, hvort andhælisskapur veldur, útlenzkuleg framsetning og orðaskipun eða fáfræði. — Af því að svo virðist sem nokkuð mikið þurfi stundum að „skella í tönnunum“ lil þess að Arnór skilji, þori eg ekki annað en að taka það fram, að þó að málið væri mótað fyrir mína daga og „minnar kynslóðar“, þá hefir það auðgast síðan, sem enn mun verða sýnt. Að því hafa unnið hæði menn af „minni kynslóð14 og yngri menn og eldri, og þó að við A. getum hyorugur stærl okkur af að liafa lagt þar mik- ið af mörkum, þá hef bæði eg og aðrir notað þann auð, sem þessir menn hafa dregið í bú íslenzkunnar, hvef eftir því sem hann liefir þurft á að halda, og eftir því, sem hann hefir verið maður til. A. S. gerir sér talsvert far um að gefa í skyn, að mitt sjónar- mið sé „gamals manns sjónar- mið“ og „sjónarmið gömlu kyn- slóðarinnar.“ Ekki nefni eg þetta af því, að eg telji nokkra móðgun í þvi þurfa að felast. Eg þykist lieldur liafa vitkast en hitt með vaxandi aldri og reynslu og óska hr. A. S. þess sama. En fyrir þvi nefni eg það, að mér skilst, að höf. sé að reyna að liugga sig við það, að þetta muni allt lagast, þegar eg og „mín kynslóð" er til grafar gengin. En tálvonir eru þeim til ills eins, er ala þær í brjósti, svo að eg tel það greiða við höf. fremur en liitt, að svipta liann þessari tálvon. Skal eg í því skyni henda lionum á prýðilegt erindi, sem Helgi Hjörvar flutti nýlega í útvarpið. Þar kom frarn alveg sama sjónarmiðið og það, er A. S. eignar „gömlu kynslóðinni“, og mun þó A. S. tæpast telja, að Helgi lieyri henni til. En fáir íslendingar tala nú eða rita svo hreint og þróttmikið mál sem Helgi, þótt lítt sé þvi né hafi verið á loft lialdið. Hitt er furðulegra, að A. S. skuli sjálfur yfirleitt rita gott mál, þótt fráleitt hafi hann „sjónarmið gömlu kynslóðar- innar.“ Hann er eins og „heið- ingjarnir, sem ekki hafa lög-

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.