Vísir Sunnudagsblað - 30.03.1941, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 30.03.1941, Síða 1
1941 Sunnudaginn 30. marz 13. blad Bjargað úr sjávarháska Gunnar Brynjólfsson. Frásög:ii Gunnar§ Br^n|ólí§§onar. Seint í marzmánuði 1916, eða fyrir réttum 25 árum, gerði aftakaveður af norðri mjög skyndilega hér á landi. Voru þá bátar mjög hætt komnir suður í sjó, og hreinasta mildi að þeim varð bjargað. Þilskipið Esther var þá statt austur af Reykjanesi og bjargaði það fjórum skipshöfnum í þessu veðri, eða samtals 38 mönnum. Er það víst einsdæmi, að nokkurt ís- lenzkt þilskip hafi bjargað jafn mörgum mönnum í einu úr sjávarházka. Skipstjóri á Esther var þá Guðbjartur Ólafsson, sem nú er hafnsögumaður hér í Reykjavík. Gekk hann fram í því mgð mikilli prýði og sérstökum dugnaði að bjarga þessum f jórum bátshöfnum, sem ekki fengu náð landi af eigin ramleik. Vísir hefir hitt að máli einn formannanna af bátunum, sem Esther bjargi. Var það Gunnar Brynjólfsson úr Grindavík, sem nú er vitagagnavörður hjá vitamálastjórninni hér í Reykjavík. Fer frásögn Gunnars hér eftir: Guíbjartur Ólafsson. „Þann 24. marz 1916 réru fjölda inargir bátar úr Grinda- vík, enda var veður hið ákjógaiT- legasta og stillilogn svo mikið, að okkur sýndust bátarnir blátt áfram vera lausir við hafflötinn. Við lögðum í róðurinn á venjulegum tíma, eða ldukkan að ganga sex um morguninn. Annað „fiskirí“ en Ixn-skveiðar þekktist þá ekki, og netin lágu öll nokkuð djúpt og þar af leið- andi langt að róa. Er við komum á miðin vár enn hið sama blíðskapai*veður og særinn spegilskyggndur. Þegar klukkan liefir verið farin að ganga tíu um morguninn, verður einhverjum okkar litið til lands og sér hann þá að allt liafið milli lands og okkar er drifhvítt orðið af særoki. Bregð- ur okkur mjög í brún við þessa sýn, en það skipti ekki neinum togum, því á næsta augnabliki er skollið á ofsarok af norðri. I þetta sinn gerði eg það stærsta glappaskot, sem eg hefi nokkuru sinni gert á sjósóknar- árum mínum, því eg lagði net- unum, sem eg var húinn að draga, aftur út, i stað þess að nota þau sem kjölfestu i skipið. Eg var þó ekki einn í sökinni með þetta, því eg lield að öllum hinum formönnunum liafi orð- ið sama skyssan á, að einum undanleknum. Það var Gísli Jónsson i Vík, hann liélt nokk- uru af netunum í bátnum, enda sá eini okkar, sem nokkuð gat siglt. Við hinir réðum ekki við neitt. Við settum upp segl eins rifuð og unnt var, en þá ætlaði allt um koll að keyra þvi veður- ofsinn var svo mikill. Við óttum á liættu að hátnum hvolfdi l>á og þegar og sáum okkur því ekki annað fært en að taka segl- in sem skjótast niður aftur. Úr þessu var ekki um annað að ræða en berja órarnar til lands. Eg var svo óheppinn, að tveir beztu mennirnir mínir voru i landi þennan dag, svo við vorum ekki nema sjö i stað níu venjulega. Eg held að mér sé óhætt að fullyrða, að ef eg hefði haft þessa tvo menn, þá hefðum við náð landi í Grindavík um daginn. Eftir á að gizka þriggja klukkustunda barningkomumst við upp undir Skarfasetur á Reykjanesi. Var það tilætlun okkar að reyna að komast inn á svokallaðar Háleyjar, sem er einn af fáum léndingarstöðum Skútan Esther, sem bjargaði mönnunum. á Reykjanestánni. Þar er annars víðasthvar ólendandi vegna brims og kletta. En til þess að takast mætti að ná Háleyjum, þurftum við að stefna beint í veðrið — en þá drógum við bókstaflega ekki nokkurn skapaðan lilut. Þegar þessi von brást, ætluðum við að lialda vestur með landinu og' reyna að lenda í svokölluðuin Kerlingarbás, en þá var komið vestur- og undanfall svo hart, að við réðum ekki við neitt. I þessurff barningi, og um það leyti sem öll von var að þverra, kom eg auga á þilskip framund- anj sem liélt sér við. Eg sagði þá við skipsmennina, að við skyld- um setja upp afturseglið í fram- stellinguna, en einn hásetanna tók þetta óstinnt upp og spurði hvort við værum ekki búnir að gera nægilega miklar tilraunir til að sigla. Þessum orðum lians var þó ekki skeytt frekara, en seglið sett upp og „lensuðum“ við þá út í skútuna. Þessi skúta reyndist vera „Esther“ og skipstjórinn Guð-

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.