Vísir Sunnudagsblað - 11.05.1941, Blaðsíða 1

Vísir Sunnudagsblað - 11.05.1941, Blaðsíða 1
GrUÐMUNDUR FRIÐJÚNSSON: A VIÐ OG Tímarit Máls og menningar cr liáværl um það, að Mennta- málaráð beri fyrir borð lilut „bezlu skáldanna“ i landi voru. Bezlu skáldin eru að þess dómi i flokki rauðliða. En mér er spurn: Eru aðstandendur þessa tíma- i its bandbafar þeirra metaskáia eða reizlu, sem skiáld — eða sál- ir skálda og andagift, verði vegin á, svo að óskeikult sé? Ekki er eg handhafi slikrar vogar. En eg get drepið á þann mælikvarða, sem eg nota, þegar eg á að gera grein fyrir þvi, að kvæði eða saga sé góður skáld- skapur. Ef eg öfunda böfund fyrir það, að bafa gert kvæði, eða sögu, tel eg bann meðal beztu skálda; annars elcki. En eg á enga heimtingu á, að þetta mat mitt sé talinn dómur hæsta- réttar. Mér getur skeikað. Ef aðstandendur tímaritsins, sem eg nefndi, bafa í fórum sín- um vog, sem vegur skáld og hstamenn, þá er hún fengin frá Rússlandi Lenins og Stalins, morðingja í hásæti. Lenin myrti, eða lét myrða, á aðra miljón mætra manna til að tryggja völd sín. Stalin liefir teflt fram á blóðvelb í styrjöld- inni við Finna — sér til gamans — eigi færri fórnar-mönnum og þar að auki drepið samherja sina með köldu blóði. Þessir tveir náungar Raspútins bafa smíðað vogina, sem rauðliðarnir í Reykjavík liafa fyrir gullvog, þegar þeir draga i dilka skáldin og skilja, á sína vísu, sauði frá böfrum. En þessi vog er hvikul og mörkin á henni eru færð til eftir þvi, sem lienta þykir í það og það sinn. Á öndverðum dögum Rauðra penna, þótti sá skáldskapur „ilmandi“ í Rússlandi og í her- búðum Rauðra penna, sem þjóðnýtingar-samvinnuhugir gerðu úr garði, með þvi móti, að þrír menn eða fleiri lögðu saman við að gera kvæði og sögur. Þegar svo er teflt, er skáld- gyðjan leikin þvi líkt, sem kven- snift, er margir durgar hafa að leikfangi, í sömu andná, svo að kalla, þar og þá er enginn sér- stakur faðir barnsins. Á duggarabandsdögum þess- ara vændismanna, þóttu í Rúss- landi þjóðleg verðmæti bégóm- leg. Bergmál þeirra radda kvað við í „Fjalakettinum“ og útibú- um bans. Svo leið og beið nokkur tími, þar til rússneska metaskálin mat þjóðerni og verðmæti erfða- minja til dýrinda. Þá var undir- eins snúið við blaðinu í „Fjala- kettinum“ og „arfur“ þjóðar vorrar hafinn til skýja. Metaskálarnar þar eru hvik- ular. En þó að þjóðleg verðmæti sé að nafninu viðurkennd, telja mennirnir, sem gengið bafa á mála bjá Stalin, þann skáldskap ilmandi — einungis liann — sém gerir hraklega alla viðleitni, sem framkvæmd er á sjó og landi voru til lífsbjargar og menningar einstaklingum og þjóðfélagi, bæði í fornum stíl og nýjum; grasrót sveitanna er gerð að ormabæli, sjávarmöl að slor-vilpu. Eg var eitt sinn samferða á skipsfjöl Jóni Baldvinssyni alþm. og áttum við tal saman. Ræða okkar kom niður, þar sem sá skáldsagna-andi var að verki, sem hagar sér þannig, að liver karlmaður er úrþvætti, en meydómur hverrar stúlku flosnar upp, ef strákur kemst í skotfæri við hana. — Jón mælti þá: „Þessi hugsunarháttur er ó- þrifinn. Hann hefir lag á því, að vaða drulluna í klof, þar sem bún er þó ekki nema í skóvarp í raun réttri.“ Mér eru þessi orð minnisstæð, m. a. fyrir þá sök, að eg hugði, að bæfileikar Jóns Baldvinsson- ar væru fólvissari á öðrum svið- um, en skáldskaparins. Getur það staðist að ilmandi skáldskapur sé getinn, fæddur og uppalinn, þar sem „drulla er vaðin i klof“? Hver einstaklingur svarar fyrir sig og sína þessari spurn- ingu. Börn í lögum eru þess um- komin eigi síður en lærðu mennirnir. Hjartað kann að tala. Og svara fyrir sig. „Jón sjálfur“. Sumir menn geta gert öðrum bjarnargreiða stundum. Hér greini eg eitt þess háttar dæmi úr sjálfu lífinu. Jón liét merkisbóndi sem bjó á M.. . Annar Jón,smali,eða vinnu- maður, var þar á bæ. Jón bóndi fékk þær góðgerðir úti látnar meðal fólksins og nágrannanna, að bann var kallaður „Jón sjálf- ur“. Þegar liðlétting á heimili Jóns eða letingja skyldi áminna, sagði sá, eða sú, sem lét til sín taka slælega framgöngu lið- leskjunnar: „Hvað beldurðu að Jón sjálfur segði, ef bann sæi í þér slæpingsliáttinn? Ef þú bæt- ir ekki náð þitt, skal eg láta „Jón sjálfan“ vita að þú svíkst um.“ .... Jón bóndi var beim- ilisrælcinn og fór sjaldan á bæi. En ef liann kom til granna sinna, liitti að máli á hlaðinu vinnumann eða vinnukonu, ell- egar léttadreng, sem gekk síðan inn og sagði húsbónda, eða bús- freyju, að Jón á M....... væri kominn, þá kom þessi spurning móti boðberanum: „Er það Jón sjálfur?“ Bóndi þessi bar fyrir brjósti „aristóþratiskan“ liugsunarhiátt, var þannig gerður, og alinn upp við hann, þvi að faðir Jóns og afar voru óðalbornir. — En þó að Jón sómdi sér allvel í sinni sveit og á heimili sínu, var hon- um engin þörf á þessum dyn, sem kvað við umhverfis hann. DREIF. Aðvífandi liáðfuglar myndu liæða báða aðilja fyrir háttern- ið, ef þá liefði borið á þessar stöðvar. En sveitin sú var af- skekkt og siátu hleypidómarnir þess vegna á friðstóli. En mörg saga endurtekur sig. „Sjálfur Sigurður Nordal“. Ávallt er eitthvert líf í tusk- um rauðliða. — Tímarit þeirra (Máls og menningar) kemur víða við. Höfundar ritgerða þess bíta í skjaldarrendur og æpa lieróp, hver i kapp við annan. Þegar herópin þau og horna- blásturinn bergmiála á álfaberg- köstulum lands vors, kemur sumum mönnum i hug visan gamla: „Sigurður Gíslason kvað margt, sá var skáld í Dölum; sumt var gaman, sumt var þarft, um sumt vér ekki tölum.“ Fyrsta liefti þessa árs, Máls og menningar (tímaritsins) flytur grein eftir ritstjórann — ávítur til ýmsra manna fyrir viðhorf þeirra til bókmennta. Þar kennir grasa mjög margra og eru sUm þeirra skyldari slcollafingrum en lifgrösum. Eg drep liér á eitt atriði, eða tvö; en af miklu meira er að talca. Ritstjórinn ber fyrir brjósti hirðskáld Stalins H. K. L., enn sem fvrr og hefir á (tungu)odd- inum „sjálfan Sigurð Nordal“. Hann hefir sagt í ritdómi (í Lesbók Mbl.) um Ólafs sögu Ljósvíkings, að H. K. L. sé skáld, því líkt sem fremstu skáld- sagna liöfundar úti í þjóðlönd- unum. Hvað ætli vér þurfum þá framar vitnanna við? Nú vill svo undarlega til, að í þessu sama hefti Tímarits máls og menningar er ritdómur eftir rauðliðann Björn Franzson, um bók Nordals „Líf og dauði“. Sá ritdómari lætur í veðri vaka, að S. N. vaði reyk í grufli sínu um eilift líf mannsins og komizt eða

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.