Vísir Sunnudagsblað - 25.05.1941, Blaðsíða 7

Vísir Sunnudagsblað - 25.05.1941, Blaðsíða 7
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 7 þeirra á hinum „útvöldu“ tak- markalaus. Á þá er litið sem dreggjar þjóðfélagsins og þegar að skuldadögunum kemur, verður þeim ekki glejmit. Misrétti. Danskar konur eru ekki leng- ur telcnar á fæðingarlieimili i Kaupmannahöfn og öðrum borgum. Þau eru ætluð þýzkum konum, sem eru sendar þangað til þess að forða þeim frá þvi að heyra í brezku sprengjuflug- vélunum. Danir mega ekki láta nokkra ljósglætu -sjást úr gluggum sín- um að næturlagi, að viðlögðum þungum sekturn og fangelsi, en íbúðir Þjóðverja eru uppljóm- aðar, svo að það sést langar leiðir. Flestir danskir bílar hafa Itorfið af götunum og þeir fáu, sem liafa leyfi til að vera á ferli, verða að fara lúshægt með dimm ljós. En þýzku bílarnir aka með fullum Ijósum og feikna itraða um allt. Dönsk föðurlandsást. En þrátt fyrir þetta vex þjóð- ernistilfinning x)ana. Þeir eru fyrst og fremst Danir og mark- mið þeirra allra er frjáls Dan- mörk. Þjóðverjar róa að þvi öllum árum að tjaldabaki og í m.yrkr- inu, að bola Kristjáni X. at valdastóli. Þeir óttast þenna mann, sem þorir að ríða óvopn- aður og einn síns liðs um götur Kaupmannahafnar. Þeir reyna með mútum og loforðum að slofna samsæri gegn ríkisstjórn lians, og lofa gulli og grænum skógum. En samliugur Dana er styrk- ur konungsins. Og styrkur hans fer vaxandi. Þ. 26. september s.l. varð Kristján X. sjötugur. Hundruð þúsunda landsmanna minntust dagsins og fylltust von um betri framlíð. — I Kaupmannahöfn hvllti mannfjöldinn konungs- hjónin. Seint um kvöldið safnaðist l'jöldinn saman fyrir framan Amalienhorgarhöll og liélt á ljóskerum, sem stöfuðu frá sér daufum, bláleitum bjarma. — Þegar klukkan sló tólf gekk konungurinn fram á svalirnar og lieilsaði mannfjöldanum. Hann héll á samskonar ljóskeri og aðrir. Hann ávarpaði fjöld- ann nokkurum orðum, bað alla að fara heim í friði og bauð síðan góða nótt, eins og faðir, sem talar við börnin sín. Eí til vill voru þessi litlu bláu ljós fyrstu geislar hins nýja dags fyrir Danmörku og heim- inn, þar sem skugga nazismans ber hvergi á. SKÁK Tefld á alþjóðaskákmótinu í Buenos Aires. Hvítt: V. Kahn (Frakkland). Svarl: Blanco (Cuba). Hollenzk vörn. 1. d2—d4, f7—f5; 2. c2—c4 (e2—e4 og þvínæst Rbl—c3 er sterkt), e7—e6; 3. Rgl—f3, Rg8—f6; 4. e2—e3 (g3 o. s. frv. er betra), b7—b6; 5. Bfl—d3, Bc8—b7; 6. 0—0, Rí'8—dö (Sama staða og Ekenberg— Aljecliin, Örebro 1935, þar segir AJjechin að 7. Rbl—c3 sé bezt og sýnir af hverju leikur hvíts er rangur) 7. Rf3—e5?, Bd6xRe5; 8. d4xBe,5, Rf6—g4 (XTú má livílt ekki leika f.2—f4 eins og' liann ætlaði vegna Dh4, Ji3, Dg3!); 9. e3—e4, Dd8—h4; -10. Ii2—h3, Rg4xe5; 11. e4xf5, 0—0; 12. f'5xe6 (Iivítt grunar ekki livað vfir lionum vofir) Hf8—f3! Staða eftir 12. leik. 8 7 6 5 4 3 2 1 ABCDEFGH Frá danskri landbúnaðar- sýningu. 13. e6—e7, Rb8—a6; 14. Bd3— e2, Hf3xh3! 15. g2xHh3, Dh4x3; 16. f2—f3, Dh3—g3+! 17. Kgl—hl Re5—g4; 18. Bcl—f4, Dg3xBf4 og livítt gaf. Tilraunir fara nú fram á kaffirækt í Tyrklandi. Hafa bændur lijá Alexandrette unnið að þessum tilraunum með opin- berum styrk og liafa þær reynst vel. Leiðrctting:. í sögunni „Freydís“, er birtist í Sunnudagsblaði Vísis hinn 11. þ. m. eru þessar prentvillur: Bls. 4, fyrsta dálki, þriðju línu talið ofan frá: flæktist — á að verK fluttist. Bls. 4, þriðja dálki, þritugustu línu, talið neðan frá: að — á að vera af. Bls. 4, þriðja dálki, tíundu línu neðan frá: bamið — á að vera komið. Bls. 5, fyrsta dölki, tuttugustu og fimmtu línu ofan frá: rétti — á að vera setti. Bls. 5, þriðja dálki, tuttugustu og annari línu, néðan frá: hólar — á að vera hálsar. Bls. 5, fjórða dálki, annari linu, neðan fná: húsgarðinn — á að vera túngarðinn. Auknefni Grims frá Hrotta- stöðum á að vera Hrotti, en ekki Hroki. Skipaskaga-vísa (Gerð i marzmánuði 1931). Hafnleysið á Skipaskaga skötnum þar er lielzt til baga; brimöldur við björgin jaga, belta landið hvítum lcraga; verður því að leita laga, landsfjár-miljón þangað draga; munu þá í þorpið slaga þéttingsflokkar ,,letimaga“,¥) lýðs, er virðir engan aga, átta stundir telur daga; kauptúnsins mun þessi þvaga þrif og gengi stórum bjaga; til að hafa nægt að naga nokkrir þó til vinnu kjaga; sökkulgrjót úr Elösum flaga firðar, og til „liafnar“ vaga, bólvirki, sem bezt má liaga, byggja skipunum til lilés; hafizt gæti síðan saga siglinga til — „Akranæs“ (-nes). B. B. *) Sbr. vísu Péturs biskups, þá er rætt var um að löggilda liöfn á Skipaskaga.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.