Vísir Sunnudagsblað - 01.06.1941, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 01.06.1941, Síða 1
1941 Sunnudaginn 1. j úní 22. blaö „Það sem fyrir mig bar“ Fyrir ekki löngu hitti eg mann þann að máli, sem Guðmundut Gísli Friðriksson heitir. Hann er œttaður úr Arnarfirði í Vestur-ísafjarðarsýslu og fæddur 7. maí 1861 að Álftamýri við Arnarfjörð. Guðmundur ólzt upp að Hrafnseyri, en byrjaði búskap á unga aldri í Hrafnseyrarhúsum, en eftir 6 ára búskap fluttist hann að Hjallkárseyri og þar bjó hann um þrjátíu ára skeið. Árið 1924 brá Guð- mundur búi, og hefir verið á ýmsum stöðum síðan. Er hann nú búsettur hér í Rvík hjá dóttur sinni og lengdasyni, en fer á hverju sumri í átthagana og dvelur þá meðal ættingja og vina í Arnarfirði. Eg hitti Guðmund að máli rétt áður en hann fór „heim“, eins og hann kallaði það. Hann var þá nýlega áttræður orðinn, en unglegur, fjörmikill og kátur, eins og hann væri fimmtíu árum yngri. Eg spurði hann, hvort eg mætti ekki hripa eitthvað upp eftir honum og varð hann fúslega við þeirri Deiðni, enda -þótt hann teldi ekkert það í ævi sinni, sem væri þess virði, að það væri fært í letur. Þó kvað hann ýmislegt fyrir sig hafa borið, sem sér væri minnistætt og kvaðst hann ekki skyldi dylja mig þess. Hripaði eg upp fáeinar fyrirburðasögur eftir honum og fara þær hér á eftir. Þ. J. Ferlíkið í fjörunni. Á meðan eg dvaldist vestra, stundaði eg mjög sela- og refa- veiðar, eg hafði yndi af þeim og sótti þær af miklu kappi vetur og sumur. Svo bar það eitt sinn við, eg man ekki hvaða vetur það var, því eg er orðinn minnissljór á ártöl, þó eg muni löngu liðna atburði eins og þeir hefðu gerst í gær — en þetta mun liafa ver- ið skömmu eftir aldamótin — að eg lá fyrir tóum inni á fjöru með Hj allkárseyrarhlíðinni.Hún liggur nokkuð fyrir innan Hjall. kárseyrarbæinn og eru Rauðs- staðir næsti bær fyrir innan. Eg rölti eina kvöklstund, löngu eftir dagssetur, með byssu mína inn með hlíðinni. Það var útsynningsrosi með éljagangi,en hálfvaxinn máni, og lagði öðru hvoru föla birtu á fjörðinn og livít fjöllin þegar hann gægðist fram á milli skýjarofanna. Eg lagðist undir stein niður við fjöruborðið og beið reiðu- búinn með lilaðna byssuna, ef tæfa skyldi nálgast. Biðin varð löng og eg varð einskis vísari. Allt í einu rjúfa boðaföllmik- il og busl í sjónum kyrrðina, og kemur mér fyrst til hugar, að þarna kunni útselur að vera á ferð. Bráðlega varð mér þó ljóst, að svo var ekki, því eg heyri fruss og allskyns hljóð í sjónum, sem í fyrstu líktust frísi i hesti, en tóku síðai- ýms- um breytingum, urðu stundum að livellu hljóði eins og i gjall- arhorni, stundum blistrandi eins og i flautu, en aðra stundina breyttist liljóðið i dimmt og ógn- þrungið öskur, sem barst út í myrkcið og nóttina. Tóku fjöll- in undir og bergmáluðu öskrið. Verður mér litið fram á fjörðinn og kem eg þá auga á ferlíki, stórt og dökkt á lit, sem bærist í fjörunni skammt frá mér. Verður mér starsýnt á þessa skeþnu, því hennar líka hafði eg eklci áður séð. En birt- án var dauf og það sást illa til dýrsins nema þegar ský dró frá tunglinu. Svó leit eg af því, til að hyggja að tæfu, en þegar eg liorfði aftur út á sjóinn var dýrið liorfið þaðan og komið upp á land. Ekki gat eg komið á það auga þar, sökum myrk- urs, enda bar það í svarta bakk- ana. Hinsvegar lieyrði eg bægslaganginn í þvi i fjörunni og small í, eins og þegar lamið er með sleggju í grjót, þegar ferlíkið byltist áfram eftir stór- grýttri urðinni. Öðru hvoru rak skepna þessi upp mikil öskur og heyrði eg á þeim, að hún fjarlægðist. Hélt hún inn með hlíðinni og heyrði eg til hennar alla léið inn að Grjóteyri, en svo heitir eyri sú, sem skilur Rauðstaða- og Hjall- kárseyrarlandeignir sundur. Sjóskrímslið á Hjallkárseyri. Það var sunnudag einn, sum- arið eftir, að eg sá ferlíkið i fjör- unni inn með Hjallkárseyrar- hlið, að við hjónin og börnin vorum stödd inni í bæ á Hjall- kárseyri, og hað konan mín mig þá, að skreppa fyrir sig út í skemmu eftir sylcri. Þegar eg kom út úr skemm- unni verður mér litið niður í fjöruna óg sé eg þá boðaföll nhkil eða hvítfyssandi liringiðu rétt fyrir framan tanga, sem gekk út í sjóinn framundan túninu. Dettur mér fyrst i hug, að þarna séu selir á ferli, eins og þeir eru oft á þessum slóð- um, enda þólt mér þyki boða- föllin, sem þeir mynduðu, ó- venjulega mikil. En það skipti engum togum, og eg var ekki búinn að gera mér neina ljósa grein fyrir ])essu, þegar eg sé risastórt fer- líki — einhverja ógurlega skepnu koma upp á yfirborð sævarins og renna á hröðu sundi inn með landinu. Skepna þessi var kolsvört á lit, nema á vinstri ’bógnum var snjóhvít skella. Það gljáði á all- an skrokkinn. Hausinn var klumbumyndaður og skálmynd- aðar klaufir í kinnarnar. Eyr- un líktust eyrum á kú, nema hvað þau voru miklu stærri. —1 Einnig þau voru biksvört. Þegar dýrið fór í kaf, sá eg greinilega á fætur þess og gat ekki annað greint, en að það væri ldaufdýr. Annars var það miklu ferlegra og sfærra í vexti en nokkurt landdýr sem eg þekki tij. Hleyp eg þegar inn í bæ til konu minnar svo að hún og eins börnin gætu lika séð skepnuna, og sáu þau hana öll mjög greini- lega. Sjálfur hljóp eg út í slcemmu eftir selarifflinum mínum, en þegar eg lcom út með hann, hafði dýrið fjarlægst landið og bar svo ört undan, að eg taldi það tilgangslaust að skjóta. Þegar það var komið inn að svokallaðri Selseyri, fór það í kaf og sáunr við það ekki eftir það. Það má vera að fólk telji mig hafa séð sel, en slíkum tilgátum vísa eg eindregið á bug, þvi eg tel mig þekkja seli allra manna bezt og liefi skotið þá unnvörp- um í fjölda mörg ár. Eg er held^r ekki einn til frásagnar um þetta einkenni- lega sædýr, það voru fleiri en eg og fjölskylda min sem sáu dýx-ið eða sporin eflir það — annarleg spor, sem stundum sá- ust á leirum eða í fjöi’uboi'ði. Eg man það, að Ríkarð Torfa- son, sem um tíu ára skeið var sóknarprestur á Hrafnseyri, fékkst ekld til þess að trúa því, að spor þessa dýrs sæjust, fyrr en liann sá þau sjáífur einu sinni þegar hann fór inn að Borg, innst í Boi’garfirði, til að skíra bai’n. Eftir það véfengdi lxaixn aldi’ei sögusagnir þeiiTa manna, sem sáu dýr þessi eða sjávarskrímsli. Gröfin, sem opnaðist. Maður er nefndur Elías Pét- ursson. Hann bjó fyrst í Tungu við Kúlu, en fluttist síðar að Álftamýri, reisti sér þar hús niði’i á túninu og stundaði róðra. Hjá þessum manni réi’i eg.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.