Vísir Sunnudagsblað - 29.06.1941, Page 1

Vísir Sunnudagsblað - 29.06.1941, Page 1
1941 Sunnudaginn 29. jiini 26. blað Xeódór Árnasou: Hverjir voru Útilegumenn — og hverjir eru Skógarmenn K.F.U.M.? Sjómannalít. Það er ekki ótíti, að ýmsir hinna merkustu og mætustu manna erlendra þjóða, einkum Breta og Bandaríkjamanna, minnast með hrifningu og þakk- læti „those liappy and lieaven- ly davs I Iiad in „Y. M. C. A.- Camp“. — telja sig eiga þaðan einhverjar unaðslegustu endur- minningar frá æskuárunum og rekja þangað upphaf liam- ingju sinnar. Líklega er almenningi ekki kunnugt um, að til eru hér á landi slíkar Iv. F. U. M.-sumar- húðir fyrir drengi og unglinga og liafa verið starfræktar i nær tvo áratugi, — eða réttará sagt: hafa verið í smíðum á þessum árum, að þaðan eiga nú fjöl- margir ungir menn indsélar endurminningár og að einmitt er til þess stofnað, i og með, að þangað geti merkismenn vorrar þjóðar siðar meir rakið upphaf sinnar hamingju, — að þeir muni þá líka vitna til dýrðlegra daga í sumarbúðum K. F. U. M. Svo merkilegt finnst mér þetta sumarstarf K. F. U. M. og svo þýðingarmikið getur það verið einmitt nú, á þessum öng- þveitistímum, og vandræðatím- um íslenzka æskulýðsins, að eg hygg að því verði vel tekið, að einu sinni sé sagt frá því nokk- uð nánar en áður hefir gert verið, en þó aðeins í stórum dráttum. —o— Það er langt síðan, að það varð einn liður í starfi hins fórnfúsa og umhyggjusama leiðtoga K. F. U. M„ sira Frið- riks Friðrikssonar, að fara á sunnudögum í skemmtiferðir með drengjahópa upp um sveitir i nágrenni Reykjavíkur, þegar á því voru tök og' veður levfði, á sumrin. í slikum ferðum mun hann oft hafa verið að segja þessum ungu félögum sinum og vinum frá sumarbúðum K. F. U. M.- drengja erlendis, þar sem liann hafði dvalið sjálfur. En þegar þeir siðan stálpuðust, drengirn- ir, sem verið höfðu með liinum elskaða foringja sínum í þessum sunnudagaferðum, — þeir, sem tryggð héldu við liann síðan, og K. F. U. M. - fóru þeir að skrafa um það sín á milli, að gaman væri nú að geta komið upp slík- um sumarhúðum fyrir drengi, einhversstaðar þar, sem fagurt væri umhverfi og vel gæti farið um þá, — enda þóttu sunnu- dagsferðirnar ekki ná þeim til- gangi, sem vakti fyrir sr. Frið- z-ik og hinum ungu aðstoðar- mönnum hans. í kringum 192f) var orðinn mikill áhugi á þessu og mikið um það rætl. Árið 1921 varð svo til sjoður til þess að koma upp sameigin- legum sumarbústað fyrir drengi úr Hafnarf. og Rvík, en ungu mennirnir, sem méstan höfðu áhuga á þessu, höfðu með sér sameiginlegan félagsskap (hafnfirzkir og' reykvískir) og fundi fvrsta föstudag í mánuði hverjum, og lögðu þá venjulega eitthvað af mörkum í þennan sjóð. Árið 1925 var svo hægt að koma upp skálanum í Ivaldár- seli. Eklci er rúm til að rekja hér þá sögu, — um fórnfýsi, erfiðleika og sigra. En þessi staður varð brátt vinsæll og hefir jafnan verið gestkvæmt þar á sumrin. Þeir, sem vel þekkja til fullyrða, að mikil blessun hafi hlotist af sumar- starfinu þar, og margir eru þeir nú orðnir, sem þaðan eiga hug- ljúfar endurminningar. En á meðan þessi skálabygg- ing i Kaldárseli var á döfinni, voru reykvísku piltarnir að sækja í sig veðrið og svipast um eftir öðrum stað til slíkrar sum- ardvalar, þvi að eiginlega var Kaldársel sérstaklega á „hags- munasvæði“ Iiafnfirðinga. Til- lögu um að velja staðinn í Svínadal á Hvalf jarðarströnd mun, Ilróbjartur burstagerðar- maður Árnason liafa átt. Síra Friðrik segir*) að sér hafi eklci litist vel á þessa liugmynd upp- haflega, en hafi þó látið til leið- ast að rannsaka málið. En að lokinni þeirri rannsókn sótti hann um leyfi til ríkisstjórnar- innar til þess að fá reit í Vatna- skógi, (sem tekinn hafði verið undan Saurbæjarlandi) til sum- arstarfsemi K.F.U.M. Kofoed Ilansen slcógræktarstjóri veitti þessari umsókn fylgi sitt og var leyfi veitt fyrir einum hektai'a lands í skóginum, sem félagið skyldi girða og hafa umráð yf- ir, svo lengi, sem K.F.U.M hefði þessa sumarstarfsemi, og mætti byggja þar skála og fara með blettinn að vild, eftir þörfurn starfsins. — Var staðurinn síð- an útmældur niður við Eyrar- vatn, í rjóðrum tveim, nálægt vestari enda þesS. En meðan á þessu stóð, var farið nxeð einn drengjaflolck til dvalar í sveit — sumai'ið 1922, — eða austur að Vatnsleysu í Biskupstungum. Voru í þeirri *) í Minningarriti Skógar- manna 1939, sem aðallega er stuðst við í þessari fi'ásögn. Morgunþvottur í vatninu.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.