Vísir Sunnudagsblað - 31.08.1941, Blaðsíða 1
1941
Sunnudaglnn 31. ágúst
35. blað
Rússlandsleiðaiigpiir
fyrir Í29 árnm.
Þegar Napoleon fór herför sína til Rússlands ár-
ið 1812 ritaði hann drottningu sinni, Marie Louise,
f jölda bréfa og voru þau send með hraðboða til
hennar. Þessi bréf eru enn til og eru geymd sem
gersemar miklar, eins og gefur að skilja. Bréfin
hafa komið út á forlagi Hutchinsons í London og
með hliðsjón af þeim — og þannig með aðstoð
Napoleons sjálfs — er grein þessi samin.
Her Napoleons fór yfir Nie-
menfljót 24. júní. Hann var
mjög fjölmennur, en sagnarit-
arar eru ekki á eitt sáttir um,
hversu margir menn hafi verið
í honum. Segja sumir 680.000,
en aðrir 450.000. Það eina, sem
allir sagnaritarar eru sammála
um, er að í hernum var óvenju-
lega mikið riddaralið, eða
fimmti hluti alls liðsins.
Þegar Frakkar fóru frá Kovno
og Grodno, voru herir Rússa
skiptir. Einn rússneskur her
undir stjórn Barclay de TroIIy
— 127.000 manna — var um-
hverfis Vilna. Annar her, sem í
voru 60.000 menn, var undir
stjóm Bagrationjfurstajen hann
var i Luzk og þvi Pripetmýr-
arnar á milli.
Napoleon tók það ráð, að
halda til Vilna til að hindra
sameiningu herja Rússa. Tolly
hörfaði undan, en Frakkar
héldu inn í Vilna fjórða
dag herferðarhmar, 28. júni.
Þar tafðist Napoleon til 16.
júlí, þvi að flutningakerfi
hans hafði ekki reynzt vandan-
um vaxið. Það gaf rússnesku
lierjunum tækifæri til þess að
taka höndum saman við Smo-
lensk.
Rússar forðuðust bardaga
fyrstu vikur ófriðarins, en samt
missti Napoleon margt manna.-
Sumarhitinn bugaði marga
menn og hesta. Ryk, hitar og
þurrkar orsökuðu faraldur af
blóðkreppusótt. Hið bajerska
stórfylki Saint Cyrs missti
800—900 menn á dag. Hestarnir
•átu grænt og óþroskað korn, en
fengu af því magaveiki, sem var
svo skæð, að hún drap þriðjung
allra hesta hersins.
* Við Smolensk veittu Rússar
nokkuð viðnám, en þégar búið
var að sigrast á því og Frakkar
búnir að taka borgina, ritaði
Napoleon þetta bréf til drottn-
ingar sinnar.
Smolensk,.18. ág. 1812.
Eg kom i morgun til Smo-
lensk. Eg náði borginni af
Rússum, er eg hafði fellt 3000
þeirra, en sært eða tekið til
fanga þrisvar fleiri en það.
Heilsa mín er góð, en hitinn er
afarmikill." Mér gengur 'vel.
Schwarzenberg hefir sigrað
Rússa 550 milur héðan.
Síðan er haldið áfram og
brátt er komið til Dorogobuzh
við Dnieprfljót. Þaðan ritar
Napoleon á þessa leið:
Dorogobuzh, 25. ág.
Eg var á ferðalagi allan dag-
inn í gær. Eg hefi flutt aðal-
stöðvarnar mínar hingað, f jand-
mennirnir hafa ekki beðið
komu minnar og forverðir mín-
ir eru 100 mílur frá Moskva ....
Þ. 29. ágúst komst hann :il
Wjasma og þar tókst Frökkum
loks að fá birgðir þær, sem þeir
þörfnuðust svo mjög, enda þótt
Rússar hefði brennt brýrnar og
nokkurn hluta borgarinnar.
Eg
Wjasma, 30. ág.
er staddur í heldur
Napoleon lítur út yfir Moskva frá Kreml. — Hann taldi þurfa 20.000
manna til aö halda borg-inni, en hann hafði ekki ráiS á að missa svo
mikiö lig, er hann hélt heimlei'Sis.
Namið með
»aðsíoð«
Napóleou *
Boiiaparte.
snotii borg, þar sem eru 30
kirkjur, 15.000 ibúar og margar
verzlanir, sem selja brennivín
og annað, sem hernum er nauð-
synlegt. Það hefir rignt dálítið,
en það hefir hreinsað loftið af
rykinu og gert það svalara. ....
Þ. 3. september námu for-
varðasveitir Frakka staðar á
hægri bakka Kalatscha-fljóts,
andspænis Borodino. Rússar
ætluðu að veita þar siðustu
mótspyrnuna áður en Moskva
félli i hendur innrásarhernum.
Þenna dag sendi Napoleon svo-
hljóðandi bréf:
Gat, 3. sept.
.... Eg legg af stað áleiðis til
Moskva í kveld. Það er komið
haust. Það er sama veðrið og
þegar við fluttum til Fontaine-
bleau. Kornhlöðurnar eru full-
ar, jörðin alþakin grænmeti og
fyrir bragðið líður hernum á-
gætlega, en það er aðalatriðið.
Mér gengur vel og heilsan er í
lagi .....
Tveim dögum síðar gaf Napö-
leon út tilkynningu til hers sins
og var hún svohljóðandi:
Tilkynning 5. sept.:
Liðhlaupar, fangar og íbúarn-
ir eru sammála um að í Moskva
og rússneska hernum sé hver
höndin upp á móti annari, en
herinn hefir beðið mikið tjón.
Sumir hershöfðingjanna hafa
verið settir af. Barclay de Tolly,
hershöfðingi, er ásakaður fyrir
að hafa látið sigra her sinn i
smáhópum.
Aðfaranótt sjöunda septem-
bers fylkti Napoleon liði sínu
hjá Borodino. Áður en áhlaupið
"A