Vísir Sunnudagsblað - 12.10.1941, Blaðsíða 1

Vísir Sunnudagsblað - 12.10.1941, Blaðsíða 1
Ragnar Asgeirsson: Með Einari Jón§§^ni i V e§tur - S k ;i íi a f ell §§ý§lu. Á fundi sínum síðastliðið vor, bauð sýslunefnd Vestur-Skafta- fellssýslu Einari Jónssyni mynd- höggvara og frú hans heim, til að ferðast um sýsluna og kynn- ast henni og íbúunum. Var heimboð þetta með þökkum þegið. Vegna kunningsskapar míns við Skaftfellinga og þau hjónin var ráðgert að eg og kona mín yrðu með í förinni, eg sem leiðsögumaður þeirra um sýsluna, sem eg hefi farið alloft um. Var förin farin seinni hluta ágústmánaðar og tókst í alla staði prýðilega. Tíðinda- maður Vísis hefir beðið mig um upplýsingar um ferðina og skal því nokkuð frá henni skýrt hér. Lagl var upp frá Reykjavík árdegis þann 19. ágúst og farið að Kirkjubæjarklaustri þann dag, en sú leið er 300 km. Er farið um fjöll og byggðir, eld- hraun og eyðisanda. Þetla er löng dagleið, en skemmtileg vegna hins síbreytilega lands- lags, en þó verður ferðafólkið fegið þegar komið er að Kirkju- bæjarklaustri á Síðu, eftir 12— 14 stunda akslur. Að klaustr- inu er gott að koma, þar hefir verið mesta höfðingjasetur að fornu og nýju. Lárus bóndi Helgason og synir hans eru at- hafnamenn. Á klaustrinu gistum við sex nætur, við vorum nærri því far- in að álíta okkur heimafólk og áttum erfitt með að fara, enda rak Lárus ekki á eftir okkur þaðan. Meðan við. vorum i sýslunni var okkur fenginn lít- ill bíll til umráða. Frá klaustr- inu var farið í ýmsar áttir að skoða Síðuna og nærliggjandi sveitir. Fyrsta daginn var þó baldið kyrru fyrir og hvílt sig eftir ferðina austur, að öðru leyti en þvi, að gengið var vest- ur að Systrastapa og austur á Kirkjugólf. Kirkjugólfið eru bergstuðlar, sem sér í endann á upp úr jörðinni og er það mjög einkennilegt og hafa sumir lialdið það vera af manna liönd- um gert. Daginn eftir var farið austur að Teygingalæk, i eystra eld- lirauninu. Þar hafa verið byggð- ir 5—6 bæir neðan við hraunið -—- brunann — eins og það oft er nefnt þarna, og þarna heitir á Brunasandi. Ætlunin var að fara austur í Fljótshverfið ef hægt væri í bíl, en Eldvatnið lijá Teygingalæk var ekki álitið fsgrt litlum bíl. Snerum við þvi við þar, eftir að liafa skoðað tún og akra hjá Jóni bónda. Vestarlega i Eldhrauninu er Orustuhóll og á hann gengum við, því ský var ekki á himni þennan dag. Þó hóllinn sé ekki hár, þá er leit að jafn fögru út- sýni og þaðan. í austri Lóma- gnúpur og Öræfajökull, til vest- urs Siðan og Eldhraunið eins og úfinn sjór allt í kring. Á Orustuhól ættu allir ferðamenn að ganga, sem þar nálægt lcoma, það verður ógleymanlegt þeim sem koma þar í góðu veðri. Á „heimleið“ komum við að Fossi en það er einn fegursti bær á Síðunni og er þá mikið sagt og einnig skoðuðum við.Hörginn, liinn gamla blótstað lieiðinna manna, sem margir bæir þar draga nafn sitt af t. d. Hörgs- land, Hörgsdalur. Er Hörgur- inn kletlur sem stendur nokkuð stakur og er sérkennilegur út- lits. Fróðlegt hefði það verið að geta skyggnst til baka í ann- ála fornaldarinnar og séð til hinna gömlu forfeðra okkar á þessum helgistað þeirra. Daginn eftir fórum við um þessar sömu slóðir á Austur- síðu, því Einar langaði mjög að sjá þær í annað sinn og festa þá sem bezt í minni. Vegna þess geymdum við okkur einn ein- kennilegasta staðinn þarna til þess dags, sem sé Dverghamra, sem víða eru frægir, sem von- legt er. En síðari liluta dagsins dvöldum við á Breiðabólstað hjá læknishjónunum, Snorra Hall- dórssyni og frú Guðbjörgu. Og gengum að Keldunúpi, skoðuð- um Steðjann og fleira fagurt og merkilegt. Laugardaginn 23. var farið niður í Landbrotið. Síðan sýn- ir fegnrð sína og gengur í augu við fyrstu sýn, en Landbrotið lætur minna yfir sér og leynir mörgum fögrum stöðum. Fjallasýn er stórkostleg þaðan. Landbrotið er í jaðri á gömlir hrauni vestan Skaftár. Hólar eru þar fleiri en í Vatnsdal, það er óhætt að fullyrða. Þeir eru sumir holir innan og liraun- leðjan minnir á liangandi jurt- ir innan í hólunum; t. d. i „Runkaskjóli“. Á sumum er op efst og koldimmt að sjá þar niður. Við komum fyrst í Þykkva- bæ til Þórarins bónda og hann var fylgdarmaður okkar um Landbrotið. M. a. sýndi hann okkur „Tröllhyl“, þar sem stór- fljót hefir fallið fyrir hamra i fyrndinni. Nú er þar aðeins vatn i grængolandi liyl, en far- vegur fljótsins þur. Tröllalegt er þar um að litast og lcemur manni á óvart að sjá slíkt i smáfríðri sveit. Heima í Þykkvabæ er fagurt um að liorfa, túnið stórt, í hraunálm- um sem teygja sig fram á sand- inn. Græn engi í fjarska. Þaðan sést til vöruhússins við Skaptár- ós, sem er alllangt i burtu. — Nú rekur margt á sandana, björgunarfleka og fleira slíkt. I Þykkvabæ stóð heil tunna af uxatólg, sem nýlega hafði skol- að á land; í henni voru víst 4—5 hundruð pund. — Önnur slík kom á land í Álftanesi, til bónda sem á 16 börn. Það kom sér vel nú í dýrtíðinni. Góða stund dvöldum við hjá Þórarni í Þjkkvabænum og skoðuðum margt, trjálund og heimagrafreit. Þar hvilir faðir hans, Helgi Þórarinsson, sem eg lield, að þar hafi verið einn fyrsti — ef ekki fyrsti bóndi á landinu, er raflýsti bæinn sinn. Þórarinn fylgdi okkur að Seglbúðum til Helga bónda Jónssonar. Einnig þar dvöld- um við góða stund, skoðuðum híbýli og garða sem hort- tveggja er óvenju snyrtilegl. Við Seglbúðir var forn festar- hringur í hi’aunröndinni, þar til fyrir fyrir nokkurum áratug- um. Þá voru skip bundin þar, en nú er þaðan langt til sjávar. Mikið hefir strandlína landsins hreytzt þar síðan á fyrri ölduin Islands hyggðar. Grænlækur heitir mikill læk- ui’, eða lítil á vestan við Segl- búðir. Hann er með afbrigðnm góður til stangaveiði. Fást þar allt að 20 punda sjóbirtingai’. — Annað sem eftirtekt vakti í Landbroti var liið ágæta bei’ja- land. Hefi eg hvei’gi séð jafn stór og rnikil ki'ækiber. Má þar fylla skjólur á tiltölulega stutt- um tíma. — Er eg kom í höfuð- staðinn og sá þar krækiber í búðargluggum á kr. 3.00 hvert kiló, þá datt mér í hug að þarna er atvinnugrein sem bíður fram- takssamra manna, að liagnýta þessa ágætu jarðai'innar ávexti — í Landbrotinu og annarsstað- ar. I Landbrotinu vorum við að- eins þennan dag, en öll mun okkur langa þangað aftur, þar felst margt gott milli hraunhól- anna. í Meðallandið þótti ekki ráðlegt að fara, var sú leið talin illfær litlum bil og bílferja á Eldvatni ekki í góðu lagi.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.