Vísir Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Vísir Sunnudagsblað - 23.11.1941, Qupperneq 1

Vísir Sunnudagsblað - 23.11.1941, Qupperneq 1
1941 Sunnudaginn 23. nóvember 47. blad Uiid ralantlid Eftir Odflnýju E. Seii DYR. Kína hefir einhverntíma í fyrndinni verið vaxið miklum skógum, og þá verið fullt af mesta sæg af allskonar stórum dýrum. En mennirnir liafa eyði- lagt skógana, og þar með um leið lífsmöguleika fyrir stór villidýr. Mest er af villidýrum í fjalllendum eða útjöðrum landsins, eða þar sem skógarnir standa enn, yfirleitt þar, sem strjálbyggðast er. — í fjöllun- um fyrir véstan Peking eru t. d. birnir, leopardar, villikettir, refir o. s. frv. I>ar er og moskus- hjörturinn, er áður var mjög útbreiddur, en er nú viða alveg útrýmt. Hann hefir verið strá- drepinn, til að ná i moskusið, sem er mjög verðmætt, og með- al annars liaft i ilmvötn. í skóg- unum norðaustast í landinu er margt af úlfum, björnum og fjöldi dýra af hjartakyninu. Á grassléttunum á landmærum hins eiginlega Kína og Mongólíu ganga stórar hjarðir af villtum ösnum, úlföldum, hestum, anti- lópum o. fl. sléttudýrum. Vestan til i rikinu er geituxinn (jakinn) bæði villtur og taminn. í Jynn- an, Gúangsí og víðar, þar sem heitast verður, eru gleraugna- slöngur og önnur indversk dýi% t. d. fílar og tígrisdýr. Tígris- dýrið er í Kína kallað konungur dýranna, því að þar eru engin ljón. Tígrisdýr flakka um alla hina strjálbýlli hluta Kína, alll norður í Amúr-dal í Austur- Síberíu. Amúr-landið var hluti Kínaveldis áður en Rússar tóku það. í suðvesturhluta Kínaveldis er strjálbýlast, og þar eru einn- ig flesl villidýr. Nokkur dýr eru i Kína, sem hvergi erú til annarstaðar. Fyrst mætti nefna hinn fræga Daviðs- hjört eða „elaphure44, seni nú er ekki lengur til villtur. í Tung- ling-vatninu í Mið-Kína er hvít- fisks-höfrungurinn. Geituxinn er til í Nepal í Himalajafjöllun- um á landamærum Kína, en annars er liann ekki til utan Kína. Risa-bjarnkötturinn¥) og .*) Fyrsta dýrið af þessari tegund var veitt lifandi í Sutsú- an í október 1936 og flutt til Ameríku i desember það ár. litli bjarnkötturinn, er líkist bæði birni og indverska kattar- dýrinu „racoon", eru til á hæstu fjöllum í Mið- og Austui’-Kína. Meira en 200 aðaltegundir og undirtegundir spendýra eru til i Kina, svo að það mætti æra ó- stöðugan að telja allt það upp. Þar er rauði Asíu-hjörturinn og risa-villikindur. Þar eru dýr, er nefnast „serow“ og „goral“, nokkuð lík geitum og skyld antilópum. Þar eru dröfnóttir hirtir og „ár“-hirtir. Landbirnir í Iíína eru svartir, brúnir eða gráir. Þar er moskusdýrið, er einnig gefur hið dýra moskus, rádýr, villisvín og bláar kindur. Þar eru merðir, þar á meðal minkar, marðhundar, villtir hundar, ofrar, múrmeldýr, hér- ar, íkornar, hreysikettir og moskuskettir. Þar er og „bad- ger“, sem allir kannast við, af þvi að hár lians er liaft í laxa- flugur. Ýmsar apategundir eru i Kína. Það er stundum brosað að þvi, að þar eru til ljóshærðir apar, en þetta er bæði satt og víðfrægl. Suðvestan til í land- inu er apategund með þéttum loðfeldi, er lifir í skógunum svo hátt uppi í fjöllum, að jörðin undir er þakin snjó mikinn hluta ársins. Við strendur Kína eru ýmsar tegundir sela og hvala. I Tsödsjang- og Fúdsjen- fylkjum eru margar tegundir dýra, einkum skriðdýra og láðs- og lagar-dýra, sem eru ná- kvæmlega eins og dýr á Hima- laja-dýrasvæðinu. Það sýnir, að eitt sinn voru þessi fjarlægu svæði nátengd. Það er aðeins á tveimur svæð- um á jörðinni, að alligatorar eru til, þ. e. i neðri hluta Jang- tsu-dalsins og á Missisippi- Florida svæðinu í Ameriku. Jangtsu-alligatorinn er þó miklu minni en hinn ameríski. 1 Jangtsu-fljótinu og þverám þess er nefjaða Jangtsu-styrjan. Hún er skyldust styrjunni i Missis- ippi. Risasalamandran í Kína er skyldust Missisippi-salamöndr- unni. Hvernig skyldi standa á þessu? Kína er aðalheimkynni fasan- fuglanna og karfaættarinnar meðal fiskanna. Eru þar til fleiri tegundir af hvoru fyrir sig, en í nokkru landi öðru. Um 800 tegundir fugla eru í Kína. Þar er fyrst að telja fasan- ættina, 30 andategundir, gæsir, svani, storka, íbisa, lóur, dúfur, máfa, uglur,. músafálka, fálka, erni, hauka, gamma, pelikana, ísfugla, skarfa, krákur og Eftirfarandi greinar eru úr hinni nýútkomnu bók um „undralandið Kína“ eftir frú Oddnýju E. Sen. Þáttur- inn um söguna er hér þó ekki birtur allur. Bókin er prýdd fjölda mijnda og fi'ágangur allur liinn prýðilegasti — en eftirfarandi greinar eru sýnishorn af efninu. fsafoldar- prentsmiðja h/f. gaf bóldna út. Grjónaakurinn plægður.

x

Vísir Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.