Vísir Sunnudagsblað - 08.03.1942, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 08.03.1942, Síða 1
1942 Sunnudaginn 8. marz 3. blað HALLGRÍMUR HELGASON: Siðgæðisiiifihald þjóðlagsins ÞjóÖlagið hefir að sínu leyti sama gildi fyrir þjóðareinstak- Jinginn og móðurmjólkin fyrir reifabarnið. Alveg eins og barn- ið drekkur í sig lyndiseinkunn- ir, eðlishætti, tilfinningar og hugsanir feðra sinna með móð- urmjólkinni, að sama skapi til- einkar þjóðareinstaklingnrinli sér innsta eðli og innræti, tungu og tóna forfeðra sinna og gjör- vallrar þjóðarinnar í gegn um þjóðlagið. Hinar minnstu lirær- ingar þjóðarsálarinnar, hin hljóðustu æða-' og hjartaslög þjóðlífsins birlast í einfaldleik þjóðlagsins, i því felst mynd af andlegu lífi þjóðstofnsins. Af þessu leiðir, að þjóðlagið er jafn- nauðsynlegt fyrir mótun skap- gerðarinnar og næringin er fyr- ir barnið, sem er að stálpast. Ef barnið nærist ekki á liollri, kraftgóðri og einfaldri fæðu, biður það likamlegt tjón í upp- vextinum, þróttur þess þverr og lifsorkan lamast; og maður, sem alizt hefir upp án þess að liafa nein kynni af þjóðlagi lands síns, hlýtur ávallt að verða átthagalaus alheimsboi’gari, skapgerðarlaust snikjudýr, sem gerir sér að góðu það, sem fram- andi og máske óskyld menning miðlar honum af handaliófi Hin menningarlega nauðsyn þjóðlagaiðkunar verður augljós jafnskjótt og skyggnst er inn í hið almenna tónlistarlíf. Og þá verður því tæplega neitað, að of lítið er gert að því, að sýna fram á kosti þesS, að hafa um liönd lög feðranna og forfeðr- anna. Með einföldum og auðskild- um oi'ðum og látlausum og kjarngóðum lögum, mynd- ast af sjálfu sér traust- ur varnargarður gegn skaðleg- um tónlistaráhrifum. Það er oft talað um það, að við eigum eng- in þjóðlög, sem vert sé að halda á lofti, en slík umrnæli hljóta að missa marks, ef litið er á þjóð- lagaútsetningar Bjarna Þor- steinssonar, Sigfúsar Einarsson- ar, Sveinbjörns Sveinbjörnsson- ar, líarls Runólfssonar, Páls ís- ólfssonar og EmilsThoroddsens. IJað er margt, sem stuðlar að því, að veikja móttækileika á- heyrenda fyrir sönnum einfald- Jeik þjóðJagsins. Hver einasti „song“ jazzsöngvarans er atlaga gegn þjóðlaginu, liann veikir þá undirstöðu, sem það sjálft myndai', og „jazzinn" vill koma í stað þjóðlagsins, sem jafnoki þess. Sá, sem hefir skilið þetta og sér hið raunskakka í þessu viðhorfi, Iilýtur með ráðnum Jiug og fyllstu sannfæringu að beita sér fyrir útbi'eiðslu þjóð- lagsins. Siðan að prófessor Bjarni Þorsteinsson, fyrrum prestur á Siglufirði, gaf út þjóðlagasafn sitt, 1909, hefir lítið sem, ekkert verið unnið að því, að bjarga íslenzkum þjóðlögum frá glöt- un. GömJu kvæðamennirnir víðsvegar á landinu hafa margir farið með rímnalögin sín með sér í gröfina, og nú er rinina- kveðskapur, illu lieilli, sem óð- ast að deyja út. En langstærstur liluti íslenzkra þjóðlaga, og um Jeið, ef til vill, sá merkilegasti, er einmilt rímnalögin eða stemmurnar. Er það lífsnauðsyn fyrir fram- tíðarþróun íslenzkrar tónlistar, að þjóðlögunum sé gaumur gef- inn, þvi að þjóðlagið er meðal allra þjóða upphaf alls söngs og annarra tónlistariðkana; það er fyrsti vísir að skapandi músikgáfu, og i þjóðlaginn blundar þvi kím vaknandi g vaxandi tónmenningar, sem hlýtur að beinast inn á þjóðleg- ar brautir. HAIXGRÍMUR HELGASON. Hið stórmerka þjóðlagasafn prófessors Bjarna ber fyrst og fremst að skoða sem heimildar- rit. Það getur ekki komið ölluin, þorra fólks að gagni, vegna þess, hve fyrirferðarmikið það er og að sumu leyti óaðgengilegt. Lögin í safninu eru og velflest óraddsett og geta i þeirri mynd aldrei náð neinni verulegri út- breiðslu. Á þessu langar mig að iráða bót, með því að gefa út íslenzk þjóðlög í alþýðlegum og aðgengilegum en þó vönduðum búningi, svo að allur almenn- ingur fái tækifæri til þess að mela þessi Jög og sýna þeim rækt og sóma; en Sigfús Einars- son sagði 1912, er hann gaf út þjóðlagasafn sitt með 17 íslenzk- um þjóðlögum, að þjóðlögin okkar væru olnbogabörn, og við hefðum borið þau út — allflest, en þá óhæfu yrði að bæta fyr- ir. Af löngun til þess varð þetta hefti lians til. Slíkar útgáfur geta stórum bætt tónlistar- smekkinn og vakið áhuga fyrir því, sem til hefir orðið og þró- azt í landinu sjálfu. Mestur liluti þeirra þjóðlaga, sem varðveita þarf, er rimna- lög; en gömlum sáhnalögum og vikivakalögum, þarf einnig að lialda til haga, og máske siðast en ekki sízt lögum, sem enn verða til manna á milli. Af rímnalögum eru skráð um 300, en tala þeirra rímnalaga, sem lirærast með þjóð vorri i munnlegri geymd, er óútreikn- anleg. Þegar öllu þessu milda safni væri safnað og búið væri að flokka það og skipuleggja, mundi efalaust margt það koma i Ijós, er gæfi nákvæmari upp- lýsingar um sérkenni íslenzks tónlistareðlis en mögulegt er að afla sér úr því, sem enn er fyrir liendi. En í hverju íslenzkt tón- listareðli er aðallega fólgið, er enn algjörlega órannsakað, og er þvi varla um annað en slag- orð að ræða, þegar sagt er, að þetta eða liitt tónverk eða lag sé Svo „íslenzkt". Hér bíður mikið verkefni lausnar, og mundi það stórlega geta bætt allt tónlistarlíf i land- inu, ef vel væri af hendi leyst. Notkun þjóðlaganna er tengd margvíslegum möguleikum, ef rétt er á haldið, og mundi þá fara svo, að eftirsókn yrði að hinum ómetanlega þjóðlagaf jár- sjóði, sem enn hefir allt’of lítið verið lih't um. Slík eftirsókn ætti að geta orðið ti'ygging fyrir blómlegu tónhstarlífi, sem, yxi upp úr frjórri gróðurmold landsins sjálfs og tæki þaðan til sín alla þá næringu, sem það þarfnaðist sér til vaxtar og viðgangs.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.