Vísir Sunnudagsblað - 19.07.1942, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 19.07.1942, Síða 1
1042 Sunnudaginn 19. j úlí 22. blað Böðvar frá Hnífsdal: Hið sumarfagra Norðurland. I. Og eg sá, að þekking mín var harla lítil. Það var komið fram í júlí. Dís vorsins hafði nú slitið barns- skónum, vaxið upp úr duttlung- um og gönuhlaupum, lagt niður hávaða og ærsl, og samræmt lit- ina í kjólnum sínum. Hún var orðin svo tiguleg, náðsett og fullorðinsleg í allri framkomu, liún var ekki lengur dís vorsins, nú var hún orðin sumargyðja. Og fólk, sem mestan hluta ársins, vinnur innan fjögurra veggja, í skólum, skrifstofum, veitingastofum eða verksmiðj- um, var ýmist farið af stað í sumarleyfi sín eða farið að hugsa um, hvernig ætti að eyða þeim. Sjálfur höfuðstaðurinn bar blæ af sumarleyfunum. Að vísu var komið nýtt „ástand“ í bæ- inn, ameriskir soldátar í hvít- um og svörtum lit og öllum litbrigðum þar á milli. En fólk var orðið svo vant „ástandinu“, undanfarið ár hafði bókslaflega verið eitt „ástand“, það skipti svo sem ekki miklu, hvort þá var einu „ástandinu“ fleira eða færra. Stúíkurnar renndu rétt svona augum til negranna og sögðu: „Guð, hvað hann er sæt- ur,“ þegar sá dökki draumur ranghvolfdi augunum og lét skína i skjallahvítar tennur milli þykkra og blóðrikra vara, en svo hröðuðu þær sér áfram, því að þær voru önnum kafnar við að undirbúa sig í sumarleyf- ið. Malvöruverzlanir auglýstu nesti, Geysir og Magni auglýstu tjöld og hvílupoka, bókaforlög ráðlögðu fólki vissar bækur til að viðhalda sálinni, nafnlausir smábraskarar auglýstu notaða bíla, tilvalda i ferðalög, og híl- stöðvarnar básunuðu hinar ó- dýru, hentugu og skemmtilegu ferðir sinar. Skipaútgerð rikis- ins rómaði mjög hina róman- tizku siglingu með ströndum landsins, um firði og flóa, and- nes og eyjar. Og blöðin fluttu lyriskar auglýsingar um fegurð náttúrunnar í nánd við Hreða- vatnsskála og Hreðavatn. En sjálfur Steindór, bílakóngur Reykjavíkur og bílajarlinn á Akureyri, gerðu með sér tví- veldasáttmála og skipulögðu samgöngurnar á svo hávisinda- legan liátt, að liernaðarstórveldi liefðu verið fullsæmd af. í Reykjavík hafði Steindór komið upp sinni afgreiðslumiðstöðinni fyrir hverja tegund ferðalanga, svo að þar var á vísan að i’óa. Og í langferðabílunum var allt flutt, telpukralckar og afgamlar kerlingar, strákhnokkar og átt- ræðir öldungar, trúleysingjar og ofsatrúarmenn, allt, nema koff- ort og hjólhestar, þeim er alger- lega útskúfað og afneitað, af einhverjum visindalegum, en um leið torskiljanlegum ástæð- um. Eg og félagar minir tveir, sem ætluðum í ferðalag norður i land, minntumst þess, að i striðsfréttunum voru flestir stórsigrar þakkaðir góðu skipu- lagi. Þess vegna ákváðum við að ferðast á vegum þeirra tveggja stórvelda i samgöngumálunum, sem við álitum bezta í því efni. Við ætluðum norður í land, en nánara tiltekið norður i Þingeyjarsýslur. Nú hagaði svo til, að annar félaga minna var Suður-Þingeyingur að ætt og uppeldi, hinn hafði farið þar um áður, en eg aldrei. Eggjuðu þeir mig lögeggjan og kváðu mig varla getað lifað lengur við þá skömm að hafa ekki séð þessa landshluti. Eg varð að játa, að eg vissi það eitl um Þingeyjar- sýslur, að þar var snjóþungt á velrum, en sauðland gott á sumrin, þaðan var Jónas okkar allra, þar var Mývatnssilungur Akranes og Akrafjall. og þar var mikið af skáldum og hagyrðingum, og að til sumra þeirra leit Menntamiálaráð með velþóknun, en sumra ekki. Og eg sá, að þekking mín var harla lítil, samanhorið við þekk- ingu félaga minna. Þeir létu líka lcúlnahríð röksemdanna dynja yfir mig úr véUjyssu mælskunn- ar. „Þér verður bara ýtt hægt og rólega út úr þessari lélegu kenn- arastöðu, sem þú hefir þarna í Flóanum,“ sögðu þeir, „bara fyrir það að vita hreint ekkert um átthaga og æskustöðvar samvinnustefnunnar og alþýðu- menningarinnar, sem allt upp- eldi þjóðarinnar bj’ggist á“. Hvérju gat eg vankunnandi vesalingur svai'að? Engu. Eg heygði mig fyrir rökum þeirra, alveg eins og eg beygði mig fyr- ir erindreka barna- kvenna- brottflutningsins i vor, þegar liann með mikilli vinsemd, meiri kurteisi, en þó mestum dugnaði, ýtti mér hægt og rólega út úr þessari íbúðarnefnu i skólanum, sem eg, að visu lögum sam- kvæmt, á að hafa sem þak yfir mitt fávísa liöfuð. En erindrek- inn sagði, að nú þyrfti að nota þetta fyrir mæðraheimili, og úr því að eg væri ekki móðir, þá gæti eg alls ekki átt þarna lengur heimili. Rétt sagði hann hinn frómi. Aðeins einn karl- maður á íslandi, einn kunnasti ritliöfundur þjóðarinnar, hefir, að eigin sögn, komizt svo langt í því að verða móðir, að liann laldi sig áreiðanlega vera ólétt- an, en aldrei ól hann þó barnið. Er eg sá, að það var mér með öllu vonlaust að feta í fótspor hans, lét eg sannfærast og fór. Nú, og úr því að eg var hús- næðislaus um Árnessýslu og þekkingarlaus um Þingeyjar- sýslur, hugsaði eg sem svo: „Sama, hvar frómur flækist“. „Við förum á laugardaginn,“ sagði Þingeyingurinn, sem var fararstjóri. „Ekki skal standa á mér,“ svaraði eg og fór út til að kaupa mér reyktóbak og landabréf. II. í Norðurveg'. Anno Domini 1941. Laugar- dagurinn 12. júli. Klukkan var 6 að morgni. Eg reis upp með andfælum og reyndi að gera mér grein fyrir því, hvaða bölv- aður hávaði þetta væri. Eg minntist þess, að hafa heyrt það liaft eftir orðlögðum gáfu- manni, að músik væri „mis- munandi þægilegur hávaði“, — og þessi músilc var óþægilegur hávaði. Nú, jú, hann kom frá vekjaraklukkunni. Félagar mín- ir vöknuðu nú líka og i samein- ingu þögguðum við niður í klukkunni, klæddum okkur í

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.