Vísir Sunnudagsblað - 16.08.1942, Síða 1

Vísir Sunnudagsblað - 16.08.1942, Síða 1
1942 Sunnudaginn 16. ágdst 26. blaö QubiÓK Jónsson; ÆSKUMINNINGAR Bærinn, sem var æskuheimili mitt, Hjallar i Þorskafirði, er á vesturströnd Þorskafjarðar og stendur á fögrum, stað mót há- suðri og er þarna einkar lilýtt, er sólar nýtur og hægviðri er. Dregur bærinn nafn af hlíðar- bekk þeim, er hann stendur á upp frá ströndinni, og sér þaðan vítt um fjörðinn. Nokkuð er næðingssamt þarna í norðanátt heima við bæinn, en skjólasamt með ánni vestan við hann, skóg- arkjarr og berjaland gott, og þótti okkur börnunum gott á sumrin að skreppa þangað á milli rifjinga, eða i dagverðar- tímanum, ef ekki var þá því annríkara, sem oft vildi nú verða, ef þurrkur var. En það var svo svalandi, að fá sér berja- lúku í sólvörmum armi fjalls- ins, og i brekkunúm þarna og umhvei’fi öllu á eg ótal ljúfar minningar frá æsku og fullorð- insárum mínum, sem eigi munu fyrnast allt að leiðarlokum. Húsaskipun var þannig, að baðstofan stóð næst hlíðinni og sneri göflum til norðurs og suð- vesturs. Var hún af torfi ger, portbyggð og voru gluggar á súðinni yfir hverju rúmi gegnt suðri, og einn, sem vissi til fjalls. Allt voru þetta tveggja rúðu gluggar. Baðstofan var 12 álna löng, lielmingur undir skarsúð, en hinn endinn með langbönd- um og álagðri reisifjöl, sem kall- að var. Niðri voru tveir vænir gluggar 6 rúðu og víðar glugga- tóftir. Var stofa þiljuð í vest- urenda, en í hinum stóð vef- slóllinn og vef jaráhöld. Við suð- urhlið baðstofuhússins komu svo fjögur hús með þilstöfnum fram á hlaðið, en þau voru eld- hús, bæjardyr, búr og skemma allmikil. Þegar eg man fyrst eft- ir mér, voru öll þilin gulmáluð með hvitum vindfekeiðum og gluggum. Næst bæjarhúsinu var svo kúahlaðan, fjósið og svo þerrihjallur. Dyr fjóssins vissu til fjalls, bak við bæinn. Hjall- urinn var notaður fyrir þvott og reiðver allskonar. Fjárhúsum var, sem, þá var um tveim saman. Mun það hafa títt, dreift um allt túnið, stund- verið gert í þeim tilgangi, að betur þótti ræktast í kringum. þau, við fénaðarumferð að og frá húsi, en ella. Og svo var auð- veldara að koma áburði á völl- inn með þeim frumstæðu tækj- um, sem menn höfðu þá yfir að ráða, svo sem kláfum á haust- in, en sleðum á vetrum. Hlöður voru við hvert fjáriius þannig, að eigi þótti vel lieyjað, ef aðeins heyjaðist í þær. Ef birgt ætti að vera, þurftu að vera aukaliey við þær sumar, og var það oflast, nema í grasleysisár- um. En þá var lika voðinn vís, ef eitthvað bar útaf um vetrar- far. Eg er fæddur á Hjöllum 8. febr. 1870. Foreldrar: Jón Finns- son, á Sveinungseyri, Arasonar, en bróðir Finns var Jón Arason i Djúpadal. Móðir mín var Sig- ríður Jónsdóttir, bónda á Galt- ará, Guðnasonar. Byrjuðu þau að búa á Sveinungseyri á móti afa mínum, en fluttu brátt að Hjöllum og bjuggu þar allan sinn búskap. Var eg næst yngsta barnið af níu, sem á legg kom- ust.. Það fyi'sta, sem eg man til mín, liefi líklega verið á öðru ári, var að eg svaf hjá vinnu- konu, sem hét Kristjana. Vildi hún svæfa mig aftur, en eg þá ekki viðlátinn að gera það, því hún lét mig vita, að Grýla kæmi og tæki mig, ef ég léti á mér kræla. Þetta hreif þó ekki mik- ið, því eg hafði víst ekki neina hugmynd um hver Grýla var, og það eitt man eg glöggt, að eg var elcki hið minnsta hræddur við þessa hótun. En eg man eftir því, að glugginn yfir rúm- ppdx 60 áhjjum,. inu var loðhélaður, svo þetta hefir verið um, vetur. Annað skifti var eg að róla úti á bæjarhólnum að sumarlagi, og sólin að koma upp yfir fjalls- brúnina austan við fjörðinn. Greip mig þá mikil löngun til að komast þangað yfir um, því þarna á fjallsegginni hlyti þó að mega ná til sólarinnar, og þreifa á henni með hendinni, áður en hún losnaði alveg við brúnina. Þetta var fyrsta út- þráin mín, og liafa þær aldrei við mig skilið síðan, og ekki sú einasta, sem aldrei var fullnægt. Sennilega hefi eg verið á fjórða ái’inu eða svo, er við yngstu bræðurnir áttum að hafa ofan af fyrir okkur inni við um sum- arið, þvi hvassviðri var úti og þurrkur, en það sem við tókum þá fyrir, var að byggja hús úr kistlum, og kössum, og reftum svo yfir með rúmfjölunum, og geklc svo lengi dags, að ýmist var rifið eða byggt upp aftur, og þá með öðru sniði, og mátti segja um það, að snemma beyg- ist królcurinn til þess sem verða vill, því ávalt hafa húsbyggingar átt vel við mig, þó lífsstarf mitt yrði annað. Um kveldið kl. 6 lcom mamma heim til búverkanna, sem kallað var. En þau voru fyrst og fremst fólgin í því, að koma í mat mál- nytu þeirri, sem til féll kvöld og morgun allt sumarið, og var það ekkert smáræðisverk á stóru búi. Mjólkin var sett í trogum, þ. e. látin standa í þeim 2 eða 3 dægur. Settist þá rjómdnn ofan á, ef ekki var því kaldara, eins og á veturna. En væri hins veg- ar heitt í veðri mátti gjalda var- hug við að mjólkin súrnaði ekki. Kæmi það fyrir, var það kennt vöntun á þrifnaði og hirðingu troganna. Rjóminn var skilinn frá, sem nú verður sagt: Matseljan tók trogið af hillunni, sinni hendi undir livora hlið, lyfti því á lær sér og beygði sig lítið eitt, um leið og hún færði vinstri hönd fram á horn trogsins og studdi það þannig, um leið og hún færði hægri hendi fram á hitt hornið og lagði handarjarðarinn yfir trogshornið, yfir hlið og gafl, og ýtti þannig rjómaskáninni ör- lítið upp, og lét undanrennuna þannig renna undir liandarjaðar- inn ofan í fötuna, í mjórri bunu, unz eftir sat rjómaskánin í trogshorninu, og gat hún oft ver- ið ærið þykk, einkum á sauða- mjólk, fyrst eftir fráfærurnar, þar sem gott var undir bú, þ. e. kjarngott sauðland. Á Hjöllum er kjarngott beitarland. Þó mundi það ýkjur, ef eg segði að rjómaskánin myndi hafa borið uppi skeifu með nöglum, án þess að sökkva, eins og eg hef heyrt lengst til jafnað um smjör- kostinn, og er sennilega ýkjur einar. En hitt man eg, að eg gerði stundum til prófs, ef mér sýndist þykkt á trogi, að bregða flötum lófa á rjómatrogið, og ekkert toldi við lófann. Svo þétt- ar voru smjörkúlurnar. Sauðland var ágætt á dalnum frammi, skógarkjarr, kvistur, lyng allskonar, og blómstóð i brekkum og dældum hið neðra, en brok, beitikvistur og viðir hið efra í brúnum og á fjallinu, þar sem búsmali var hafður á nótt- um, upp með Kálfá (nú Hjalla- á). - Þegar þess er gætt, að á búi var um 90 ásauðar, þegar flest var, og þá til uppjafnaðar mörk

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.