Vísir Sunnudagsblað - 03.10.1942, Blaðsíða 1

Vísir Sunnudagsblað - 03.10.1942, Blaðsíða 1
- MADACíANCAR EILAAD LEAADABDÓMAMA — Þegar Japanar sendu íierskip inn í Indlandshaf, eftir fall Singapore, — og í mai í vor, þegar Bretar her- námu Diego Suarez nyrst á eynni, beindist athygli allra þjóða að þessu mikla eylandi, sem er frönsk nýlenda undan vesturströnd Afríku. Og enn er Madagascar á hvers manns vörum, því að fimmtudagsmorgun þ. 10. fyrra mán., hófu bandamenn sókn til þess að ná eynni allri á sitt vald, til þess enn frekar að girða fyrir að Jap- anir hefðu hennar nokkur not i styrjöldinni. — í slórfróðlegri ritgerð um Madagascar, eftir Paul Almasy, í National Geographic Magazie, hinu heimsfræga ameríska land- fræði tímariti, er ýmsan fróð- Ieik að finna um eyna og evjnr- skeggja, og er í grein þeirri, sem hér fer á eftir, stuðst við ritgerð Almasy. Lega þessa mikla eylands er hin mikilvægasta frá hernaðar- og viðskiptalegum sjónarhólum skoðað, því að Madagascar er syðst í Indlandshafi, skammt frá liöfuðsiglingaleiðum skipa, sem fara suður fyrir Góðravona- liöfða, á leið sinni. frá hafnar- borgum Vesturálfu og Evrópu, til hins þéttbyggða Indlands, hinna auðugu Austur-Indiu- landa, Iiína, Japan, Ástralíu og Nýja Sjálands og þúsund smærri eylanda — og frá þessum lönd- um heim aftur. Vegna atburða þeirra, sem gerst hafa í styrjöldinni, og að er vikið í inngangslínum að grein þessari, heinist athygli manna enn meira nú að Madaga- scar en á dögum Marco Polo og Vasco da Gama, hinna heims- frægu landkönnuða, sem gátu sér ódauðlegan orðstir. Madagascar á sér langa og merka sögu — og hefir alla tíð verið eyland leyndardómanna. Enn þann dag í dag vita menn almennt mjög litið um Mada- gascar og leyndardóma þess. Verður nú um ýmislegt getið sem verða má til þess að auka kynni manna af þessu merka eylandi. Marco Polo fréttir um nýtt land. Það er ekki af landfræðisögu- legum ástæðum, sem eg hyrja á því, að minnast á það, sem Marco Polo frétti um Madaga- scar, þegar hann var á heimleið frá Kína. Vitneskja sú, sem hann aflaði sér voru mikilvæg- ari fyrir samtíðarmenn hans en þeir töldu sjálfir. Siðari tíma rannsóknir og athugaiiir á „sjötta“ meginlandinu hafa leitt í ljós, að frásagnir Marco Polo, sem á sínum tíma voru taldar lygasögur, hafa við gild rök að styðjast. í lok 13. aldar var fjögurra siglu barkskip á leið um Beng- alflóa. Feneyjafáninn var við hún og á stjórnpalli stóð fremsti landkönnuður heims, Feneying- urinn Marco Polo. ByiT var á- gætur og kom það sér vel, þvi að markmiðið var að komast í lægi i ósum Indusárinnar yfir vetrarmánuðina. Þegar skipið nálgaðist eyna Ceylon skipti skyndilega um áttir og skipið lenti i greipum norðaustan-monsúnvindanna. Hrakti skipið æ lengra suður á bóginn, og Indverjarnir á skip- inu vissu, að þeir yrðu að bíða þess, að tungl yrði fullt fimm sinnum, áður en áttaskipti yrðu aftur. Laust fyrir sólarlag kvöld nokkurt komu skipverjar auga á arabiskt skip með tveimm’ siglum, af sömu gerð og þeir höfðu séð í þúsundatali undan Hadhramaut-ströndinni. Skip þetta hrakti undan sjó og vindi með brotið stýri og^- segl i tætlum. Á þilfari voru 3t| arabiskir kaupmanga'rar, nærri ærðir af liungri og þorsta. !• Marco Polo bjargaði þeim og tók þá upp á skip sitt. Sögðu þeir honum nú frá ævintýrum sínum. Kváðust þeir hafa siglt til suðlægra eyja, Pemba og Zansi- bar, til þess að kaupa fílabeins- tennur og hvalambur. Fárviðri skall á og hrakti þá til suðvest- urs. Dögunum saman höfðu þeir ekki hugboð um hvar þeir voru staddir. Eitt sinn gi-ilti í eyjar i fjarska, en þeim tókst ekki að sigla skipi sínu þangað. Hinn al- stirndi himinn var gerbreyttur, fannst þeim, og þeir gátu elcki lengur áttað sig á stjörnunum. Dag nokkurn eftir tunglfyll- ingu sáu þeir til nýrrar strandar. Ekki sáu þeir til mannaferða á ströndinni. Allan daginn skein brennheit sól, og er degi hallaði og kvöld var komið, kvað við ægilegt öskur villidýra. Miklir skógar voru á ströndhmi og er Arabarnir fóru á land sáu þeir ferlega apa er glentu upp skjá- ina og öskruðu að þeim. Araharnir leituðust við að komast inn á eyna, en hvar- vetna voru fjöll og miklir skóg- ar, sem þeir komust ekki um. Stigu þeir nú á skipsfjöl á nýj- an leik og sigldu meðfram ströndinni. í næstu tunglfyll- ingu voru þeir enn á siglingu við strendur þessa furðulega lands. Þeim flaug ekki i hug, að þetta væri eyland — töldu það megin- land, sem enginn hafði áður heyi-t um getið. Því lengra sem siglt var þvi hærri fjöll blöstu við og allt varð furðulegra og annarlegra. Þeir litu á land þetta sem land skelfinga og leyndardóma. Dag nokkurn sáu þeir risa- vaxinn fugl, sem flaug yfir skip þetta, Svo breiðir voru vængir fugls þessa, að er hann flaug Savannah, Madagascar og U. S. A. Til þess atS gefa mönnum hugmynd um stært? Madagascar, sem er fjóröa mesta eyland heims, er upp- dráttur af því settur á uppdrátt af áusturhluta NorSur-Ameríku. Kernur þá i ljós, aS Madagascar nær frá Savannah til Ottawa í Kanada eða yfir nokkurn hluta 10 fýlkja i Bandaríkjunum og hluta af Ontariofylki í Kanada. yfir skipið, birgði fyrir sólu. Bisafugl þessi hélt á stærðar dýri í ldóm sér — ef til vill fil!! Marco Þolo Jhlustaði hugfang- inn á frásagnir Arabanna. — Það vakti enn frekar en nokkuð annað, sem hann hafði heyrt, ævintýraþrá hans og metnað. Það var þá enn til stórt land, hugsaði hann, einhversstaðar suður í Indlandshafi, land, sem engir livitir menn vissu deili á. Það kynni að vera þess virði, að búa mörg og stór skip i leiðang- ur, til þess að finna þetta mikla land og hertaka það. En ekkert varð úr neinum framkvæmdum í þessa átt. Lourence skipstjóri segir furðulega sögu. Um það bil tveimur öldum eftir fráfall Marco Polo, kom .skipstjóri portúgalsks seglskips að máli við Cristao da Cunha, flotaforingja í Lissahon. Koma seglskips þessa vakti mikinn fögnuð, því að það kom heim til

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.