Vísir Sunnudagsblað - 05.09.1943, Blaðsíða 3

Vísir Sunnudagsblað - 05.09.1943, Blaðsíða 3
Visg býrð þá svona vel raeð hejnn, þó að veturinn vœri ekki góður, sagði eg. Eg á það vetrinum i fyrra að þakka, sagði Magnús. En þá um haustið átti eg mikil hey. Þetta var djúp hlaða með háum grjótveggjum. Og liefi eg ekki séð eins vel hlaðna veggi, og spurði hann hver hlæði svona vel. Það hefi eg nú gert, sagði Magnús. Hefi eg fengið orð fyr- ir að vera góður hleðslumaður, og hefi hlaðið marga veggi víð- ar en hér á Leirubakka. En nú geri eg hvorki það né annað, því að eg liefi ekki getað snert á verki á annað ár. Hefi stundum legið á sjúkrahjási suður i Reykjavík. Vonast þó til að eg sé heldur á batavegi. Gat eg vor- kennt honum að vera svona heilsubiluðum, og þetta var maður á bezta aldri. Nú geng- um við aftur til stofu, og innan skamms bar húsfreyjan mat á borð, og eg var beðinn að gera svo vel og borða. Þar var nýtt skyr, og spenvolg nýmjólk, og var mér á hvorutveggju ný- næmi. Eftir að hafa matazt, var eg loks tilbúinn að leggja af stað. ÍJti á hlaðinu stóðu tveir fallegir hestar. Á annan var lagður hnakkur, og honum skyldi eg ríða. Hulda ætlaði að ríða bei’bakt. Hún kom nú út á hlaðið og var líka tilbúin. Hún var eins klædd og hún hafði verið við verkin úti og inni og var ekkert við það að athuga. Var hún fullt eins lik röskum sveitadreng, og stúlku, það staf- aði mest af klæðpaðinum. Hún var i brúnum samfesting, með ól yfir um mittið, og gúmmí- skó á fótum, og berhöfðuð með úfið hórið. Þetta er náttúrunnar baru hugsaði eg, ósnortinn af allri tízku. Alveg eins og sveita- fólk þarf að vera. Við riðum svo af stað, og Hulda reyndist vera ræðin og skemmtileg. Það er um hálftima ferð að ánni frá Leirubakka. Fyrst er farið eftir liörðum valllendis- götum. Svo kemur uppblásið land, og svartir sandar. Standa þar sumsstaðar einstök börð, með holum moldarbökkum. Eru það minnisvarðar frá nátt- úrunnar hendi, um grasi grón- ar grundir, sem verið hafa þania einhverntíma áður. Nú koinum við að vaðinu á Rangá, neðan við sporðinn á I Iraunteig. Áin var lygn og tær. Lögðum við út í hana þar sem gölurnar visuðu tjl. Var hún rúmlcga í lcvið og allgóð yfir- ferðar. Þegar yfir um ána er komið, er komið upp i sporðinn á Hraunteig. En það er skógar- svæði, sem liggur þarna alllangt upp með Rabgá að austan- verðu. Skammt fyrir ofan vað- ið er hólmi útl i ánni; rennur aðeins lítil kvisl af ánni með- fram honum að austanverðu. Hólmi þessi er eins og ávalur hóll, dálítið sporöskjulagaður, og standa stórar, en strjálar birkihrislur liér og þar um hann. Ætlí þetta sé hólminn í Rangó, sem einu . sinni kom mynd af á bréfspjaldi, sagði eg við Huldu. Já, það er þessi hólmi, sagði hún. Langar þig ekki til að koma út i hann? bætir hún svo við. ó, jú, sagði eg, ef að þú mátt vera að tefja þig á því að koma út i liann með mér. Það er allt í lagi með það, sagði hún, og svo riðum við yf- ir kvislina út i hólmann, og stigtun þar af baki. Gengum svo upp á liólmann og htuðumst um. Hríslurnar á hólmanum eru háar, en töluvert kræklóttar, og þær eru ógn eintrjáningsleg- ar, því að þær eru svo gisnar, og það sést hvergi neitt birki- kjarr — bara harður valllendis- balinn. Sást að þarna höfðu verið höggnar stórar hrislur, ekki alls fyrir löngu. Og hafði eg eitthvað orð á þvi hvort hólminn væri ekki friðaður. — „Það voru víst höggnar hríslur þarna, af því að það var komin svo mikil skemmd í þær“, sagði Hulda. — 1 Jiessum liólma þarf að gróðursetja skóg að nýju. Mér þótti fallegt að horfa þarna upp eftir ánni. Hún er allbreið, og rennur í grýttum farvegi. Glittir víða í hvítar straumflúðir, þar sem hún kast- ast fram af stórum steinum; sem eru í botninum. Dálitinn spöl fyrir ofan þenn- an hólma, er annar hólmi i ánni, skógivaxinn. Skiptist áin um þann hólma í tvær viðmóta stórar hvislar, falla þær báðar í snotrum fossum sín hvoru meg- in við hólmann, niður að flúð- unum fyrir neðan. Þetta blasir fallega við frá hólmanum ofan við vaðið. Nú stigum við Hulda á bak hestum okkar aftur. Riðum yfir kvíslina og inn á skógargöturn- ar í Hraunsteigi. — Nú máttu ekki fara lengra, sagði eg við Huldu. Eg fer hér af baki og svo snýrðu við heim. — Mér liggur eldkert á, sagði Hulda, það er líka svó gott veðrið. Eg skal koma með þér inn að Arnar- setri. Það er klettur hérna skammt ofar i skóginiím. — Eg gat ekki neitað því að hún færi lengra með mér, og sýndi mér eitthvað einkennilegt, sem eg hafði ekki áður séð. Svo rið- um við góðan spotta eftir mjúkri moldargötunni í skóg- inum. Loks beygði stúlkan út af götunni til vinstri, og kom þá brátt i ljós klettadrangi, aem stóð þar upp úr skóginum. Þetta er nú Arnarsetrið, sagði Hulda. Það er bezt að fara af baki og ganga upp á klettinn. Það er fallegt útsýni af honum yfir skóginn. Upp að klettinum lá breið gjáarsprunga, gróin í botninn, og voru þar nokkurar fallegar birkihríslur. Þarna var bezta leiðin upp á klettinn. Neðan við þessa tröð voru tvær vallgrónar kofatættur. Hvaða hús ætli þetta hafi verið? sagði eg. Eg held að það hafi verið fjárliús frá Næfurholti, sagði Hulda. Nú fórum við að khfa upp á klettinn. Þarna var grasþúfa uppi, og mikið af fugladrit. Hér liafa sezt fleiri fuglar en örninn, sagði eg. Já, það er nú líklega, sagði Hulda. Hann sézt liér aldrei nú orðið. — Það var fallegt að horfa þarna yfir skóginn. Laufið var angandi, og rakt eftir skúi’ina fyrr um kvöldið, og það mátti heyra að það lá vel á fuglunum. Skógarþrestirnir skriktu með gleðihreim hér og þar i skógar- greinunum. Það er alltaf gam- an að heyra til þeirra á vorin þegar vel liggur á þeim. Nú héldum við Hulda niður af klettinum aftur, og gengum til hestanna. Jæja, nú held eg að þú sért búin vel að gera, sagði eg. Nú verðurðu að snúa við. Eg fylgi þér þó á aðal götuna, sagði Hulda, það er skammt þangað. Og ennþá steig eg á bak og lét Huldu ráða. Við héldum nú áfram svolít- inn spotta, og komum svo út úr skóginum. Tók þar við hraun og sandur, en gatan var þó greið fram undan. Nú fer eg hér af baki, sagði eg. Það getur ekki gengið, að þú sért að fara þetta lengra. Þú áttir bara að reiða mig yfir ána. Það er allt i lagi, sagði Hulda, Mér liggur ekkert á lieim, og veðrið er svo gott. Eg ætla að skreppa heim að Næfurliolti héðanaf, það er orðið svo stutt. Jæja, sagði eg, þú verður vist að ráða. Ef að þú hefðir verið að fylgja Halldóri Iíiljan Lax- ness, þá hefði þér líklega verið tileinkaður sögukafli, sem liefði lifað, sagði eg. Eg hefði nú lítið kært mig um það, sagði Hulda. — Þessir andans menn gera nú stundum fleira en náunginn æsk- ir beinlínis eftir, sagði eg. Já, það getur nú verið, sagði Hulda. Nú fóruin við fram hjá tjöld- um girðingarmannanna, og kannaðist eg við skipulagið. Það var liið sama og í fyrrasum- ar norður hjá Iiili. Þegar við riðum framhjá tjöldunum, heyrði eg að það var glatt á hjalla þar inni. Og mér fannst eg þekkja lilátur verkstjórans okkar frá því í fyrra. En ekki vissi eg J>ó hvort liann var Jiarna. Klukkan var rúmlega 10 þegar við riðum í hlaðið í Næfurholti. Þar komu til móts við okkur þrir hundar, sem létu allmikið á sér bera. Einn þeirra var stærstur, og lét hann sérstak- lega ófriðlega við mér. Þarna skammt frá voru tveir piltar að klippa ull af kind, annar þeirra liljóp til að Jiagga niður í hund- unum, og lionum tókst von bráðar að semja frið á milli okkar. Mér var teldð vel og hlý- lega, en Hulda var þarna eins og lieima hjá sér. Þarna var líka fólk á hennar reki. Tveir ungir og myndarlegir bræður, og systur þeirra þrjár. Systkinin i Næfurholti halda mikla tryggð við ættarslóðir sínar. (Framhald seinna). Hér birtist mjTid af Georg VI. Brelakonungi Qg Montgo- mery hershöfðingja. Myndin var tekin þegar konungurínn- heimsótti 8. herinn, meðan hann var í Tripoli.

x

Vísir Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.