Vísir Sunnudagsblað - 05.09.1943, Side 7

Vísir Sunnudagsblað - 05.09.1943, Side 7
VÍSIR SUNNUDAGSBLAÐ 7 eftir grösum, en fundum lítið, því að auðvitað hafði búsmal- inn étið þau öll svona i heima- liögum. Héldum við því áfram upp að Lómatjörnum. Lómn- um brá í brún, er hann leit þessi þokutröll nálgast heim- kynni sín. Synti frá landi á mik- illi ferð og spáði þerri, og fékk liann ekki nema skammir hjá okkur fyrir svona vitlausa spá, að olckur fannst, í l>okusúld og fýlu. öndin var þögulli og lét sér nægja að gæta unga sinna sem bezt, og treysti foræðinu i kring til að halda okkur í hæfi- legri fjarlægð. Eigi þótti okkur grasalegt hér og héldum þvi vestur um Enni allt í Mjóvadal og vorum þar um stund og hittum fyrir okkur grös og dreifðum okkur um mó- ana og svo hjá Miklavatni. Létti þá til meðan við snudduðum meðfram vatninu, svo að sá til sólar af og til. Tveir hólmar eru i vatninu og hafði fjallasvanur setzt þar að í minni hólmanum, og var hann hvanngrænn í kringum dyngjuna, og sat frúin uppi, en bóndi var á verði með landi fram. Seppinn Kátur hafði slegizt í förina með okkur, og J>eim hjónum mun liafa þótt hann í mesta máta grunsamleg- ur, enda var pilturinn, sem með mér var, að etja honum fram á sundið, þrátt fyrir bann okkar, og tókst það um síðir. En þeg- ar frúin sér það, stígur húnfram úr dyngjunni og leggur á sund- ið með bónda sinum, og vilja þau nú reka fjanda þann af höndum sér. Synda þau nú tígu- lega fram á ládautt sundið og báru höfuð liátt, og þangað sem seppi var og börðu vatnsflöt- inn með hinum voldugu vængj- um. Leizt þá Kát ekki á blikuna og snéri til lands, en svanahjón- in hertu þá eftirförina og slógu hann með væng sínum, svo seppi hélt skrækjandi til lands og var æði lúpulegur, er hann skreið upp úr vatninu, en svan- irair syntu yfirlætislega kring- um hólmann, og það leyndi sér eigi, að þeir voru sér þess með- vitandi, að það voru þeir, sem áttu sigxá að hrósa. Ekkert varp var að sjá í hin- um stærri hólmanum, nema ef vera skyldi krían, en þarna sveif liún yfir vatnsfletinum og gæddi sér á flugu og sýli, þegar hún sá sér færi. í fjörunni skauzt um vikur og voga sendlingurinn, snar og lágfleygur, og xaeðfram vátninu var fjallaféð á beit og gæddi sér á safamiklum gróðri hálendisins og naut sumax-leyfis í kyrrð og næði, nema þegar þessar tvífættu tröllaverur þok- unnar nálguðust. Þá reisti það hálsinn, stappaði niður framfót- unum á víxl og blés hvellu blístri og hvarf svo eins og elding eitt- livað út í buskann á svipstundu. Þegar leið að nóni birti þok- una og gerði sólskin og bjart veður og þurt til kvölds, svo okkur gekk illa að sjá grösin. Kom nú grasafólkið saman og mældi grasafenginn, sem var eftir öllum vonuin. Neyttum við nú matar í fagurri grasbrekku austan vatnsins og létum sólina ylja okkur. Bjart og tært vatnið lá spegilslétt framundan, og grænir rindar teygðu sig upp í holtin umhverfis og krían og svanurinn settu sinn svip á það og ómur svansins barst að eyr- um okkar, þar sem við sátum og nuturn vermandi ylms mið- degissólarinnar. Eftir að við höfðum matast og ærslast um stund, kom okkur saman um að fá okkur dúr, og nota heldur kvöldið og nóttina til að afla þess, sem á vantaði til að fylla grasapokana. Sofnaðist okkur vel um stund í góðviðrinu og er við brugðmn blundi er sól orðin lágt á lofti á bak við gullkögruð skýjadrög í vestrinu, I norðvestri stóðu Reibólsfjöll hvít fyrir hærum, hið efra, en smáfannir héldu sig enn í lautum og dældum hið neðra á þak við brúnir Ðjúpa- dals. En í norðri ómælisvidd heiðanna inn af Þorskafirði og Djúpafirði, allt til Langadals í ísafjarðarsýslu og Staðardals í Strandasýslu. Nær lá Rauðafell á brún Þorgeirsdals og Bjórfell til landsuðurs austan Vaðlafjalla. í fellum þessum bjuggu skessur tvær til forna. Kom þeim fátt á óvart, sem gerðist í byggðinni, segir þjóðsagan, sem eg heyrði í æsku. Töluðust þær við yfir fjörðinn, Hvannaliliðarfjallið og Þorgeirsdal og sögðu hvor ann- ari af þvi sem við bar, og eink- um ef þær vissu gott til fanga með einhverjum hætti. Þá var ein sú uin Gretti Ás- mundarson, að hann átti að hafa verið fjölþreyfinn um eigur manna þarna i byggðinni og haft aðsetur á Vaðlafjöllum og bændur orðið þess varir, safnað liði, gert umsát um hann og ætlað að svelta hann þar unz hann gengi þeim á vald. Svo er þama háttað, eð ekki er að leita uppgöngu á fjöllin, sem eigin- lega eru tveir tindar, nema á milli þeirra, en þar er snarbj’ötl skriða á báða vegi og eigi fýsí- legt að sækja þar upp, þó ekki væri nema meðalmaður að verja, og grjót nóg við hendina. Það mátti því heita ófært að sœkja þar uppi móti grjóti og vopnunj Grettis, enda tóku bændur hinn kostinn, sem var hættu minni, að svelta hann sem melraklva í greni. Svo kom þó að lokum, að Gretti tók að þrjóta matvæli, og átti loks ekki ann- að matar en eitt blóðmörsiður, og enn liéldu bændur umsátinni. Sýndist nú Gretti óvænlega liorfa um sitt ráð. Verður hon- um þá nærtækast að storka bændum, og kveður þá lengi mega bíða þess, að hann þryti niat og kastar niður til þeirra blóðmörsiðrinu og biður þá éta, því nóg sé af björg bjá sér. Fell- ur bændum þá allur ketill í eld, og töldu örvænt um að Grettir yrði unninn með þessum liætti, og dreifðu liðinu, en Gretti var borgið að þessu sinni.----- Nú tókuni við grasafólkið göngu um Katlavötn og fannst heldur fátt um grösin og lögð- um því leið fram í Djúpadal. Leið nú nær óttu og sól af lofti fyrir löngu, en með döggfall- inu fengu grösin aftur sinn græna lit og blöðin breiddu úr sér á ný og mjúk skæðagrös, og þótti okkur gott hér að vera, meðan júlínóttin hjúpaði fjöll og dali dimmbláum feldi draum- Ijúfrar kyrrðar hið yndislega umhverfi Gilsfjarðar, Beru- fjarðar og Króksfjarðar í suðri, og hinar sögulegu minningar, sem tegndar voru við héraðið í heild. Nú var keppzt við að fylla grasapokana, þvi þarna var vel um grös, og undir miðjan morg- un var búið að fylla þá alla, og peysur og jakka í tilbót, og sett- ust nú stúlkurnar okkar við að sauma fyrir háls og bol. Var svo lagt af stað heimleiðis með stór- eflis poka í bak og fyrir. Sól reis i austri og varð okkur því heitt undir byrðunum á heimleiðinni. Qg það N'ar dálítið skritin sjón, að sjá þessa grasalest smá fær- ast ofan hlíðina. Og feginn varð njaður, löðrandi af svita, að varpa af sér byrðunum á bæjar- Iiólnum. En vel þóttum við hafa grasað, og var nú veitt hið bezta' sem búið hafði að bjóða, harður steinbítur, brauð og smjör, þetta dísæta heimabakaða brauð, úr heimamöluðu korni, sem nú þekkist ekki lengur, og skyr, sem liafði verið stráð yfir og rjómabland út á, og kallaður herramannsmatur. En nú leit út fyrir þerri í dag, og hver hönd á bænum var nú á lofti að flekkja töðuna og rifja. Sólin ýtti góðviðriskýjun- um til hliðar ér á daginn leið og allir voru í góðu skapi og við grasafólkið bættum okkur upp sumarnæturvökuna með dúr á milli rifjinga, og þótti gott, er úr rættist um töðuþurkinn um sinn. G. J. Guð sjálfur getur ekki lijálpað þeim, sem lætur tækifærið ónot- að. ★ Illa fenginn auður endist sjaldan í þriðja lið. ★ Menntun er — segja menn — þau áhrif lærdómsins, er eftir verða i liverjum manni, þegar liann er búinn að gleyma því, sem hann hefir lært. ★ Menn þurfa ekki að skamm- ast sín fyrir, þótt jxiir séu met- orðagjarnir, en það þykir fara betur á því, að þeir beri það ekki utan á sér. Þessar miklu fallbyssur, sem myndin sýnir eru smíðaðar i Canada. Þaðan eru þær fluttar til Bretlands og Rússlands, yf- ir Atlantshafið. Margar slíkar byssur eru notftðgr á vígstöðv- unum í Rússlandi,

x

Vísir Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.