Nýja dagblaðið - 18.09.1934, Qupperneq 1
Millíþinganefnd í sjávarútvegsmálum
gerir tillögur um lögbundið skipulag
á brezka síidarútveginum
-«C5V. r
Verðlækkun á kjðti
Kjötverðlagsnefnd hefir á-
kveðið, að heildsöluverð á
Bretar skipuðu s. L vetur að ríkið verja 50 þús. £ til að ^jöti hér í Reykjavík skuli
milliþinganefnd í sjávarútvegs- i kaup gömul síldveiðiskip til og ,me^, deginum í dag
málum. Fyrsti hluti nefndar- niðurrifs. i lækka niður í kr. 1,25 pr. kg.
álitsins er nú kominn út, dags. 1 Þá er og gert ráð fyrir að
15. ágúst s. 1. og er um síld- í setja síldarverkunina undir !
vtóiðina við Bretland. j eftirlit og úthluta leyfum til
Eftir þeim upplýsingum, í síldarverkunar. Er gert ráð
sem nefndin hefir aflað sér, j fyrir, að leyfin verði veitt með
hefir afkomu síldarútvegsins í : því skilyrði, að hin smærri
Bretlandi hrakað stórlega síð- ' fyrirtæki verði sameinuð.
an fyrir heimsstyrjöldina.
Síldarútflutningur hefir minhk-
að umj 55% og innanlandsneyzl-
an um 45%. Síldveiðiskipum
hefir þó ekki fækkað að sama
skapi. Árið 1913 gengu til
veiða 1470 reknetaskip og öfl-
uðu samanlagt 11.763.000 cwts.
Árið 1933 voru reknetaskipin
1088, en aflinn ekki nema
4.688.000 cwts. En á rekneta-
skipinu fást um 80% af síldar-
aflanum. Þessi hlutfallslega
mikla rýmun framleiðslunnar
samanborið við skipastólinn,
hefir í för m;eð sér ákaflega há-
an reksturskostnað fyrir út-
gerðina í heild. Hafa því hlað-
ist á hana skuldir, og telur
nefndin að endumýjun skipa
og útbúnaður veiðarfæra hafi
af þeim orsökumj verið rækt
til stórtjóns fyrir útgerðina.
Ennfremur telur nefndin, að
verkun brezkrar síldar sé í
ólagi og sömuleiðis síldarverzl-
unin.
Aðaltillaga milliþinganefnd-
arinnar er að stofnuð verði sér.
stök skipulagsnefnd fyrir síld-
arútveginn. Nefndin á að hafa
aðsetur í Edinborg, með því að
mlkill meirihluti síldveiðanna
er rekinn frá Skotlandi. Nefnd-
armenn séu allt að 8, þar af
þrír, sem sérstaklega séu full-
trúar ríkisstj ómarinnar, með
almenna þekkingu á verzlun og
atvinnurekstri, en hinir nefnd-
armexm séu skipaðir úr hópi
síldarútgerðarmanna og síldar-
verkunarmaxma og síldarkaup-
manna. Höfuðverkefni skipu-
lagsnefndarinnar eiga að vera
þau, að úthluta leyfum fyr-
ir skip til síldveiða, og setja
reglur um ástand þeirra, út-
búnað o. s. frv.), setja tak-
markanir um veiðisvæði og
veiðitíma, ákveða möskvastærð
síldamæta o g setja nánari
reglur um veiðiaðferðir, ákveða
friðunartínaa (í apríl og míaí?)
og loks að veita fjárhagslegan
styrk til útgerðarinnar, ef
þurfa þykir. M. a. er lagt til,
Allur síldarútflutningur frá
Bretlandi á að vera í höndum
nefndarixmar.
Skipulagsnefndinni til að-
stoðar eiga að vera 8 undir-
nefndir í ýmsum landshlutum.
Þessi fyrirhugaða skipulags-
nefnd brezka síldarútvegsins
er hliðstæð afurðasölunefndum
landbúnaðarins (Agricultural
Marketing Boards), sem nú
eru starfandi í Bretlandi, og
eru taldar hafa gerf brezka
landbúftaðinum mikið gagn.
Aðal sláturtíðin er nú í þann
veginn að hefjast.
Fiskafll »0 síldveiðar
Samkv. skýrslu Fiskifélags-
ins var fisksalan orðin fráára-
mótum til 15. sept. 61.120
smál., reiknað í þurrum fiski.
Á sama tíma í fyira var
íiskaflinn orðixm 66.892 smál.
Fiskifélagið hefir einnig gert
yfirlit um síldveiðamar fram
til 15. sept. Hafa verið saltað-
ar í ár 214.686 tn. af síld og
686.726 hl. farið í bræðslu.
I fyrra höfðu verið saltaðar
9. sept., en þá var lokaupp-
gjörið gert, 219,046 tn. og
751,225 hl. farið í bræðslu.
Rússar taka sæti í Þjóða-
bandalagsráðínu
á morgun
London 17/9. FÚ.
Á fundi Þjóðabandalagsráðs-
ins í dag var inntaka Sovét-
Rússlands í Þjóðabandalagið
tekin á dagskrá fyrir næsta
Stalin.
þing. Sætti það engum mót-
mælum. öll sambandsveldin
brezku höfðu undirritað tilboð
til Sovét-Rússlands nema frí-
jjíkið Irland, og öll ríkin á
meginlandi Evrópu, nema
Belgía, Hollland, Portúgal,
Luxemburg og Sviss. Er nú
búist við, að fulltrúi Sovét-
Rússlands taki sæti sitt í
Þjóðabandalagsráðinu á mið-
vikudaginn kemur.
Rússneska blaðið Isvestia
ræðir í dag um tilboðið til
handa Rússlandi um að ganga
í Þjóðabandalagið, og telur
það sönnur þess, hve afstaða
auðvaldslandaima hafi breyzt
gagnvart Rússólandi, og viðux--
keningar- og friðarviðleitm
þess. Þakkar blaðið Frakklandi
fyrir að hafa átt upptök þessa
máls, og bætir síðan við:
„Sovétríkið þekkir alla veik-
leika Þjóðabandalagsins, og
að undanfarin ár hefir það
ekki verið fært um að gera al-
varlegar ráðstafanir til trygg-
ingar friðinum. Sovétríkið sér,
að það eru þjóðir í bandalag-
inu, sem óska að rjúfa friðinn,
og telur það því skyldu sína,
að þiggja þetta tilboð um inn-
göngu í Þjóðabandalagið, til
þess að stuðla að sigri friðar-
stefnunnar". Það ræðir í grein-
inni um viðskilnað Japana og
Þjóðverja við Þjóðabandalag-
ið, og segir í því sambandi, að
það hafi reynst þröskuldur,
sem ófriðarviljiim hefir dottið
um til þessa. Hinum lausu
sætum Þjóðabandalagsráðsins
var úthlutað í dag, samkvæmt
kosningu. Spánn og Tyrkland
hlutu fulltrúa, en umsókn
Kína um að mega endurskipa
fulltrúa sinn, var hafnað.
Kennaradeilan
Nýju kennararnir
verða settir i d&g
Kennslumálaráðh. sagði blað-
inu í gær, að í dag yrði af-
greidd frá ráðuneytinu setning
nýrra kennara við Reykjavík-
urbarnaskólana í vetur.
Eins og lesendum þessa
blaðs er kuimugt, hefir það
vakið samhuga andúð kenn-
arastéttarinnar, að skólanefnd
mælti með nokkrum mönnum,
sem ekki hafa kennararétt-
indi.
Blaðið hefir frétt, að bæði
fræðslumálastjóri og kennzlu-
málaráðherra hafi tekið kröf-
ur kénnarastéttarinnar til
greina, enda væri annað ótrú-
legt.
Jafnframt hefir blaðið frétt,
eftir áreiðanlegum heimildum,
að þessir kennarar verði sett-
ir:
Valgerður Briem,
Brynjólfur Þorláksson,
Anna Konráðsdóttir,
Skúli Þorsteinsson,
Stefán Jónsson,
Eiríkur Magnússon,
Marteinn Magnússon,
Guðrún Jóhannsdóttir.
Walpole
sekknr
Skipverjar bjargast
Togarinn Walpole frá Hafn-
arfirði strandaði aðfaranótt
sunnudagsins undan Gerpi,
sem er norðan Reyðarfjarðar.
Skipið hafði verið þar á
veiðum, en var að hætta þeim
og ætlaði til Eskifjarðar, til
þess að taka þar bátafisk til
útflutnings.
Dimmviðri var og vissu
skipverjar ekki fyr en skipið
tók niðri. Var árekstur það
mikill, að stórt gat kom á
skipið og varð ekki við neitt
ráðið.
Skipið losnaði af skerinu
skammri stundu síðar og gátu
skipverjar með naumindum
komist í bátana, áður en það
sökk, en aðdýpi var þama
mjög mikið. Liðu einar 20
mín. frá því skipið strandaði
og þangað til það var sokkið.
Skipverjar náðu landi við
Karlsskála um birtingu um
morguninn, en þaðan voru þeir
fluttir á vélbáti til Eskifjarð-
, ar og koma þeir suður með
fyrstu ferð.
Skipstjóri á Walpole var Ár-
sæll Jóhannsson, frá Eyrar-
bakka.
Walpole var 20 ára gamall,
byggður í Englandi. Hann var
keyptur hingað 1920 og var nú
eign H.f. Akurgerði í Hafn-
arfirði.
,Gustav Holm‘
i Reykjvik
Viötal við Dr.
L&nge Koch
Á sunnudagskvöldið kom
Grænlandsleiðangursskipið
Gustav Holm hingað til Rvík-
ur. Hefir það verið við Græn-
land í sumar, rneðan rannsókn-
ir hafa verið gerðar þar á
jarðlögum og jöklum. Hinn
þekkti Grænlandsfari dr.
Lauge Koch var foringi far-
arinnar og voru með honum
margir sænskir og danskir
vísindamenn, þar á meðal
Backlund prófessor í jarðfræði
við háskólann í Uppsölum.
Tíðindamaður blaðsins náði í
gær tali af dr. Lauge Koch,
sem skýrði blaðinu frá eftir-
i'arandi:
— Við fórum til Grænlands
Framh. á 4. gíðu
Eiski flugleiðang-
urinn snúinn aftur
London 16/9. Ft.
Nú er hætt við Grænlands-
flug það, sem tveir flugbátar
úr enska flughernum lögðu
upp í, á fimmtudag. Bátarnir
komust til Færeyja og snúa
við þar. Er horfið frá fluginu
vegna ísa við Grænland.
Hosningarnar
i Astralíu
London 17/9. FÚ.
I áströlsku kosningunum,
sem fram fóru á laugardag,
töpuðu stjómarflokkamir
þremur sætum' hvor, og óháðu
flokkarnir báðum þeim, er þeir
höfðu. Verkamannaflokkurinn
vann 4 þessara sæta, og annar
flokkur, sem stendur nærri
verkamönnum, þrjú. En í
hinu nýkjöma þingi verður
einu þingsæti færra, en í hinu
fyrra.
Heimsmet í fþróttum
London 17/9. FÚ.
1 fimleika- og aflrauna-
keppni, sem fram fer í Tokio
milli japanskra og amerískra í-
þróttamanna, hafa nokkur ný
heimsmet verið sett. Japansk-
ur sundmaður setti í dag
heimsmet í 100 og 200 m.
bringusundi. Svam hann 100
m. á 1 mín. 13,8 sek., og 200
m. á 2 mín. 44 sek. Japani,
Oshirna að nafni, setti nýtt
heimsmet í þrístökki, stökk
51 fet enskt og 11 þml., sem
er fjórum þuml. meira en
fyrra met, sem einnig var sett
af Japana.