Nýja dagblaðið - 18.09.1934, Síða 2
I
N t J A
DAQBLABIB
Til Akureyrar og víðar.
Alla mánudaga, þriðjudaga, li q |
fimtudaga og laugardaga ö ¥■ llau«
IRúmbeztu og traustustu lang-
ferðabifreiðar landsins, stjórnað
af landsfrægum bifreiðastjórum
Afgreiðsluna í Reykjavík annast
Bifreid&stöd Islands, sími .1540
L ** ^ M
Simi 9
ATH. Áframhaldandi fastar ferðír frá Akureyri um
Vaglaskóg, Goðafoss til Mývatnssveitar, Húsavíkur
og Kópaskers.
Ferdahúsið
Kjötverð
Fyrst um sinn frá og með þriðjudeginum 18. sep.t. er á-
kveðið að heildsöluverð til verzlana á nýju kjöti af dilkum,
sauðum, veturgömlu fé og algeldum ám, skuli vera:
Á fyrsta verðlagssvæði.... kr. 1,20 pr. kg.
nema í Hafnarfirði, Reykjavík og Vestmanna-
eyjum................... þar — 1,25 — —
Á öðru verðlagssvæði .. ... — 1,15 — —
Á þriðja verðlagssvæði..... — 1,15 — —
Á fjórða verðlagssvæði..... — 1,15 — —
nema á Akureyri og Siglufirði . . . þar — 1,20 — —
Á fimmta verðlagssvæði.... — 1,15 — —
nema á Seyðisfirði og Norðfirði . . . þar — 1,20 — —
Hámárksálagning f smásölu má* hvergi vera meiri en
20% að meðaltali á hvern kropp.
Reykjavík 17. sept. 1934.
Kjoíverðlagsnefndin
Kalk,
leskfað og ólesktað,
fæst i
Trésmiðinnni FJ0LNIR
Kirkjustræti 10 — Sími 2336
Til Borgrarijardar
og Borg-arness
eru fastar bílferðir alla miðvikudaga
og laugardaga kl. 10 f. h.
Afgr. á Nýju Bitre dastöðnni,
sími 1216.
Finnbogi Guðlaugsson
Vantar yður vetrarföt?
Beztu ísienzku fataefnin
Aðeins fyrsta fl. vinna
GEFJUN, Lgv. 10, slmi 2S38
1 sumar hefir verið unnið að
byggingu á barnaskólahúsi á
Reykjanesi við Isafjarðardjúp.
Skólahús þetta er hið mynd-
arlegasta, enda standa að
Þetta hús á myndinni (að ofan) er hægt að taka sund-
ur á fáeinum mínútum og ieggja svo saman, að ekki fari
meir fyrir því en á neðri myndinni sést. Þar er það haft
aftan í reiðhjóli. Það er létt, en þétt og vatnshelt og rúm
ar nokkra menn. Ágætt í sumarferðalögum.
Starts- o g skólakeimlli
i sveitnm
Viðtal við Adalstein Eiríksson kennara
VEGGMYNDIR,
Rammar og innramm-1
anir, bezt á
Freyjugötu 11. j
Sími 2105.
Arnold Fttldesy
er eimi af þeim örfáu celló-
leikurum, sem nú eru uppi, sem
kunnir eru um allan hinn tón-
menntaða heim. Hann ‘hefir
leikið í öllum stórborgumj álf-
unnar og víðar, og stórblöð
heimsborganna, Times, Carriera
della Sera, Hamburger Frem-
denblatt o. s. frv. eiga ekki
nógu sterk orð til þess að lýsa
snilli hans. „Földesy er mesti
cellóleikari, sem nú er uppi“,
segir eitt blaðið. „Földesy
verður aðeins jafnað til Ca-
sals“, segir annað, og öll eru
þau sammála um, að leikni
hans á eellóið, þetta erfiða
hljóðfæri, gangi næst töfriun.
Földesy er nú komfnn hing-
að til Reykjavíkur, og ætlar að
leika opinberlega í kvöld í
Gamla Bíó. Það er í fyrsta
skipti, sem viðurkenndur
cellósnillingur lætur heyra til
sín hér, og þarf því tæplega að
efa, hvernig viðtökumar verða,
el' að líkindum lætur. Hann
sjálfur lætur ekki mikið yfir
sér, leikni sína virðir hann í
rauninni lítils, en hann hefir
látið þess getið í viðtali, að
hann vonaðist eftir að hitta
hér fyrir áheyrendur, sem
kunna að mieta kjarnann í
hinni sígildu tónlist. Þá telur
hann för sína hingað mjarg-
greidda. X.
Aðalsteinn Eiríksson.
byggingu þess þrír hreppar:
Nauteyrarhreppur, Reykja-
fjarðarhreppur og Snæfjalla-
strandarhreppur. Eru í húsinu
tvær rúmgóðar skólastofur,
sem gera má að einum sal, 1
vinnustofa, stór forsalur, bóka-
og skrifstofuherbergi og íbúð
skólastjóra.
Á Reykjanesi er heima-
vistarhús fyrir 50 manns og
sundlaug, hvorttveggja til-
heyrandi íþróttaskóla, sem
rekinn er þar á sumrin, en nú
verður tekið til afnota fyrir
vetrarskólann. Húsin eru raf-
lýst með olíumótor og upphituð
rneð hverahita.
Verður þarna hið myndar-
legasta skólasetur og er þessi
framkvæmd þeirra, Norður-Is-
firðinganna, hin mérkilegasta.
Aðalsteinn Eiríksson kenn-
ari hefir verið ráðinn skóla-
stjóri við þenna nýja skóla og
er hann á förum vestur.
Auk þess starfs hefir hon-
um verið falið af fræðslumála-
stjóra, að tilhlutun ríkisstjórn-
arinnar, „að gera tillögur um
starfshætti og námsskrá
heimavistarbarnaskóla í sveit-
um“ og á hann að skila þeim
tillögum fyrir 1. okt. 1935.
Það er vel kunnugt öllum,
sem eitthvað þekkja til þess-
ara mála, að umbóta og breyt-
inga á fræðslumálum sveit-
anna, er hin mesta þörf.
Nýja dagblaðið átti nýlega
tal við Aðalstein Eiríksson um
þessi mál.
— Ég hefi fyrir nokkru,
segir Aðalsteinn, ritað um
fræðslumál sveitanna í Skin-
faxa og Menntamál. Þar geri
ég ráð fyrir, að reist séu
starfs- og skólaheimili í sveit-
um og séu þau fyrir 2-—3
hreppa, ef ástæður leyfa. Auk
bóklegs náms séu kendar ýms-
ar verklegar greinar, t. d.
heimilisiðnaður, garðrækt o. fl.
Vor og haust yrðu haldin ýms
námskeið, eftir því sem við
yrði komið og á sumrin gæti
verið þar dvalarstaður fyrir
böm úr sjávarþorpum, ýmist
við vinnu eða nám. Þá ættu
hin ýmsu félög, sem starfa í
skólaumdæminu, að geta haft
þarna fundi sína og aðra
starfsemi.
Þá gerði ég það einnig að
tillögu minni, að í sambandi
við þessa stofnun yrði komið
upp einskonar byggðasafni.
Héraðið yrði rannsakað, jarð-
fræðilýsing samin, safnað grös-
um, steinum og dýrum' og
myndir teknar af einkennileg-
um stöðum. Ýmislegt snert-
andi atvinnuvegi og sögu hér-
aðsins ætti heima í þessu
safni. Ætti þetta að geta orð-
ið hvorttveggja í senn:
fræðslu. og skemmtistarf fyrir
unga fólkið.
— Hvemig undirtektir hafa
þessar tillögur fengið?
— Mér er óhætt að segja,
að þær hafi verið góðar. Skóla-
ráð bamaskólanna hefir haft
þær til athugunar og lýst fylgi
sínu við þær. Ég hefi ferðast
um nokkur hémð, eftir beiðni
einstakra skólanefnda og á-
hugamanna og hvarvetna orð-
ið var við áhuga fyrir bættu
skipulagi fræðslunnar. Tveir
skólar hafa þegar verið reistir
samkvæmt þessum tillögum.
Annar er heimavistarskólinn á
Strönd á Rangárvöllum og hitt
er Reykjanesskóli. Ég hefi
góða von um, að fleiri komi á
eftir.