Nýja dagblaðið - 18.09.1934, Qupperneq 4
W ♦ J A
DAOBLAÐIÐ
ÍDAG
Sólaruppkoma ki. 5.59.
Sólarlag kl. 6.44.
Flóð árdegis kl. 0.15.
Flóð síðdegis kl. 1.05.
Veðurspá: Breytileg átt og hœg-
viðri. pokusúld frameftir degin-
um en birtir tii síðdegis.
Ljósatími hjóla og bifreiða kl.
7.25—5.20.
Sttfn, skrifstofor o. IL
Landsbókasafnið .............. 1-7
Alþýðubókasafniö .. 10-18 og 1-10
pjóðskjalasafnið ............. 1-4
þjóðminjasafnið .............. 1-3
Náttúrugripasafnið ........... 2-3
Landsbankinn ...............'. 10-3
Búnaðarbankinn .... 10-12 og 1-3
Útvegsbankinn ....... 10-12 og 1-4
Útbú Landsb., KlapparsL .... 2-7
Pósthúsið: Bréfapóststofan .. 10-6
Bögglapóststofan .......... 10-5
Skrifstofa útvarpsins 10-12 og 1-6
Landssíminn .................. 8-9
Búnaðarfélagið ...... 10-12 og 1-4
Fiskifélagið (Skrifst.t.) 10-12 og 1-5
Samb. ísl. samvinnufél. 9-12 og 1-6
Skipaútg. ríkisins .... 9-12 og 1-6
F.imskipafélagið ............. 9-6
Stjórnarráðsskrifst. .. 10-12 og 1-4
Söfusamband íslenzkra fisk-
framleiðenda ...... 10-12 og 1-6
Skrifst. bæjarins .... 9-12 og 1-4
Skrifstofa lögreglustj. 10-12 og 1-4
Skrifst. lögmanns .... 10-12 og 1-4
Skrifst. tollstjóra .... 10-12 og 1-4
Trýggingarstofnun ríkisins
10-12 og 1-5
Hafnarskrifstofan .... 9-12 og 1-6
Skipaskoðunar- og skréningarst.
rikisins ............ 10-12 og 1-6
Helxisóknartíiiil sjúkrahúsa:
Landspítalinn ................ 3-4
Landakotsspitalinn ........... 3-5
Laugamesspitali ............ 12^-2
Kieppur ...................... 1-6
Vífilstaðahælið 12%-1% og 3%-4%
Fæðingarh., Biriksg. 37 .. 1-3 og 8-9
Sjúkrahús Hvítabandsins .... 2-4
Sólheimar ................... 3-4%
Elliheimiliö ................. 1-4
Næturvörður í Ingólfsapóteki og
Laugavegsapóteki.
Næturlæknir: Bergsveinn Ólafsson
Suðurg. 4, sími 3677.
Skemmtanir og samkomur:
Arnoid F'öldesy: Hljómleikai- í
Gamla Bíó kl. 7.30.
Samgttngnr og póstferBlz:
Suðurland til Borgamess.
Kuðurlandspóstur kemur.
Goðafoss væntanlegur að riorðan.
Dagakrá útvazpslns:
Kl 10,00 Veðurfregnir. 12,15 Há-
degisútvarp. 15,00 Veðurfregnir.
10,10 Veðurfregnir. Tilkynningar.
19,25 Grammófóntónleikar: Létt
lög. 19,50 Tónleikar. Auglýsingar.
20,00 Klukkusláttur. Celló-sóló
(pórhallur Ámason). 20,30 Fréttir.
21,00 Erindi: Um hljóðfæri og
hljóðfærasamleik, VII (Jón Leifs).
Norskur prestur hefir nýlega
orðið að láta af embætti fyrir
ýmsar yfirsjónir, sem sóknarbörn
hans gáfu honum að sök. Ein
þyngsta ásökunin var sú, að hann
hefði einu sinni við líkfylgd hait
með sér brennivinsflösku og hvað
eftir annað dmkkið úr flöskunni,
að öllum viðstöddum áhorfandi,
og þrátt fyrir það þó hann sæti
i vagninum við hliðina á lík-
kiatunni.
Skipafréttir. Gullfoss fór vestur
og norður i gærkvöldi. Goðafoss
fór frá Siglufirði í gærkvöldi.
Brúarfoss kom til Grimsby í gær-
morgun og fór þaðan i gærkvöldi.
Dettifoss kom til Hull í gær-
morgun Lagarfoss fór frá Kaup-
mannahöfn í gærkvöldi. Selfoss
fór til Antwerpjen í gær.
„Eldborg" hefir verið leigð
Guðm. Jóhannssyni skipstj., til
fiskveiða og flutninga á ísfiski frá
Norður- og Austurlandi, til Eng-
lands. Um helmingur skipshafn-
arinnar eru Borgnesingar. Ráðgert
er að „Eldborgin" gangi frá
Borgarnesi á fiskveiðar á vertíð-
inni í vetur.
Farþegar með Gullfossi vestur
og norður i gær: Jóhanna Knud-
sen, .Tónas -Magnússon og frú,
Sigurður Thoroddsen, Finnbogi R.
þorvaldsson, Jón A. Jónsson, Ól-
afur Pálsson, Gunnar Andrew
o. m. fl.
• ,
Aheit á Strandakirkju kr. 2,
trá N. N.
Hjónaefni. Síðastl. Igugardag
opinberuðu trúlofun sína Sigríður
S. þorbeigsdóttir Háholti og Sig-
fred S. Sigurðsson verzlunarmað-
ur Laugaveg 49.
Stóðu Heimwehrmenn að morði
Dollfnss? Winkler, áður vara-
kanzlari í ráðuneyti Dollfuss og
foringi austurríska bændaflokks-
ins, dvelur nú í Tékko-Slovakiu
og birtist nýlega við hann viðtal
í Praga Montagsblatt, sem vakið
hefir mikla athygli. Segir hann að
bæði Fey og Schuschnigg hafi
staðið í nánu sambandi við aust-
urriska nazista og ýtt undir þá
til uppreisnar. Segir hann, að
nazistar hafi talið Schuschnigg
sér engu síður hliðhollan, en
Rintelen, sendiherra í Rómaborg,
sem átti að taka við völdum, ef
nazistabyltingin heppnaðist
Innflutningur á llfandi skepn-
um. Samkv. verzlunarskýrslum
1932 voru það ár fluttar inn 25
sauðkindur, 30 svfn, 1 hundur, 91
loðdýr og 10 hænsni.
Fyrsti réttardagur var í gær.
Jón Leifs hefir verið ráðinn til
þess að starfa að tónlistarmálum
útvarpsins og takast á hendur
stjórn þeiira mála og gildir
ráðningin frá næstu áramótum ti)
30. sept 1936.
Af sildveiðum eru komnir línu-
bátarnir Ármann, Sigríður og
Rifsnes.
Theódór og Valtýr reikna. Theó-
dór Arnbjarnarson og Valtýr
Stefánsson leggja saman 1 Mbl. á
sunnudaginn var og gefa bænd-
um ráð um fóðurbætisgjöf í
vétur. Bezt að gefa lýsi, segja
þeir, og er nóg að gefa kindinni
5 grömm á dag, „og erm þá 200
fjár um lítrann“. Bendir þessi
útreikningur til að hér sé ekki
um menn að ræða, sem stundað
hafa búfræðinám, því þeir álíta
að lýsi hafi sömu eðlisþyngd og
\ atn. Sannleikurinn er sá, að
lýsislítrinn vegur um 800 grömm
og skakkar því æðimiklu. Er illt
til þess að vita, að menn, sem
kannske einhverjir glepjast til að
trúa, vegna sérnáms þeirra, skuli
gefa slíkar ráðleggingar.
Veðrið í gær. í fyrrinótt
rigndi mikið á Austfjörðum og
mældist úrkoman á Vattamesi
23 mm. Framan af deginum
rigndi einig á norðausturlandi,
en stytti upp þegar leið á dag-
inn. Sunnan og vestanlands var
þokusúld og rigndi sumstaðar
litilsháttai'.
Silkisokkar. Árið 1932 voi*u
fluttir inn silkisokkar fyrir kr.
167.923.
I kvöld 18. sept. kl. 7,30
i Gamla Bio
Arnold
ölde
heimsfrægur celloleikari
sy
Emil Thoroddsen
aðstoðar
Aðg3>ngumiðar kr. 3,00 stúka, 2,50, og 2,00 hjá
Katrínu Viðar og Bókaverzlun Eymundsens og við
innganginn, eftir kl. 7.
DlVANAR, DÝNUR og
alls konar stoppuð hús-
gögn. — Vandað efni.
Vönduð vinna.
Vatnsstíg 3.
Húsgagnaverzlun
Reykjavíkur.
„Lifi foringinn“!
l
London 17/9. FÚ.
Nýjar reglur um form opin-
berra bréfaviðskifta milli Fas-
ista á Ítalíu voru birtar á ít-
alíu í dag. Slík bréf mega nú
ekki lengur enda á orðunum
„yðar einlægur" eða „virð-
ingarfyllst" eins og hingað til
hefir tíðkast, heldur ber að
rita orðin „lengi lifi foring-
inn“, næst á undan undir-
skrift.
Bíll drepur hest. það slys vildi
til aðfaranótt sunnudagsins síð- |
astliðinn, að bíllinn RE 717 ók á
iiest rétt innan- við sandgryfjuni-
ar og beið hann bana af. Hafði
hesturinn verið að fara upp á
veginn, en hurðarhúnn á bílnum
rekist í höíuðið á honum. pegar
lögreglan kom á vettvang nokkru
seinna, var hesturinn enn með
lífsmarki og skaut hún hann, svo
iiann kveidist ekki lengur. Eig-
andi hestsins er Jón Arinbjarnar-
son, Bergstaðastræti 65.
ísfisksalan. Maí seldi í Hull i
gær bátafisk að norðan fyrir 1019
sterlingspund, Haukanes seldi í
Grímsby bátafisk af Vestfjörðum,
1152 vættir fyrir 644 sterl.pd.,
Júpíter seldi bátafisk frá Eyja-
firði, 1960 vættir fyrir 724 sterl-
ingspund, að frádregnum tolli.
Kaupfélag Vestur-Húnvetnlnga
t r nýlega farið að gefa út fjöl-
ritað mál, Félagstíðindi K. V. H.,
og ræðir það ýms hagsmunamál
kaupfélagsins og héraðsbúa og
flytur einnig fróðleik um sam-
vinnumál eftir því sem rúm leyf-
ir. Er áreiðanlegt, að blaðið get-
ur orðið hlutaðeigendum að góð-
um notum og ættu kaupfélögin
ylírleitt að taka upp þennan sið.
Nýtt met í 50 m. sundi. Klara
Klængsdóttir frá Álafossi setti
nýtt met í 50 m. sundi, frjáls að-
ferð, i sundlaugunum á sunnu-
daginn, á innanfélagsmóti Ár-
manns. Synti hún vegalengdina
á 40.8 sek., en gamla metið er 43
sek. Klnra er 14 ára gömul og er
þetta góð byrjun.
Símablaðiö 4. tbl. yfirstandandi
árgangs er nýlega komið út.
Ræðir það ýms félagsmál síma-
manna.
»Gustav Holm«
Framli. af I. síðu.
í júlí og vorum þar í 40 daga.
Vorum við 45 vísindamenn
með aðstoðarmönnum og 20
skipsmenn. Auk þessa höfðum
við 5 íslenzka hesta til þess
að flytja fomminjar ofan af
jöklinum og fjöllunum niður
að sjó, og stóð á þessum flutn-
ingum allt sumarið. Einn ís-
lending höfðum við til þess að
annast um hestana. Loks höfð-
urri við eina flugvél.
Rannsókn fór fram á svæð-
inu frá Scoresbysund og
norður á 74 breiddargráðu eða
hérumbil yfir 5 gráða breitt
land. Einnig rannsökuðum við
langt inn á jökulinn upp í
3000 m. hæð.
Sumarið var slæmt og tafði
veðrið ökkur mikið, það voru
stöðugar þokur, ■ stormár og
ísar. Við mistum líka 2 mót-
orbáta með nokkru dóti, en
ekkert manntjón varð. Ég hefi
stjórnað leiðöngrunum til
Grænlands á hverju sumri síð-
an 1926, að einu sumri undan-
teknu, 1928, og á þessum tíma
farið þangað með 400 manns
samtals og aldrei orðið mann-
tjón, sem betur fer.
— Hvemig varð hinn vís-
indalegi árangur af ferðinni ?
— Vísindalegi árangurinn
varð ágætur, þrátt fyrir óveðr-
ið. Má þar þakka því að vís-
indamennimir höfðu allir ver-
ið þama áður, svo þetta var
áframhald á starfi frá þvi í
fyrra. Við fundum í suxnar á
nesi einu við Franz Jósefs-
fjörðinn, í 600—800 m. hæð,
afmyndun af beinagrind úr
ferfættu dýri, sem hefir veríð
á þróunarstiginu á milli fisks
og spendýrs. Eru þetta þær
stærstu og greinilegustu af-
myndanir, sem1 hafa fundizt.
Þessir fundir sýna, að miklu
heitara hefir verið á Græn-
landi en nú er. Nokkra gamla
eldgýgi fundum við nú einnig
í innlandsísnum, sem ekki var
vitað um áður.
— Hvenær haldið þér svo
heim?
— Eftir nokkra daga, þegar
búið er að taka kol og gera
við skemmdir á skipinu, en
það skemmdist dálítið í óveðr-
inu, sem við fengum fyrir
norðan landið.
£ Odýrn §
aug^lýBÍn^aruar.
Kaup
Og
sala
Agætis lundafiður til sölu.
Ódýrt. Farsgerðin Laugaveg
58. Sími 3464.
Hið nýendurbætta, ágæta
Flóra-smjörlíki kostar aðeins
kr. 1,30 kg. og fæst 1 Kaup-
félagi Reykjavíkur, sími 1245.
Hús og aðrar fasteignir til
sölu. Hús tekin í umboðssölu.
Skrifstofan í Austurstræti 14,
þriðju hæð, opin kl. 11—12 og
5—7. Sími 4180 og 8618
(heima). Helgi Sveinflson.
BRÉFSEFNI
og margskonar ritföng.
Kaupfélag Reykjavíkur.
Nýr hvalur fæst í Tryggva-
götu, bak við verzlun Geirs
Zoéga 30 aura kg.
Tilkjnnmgar
Get tekið nokkra m,enn í
þjónustu. Upplýsingar á Lind-
argötu 14, efstu hæð.
Til Stykkishólms
hvern mánudag og fimmtu-
dag.
Aðalstöðin. — Sími 1888.
Bifbastab
ilar Hverflsg. 6
estir Slmi 1508
Bragi Steingrímsson, dýra-
læknir. Eiríksgata 29 Simi 3970
Kenniila
Kennari með sérmenntun í
smábamakennslu, rekur smá-
bamaskóla í vesturbænum. —
Upplýsingar á Bergstaðastræti
40, sími 3923.
Atyinna
Unglingsstúlka óskar eftir
atvinnu hálfan daginn, ekki
vist. Tilboð merkt „Atvinna“,
sendist á afgr. Nýja dagblaðs-
ins fyrir fimmtudag.
Vanur og reglusamur veit-
ingaþjónn óskar eftir atvinnu
við veitingastörf gegn fæði og
einhverju mánaðarkaupi. Til-
boð leggist inn á afgr. þessa
blaðs fyrir 21. þ. m., merkt
„Veitingaþjónn“.
Stúlka óskast á veitingahús
yfir haustið í nágrannakaup-
túni. A. v. á.
Stúlka, helzt dálítið vön mat-
reiðslu, óskast hálfan eða all-
an daginn. Létt vinna. A. v. á.
Húsnœði
Húsnæði fyrir iðnaðarfyrir-
tæki óskast 1. nóvember. Til-
boð sendist á afgreiðslu Nýja
dagblaðsins merkt „Iðnaður“.
Kennaraskólapiltur óskar
eftir öðrum með sér í her-
bergi. Uppl. í símá 2497.
Bílskúr til leigu á Berg-
staðastræti 82. Guðm. Kr.
Guðmundsson. Sími 1896.