Nýja dagblaðið - 01.09.1935, Page 2

Nýja dagblaðið - 01.09.1935, Page 2
2 NfJA DAGBLAÐIÐ Gaénfræðaskólinn í Reykjavík starfar eins og að undanförnu frá 1. október til 1. maí. Námsgreinar í aðalskólanum eru þessar: Islenzka, danska, enska, þýzka, saga og fólagsfræði, landafræði, náttúrufræði, eðlisfræði, heilsufræði, stærðfræði, bók- færsla, vélrítun, teiknun, handavinna og leikfimi. Nemendum 3. bekkjar verður gefinn kostur á sér- kennslu í þeim námsgreinum, sem þarf til upptöku í 4. bekk Menntaskólans- Inntökuskilyrði í 1, bekk eru: Fullnaðarpróf barna- fræðslunnar og 14 ára aldur. Nýir nemendur, sem óska að setjast í 2. eða 3. bekk; verða prófaðir 2. og 3. okt. EKKERT SKÓLAGJALD í aðalskólanum. Við kvöld- skólann verður 25 kr. kennslugjald. sem greiðist fyrir- fram. Námsgreinar: Islenzka, danska, enska og reikningur Umsóknir séu komnar til mín fyrir 15. sept., og gef óg allar nánari upplýsingar. — Heima kl. 7—9 síðdegis. Iug-imar Jónsson Vitastíg 8 A. Sími 3763. Afengisverzlun ríkisíns hefir einkarótt á því að framleiða bökun- ardropa, hárvötn, ilmvötn og andlitsvötn. Verzlanir, rakarar og hárgreiðslukonur snúa sér því beint til Áfengisverzlunarinnar, þegar þessar vörur vantar. Sendum gegn póstkröfu á viðkomuhafnir str andf er ð askip anna. Góðar vörur. Sanngjarnt verð. Aíengisverzlun ríkisins. A tveim dögum: Alla þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga A einum degi: (hraðferðir) um Borgarnes á þriðjudögum og fðstudögum. Frá Akureyri áframhaldandi ferðir til Austfjarða. Afgreiðsla í Reykjavík Bifreiðastöð íslands. Sími 1540. Bifreiðastðð Akureyrar. Revkjavik = S,llur terðir alia mánudaga og fimmtuda^a kl. 8 árd. Til baka þriðjudaga og iöstadaga. Biireiðastöð Islands, simi 1540. Guðbrandur Jörundsson. Verð viðtffikja er Isgra hér á landí en í öðrum Iöndum. Útvarpsnotendum hefir, síðan Útvarps- stöð íslands tók til starfa, fjölgað mun örar hér á landi, en í nokkru öðru landi álfunnar. Einkum hefir fjölgunin verið ör nú að undanförnu. ísland hefir nú þegar náð mjög hárri hlut- fallstölu útvarpsnotenda og mun eftir því sem nú horfir, bráðlega ná hæstu tölu útvarpsnotenda, miðað við fólks- fjölda. Takmankíð er: Yiðfæki inn á hverf heimili Viðtækjaverzlunin veitir kaupendum viðtækja meiri tryggingu um hagkvæm viðskipti en nokkur önnur verzlun mundi gera, þegar bilanir koma fram i tækjum eða óhöpp ber að höndum. Ágóða Viðtœkjaverzlunarinnar er lög- um samkvæmt eingöngu varið til rekst- urs útvarþsins, almennrar útbreiðslu þess og til hagsbóta útvarpsnotendum. Viðíækjavepzlun píkisins Lækjapgöfu 10 B Sími 3823 Ferð u Á hinum almenna kirkju- fundi s.l. vor, var annað aðal- mál fundarins „Samtök og sam- vinna að kristindómsmálum". Almenn sókn fulltrúa á fund- inn ber það með sér, að þjóðin er að vakna til méðvitundar um nauðsyn samtaka um| þessi mál, sem hingað til hafa, verið allt of lítil. Vilji fulltrúanna kom þá og skýrt í ljós, því framkvæmdanefnd þessara funda var falið að gera allt sem unnt væri, til þess að senda mann eða menn, í sem alJra flest prófastsdæmi lands- insi, til þess að örfa fólk og hvetja til almennra samtaka um málefni kirkjunnar. Allir þeir, sem telja þjóð vorri and- lega og efnalega betur borgið, með því að viðhalda kirkju og kristni, verða að vera þátttak- endur hér í, án tillits til allra st j órnmálaskoðana. Eftir beiðni prófastsins í Dalaprófastsdæmi, lofuðum við prófessor Ásmundur Guð- mundsson að ferðast um hér- aðið í sumar. Fórum við í þessa ferð hinn 20. júli. Kom- um við þann dag til Borgarness og héldum þaðan rakleitt í bíl að Kvennabrekku í Dölum, og gistum þar um nóttina hjá sóknarprestinum, sr. ólafi Ól- afssyni. Á sunnudaginn var indælt veður og bezti þerrir. Bjugg- umst við því ekki við mörgu fólki til kirkju, þess heldur sem þetta, var fyrsti þerridag-’ urinn eftir langvarandi óþerrir. Messan átti að byrja kl. 1, og kom til kirkjunnar um 100 manns. Taldi fólk a.ð miklu fleira hefði komið, ef ekki hefði svona staðið á. Próf. Ás- mundur prédikaði, en ég flutti erindi á eftir, en viðkomandi m Dali sóknarprestur var fyrir altari. Fór þetta þannig fram í öllum kirkjunum. En að aflokinni messugerð, áttum við svo tal við safnaðarfulltrúa, sóknar- nefndir og Hallgrímsnefndir,' og fleira áhugafólk, ungt og* gamalt, um málefni kirkjunn- ar. Á Kvennabrekku er prýði- leg steinkirkja, sem söfnuður- inn reisti fyrir nokkrum árum. Kl. 5 sama dag vorum við svo í Hjarðarholtskirkju, var 'þar við messu 130—140 manns. Hjarðarholtskirkja er prýðilegt hús og framúrskarandi vel við haldið utan og innan. Er hún úr timbri, byggð í tíð sr. Ól- afs prófasts Ólafssonar, skönfmu eftir aldamót. Þótti hún þá bera af sveitakirkjum, og gerir það enn. Stendur hún á ágætum stað. Vantar að- eins ofn í hana. Er mikill á- hugi fyrir að bæta úr því. Gistum við hjá Hirti Jens- syni og konu hans, Sigurlínu Benediktsdóttur og börnum þeirra, sem eiginlega búa í Hjarðarholti, og fór þar prýð- isvel um okkur. Á mánudaginn skiluðu svo Suður- og Miðdalamenn okkur í bíl inn að Ásgarði til Bjarna hreppstjóra Jenssonar og konu hans, Guðrúnar Jóhannsdóttur, .og vorum við þar um nóttina í góðu yfirlæti. Á leiðinni kom- um við snöggvast að Búðardal, til frú Ingibjargar Sigurðar- dóttur, og að Ljárskógum til Jóns bónda Guðmundssonar, en á báðum stöðum var okkur vel tekið. Á þriðjudaginn lét Bjami í Ásgarði reiða okkur að Hvammi, og var messað þar þann dag kl. 2. Fylgdi frúin okkur til kirkjunnar og Jens Bjarnason. Vorum við nú komnir í prestakall sr. Ásgeirs Ásgeirssonar prófasts. Tók hann við okkur tveim höndum og lét okkur í té afbragðs- hesta til ferðarinnar. Skildi hann svo ekki við okkur fyr en suður á Kvennabrekku næsta mánudag 29. júlí. í Hvammi töluðum við við nefndirnar eins og áður. Kirkjan er þa,r dágóð, en vantar ofn. Væri á- nægjulegt, ef Kvenfélagið og Ungmennafélagið í sveitinni treysti sér í sameiningu til að koma því í framkvæmd. Þarna valdi Unnur djúpúðga sér bæj- arstæði mót sól og sumri. Hef- ir dalur þessi allur verið viði vaxinn þá. En eins og annars- staðar, hefir hann þar eyðst, líklega mest af mannavöldum. Er skógurinn nú aftur að reyna að fikra sig upp hlíðina út frá bænum, sem orðin vav blásin og ber. Gerði sr. Kjart- an Helgason, sem var prestur í Hvammi um 14 ár, mikið til að friða hlíðina. Og nýtur skóg- urinn þess enn í dag. Það munu vera um 36 ár síðan sr. Kjartan gróðursetti reynivið- arhríslu heima við húsið. Er hún nú jafn há húsinu. En leið illa í sumar, vegna þess, að maðkur hal’ði heimsótt hana. Guðjón bóndi Ásgeirs- son á Kýrunnarstöðum bauð okkur heim til sín, en það boð gátum við því miður ekki þeg- ið. Hann býr myndarbúi, hefir bætt jörð sína míkið og húsað ákaflega vel. Á þriðjudaginn héldum við svo að Staðarfelli á Fells- strönd. Beggja m'egin við Stað- arfell er farið um skógi vaxn- ar hlíðar, er vita, móti sól. Heima á Staðarfelli er lítið undirlendi og virðist vera nokkuð þröngt um mann. En þaðan sést vel um Hvamms- fjörð og Suðurdali og út um Breiðafjörð til Stykkishólms. Fr&mh. á 3. si8u

x

Nýja dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýja dagblaðið
https://timarit.is/publication/300

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.