Nýja dagblaðið - 01.09.1935, Blaðsíða 2
2
NfJA DAGBLAÐIÐ
Gaénfræðaskólinn
í Reykjavík
starfar eins og að undanförnu frá 1. október til 1. maí.
Námsgreinar í aðalskólanum eru þessar: Islenzka,
danska, enska, þýzka, saga og fólagsfræði, landafræði,
náttúrufræði, eðlisfræði, heilsufræði, stærðfræði, bók-
færsla, vélrítun, teiknun, handavinna og leikfimi.
Nemendum 3. bekkjar verður gefinn kostur á sér-
kennslu í þeim námsgreinum, sem þarf til upptöku í 4.
bekk Menntaskólans-
Inntökuskilyrði í 1, bekk eru: Fullnaðarpróf barna-
fræðslunnar og 14 ára aldur. Nýir nemendur, sem óska
að setjast í 2. eða 3. bekk; verða prófaðir 2. og 3. okt.
EKKERT SKÓLAGJALD í aðalskólanum. Við kvöld-
skólann verður 25 kr. kennslugjald. sem greiðist fyrir-
fram. Námsgreinar: Islenzka, danska, enska og reikningur
Umsóknir séu komnar til mín fyrir 15. sept., og gef
óg allar nánari upplýsingar. — Heima kl. 7—9 síðdegis.
Iug-imar Jónsson
Vitastíg 8 A. Sími 3763.
Afengisverzlun
ríkisíns
hefir einkarótt á því að framleiða bökun-
ardropa, hárvötn, ilmvötn og andlitsvötn.
Verzlanir, rakarar og hárgreiðslukonur snúa
sér því beint til Áfengisverzlunarinnar,
þegar þessar vörur vantar.
Sendum gegn póstkröfu á viðkomuhafnir
str andf er ð askip anna.
Góðar vörur. Sanngjarnt verð.
Aíengisverzlun ríkisins.
A tveim dögum:
Alla þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga
A einum degi:
(hraðferðir) um Borgarnes á þriðjudögum og fðstudögum.
Frá Akureyri áframhaldandi ferðir til Austfjarða.
Afgreiðsla í Reykjavík Bifreiðastöð íslands. Sími 1540.
Bifreiðastðð Akureyrar.
Revkjavik = S,llur
terðir alia mánudaga og fimmtuda^a kl. 8 árd.
Til baka þriðjudaga og iöstadaga.
Biireiðastöð Islands, simi 1540.
Guðbrandur Jörundsson.
Verð viðtffikja er Isgra hér á
landí en í öðrum Iöndum.
Útvarpsnotendum hefir, síðan Útvarps-
stöð íslands tók til starfa, fjölgað mun
örar hér á landi, en í nokkru öðru
landi álfunnar. Einkum hefir fjölgunin
verið ör nú að undanförnu. ísland
hefir nú þegar náð mjög hárri hlut-
fallstölu útvarpsnotenda og mun eftir
því sem nú horfir, bráðlega ná hæstu
tölu útvarpsnotenda, miðað við fólks-
fjölda.
Takmankíð er: Yiðfæki
inn á hverf heimili
Viðtækjaverzlunin veitir kaupendum
viðtækja meiri tryggingu um hagkvæm
viðskipti en nokkur önnur verzlun
mundi gera, þegar bilanir koma fram
i tækjum eða óhöpp ber að höndum.
Ágóða Viðtœkjaverzlunarinnar er lög-
um samkvæmt eingöngu varið til rekst-
urs útvarþsins, almennrar útbreiðslu
þess og til hagsbóta útvarpsnotendum.
Viðíækjavepzlun píkisins
Lækjapgöfu 10 B Sími 3823
Ferð u
Á hinum almenna kirkju-
fundi s.l. vor, var annað aðal-
mál fundarins „Samtök og sam-
vinna að kristindómsmálum".
Almenn sókn fulltrúa á fund-
inn ber það með sér, að þjóðin
er að vakna til méðvitundar
um nauðsyn samtaka um| þessi
mál, sem hingað til hafa, verið
allt of lítil. Vilji fulltrúanna
kom þá og skýrt í ljós, því
framkvæmdanefnd þessara
funda var falið að gera allt
sem unnt væri, til þess að
senda mann eða menn, í sem
alJra flest prófastsdæmi lands-
insi, til þess að örfa fólk og
hvetja til almennra samtaka
um málefni kirkjunnar. Allir
þeir, sem telja þjóð vorri and-
lega og efnalega betur borgið,
með því að viðhalda kirkju og
kristni, verða að vera þátttak-
endur hér í, án tillits til allra
st j órnmálaskoðana.
Eftir beiðni prófastsins í
Dalaprófastsdæmi, lofuðum við
prófessor Ásmundur Guð-
mundsson að ferðast um hér-
aðið í sumar. Fórum við í
þessa ferð hinn 20. júli. Kom-
um við þann dag til Borgarness
og héldum þaðan rakleitt í bíl
að Kvennabrekku í Dölum, og
gistum þar um nóttina hjá
sóknarprestinum, sr. ólafi Ól-
afssyni.
Á sunnudaginn var indælt
veður og bezti þerrir. Bjugg-
umst við því ekki við mörgu
fólki til kirkju, þess heldur
sem þetta, var fyrsti þerridag-’
urinn eftir langvarandi óþerrir.
Messan átti að byrja kl. 1,
og kom til kirkjunnar um 100
manns. Taldi fólk a.ð miklu
fleira hefði komið, ef ekki
hefði svona staðið á. Próf. Ás-
mundur prédikaði, en ég flutti
erindi á eftir, en viðkomandi
m Dali
sóknarprestur var fyrir altari.
Fór þetta þannig fram í öllum
kirkjunum. En að aflokinni
messugerð, áttum við svo tal
við safnaðarfulltrúa, sóknar-
nefndir og Hallgrímsnefndir,'
og fleira áhugafólk, ungt og*
gamalt, um málefni kirkjunn-
ar. Á Kvennabrekku er prýði-
leg steinkirkja, sem söfnuður-
inn reisti fyrir nokkrum árum.
Kl. 5 sama dag vorum við
svo í Hjarðarholtskirkju, var
'þar við messu 130—140 manns.
Hjarðarholtskirkja er prýðilegt
hús og framúrskarandi vel við
haldið utan og innan. Er hún
úr timbri, byggð í tíð sr. Ól-
afs prófasts Ólafssonar,
skönfmu eftir aldamót. Þótti
hún þá bera af sveitakirkjum,
og gerir það enn. Stendur
hún á ágætum stað. Vantar að-
eins ofn í hana. Er mikill á-
hugi fyrir að bæta úr því.
Gistum við hjá Hirti Jens-
syni og konu hans, Sigurlínu
Benediktsdóttur og börnum
þeirra, sem eiginlega búa í
Hjarðarholti, og fór þar prýð-
isvel um okkur.
Á mánudaginn skiluðu svo
Suður- og Miðdalamenn okkur
í bíl inn að Ásgarði til Bjarna
hreppstjóra Jenssonar og konu
hans, Guðrúnar Jóhannsdóttur,
.og vorum við þar um nóttina
í góðu yfirlæti. Á leiðinni kom-
um við snöggvast að Búðardal,
til frú Ingibjargar Sigurðar-
dóttur, og að Ljárskógum til
Jóns bónda Guðmundssonar,
en á báðum stöðum var okkur
vel tekið.
Á þriðjudaginn lét Bjami í
Ásgarði reiða okkur að
Hvammi, og var messað þar
þann dag kl. 2. Fylgdi frúin
okkur til kirkjunnar og Jens
Bjarnason. Vorum við nú
komnir í prestakall sr. Ásgeirs
Ásgeirssonar prófasts. Tók
hann við okkur tveim höndum
og lét okkur í té afbragðs-
hesta til ferðarinnar. Skildi
hann svo ekki við okkur fyr en
suður á Kvennabrekku næsta
mánudag 29. júlí. í Hvammi
töluðum við við nefndirnar
eins og áður. Kirkjan er þa,r
dágóð, en vantar ofn. Væri á-
nægjulegt, ef Kvenfélagið og
Ungmennafélagið í sveitinni
treysti sér í sameiningu til að
koma því í framkvæmd. Þarna
valdi Unnur djúpúðga sér bæj-
arstæði mót sól og sumri. Hef-
ir dalur þessi allur verið viði
vaxinn þá. En eins og annars-
staðar, hefir hann þar eyðst,
líklega mest af mannavöldum.
Er skógurinn nú aftur að
reyna að fikra sig upp hlíðina
út frá bænum, sem orðin vav
blásin og ber. Gerði sr. Kjart-
an Helgason, sem var prestur í
Hvammi um 14 ár, mikið til að
friða hlíðina. Og nýtur skóg-
urinn þess enn í dag. Það
munu vera um 36 ár síðan sr.
Kjartan gróðursetti reynivið-
arhríslu heima við húsið. Er
hún nú jafn há húsinu. En
leið illa í sumar, vegna þess,
að maðkur hal’ði heimsótt
hana. Guðjón bóndi Ásgeirs-
son á Kýrunnarstöðum bauð
okkur heim til sín, en það boð
gátum við því miður ekki þeg-
ið. Hann býr myndarbúi, hefir
bætt jörð sína míkið og húsað
ákaflega vel.
Á þriðjudaginn héldum við
svo að Staðarfelli á Fells-
strönd. Beggja m'egin við Stað-
arfell er farið um skógi vaxn-
ar hlíðar, er vita, móti sól.
Heima á Staðarfelli er lítið
undirlendi og virðist vera
nokkuð þröngt um mann. En
þaðan sést vel um Hvamms-
fjörð og Suðurdali og út um
Breiðafjörð til Stykkishólms.
Fr&mh. á 3. si8u