Nýja dagblaðið - 31.12.1935, Side 4
4
N Ý J A
dagblaðYð
Þrir menn — Þrjár framkvæmdír
Biistjóraverkfallinu
lokið
Hræðilegasti
eldsvoði
Það er ebki ætlunin hér að
fara að leggja dóm á það fólk,
sem nú er fulltíða og alið er
upp eftir stríð.
En þess mun þó mega geta
til, að unga fólkið sé ekki jafn-
bjartsýnt, ekki jafnánægt með
lifið, eins og jafnaldrar þess
voru fyrir ófriðinn. Þetta á
sjálfsagt margar rætur. En ein
er sú, að æskunni hefir ekki
verið sköpuð liæfileg aðstaða
til þess að alia meö sér táp og
hreysti. Sjörinn er kaldur, leik-
vellir engir, skíðafæri sjald-
gæft eða þá langt undan, í-
þróttasvæði ófullkomin, og í-
þróttahús allt til þessa of fá og
fátækleg.
Gatan, kvikmyndahúsin og
gildaskálar liafa orðið aðalúr-
ræði þegar verja skyldi tóm-
stundum, þegar frá eru taldar
sundlaugarnar hérna fyrir inn-
an bæinn, sem alltaí hafa ver-
ið afræktar um fjárframlög
svo samboðnar væru lágmarks-
kröfum urn hollustu-hætti.
Það mun vekja eftirtekt
hugsandi manna, þegar á það
eí bent, að al-hugkvæmasti
stjórnmálamaðurinn sem á al-
þingi hefir átt setu á þessari
öld, svo ekki sé lengra tiljafn-
að, velur sér að upphafsmáli
að flytja frumvarp um að reist
verði sundhöll í Reykjavík.
Var þetta tilviljun?
Jónas Jónsson hefir haft
stórfelldari áhrif á uppeldis-
löggjöf þjóðarinnar meðal ann-
ars en noklcur annar maður.
Hann skilur hversu mikið
veltur á uppeldi og menningu,
og þá ekki aðeins á skólum,
heldur einnig og engu siður á
sjálfsuppeldi fóllcsins.
Þess vegna var frumvarpið
um Sundhöllina fvrsta í'rurn-
varpið sem hann flutti.
Þekking sem veitt er af kenn-
urum í skólum er mikils virði.
En sjálfsþjálfun í leilc, i iþrótt,
leiðir íiJ hreysti og bjartsýni
sem elcki er siður nauðsynleg
hverri kynslóð og hverri þjóð.
Það er veí-ið að ieggja sið-
ustu hönd á sundhöllina að
kalla. Hún mun verða tekin í
notkun á næsta afmælisdegi
Jóns Sigurðssonar.
Litla, hreina, volga laugin i
Nýja harnaskólanum liefir ver-
ið einskonar meðflutningsmað-
ur þessa merka máls, sem
mætt hefir svo óslciljanlega
mikíu skilningsleysi þeirra
manna, sem höfuðstaðurinn
hefir bezl treyst til þess að
vera forsjón i sameiginlegu
málunum.
Þá er ekki lítið virðingar-
verð hin þrautseiga barátta
Norðmannsins L. H. Miiller
fyrir því, að kenna íslending-
um að meta skíðin og skíða-
íþróttina,
Fyrir mörgum árum fór
hann sögulega ferð þvert yfir
landið um hávetur á skíðum,
einvörðungu i þvi skyni að
vekja alhygli okkar á skíða-
íþróttinni. Og nú liéfir lionum
unnizt það á, að risinn er upp
fyrsti skíðaskálinn, og það
hvortlveggja í senn á heitum
og köldum stað, Og þó eins
nærri höfuðstaðnum og tiltækl
var.
| Loks liefir þriðji maðurinn,
Jón Þorsteinsson, unnið það
þrekvirki að koma upp full-
konmasta íþróttahúsi sem reist
L. H. Miiller.
hefir verið hér á landi, og um
útbúnað ýmsan stendur jafn-
fætis því, sem bezt þeklcist er-
lendis. Mun þessi framkvæmd
Jóns Þorsteinssonar marka
tímamót í íþróttalífi bæjarins,
en þörfina sýnir bezt hin mikla
notkun þess, þrátt fyrir það, að
húsið var ekki fullbúið fyrr en
komið var fram á vetur. Og
enn sannar það áhrif þessarar
nýju aðstöðu, að atvinnufyrir-
tæki i bænum, eru tekin að
leggja fram gjald fyrir tvær
leikfimisstundir og böð handa
starfsmönnum sínum í viku
liverri þeim til heilsuverndar.
Er þetta nýmæli, sem verða
mætti til fyrirmyndar.
Líkamlegu uppeldi og heilsu-
vernd höfuðstaðarins bætist
mildll liðsauki með Skiðaskál-
anum, íþróttahússinu og Sund-
höllinni.
Og sú mun kynngi þessara
þriggja samstæðu fram-
kvæmda að eklci Iíði á löngu,
þar til almenningsálitið heimt-
ar sundslcála og baðstað með
sólbaðsstöðum við Nauthóls-
vík, sumarskóla fyrir börn með
tilheyrandi leikvöllum, baðstað
og garðyrkjusvæðum á hent-
ugum stað'við Skerjáfjörð, og
íþrótta- og leikvelli í Vatns-
mýrinni.
En úr þvi að þetta allt yrði
fengið, þyrfti elcki að kvíða
bæjarbrag eða yfirbragði
æskulýðsins og það jafnvel
ekki þótt eitthvað kynni á að
bjáta um árferði.
Aihugasemd
við viidöm
Herra ritstjóri:
Almennt er það álitið, að
bókmenntagagnrýni sé listgrein
út af fyrir sig og að af henni
megi krefjast eins mikils á
sinn hátt og öðrum greinum
bókmenntanna. Enda þótt þess-
ari kröfu sé sleppt, verður samt
að gera þá lágmarkskröfu til
þeirra, sem finna hjá sér köll-
un til að skrifa um bækur, að
þeir skrifi heiðarlega og eftir
beztu samvizku, því gagnrýni
hefir það tvöfalda hlutverk að
vera höfundinum og hinum al-
rnenna lesanda til leiðbe'ining-
ar.
Fyrir nokkrum dögum birt-
ist í Nýja Dagblaðinu ritdóm-
ur um bók Gunnars M. Magn-
úss, „Brennandi skip“. Höfund-
ur þessa ritdóms, hr. Benja-
mín Kristjánsson, byggir gagn-
rýni sína á bókinni meðal ann-
ars á því, að hún sé frá höf-
undarins hendi ætluð fyrir
böm, en þetta er þvert á móti
sannleikanum og hefir við ekk-
ert að styðjast í bókinni sjálfri.
Því fer fjarri, að við séum
að mælast undan réttmætri
gagnrýni á skáldverkum, vér
gerum aðeins þá kröfu, að
gagnrýnin sé heiðarleg og
byggð á sanngimi. En ritdóma
eins og þennan teljurn vér ó-
réttmæta. Jafnframt viljum
vér taka það fram, að við tök-
um að öðru leyti enga afstöðu
gagnvart þeirri bók, sem hér
er um að ræða.
Um leið viljum vér nota tæki-
færið til að skora á ritstjóra
og aðra blaðamenn að gæta
heiðurs blaða sinna í þessu efni,
og hafa gát á, að þau flytji ekki
almenningi ritdóma, sem virð-
ast byggðir á vísvitandi blekk-
ingum, hvort heldur er til lofs
eða lasts.
Virðingarfyllst,
f. h. Bandalags ísl. listamanna,
rithöfundadeildarinnar.
Halldór Kiljan Laxness.
Friðrik Ásmundsson Brekkan.
* * *
Hvað sem líður skilningi eða
misskilningi sr. B. Kr. á því,
sem gert er að meginatriði í
ofanskráðu máli, þá vita allir,
sem ritdóminn lásu, að hann
er mat á bókinni yfirleitt og að
höfundur færir ýtarlegar til-
vitnanir til stuðnings þeim
endahnút, sem hann ríður á
mál sitt, að bókin sé blátt
áfram gersneydd öllum tilveru-
rétti, sem skáldrit. — Það er
og víst, að sr. B. Kr. stendur
í áliti almennings, og þar á
meðal ýmissa helztu bókaútgef-
enda sjálfra, býsna ofarlega í
metorðastiga þeirra, sem um
bækur skrifa hér á landi.
Hitt er líka víst, að það væri
ástæða til meiri gleði yfir kröf-
unni, sem háttvirtir fulltrúar
„B. í. l.“ gera í upphafi máls
síns um gagnrýni bókmennta,
éf þeir ágætu menn hefðu
vaknað dálítið fyrr til meðvit-
undar um köllun sína í þessu
efni.
En þegar ljósi er varpað á
þá staðreynd, að allan þann
tíma, sem „B. í. 1.“ hefir starf-
að, eða a. m. k. verið til, hefir
það hummað fram af sér fjölda
ritdóma, sem eru hinár ógeðs-
legustu lofgreinar um hinn
versta leir, þá verður, satt að
segja, svo óbragðleg vandlæt-
ingargríman, sem sett er upp
nú, þegar svo skyndilega er
skorað á blöðin „að þau flytji
ekki almenningi ritdóma, sem
virðast byggðir á vísvitandi
blekkingum, hvort heldur er til
lofs eða lasts“, að Nýja Dag-
blaðið a. m. k. telur sig ekki
standa illa að vígi að benda
þeim, er slík ráð gefa, á að líta
í spegil eftir bjálkunum, áður
en þeir þrútna verulega af því
að koma auga á flísamar hjá
öðrum.
Framh. af 1. síðu.
vitneskju um ákvörðun nefnd-
arinnar sendi það bílstjórum í
Vörubílastöðinni Þróttur og
Bifi'eiðastjórafélaginu Hreyfill,
sem er félag fólksbif reiða-
stjóra, bréf, þar sem það stað-
festir fyrra tilboð sitt um 29
aura verð frá dælustöð í
Reykjavík og Hafnarfirði.
Einróma samþykkt
að aflýsa vepkfalli
Kl. 12 á miðnætti hófst á
Hötel Borg sameiginlegur fund-
ur Vörubílastöðvarinnar Þrótt-
ur, Bifreiðastjórafélagsins
Hreyfill og Vörubílastöðvar
H afnarfj arðar.
í ræðum manna kom fram
mjög einróma álit um að hrund-
ið væri öllum átyllum til að
lialda uppreisninni áfram. Ekki
gátu Jakob Sigurðsson og Mey-
vant Sigurðsson að fullu setið
á skaðsemdarfýsn sinni og mun
hafa þótt lítið til koma að viti
bornir menn skyldu leggja alla
valdadrauma þeirra í rústir.
Kl. 2 eftir miðnætti var
gengið til atkvæða og sam-
þykkt í einu hljóði að aflýsa
verkfallinu kl. 6 í morgun.
Með þessu er lokið þriðju
uppreisnastilrauninni, sem
íhaldið gerir á þessu ári.
Verðlækkun
á benzíni
Olíufélögin Shell og' B. P.
munu hafa ákveðið að hækka
verð á benzíni um 5 aura frá
1. jan. En verðlækkunin kemur
þó væntanlega aftur fram á
benzíni almennt, þegar Nafta
h.f. hefir byggt geymi og
flutt verulegar birgðir hingað
til lands.
Framh. af 1. síðu.
Þótt oft hafi stærri og fleiri
hús brunnið, eiga nú fleiri um
sárt að binda af völdum elds-
ins en dæmi eru lengi til.
Hlýtur þetta að verða til varn-
aöar frá því að hafa kerti á
jólatrjám i slíku fjölmenni og í
slíkum eldgildrum, að kalla má.
játar ábeinlínia
ófarir Itala
London kl. 17,00 30./12. F0.
Mussolini játaði í dag í
fyrsta sinn að nauðsynlegl
mundi að gera hlé á sókninni
í Abessiníu.
ítalska ráðuneytið átti um
þetta sérstakan fund í dag, og
að honum loknum var gefin út
opinber tilkynning, þar sem
skýrt er frá því, að slíkt hlé
á sókninni sé óhjákvæmilegt,
aðallega til þess, að unnt sé að
koma skipulagi á samgöngur.
Þá segir í tilkynningunni að í
hverjum hemaði, og einkum í
nýlendustyrjöld, komi ávalt
tími, þegar það sé óhjákvæmi-
leg nauðsyn, að gera lát á sókn-
inni.
Á ráðuneytisfundinum í dag’
gerðist það einnig, m. a., að
fjármálaráðherrann tilkynnti,
að greiðsluhalli myndi verða á
fjárlögum ársins, 1934—35,
sem svaraði 33 milljónuin ster-
lingspunda, og væri það vegna
hernaðarútgjalda. En í áætlun
um útgjöld ársins 1936—1937
er ekki minnst á hernaðarút-
gjöld, önnur en vaxtagreiðslur.
Hagfræðingar hafa reiknað
út, að ófriðurinn í Abessiníu
muni kosta Ítalíu allt að
8.860.000 kr. á dag.
Messur í dag: í dómkirkjunni
k). 6 e. h. sr. Bjarni Jónsson. í
fríkirkjunni kl. 6 e. h. sr. Árni
Sigurðsson. í Hafnarfjaröarkirkju
kl. liy4 e. 'h. (aftansöngur) sr.
Garðar porsteinsson. í fríkirkj-
unni kl. 11 e. h. sr. Jón Auðuns.
Messur á nýársdag. í dómkirkj-
unni kl. 11 f. h. sr. Bjarrn Jóns-
son og kl. 5 e. h. sr. Friðrik Frið-
riksson. í fríkirkjunni kl. 2 e. h.
sr. Árni Sigurðsson. f Hafnarfjarð-
arkirkju kl. 2 e. h. sr. sr. Garðar
porsteinsson. í fríkirkjunni í
Hafnarfirði kl. 11 f. h. sr. Jón
Auðuns. í Kálfatjarnarkirkju kl. 5
e. h. sr. Garðar porsteinsson.
Veðurspá: Norðaustan gola og
léttskýjað.
Hjónaband. Á aðfangadag jóla
voru gefin sarnan í hjónaband
ungfrú Arnbjörg Davíðsdóttir og
Hörður B. Loftsson vélamaður.
Kennsla í íþróttaskólanum hefst
aftur 8. janúar.
Hjónaband. Síðastliðinn laugar-
dag' voru gefin saman i hjónaband
ungfrú Lilja porkelsdóttir og Jó-
hannes Kárason. Heimili ungu
lijónanna er á Grettisgötu 28. Sr.
Bjarni Jónsson gaf þau saman.
Kona bráðkvödd
Kl. 41/2 í gær síðdegis, varð
bráðkvödd frú Sveinbjörg, kona
Þorsteins Gunnarssonar, Bar-
ónsstíg 81, sem lengi var
stefnuvottur hér í bænum. Hné
hún niður á götunni, og var
þegar flutt á sjúkrahús Hvíta-
bandsins, en var látin, er þang-
að kom.
Næturlæknir í nótt: Ólafur
Helgason Ingólfsstr. 6. Sími 2128.
Aðra nótt: Árni Pétursson, Skála.
Sími 1900. Föstudagsnótt: Bjöm
Gunnlaugsson. Sími 2232.
Næturvörður þessa viku í
Keykjavíkurapóteki og Lyfjabúð-
inni Iðunn.
Togararnir Gyllir og pórólfur eru
að liúa sig á vciðar.
Skipafréttir. Gullfoss er á leið til
Iíaupm.hafnar frá Reylcjavík.
Goðafoss er i Reykjavík. Dettifoss
or á leið til Hamliorgar frá Vest-
nuumaeyjum. Brúarfoss er í
Kaupmannahöfn. Lagarfoss er í
Kaupmannahöfn. Selfoss er í
Reýkjavík.