Tíminn Sunnudagsblað - 15.04.1962, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 15.04.1962, Blaðsíða 20
þarna einn eítir hjá drottningunni, seni ekki var komin á fætur. Þreif ég þá nærfötin mín og fór í skyrtuna, en ég skildi ekkert í því, að ég ætlaði aidrei að komast í brókarfjandann. En þegar ég fór að gá að betur, þá var þetta brókin drottningarinnar, xem ég hafði tekið i ógáti. Og þá hló drottningin. Síðan klæddi ég mig i snatri og fór, en áður en ég fór af stað, hitti ég kónginn, og vildi hann ekki sleppa mér eða láta mig fara, fyrr en ég hefði íengið eitthvað gott -ín ég kvaðst ekki mega það, því að þá kæmi ég of seint á verkstæðið". —m— F@rdæini Ásgeirs bónda Maður hét Torfi Pétursson og bjó i Botni í Mjóafirði vestra. Hann átti dóttur, sem Guðrún hét, og eignaðist hún barn með Ásgeiri bónda á Látr- 'tan, er víða kom við sögu í kvenna- má3um. Torfi þóttist allmjög af dóttur sinni -jg iaidi hana kvenkost góðan. Tíndi haan margt til, henni til hróss. Með- al annars var eftir honum haft: --- Guðrún dóttir — það er nú •iúika, sem kann að koma ull í fat og ajjólk í mat. Og ekki þótti Ásgeiri Vmda minnkun að því að leggjast með henni. Stórfeginn faóir — Ekki get ég nógsamlega þakk- að yður, prestur minn, fyrir mig og rolna, sagði barnmargur bóndi, þegar búið var að ferma yngsta barn hans. — Svo stórfeginn er ég, að þau skuli nú öll, ormarnir þeir arna, vera komn ir undan guðs og manna fótum. Samúð meS breyskum Séra Sigfús Finnsson í Hofteigi var mikill drykkjumaður. í hans tíð var á Jökuldal kona í niðursetu, Þórdís Pétursdóttir að nafni. Hún var rugluð nokkuð, og var ein árátta hennar, að hún vildi jafnan vera til altaris í Hof- teigskirkju, ef þar var farið með sakramenti. Þreif hún einhverja flík, sem hendi var næst, kastaði yfir herð ar sér og skálmaði inn að grátunum. Einhver hafði orð á því við prest, að hann ætti að hundsa kerlinguna og venja hana af þessum kenjum. — O-jæja, gæzkan, svaraði prest- ur og brosti við. — Ekki get ég verið að fyrirmuna henni þess, aumingjan- um. Hana langar í víntárið, þegar hún veit, að farið er með það. „Hana langar í tárið" Heigi Kristinsson- LJÓÐ 1. Ma'&urinn gœddist viti svo hann fengí þekkt takmörk sin. Veig gerðist örvandi, ástum veittist algleymi, svo kalsár hversdagsleikans yrðu honum ekki banvcen. 2. Við getum mœlt smœg sem augu oklcar fá ei greint, og vig getum kvarðað Ijósárum veg geislans um rúmið. En aldrei fáum við mœlt eða kvarðað bilið milli gleði og sorgar. 3. Eg og náunginn horfðum á syegilmynd mína og ég var stórum meiri cg glœstari í eigin augum en hans. En það raskaði þó ekki ró minni. þvl ég vissi, að við báðir erum rangeygðir, svo hvorugur fékk séð mína raunverulegu mynd. Eðlileg spurning Það bar til, að blað eitt flutti and- látsfregn manns, sem raunar var bráð lifandi. Þegar maðurinn hafði lesið andlátsfregnina, brá hann sér í næstu íbúð, þar sem sími var, hringdi til kunningja síns og hóf mál sitt á þessa leið: — Hefur þú séð það í blaðinu, að ég er dauður? Við þetta ávarp kom fát á kunningj ann. — Já, ég sá það, svaraði hann. — Hvaðan talarðu? loð T í M I N N SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.